Skessuhorn - 19.04.2006, Qupperneq 2
2
MIÐVIKUDAGUR 19. APRIL 2006
Sam-
dráttur í
lönduðum
afla
I mars var landað í höfnum á
Vesturlandi samtals 21.217
tonnum af sjávarfangi. Er það
tun 9,7% samdráttur frá sama
mánuði í fyrra þegar 23.514
tonnum var landað. Mestu mun-
ar að í fyrra var landað 13.987
tonnum af loðnu en aðeins 259
tonnum í ár. I fyrra var hins veg-
ar engum kolmunna landað en í
ár var landað 10.894 tonnum. Af
öðrum tegundum má nefna að í
ár var landað 5.124 tonnum af
þorski en á sama tíma í fyrra var
landað 5.294 tonnum. Fyrstu
þrjá mánuði ársins var landað
45.301 tonni af sjávarfangi á
Vesturlandi en á sama tíma í
fyrra hafði verið landað 55.382
tonnum. Samdrátturinn á milli
ára er því 18,2%. Mestu munar
um minnkandi loðnuafla. I fyrra
var landað 31.220 tonnum en í
ár var aflinn 9.929 tonn.
HJ
Til minnis
Við minnum á útgáfukynn-
ingu í Fossatúni kl. 20.30 ann-
að kvöld. Þar mun Bjarni Guð-
mundsson á Hvanneyri kynna
nýútkominn hljómdisk sinn
„Að sumarlagi". Á honum eru
frumsamin lög við Ijóð Guð-
mundar Inga Kristjánssonar
og fleiri.
Veðfyrhorfivr
Á sumardaginn fyrsta er gert
ráð fyrir hægviðri og skýjuðu
veðri. Hiti verður á bilinu 1-6
stig. Á föstudag gengur í all-
hvassa suðaustanátt með
slyddu, en síðar ricjningu enda
hlýnar í veðri. A laugardag
lægir og dregur úr úrkomu.
SpMrnin^ viMnnar
í síðustu viku voru lesendur
spurðir hvort þeir hygðu á
ferðalög um páskana. Tæp-
lega 80% þeirra er svöruðu
sögðust ætla að vera heima,
4% hugðu á ferðalög erlendis
og 16% svarenda ætluðu í
ferðalög innanlands.
í næstu viku spyrjum við:
„ Verður sumarið
sólríkt og gott"
Svaraðu án undanbragða
á www.skessuhorn.is
Vestlendinjnr
viknnneir
Vestlendingar vikunnar eru
leikmenn og aðstandendur
körfuknattleikslið Skallagríms,
sem varð í öðru sæti íslands-
mótsins í körfuknattleik. Bar-
átta þeirra og árangur vakti
aðdáun um allt land.
Nýr björgunarsveitarbíll í Olafevík
Björgunarsveitin Sæbjörg í
Olafsvík hefur fest kaup á nýjum
björgunarsveitabíl. Bíllinn mun
leysa af hólmi Ford Econoline bif-
reið sem sveitin seldi á dögunum en
sá bíll hafði þá þjónað sveitinni frá
árinu 1983. Nýi bíllinn er af gerð-
inni Ford Excursion og er árgerð
2006. Bíllinn er átta manna bíll en
ef í honum eru sjúkrabörur þá er
samt sem áður sæti fyrir 5 menn.
Bíllinn er innfluttur af IB bílum á
Selfossi og mun verðið á bílnum
vera 3,8 milljónir eftir að sveitin
fékk niðurfellingu á aðflutnings-
gjöldum og virðisaukaskatti.
Bfllinn fer í breytingar í sumar og
er gert ráð fyrir að þær breytingar
muni kosta u.þ.b. 3 milljónir eftir
að virðisaukaskattur hefur verið
endurgreiddur af þeim. Samtals er
Sæbjörg því að greiða 6,8 milljónir
fyrir bílinn en
bíll af þessari
gerð kostar 6
milljónir hjá
u m b o ð i n u ,
óbreyttur.
Eins og áður
segir þá mun
bíllinn fara í
breytingar í
sumar og verður
hann þá m.a.
hækkaður upp
og settir á hann
kantar svo að
hægt verði að
koma undir hann 46“ dekkjum,
settur verður skriðgír í bflinn sem
og annar búnaður sem nauðsynleg-
ur er í bfla sem eiga að geta farið
allt í snjó og á jöklum. I bflnum er
V8 díselvél sem skilar 325 hestöfl-
um og ekki veitir af þar sem að
þetta er stór og þungur bfll.
A næstunni mun björgunarsveit-
in fara í að afla fjár til þessa verk-
efhis.
Af snb.is/ Ljósm: Alfons Finnsson
Prestssetrasjóður sýknaður af
kröfii sóknarprestsins á Saurbæ
Héraðsdómur Vesturlands hefur
sýknað Prestssetrasjóð af kröfum
sóknarprestsins á Saurbæ á Hval-
fjarðarströnd sem taldi að skaða-
bætur, vegna lagningu háspennu-
línu, að fjárhæð rúmar 9,3 milljón-
ir króna ættu að renna til sín í stað
sjóðsins.
Forsaga málsins er sú að sóknar-
presturinn hefur setið á Saurbæ frá
miðju ári 1996 og frá þeim tíma
hefur hann verið umráðamaður eða
ábúandi jarðarinnar. Þrátt fyrir ít-
rekaðar óskir um að gengið yrði frá
samningi um afnot hans af jörðinni
hafi það ekki verið gert fyrr en í
ársbyrjun 2001. Síðar hafi Lands-
virkjun tekið ákvörðun um að
leggja Sultartangalínu 3 um land
jarðarinnar og einnig að breyta
legu Brennimelslínu 1 á jörðinni.
Matsnefnd eignarnámsbóta hafi
ákveðið árið 2004 að bætur skyldu
koma í staðinn að fjárhæð rúmar
9,3 milljónir króna.
Taldi sóknarpresturinn að bæt-
urnar skyldu, samkvæmt samningi,
renna til sín en stjórn Prestssetra-
sjóðs taldi að bæturnar skyldu
renna í fymingarsjóð prestsseturs-
ins til viðhalds og endurbóta á því.
I kjölfarið höfðaði sóknarprestur-
inn skaðabótamál. Taldi hann að
með lagningu línunnar hefði skert
nýtingarmöguleika hans á jörðinni
og þar með möguleika hans til
tekjuöflunar. Vísaði hann meðal
annars til þess að skamkvæmt aðal-
skipulagi hafi verið gert ráð fyrir
byggingu frístundabyggðar og
hefðu tekjur af slíkri uppbyggingu
komið í hans hlut. Bygging há-
spennulínunnar hefðu möguleika á
slfkri uppbyggingu. Þá vísaði hann
meðal annars til samkomulags
sjóðsins við sóknarprestinn í Val-
þjófsstað í Fljótsdal en hann fékk á
sínum tíma helming þeirra bóta er
komu í hlut jarðarinnar vegna
Kárahnjúkavirkjunar. Prestssetra-
sjóður kvaðst hins vegar aldrei hafa
samþykkt fyrir sitt leyti að jörðin
yrði nýtt til frístundabyggðar með
sölu eða leigu á lóðum úr henni.
I niðurstöðu héraðsdóms segir að
ekki hafi verið telft fram neinum
sönnunargögnum um að hann hafi
orðið fyrir tjóni af lagningu línunn-
ar um landið og því beri að sýkna
Prestsetrasjóð af kröfum sóknar-
prestsins. Þá var sóknarprestinum
gert að greiða sjóðnum 250 þúsund
krónur í málskostnað. Dóminn
kvað upp Símon Sigvaldason hér-
aðsdómari.
HJ
Unnið að lagfæringum
• x n» / • • r *x / n i*
við Sjominjasamið a Sandi
Nú er unnið að nokkrum breyt-
ingum á Sjóminjasafninu í Sjó-
mannagarðinum á Hellissandi. Að-
gengi að skemmunni þar sem ár-
skipið Bliki og fleira er varðveitt og
er til sýnis verður lagfært og gert
auðvelt fyrir hjólastóla að komast
þar um. Einnig verður snyrtiað-
stöðunni breytt í sama augnamiði.
Þá er verið að lagfæra aðstöðu safn-
varðar, bæði til að þjóna gesmm
betur svo og að bæta vinnuaðstöðu.
Stjórn safnsins vinnur að undir-
búningi að byggingu annarrar
skemmu á safnsvæðinu. Þar er fyr-
irhugað að varðveita og sýna ára-
skipin tvö sem safnið á. Það er át-
tæringar sem báðum var róið heðan
frá Hellissandi í áratugi, til ársins
1965. Bliki var smíðaður árið 1826
og Olafur Skagfjörð um 1860.
Vænst er að bygging þessa nýja
húss hefjist síðari hluta sumars í ár.
MM
Stykkishólmsbær styrkir
byggingu reiðskemmu
Svo virðist sem mikið kapphlaup
sé framundan í byggingu reiðhalla
eða reiðskemma víðs vegar um land
í kjölfar ákvörðunar ríkisstjórnar-
innar um styrk til byggingar slíkra
húsa í öllum landshlutum. Eins og
ff am kemur í annarri ffétt í Skessu-
horni í dag hefur bæjarstjórn
Grundarfjarðar samþykkt stuðning
við slíka byggingu þar í bæ og í síð-
ustu viku samþykkti bæjarráð
Stykkishólms styrk við slíka bygg-
ingu í kjölfar erindis ffá Hesta-
mannafélagi Stykkishólms
(HEFST).
I samþykktinni segir að styrkur
verði veittur að fjárhæð 15 milljón-
ir króna til byggingar á reið-
skemmu á svæði félagsins við Fáka-
borg. I þeirri fjárhæð eru gatna-
gerðargjöld innifalin. Bæjarfélagið
setur nokkur skilyrði fyrir styrk-
veitingunni meðal annars að styrk-
ur að upphæð 10 milljónir króna
komi til byggingarinnar ffá Land-
búnaðarráðuneytinu og aðrar fjár-
mögnunarleiðir skili 5 milljónum
króna. Styrkur bæjarins verður
greiddur með jöfnum greiðslum á
fimm árum ffá árinu 2007. HJ
Gleðskapur og
þónokkur ölvun
SNÆFELLSNES: í nógu var að
snúast hjá lögreglunni á Snæ-
fellsnesi um liðna páskahelgi.
Eitthvað virtist ökumönnum
liggja á heim úr páskaffíinu þar
sem 20 voru teknir fyrir of hrað-
an akstur, þar af einn sem náðist
á 132 km/klst þar sem leyfilegur
hámarkshraði var 90 km/klst.
Einn var tekinn fyrir ölvun-
arakstur og utaníkeyrslu í
Grtmdarfirði og við nánari leit
fannst lítilræði af fíkniefhum í bfl
mannsins. Talsverður rúntur var
hjá lögregluxmi aðfararnótt laug-
ardags því þónokkuð var um
gleðskap. Olvunar og óspekta
gætti helst í Grundarfirði en
annars fór skemmtun að mestu
þokkalega fram þrátt fyrir mikla
ölvun. -bg
Raftasýnbigu
sebikar
BORGARNES: Árlegri bif-
hjólasýningu Raftanna í Borgar-
firði, sem vanalega fer ffam sum-
ardaginn fyrsta í Iþróttamiðstöð-
inni í Borgarnesi, hefur verið
seinkað. Sýningin verður að
þessu sinni haldin laugardaginn
6. maí á sama stað og venjulega.
-mm
Hjartastuðtæki í
lögreglubílmn
BÚÐARDALUR: Fyrir
skömmu var lögreglunni í Búð-
ardal afhent hjartastuðtæki sem
komið hefur verið fyrir í lög-
reglubifreiðinni. Það var embættd
Ríkislögreglustjóra sem útvegaði
tækið og að sögn Jóhannesar
Björgvinssonar aðalvarðstjóra er
það kærkomið. Sem kunnugt er
tókst Jóhannesi að h'fga við mann
effir hjartastopp fyrir skömmu.
Nýja tækið hefði auðveldað það
starf mikið. -hj
Reykhrebisi-
búnaður
kominn í lag
GRUNDARTANGI: Glöggir
vegfarendur sem leið áttu um
Hvalfjörð tóku efrir því á dögun-
urn að mengun ffá Jámblendi-
verksmiðjunni á Grundartanga
var meiri en venjulegt er. Að
sögn starfsmanns tæknideildar
fyrirtækisins varð bilun í reyk-
hreinsibúnaði en viðgerð er nú
lokið. Það er ekki aðeins að
mengun aukist þegar reyk-
hreinsibúnaðurinn bilar því um
leið minnka tekjur fyrirtækisms
því rykið sem hreinsað er úr út-
blæstrinum er selt úr landi. -hj
Vegrið bjargaði
frá veltu
DAI.IR: Okumann og farþega
sakaði ekki þegar biffeið var ekið
á vegrið við brúna á Hvolsá í
Saurbæ á laugardaginn. Tahð er
að ökumaðurinn, sem var við æf-
ingaakstur, hafi misst stjóm á
bflnum er hann lenti í lausamöl.
Lenti bfllinn á vegriði sem kom
um ieið í veg fyrir að bfllinn
hafnaði í ánni.
Átta ökumenn vom stöðvaðir
fyrir of hraðan akstur í umdæmi
lögreglunnar í Búðardal um
páskana. Sá sem hraðast ók var á
124 km hraða.
-hj