Skessuhorn


Skessuhorn - 19.04.2006, Qupperneq 10

Skessuhorn - 19.04.2006, Qupperneq 10
10 MIÐVIKUDAGUR 19. APRÍL 2006 okltMVnuhJ! Fjölbreytt þjónusta jyrir aldraða Fjárhagsstaða Akranesbæjar hefur aldrei í sögu bæjarfélagsins verið eins sterk og hún er í dag. Þökk sé þeim sem hafa staðið við stýrið og stjómað undanfarin ár. Þessi sterka staða gerir okkur kleift að veita bæjarbúum fyrirmyndar þjónustu á öllum sviðum. Við framsóknarmenn leggjum mikla áherslu á að eldri borgarar séu ánægðir með þá þjónustu sem þeir fá hér á Akra- nesi og viljum að málefni þeirra hafi forgang. Hvað er það sem aldraðir telja helst að þurfi að bæta og hvað er það sem þeir telja brýnast að huga betur að? Flestir nefha heimaþjónustu, heimahjúkrun og meira öryggi. Það er vilji okk- ar ffamsóknarmanna á Akranesi að samþætta og samræma heimaþjónustu Akraneskaupstaðar við heimahjúkrunina sem veitt er hjá Sjúkrahús- inu og heilsugæslustöðinni á Akranesi (SHA). Mikilvægt er að það þjónustustig sem veitt er taki mið af þörfum og ástandi hins aldraða og að þjónustan sé veitt allan sólarhringinn. Með þessu móti má lengja þann tíma sem aldraðir geta búið heima hjá sér en það er auðvitað á- kjósanlegast. Bæjaryfirvöld á Akranesi undirbúa nú í samvinnu við SHA að með ffamangreind- um hætti skuli unnið og að það skufi gert hratt og vel. Það er ljóst að á Akranesi mun þörfin fyrir fjölgun stoffnmarrýma ráðast verulega af því hve vel tekst til í þessum efhurn. A Höfða er glæsilega staðið að málum og nú stendur fyrir dyrum að stækka húsnæðið, þarfir heilabilaðra þurfa að hafa þar forgang. A næstu misserum munu hefjast framkvæmdir á Höfðasvæðinu við 12 íbúða hús fyrir aldraða. Svo það er óhætt að segja að margt er að gerast í þessum málaflokki. Fjölbreytni í húsnæðismálum aldraðra er nauðsynlegt, þar þarf að taka mið af aðstæðum hvers og eins. Nýlega hefur skipulags- og um- hverfisnefnd Akraneskaupstaðar ákveðið að auglýsa deifiskipulagstillögu um húsnæði sem afmarkast af Kirkjubraut, Háholti og Heiðar- braut. Við val á þeirri staðsetningu var reynt að taka mið af þörfum aldraðra hvað varð- ar stærð á íbúðum, nálægðar við þjón- ustu s.s. sjúkrahúsið, apótekið og verslunar- kjama. Tillögur era uppi um að íbúðirnar verði að stærstum hluta sjálfseignaríbúðir en einnig að hluta leiguíbúðir. Einnig er fyrirhugað að í þessu húsnæði verði starfsstöð fyrir félagslega heimaþjónustu og heimahjúkrun auk þess sem æskilegt er að stór hluti af félagstarfi eldri borg- ara á Akranesi flytji í húsið. Helsti kostur þjón- ustuíbúða sem þessara er að íbúar eiga þess kost að velja sjálfir hversu mikla þjónustu þeir kjósa auk þess sem íbúum er tryggt fullnægjandi ör- yggi og félagsleg tengsl. Mikilvægt er að vel takist til í allri þjónustu við aldraða. Að þeim standi til boða fjölbreytt úrræði í húsnæðismálum og þjónusta ekki síst til að koma í veg fyrir félagslega einangrun til að tryggja fjárhaglegt sjálstæði og aukið öryggi í daglegu lífi. Nýskipaður heilbrigðis- og trygg- ingamálaráðherra, Siv Friðleifsdóttir mun vera með opinn fund 2. mai n.k þar sem ffambjóð- endur Framsóknarflokksins munu sitja fyrir svörum og kynna stefhumál sín. Það er von mín að sá fundur verði fjölmennur og þar láti menn ekki sitt eftir liggja, viðri skoðanir sínar og komi með gott innlegg sem nýtist málaflokknum til ffamtíðar. Enginn ábyrgur stjómmálamaður getur lofað öldruðum áhyggjulausu ævikvöldi, en það er hægt að lofa því að leggja sig allan ffam um að aðstæður allar verði sem ákjósan- legastar. Með kveðju, Guðni Tryggvason, Höfundur skipar 3. sæti á lista Framsóknarflokksins á Akranesi. Sterkara samfélag - allir með Undirritaður hefur lengi staðið vaktina fyrir Skagamenn. Eg hef átt því láni að fagna að njóta trausts til að leiða bæjarfé- lagið í samfelld átta ár með ágætu sam- starfsfólki og á þeim tíma tekið margar afar örlagaríkar ákvarðanir sem bæjarbúar njóta nú góðs af og munu njóta um ókom- in ár. Og enn er ég beðinn að taka slaginn. Það geri ég glaður og bjartsýnn sem jafn- an fyrr, því ekkert er eins skemmtilegt og að koma góðum málum til leiðar og sjá hugmyndir verða að veruleika. Skaga- menn státa nú af því að bærinn sé rekinn af miklum metnaði og sé fjárhagslega mjög öflugur eins og ársreikningurinn fyr- ir 2005 sannar, þjónusta á öllum sviðum sé góð og ódýr. Skólarnir okkar skari fram úr og uppbyggingin blasi við hvert sem litið er. Það er vissulega gaman að geta horfi um öxl og hafa tekið þátt í þessu. Grund- völlurinn er traustur til þess að byggja á nýja sigra. Næsta kjörtímabil verður spennandi tími þar sem ný viðhorf og ferskar hugmyndir fá að njóta sín ef Sam- fylkingin fær að vera í fararbroddi í bæjar- málunum. Margt af því sem sveitarfélög fást við er bundið í lögum og reglugerðum og á að tryggja íbúunum grunnþjónustu, en svig- rúmið á Akranesi til að bæta um betur er svo sannarlega fyrir hendi, þökk sé ffábær- um árangri í rekstri bæjarfélagsins. Mis- mun á búsetuskilyrðum milli sveitarfélaga má meðal annars kenna ólíkri fjárhags- stöðu. Akurnesingum er hins vegar ekkert að vanbúnaði og ég legg höfuðáherslu á að bæta búsetuskilyrðin enn frekar á næsta kjörtímabili, auka þjónustu við alla aldurs- hópa, eldri borgara, barnafjölskyldur og trnga fólkið og lækka þjónustugjöld. A lista Samfylkingarinnar er fólk með ferskar og fram- s æ kn a r h u g - myndir, ungt fólk sem vill vinna af krafti og heiðarleik í þágu góðs málstaðar. Ekkert framboð á Akranesi býður fram jafn glæsilegan hóp nýrra frambjóðenda. Þar fer saman fjölþætt menntun og marg- háttuð reynsla auk hugmyndaauðgi, bjart- sýni og skemmtilegheita. Að sinna störf- um fyrir bæinn sinn á að vera gefandi og gaman og krafturinn og sköpunargleðin eru ríkjandi í hópnum. Skagamenn ættu því ekki að vera í vanda að velja sér fólk til forystu í vor. Kosningar snúast um framtíðina, lífs- kjörin og það sameiginlega umhverfi sem við viljum búa okkur. Þær snúast um mál- efni og fólk. Allir flokkar þykjast allt í einu núna vera samfélagssinnaðir. Hjá okkur í Samfylkingunni er það grundvallaratriði, lífsviðhorf en ekki kosningamál. Fram- bjóðendur Samfylkingarinnar eru félags- sinnar í huga og hjarta. Það gerir nefni- lega gæfumuninn. Þess vegna erum við ör- ugglega best í því að vinna saman að heild- arhagsmunum, velferð og virku lýðræði og tryggja jöfnuð í samfélaginu. Við látum öðrum eftir einstaklingshyggjuna, stjórn- lyndið og græðgisvæðinguna. Sveinn Kristinsson, formaður Bœjarráðs Akraneskaupstaðar. 1/tituiht’uuó Bráðgreindur og bjútífúl - og bragðar það ekki lengur Haukur Júlíusson skrifaði mér og öðr- um lesendum í síð- asta blaði og upplýsti okkur um vísuna „Ideologiskt er það dautt“ og einnig um vísur um Jámblendi- verksmiðuna sem auglýst var eftir upp- lýsingum um í síð- asta þætti. Hafi þessi skrif farið ffam hjá einhverjum vísa ég til þeirra þar og tel mig ekki hafa neinu þar við að bæta nema þakklæti til Hauks fyrir upp- lýsingarnar og falleg orð um mig sem mér finnst ég svosem ekkert hafa til tmnið. Ennþá lifir stakan góðu lífi efdr því sem best er vitað og vonandi ástæðulaust að rifja upp vísu Kristjáns Amasonar sem harm orti eftir að kynnt höfðu verið úrslit ljóðasam- keppni: Rímuð Ijóð eru gamalla manna gjamm og geta ei lengur talist lifandi auður. jarðarförin hefur nú farið fram í fullri óþökk þess er talinn var dauður. Siglfirðingar tveir vel hagmæltir stunduðu það nokkuð að viðra hunda sína í fjörunni og létu þá gjarnan hvor annan heyra það nýjasta af ffamleiðslunni. Einhverntíma stakk Bald- ur Þór Bóasson eftirfarandi að Sigurði Frið- rikssyni: Ennþá virðist karlinn kúl, konu sinni fengur, bráðgreindur og bjútífúl og bragðar það ekki lengur. Og til baka kom þessi: Alla tíð frá æsku var ekki byggt á sandi. Maðurinn eins og múví-star mógúll sjarmerandi. Þetta hefur greinilega verið glæsimenni sem um var ort enda ekki ástæða til að yrkja um okkur hina. Effir myndum að dæma hef- ur Bjarni Jónsson ffá Gröf verið heldur myndarlegur kall en einhverntíman orti hann að vorlagi: Lýstur bjarma á lífsins spor, Ijóssins hvarmar skína. Breiðir arma indœlt vor yfir harma mína. Vorið var lengi aðaltími búferlaflutninga og er karmske enn. Eihverntíma munu þeir hafa verið að aðstoða við flutninga, Agúst Halblank og Björn Axfjörð Sigfússon þeg- arAgúst lagði eftirfarandi fyrripart fyrir Bjöm: Nú í bala bera skal brothœtt talið glingur. Björn svaraði að bragði: Fram til dala fljóð við hal fagurgala syngur. Þorsteinn Jakobsson ffá Hreðavatni eða „Steini Hreða“ var maður ágætlega hag- mæltur og fluggreindur en sá ekki endilega nauðs)m þess að elta skoðanir annarra í hverju máli. Hann mun hafa verið í vinnu- mennsku eða kaupavinnu norður í Skagafirði þegar eftirfarandi vísa varð til: Gullhlaðseik með brennheitt blóð bregður á leik í hjöllum. í mér kveikir girndarglóð Gunna á Reykjavöllum Það hefur hent margan góðan mann bæði fyrr og síðar að verða fótaskortur á tungunni þó mönnum sé vissulega mis hnotgjamt þar sem annarsstaðar. Sigvaldi Jónsson Skagfirð- ingaskáld orti um góðbónda einn og mikinn sómamann í nágrenni sínu, sem var mjög mismælagjarnt: Oft ég hlœ að orðum Steins, er það Ijótur siður. En hvenær fæðist annar eins axarskaftasmiður. Líklega hefur það ekki verið sá hinn sami þó það sé svosem ekki útilokað er sagði svo ffá ferðalagi sínu í samantekt einhvers til- heyranda: Eg það segi aldrei satt að áin fór í sleðann. Illa Skjóni af mér datt, ég hljóp kyrr á meðan. Það var á sínum tíma töluvert umdeilt hvort atómljóð væri ljóð eða bara texti og sýndist sitt hverjum í því máli sem fleirum (og sýnist jafnvel enn). Einhverntíman á upphafstímum atómskáldskaparins orti Bjarni ffá Gröf: Atómskáldin eru hraust, andinn frjór og sprækur. Endast líka endalaust allar þeirra bœkur. Það er nú svo að ekki er við að búast að við vesælir menn endumst endalaust eins og bækur atómskáldanna enda kannske meira blaðað í hausunum á okkur. A seinni ámm sínum kvað Arni Ola blaðamaður: Fyrrum bragar bjó ég klið best sem haga sá ég, en nú jagast Elli við alla daga má ég. Á líkum nótum orti Theódór Einarsson: Fyrr ég gat á árum ort eins og best ég vildi. Nú er ég eins og kreditkort sem komið er úr gildi. Margir hafa borið ffam í vísu ósk sína um brotthvarf sitt úr þessari jarðvist og hvernig þeir atburðir mættu best gerast. Björn Pét- ursson ffá Sléttu orti: Lífdaga þá linnir glaum létt á jarðarsveimi, berðu mig í blíðum draum burt úr þessum heimi. Sá ffægi hesta og gleðimaður, Jón Ásgeirs- son á Þingeyrum virðist ekki hafa verið of sáttur við lífið þegar hann kvað: Ég vil deyja undir eins öllu svo ég gleymi. Það er allt til mæðu og meins mér í þessum heimi. Við skulum svo ljúka þessum þætti með þessum ágætu vísum effir Eðvald Halldórs- son á Stöpum á Vatnsnesi: Degi lýkur, glitrar grund, gulli flíkar blœrinn. Tregi víkur, styttir stund stökuríkur blœrinn. Lúinn sest við liðinn dag, Ijós í vestri skína. Sé nú best við sólarlag suma bresti mína. Með þökk fyrir lesturinn, Dagbjartur Dagbjartsson Refsstöðum 320 Reykholt S435 1367 og 849 2715 dd@simnet.is

x

Skessuhorn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.