Skessuhorn


Skessuhorn - 17.05.2006, Page 1

Skessuhorn - 17.05.2006, Page 1
VIKUBLAÐ ÁVESTURLANDI 20. tbl. 9. árg. 17. maí 2006 - Kr. 400 í lausasölu Hjallastefiian á Bifröst? Viðræður hafa að undanförmi staðið yfir milli Borgarbyggðar og Hjaliastefnunar ehf. ásamt Viðskiptaháskólanum á Bifröst um að Hjallastefhan taki yfir reksmr leik- skólans Hraunborgar á Bifröst. Ef að þessu verður mun Hjallastefnan taka við rekstri leikskólans við upphaf næsta skóla- árs. Inntak Hjallastefnunnar er jafhréttis- uppeldi, jákvæðni, agi, skapandi hugsun, félagsþjálfun og einstaklingsstyrking og rekur fyrirtækið nú þegar leik- og grunn- skóla í Garðabæ, tvo leikskóla í Hafnar- firði og einn leikskóla á Akureyri. Að sögn Asthildar Magnúsdóttur, for- stöðumanns firæðslu- og menningarsviðs Borgarbyggðar hafa þessar hugmyndir fengið góð viðbrögð og telur hún að þarna verði stigið fr amfaraskref í leikskólamálum sveitarfélagsins. Innan tíðar mun Margrét Pála Olafsdóttir ffamkvæmdastjóri Hjalla- stefnunnar koma og kynna starf Hjalla- stefnunar fyrir starfsfólki leikskólans og foreldrum leikskólabama. Asthildur segir húsnæði leikskólans á Bifröst henta vel fyrir HjaUastefhuna, en vegna mikillar fólksfjölgunar á Bifröst stefnir í að stækka þurfi húsnæði skólans, jafnvel fyrir næsta skólaár. Ef að þessu samstarfi verður mun leik- skólinn Hratmborg vera fimmti leikskól- inn sem að Hjallastefan ehf. rekur. Páll S. Brynjarsson bæjarstjóri Borgarbyggðar telur þessar hugmyndir góðar og ef gera eigi breytingar á rekstri leikskólans sé rétti tíminn til þess þar sem núverandi leik- skólastjóri láti brátt af störfum. A kosningafundum nú nýlega hafa Framsóknarmenn í nýju sveitarfélagi mót- mælt því sem þeir kalla ófagleg vinnu- brögð við einkavæðingu leikskólans. Sveinbjörn Eyjólfsson efeti maður á lista Framsóknarflokksins sagði að gagnrýni þeirra beindist eingöngu að vinnubrögð- um. „Við höfum ekki vikið einu orði að Hjallastefnu. Það er hins vegar mjög al- varlegur hlumr að ganga í einkavæðingu leikskólans án þess að ræða það og kynna til hlýtar í samfélaginu öllu. Það á alveg eftir að greina orsök og afleiðingar. Að keyra svona breytingu í gegn á rúmri viku eru forkastanleg vinnubrögð," sagði Sveinbjörn. SO ATLANTSOLIA Dísel •Faxabraut 9. Afóstudag ísíðustu viku gerðu nemendur úr námshópnum „ Útlagar og herskip“ í Grundaskóla á Akranesi ávænt strandhögg í Geirshólma íHvalfirði. Þráttfyrir mótbárur hólmans með snarbrött klifí fiófram á atta vegu þá gekk landgangan greiðlega. A myndinni er hópurinn kominn á topp hólmans í einmuna veðurblíðu ogfógru umhverfi Hvalfjarðar. Sjá nánar á bls. 10. Ljósm. EÞS. Hönnun tvöföldunar Hvalfj arðarganga í startholunum Lega nýs munna að norðanverðu meðal kosta sem kanna þarf Undirbúningur að hönnun tvöföldunar jarðganga undir Hvalfjörð er nú í undirbúningi hjá Vegagerðinni. Meðal þess sem taka þarf afstöðu til við tvö- földun ganganna er hvar þau eiga að liggja. Þó líklegast verði að telja að þau verði samsíða núver- andi göngum verður sá möguleiki kannaður að munni nýju gang- anna að norðanverður liggi aust- ar en núverandi ganga. I dag aka flestir vegfarendur um göngin því lengri leið en þyrfti ef munninn að norðanverðu lægi betur við núverandi þjóðleið vestur og norður í land. Eins og fram hefur komið í fréttum Skessuhorns hefur um- ferð um Hvalfjarðargöng aukist mun hraðar en búist var við og fyrir nokkru hófust umræður um hvort ekki væri tímabært að huga að tvöföldun þeirra. Sú umræða hefur aukist í kjölfar umræðna um fyrirhugaðar framkvæmdir við Sundabraut. Meðal þeirra atriða sem huga þarf að við hönnun ganga er lega þeirra meðal annars hvar munn- um er komið fyrir. Þegar ganga- munninn að norðanverðu var ákveðinn í upphafi var horff til þess að þar var besta landrýmið og einnig voru á þeim tíma uppi hugmyndir um að ffamtíðarlega þjóðvegarins vestur og norður í land lægi norðan við Akraljall og um veg yfir Grunnafjörð. Fram- kvæmdir við þann veg hafa hins- vegar aldrei komist á fram- kvæmdastig. Því hafa vaknað spurningar hvort ekki sé rétt við tvöföldun ganganna að munninn við norðanverðan fjörðinn verði mun austan en núverandi munni í ljósi þess að stærstur hluti um- ferðarinnar í dag fer vesmr og norður í land en ekki á Akranes. I raun er því lega ganganna í dag að lengja leið flestra, eða um 75% vegfarenda, með tilheyrandi kostnaði. Hreinn Haraldsson fram- kvæmdastjóri þróunarsviðs Vega- gerðarinnar segir að hönnun tvö- földunar Hvalfjarðarganga sé ekki hafin en unnið sé við að fara yfir forsendur framkvæmdarinn- ar. Að þeirri vinnu lokinni geti hönnun þeirra hafist. Hreinn segir að með tvöföldun ganganna sé verið að bregðast við þeirri miklu umferð sem nú fari um svæðið en ekki síður megi með tvöföldun auka mjög öryggið. Með auknu öryggi sé átt við að hægt verði að hleypa umferð á milli ganga og eðli málsins sam- kvæmt sé líklegast að þau verði samsíða alla leið. Það sé þó ekki ákveðið og meðal þeirra þátta sem skoða þurfi sé sú staðreynd að stærstur hluti umferðarinnar fari vestur og norður í land. Nú- verandi lega ganganna lengi því leið þeirra. Því vaknar sú spurning hvort með tvöföldun núverandi ganga með sömu legu aukist ekki þrýst- ingur á vegagerð um Grunna- fjörð. Jón Rögnvaldsson, vega- málastjóri segir að á sínum tíma hafi vegagerð um Grunnafjörð verið í umræðunni. Ekki hafi komið til þeirrar vegagerðar og ekki hafi verið unnið að því máli um langt skeið. Hann benti á að vegagerð um fjörðinn hefði á sín- um tíma mætt andstöðu vegna umhverfisáhrifa og kröfur í þeim efnum hefðu aukist á seinni árum. HJ SPARISJÓÐUR MÝRASÝSLU - HORNSTEINN í HÉRAÐI Digranesgötu 2 • 310 Borganes • Síðumúla 27 »108 Reykjavík • Sími 430 7500 • Fax 430 7501 • spm@spm.is • www.spm.is

x

Skessuhorn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.