Skessuhorn


Skessuhorn - 17.05.2006, Síða 2

Skessuhorn - 17.05.2006, Síða 2
2 MIÐVIKUDAGUR 17. MAÍ 2006 g£isiuii6iiæi Bergþór ráð- inn fjármála- stjóri Loftorku Bergþór Guðmundsson hefur verið ráðinn fjármálastjóri Loftorku Borgarnesi ehf. Berg- þór er viðskiptafræðingur frá City University í London og var áður fjárreiðustjóri HB Granda hf. og þar áður fjármálastjóri Haraldar Böðvarssonar hf. ffá árinu 1992. Hann segir nýja starfið afar áhugavert enda hafi uppbygging fyrirtækisins verið hröð og mjög spennandi tímar framundan. A undanförnum árum hafa miklar breytingar átt sér stað í sjávarútvegi, mikil um- brot og margar sameiningar fyr- irtækja átt sér stað ekki síst í kringum það fyrirtæki sem hann hefur starfað hjá. Bergþór er búsettur á Akranesi en Borgfirð- ingur að uppruna. Eiginkona hans er Bryndís Rósa Jónsdóttir og eiga þau þrjú börn. HJ Tit minnis Við minnum á fyrsta heimaleik Skagamanna í Landsbanka- deildinni í sumar. Á komandi laugardag munu KR-ingar sækja Skagamenn heim. Leikur liðanna hefst klukkan 16:00 á Akranesvelli. Til stendur að nýtt lukkudýr stuðnings- mannafélagsins Skaga- markanna mæti á völlinn. Ve?Mrhorfitr Fremur hæg norðaustlæg átt verður frá fimmtudegi fram á þriðjudag og víða dálitlir skúrir. Fremur milt veður hér á Vestur- landi og jafnvel glaðasólskin á föstudag og laugardag. Sptvrnintj viNnnar í síðustu viku var spurt á skessuhorn.is: Ætlar þú að nýta kosningarétt þinn 27. maí? Flestir ætla að nýta sér sinn at- kvæðisrétt í komandi sveita- stjórnarkosningum, en um 80% svöruðu spurningunni játandi, um 9% ætla ekki að nýta kosningarétt sinn, 7% svarenda hafa ekki ákveðið það og 4% svarenda hafa ekki kosningarétt og geta því ekki kosið. í næstu viku spyrjum við: „/ hvaða sœti lendir ÍA í Lands- bankadeildinni?" Svaraðu án undanbragða á www.skessuhorn.is Vestlendirujtyr viKftnnctr Skessuhorn útnefnir að þessu sinni sauðfjárbændur á Vestur- landi, Vestlendinga vikunnar. Þeir standa nú í óðaönn vaktir daga og nætur á háannatíma til sveita Bæjaryfirvöld grípa í taumana og útrýma slysahættu Bæjaryfirvöld á Akranesi hafa nú tekið ákvörðun um að grípa í taumana og girða af byggingar- svæðið við Eyrarflöt. Fjölbýlishús í byggingu hefur staðið þar óhreyft í nokkurn tíma og hefur verið til sölu. Ibúar í hverfinu hafa ítrekað kvartað yfir slysahættu sem stafar að svæðinu en að sögn lögreglunn- ar á Akranesi hafa engin slys verið tilkynnt að þeim sökum. Skúli Lýðsson, byggingarfulltrúi á Akra- nesi segir málið grafalvarlegt og því hafi nú verið ákveðið að girða svæðið af en iðnaðarmenn hafa nú þegar tekið mál af svæðinu í þeim tilgangi að girða. Erfitt hefur verið að fá grindur til girðinga en þær hafa verið pantaðar annarsstaðar ffá og mtm bæjarfélagið framkvæma verkið um leið og grindurnar fást. I framhaldi af því verður reynt að innheimta kostnað hjá byggingar- stjóra vegna þessa en að sögn Skúla hefur verið erfitt að ná tali af hon- um þar sem hann virðist horfinn af yfirborði jarðar. Aðili þessi mun einnig eiga önnur uppsteypt hús og grunna í sama hverfi sem einnig hafa verið til sölu. KÓÓ Kjósendum á Vesturlandi íjölgar um 3 % í sveitarstjórnarkosningunum þann 27. maí ganga 10.378 íbúar á Vesturlandi að kjörborðinu. Hef- ur kjósendum fjölgað um 3% frá síðustu kosningum. A sama tíma hefur kjósendum á landinu öllu fjölgað um 5,5%. Mun fleiri karl- ar eru á kjörskrá eða 5.332 talsins en konur eru 5.046. Mest hefur kjósendum fjölgað í Skilmannahreppi frá síðustu kosningum eða um 29,7%. Fækk- un kjósenda hefur mest orðið á sama tíma í Saurbæjarhreppi þar sem þeim hefur fækkað um 13,4%. I níu sveitarfélögum hefur kjósendum fjölgað en í átta hefur þeim fækkað á milli ára. HJ Grænfáninn á leið í Borgames I þessari viku eru umhverfisdagar í Grunnskólanum í Borgarnesi. Þessir dagar eru tileinkaðir Græn- fánaverkefninu sem skólinn hefur tekið þátt í síðan 2001. Þemu skól- ans innan Grænfánaverkefnisins eru: Atthagar, rusl og orka. Við- fangsefni nemenda þessa viku tengjast þemunum á einn eða ann- an hátt. Næstkomandi föstudag mun um- hverfisráðherra afhenda skólanum Grænfánann við hátíðlega athöfn sem hefst kl 10 við skólann. Við sama tækifæri verður stofnaður fólkvangur í Einkunnum. Allir sem tök hafa á eru boðnir velkomnir í skólann til að taka þátt í þessari at- höfh, skoða affakstur umhverfis- daganna ásamt verkefnum sem unnin hafa verið í skólanum í vetur og þiggja veitingar. MM/Ljósm: PAF Þevta gi'œnfánaverkefnisins eru: Atthagar, rusl og orka. He'r eru nemendur t umhverfts- vikunni að undirbúa nk. föstudag. Fólkvangur verður formlega stofnaður í Einkunnum áfóstudag. Hér vinna nemendur við plöntun. Hér má sjá fjölda kjósenda í hverju sveitarfélagi fyrir sig: 2006 2002 Breyting Hvalfjarðarstrandarhreppur 107 105 1.9% Skilmannahreppur 131 101 29.7% Innri-Akraneshreppur 84 85 -1.2% Leirár- og Melahreppur 81 87 -6.9% Akranes 4,162 3,948 5.4% Skorradalshreppur 47 44 6.8% Borgaríjarðarsveit 500 471 6.2% Hvítársíðuhreppur 47 49 -4.1% Borgarbyggð 1,880 1,793 4.9% Kolbeinsstaðahrepptu 74 76 -2.6% Eyja- og Miklaholtshreppur 96 91 5.5% Snæfellsbær 1,159 1,179 -1.7% Grundarfjarðarbær 631 581 8.6% Helgafellssveit 45 50 -10% Stykkishólmur 799 839 -4.8% Dalabyggð 477 507 -5.9% Saurbæjarhreppur 58 67 -13.4% Arsreikningur Akraneskaupstaðar samþykktur samhljóða Bæjarstjóm Akraness samþykkti í síðustu viku ársreikning kaupstað- arins fyrir árið 2005 með níu sam- hljóða atkvæðum eftir síðari um- ræðu um reikningana. Eins og ffam hefur komið í fféttum Skessuhorns var rekstur bæjarfélagsins og stofn- ana þess jákvæður um 28 milljónir króna á síðasta ári en það var ívið betri afkoma en reiknað hafði verið með. Á fundinum í gær lögðu bæjar- fulltrúar Sjálfstæðisflokksins ffam bókun þar sem fram kemur að þeir telji ágæta stöðu vera á fjármálum bæjarfélagsins. „Við teljum þá stöðu ekki vera að þakka meirihluta bæjarstjórnar eða aðhaldi í rekstri. Heldur er fyrst og ffemst að þakka auknum tekjum, vegna hækkandi launa í samfélaginu, hækkunar á fasteignamati á Akranesi, hagstæð- um ytri skilyrðum svo sem gengis- hagnaði og lækkun vaxta og aukn- um umsvifum á Grundartanga- svæðinu.“ Guðmundur Páll Jónsson bæjar- stjóri óskaði eftir því að fært yrði til bókar upphaf ræðu bæjarritara þeg- ar hann fylgdi reikningum bæjarins úr hlaði við fyrri umræðu. Þar kem- ur ffam ánægja með að leggja ffam ársreikning „sem ber með sér jafh- góða niðurstöðu og raun ber vimi, en ársreikningurinn ber með sér í heild sinni jákvæðari niðurstöður en a.m.k. undirritaður hafði gert sér vonir um, sérstaklega ef tekið er mið af þeim háu lífeyrisskuldbind- ingum sem nú eru færðar í árs- reikninginn.“ Um ástæður góðrar niðurstöðu sagði bæjarritari: „Hækkandi tekjur, tiltölulega stöðugt verðlag og hagstæð þróun gengis, en ekki síst aðhaldbæjaryfir- valda og forstöðumanna stofhana varðandi rekstrargjöld." HJ Notaðar spraut- ur við róluvöll BORGARNES: Notaðar fíkni- efnasprautur fundust í nágrenni við Bjössaróló í Borgarnesi um helgina og var þeim komið til lögreglu. Talsvert er um að fólk komi með ýmis fíkniefnaneyslu- tól á lögreglustöðina eftir að hafa fundið þau, en sjalgæft er að komið sé með sprautur og nálar enda þá um að ræða tæki til neyslu á mun sterkari fíkni- efiium en í flestum tilfellum. Ekki þarf að taka ffam hversu hættuleg slík tól eru á leiksvæði barna og því er um vítavert kærluleysi og algjöran sóðaskap að ræða. -so Ráðið í stöður AKRANES: Snjólfur Eiríksson hefur verið ráðinn í stöðu garð- yrkjustjóra Akraneskaupstaðar og Kristján S. Gunnarsson í stöðu umsjónarmanns fast- eigna. Tvær umsóknir bárust í stöðu garðyrkjustjóra og fimm umsóknir bárust í stöðu um- sjónarmanns fasteigna og upp- fylltu þær allar kröfur sem gerðar voru til starfsins. Þor- valdur Vestmann, sviðsstjóri tækni- og umhverfissviðs lagði til að Snjólfur og Kristján yrðu ráðnir til starfanna og voru þessar ráðningar samþykktar á bæjarráðsfundi. -so Aðgengi fadaðra að stofiiunum GRUNDARFJÖRÐUR: Bæj- arstjórn Grundarfjarðar hefur samþykkt samhljóða tillögu um úttekt á ferlimálum fatlaðra í bæjarfélaginu. Það var J-hstinn sem lagði tillöguna ffam. I henni felst að umsjónarmanni fasteigna verði fahð að taka út aðgengi fatl- aðra að stofiiunum bæjarins og að úrbótum verði hraðað, sé þeirra þörf. -hj Leiðrétting BORGARFJÖRÐUR: Ekki var rétt farið með nafii sem til greina kemur á nýju sameinuðu sveita- félagi þegar Borgarbyggð, Borg- arfjarðarsveit, Hvítársíðuhreppur og Kolbeinsstaðahreppm- sam- einast við komandi sveitastjóm- arkosningar. Nafiúð sem ekki var rétt með farið er Egilsbyggð en það nafh kemur ekld til greina sem nafh nýja sveitafélagsins heldur er það Mýrabyggð sem að til greina kemur ásamt Borgar- byggð, Brákarbyggð og Sveitafé- lagið Borgarfjörður. Beðist er velvirðingar á þessu. -so Oskráður með dóp VESTURLAND: Héraðs- dómur Vesturlands hefur dæmt mann tO greiðslu 60 þúsund króna sektar fyrir að hafa í jan- úar á þessu ári ekið bifreið sinni án skráningarnúmera að ffaman og að hafa í vörslum sínum eitt gramm af tóbaksblönduðu kannabisefiii, en lögreglan fann efhið við leit í bifreiðinni. Mað- urinn hefur fimm sinnum sætt sektum vegna fíkniefnabrota á árunum 1999-2004. Þá var hann á árinu 2005 dæmdur í fangelsi vegna fíkniefnabrota en fullnustu refsingarinnar var ffestað í tvö ár. -hj

x

Skessuhorn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.