Skessuhorn - 17.05.2006, Side 6
6
MIÐVIKUDAGUR 17. MAÍ 2006
afiESSIfiiÖBRI
/
Landsnámssetur Islands tekið til starfa
A flugi yfir Borgames sl. laugardag tók Theodór Þórðarson þessa mynd af Landnáms-
setrinu og umhverfi þess í góðviðrinu.
Landnámssetur íslands var opnað
við hátíðlega athöfn í Borgamesi sl.
laugardag að viðstöddu fjölmenni.
Forseti Islands, Olafur Ragnar
Grímsson og menntamálaráðherra,
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir
vom meðal gesta og fengu þau það
hlutverk að opna landnámssýning-
una og sýninguna um sögu Egils
Skallagrímssonar. Veislugestum
bauðst svo að ganga um sýningamar
með hljóðleiðsögn á i-Pod spilururn
þar sem einn gestur fór inn á mínútu
fresti. Það var ekki annað að sjá en
fólk væri almennt ánægt með hvem-
ig tekist hefur að skýra ffá landnámi
og sögu landsins í myndum og texta.
Þá var einleikur Benedikts Er-
lingssonar, Mr. Skallagrímsson
ffumsýndur en Benedikt rekur þar
Mr. Skallagrímsson
Sýnt í Landnámssetrinu í Borgamesi
Höfundur: Benedikt Erlingsson í sam-
vinnu við Snorra Sturluson
Leikstjóri: Peter Enquist
Leikari: Benedikt Erlingsson
Þegar Benedikt Erlingsson, höf-
undur Mr. Skallagrimsson og eini
leikari sýningarinnar gekk inn á
söguloftið í Landnámssetrinu og
lagði ffá sér úlpu og húfu sem virt-
ust lítið eiga skilt við Eglu vissu
áhorfendur ekkert hvað hann var
að fara að gera. Hans háttalag var
líka á þann veg að hann vissi það
ekki almennilega sjálfur. Annað
kom á daginn því það fór ekki á
milli mála að Benedikt vissi upp á
hár hvað hann ætlaði að gera.
Annarsvegar að segja sögu Egils á
Borg og hinsvegar að skemmta á-
horfendum og hvoratveggja tókst
fullkomlega.
Það er kannski ekki mikið mál
að búa til skemmtiefni upp úr
sagnaarfinum með því að afbaka
sögurnar og snúa út úr þeim á
skemmtilegan hátt. Þetta er hins-
vegar ekki aðferðin sem Benedikt
velur. Hann tekur alvöruna hráa,
beint úr sögunni en kemur síðan
með eigin fýndni og
blandar þessu saman
svo úr verður áhrifa-
mikill kokkteill. A
augnabliki (yfirleitt
hárréttu augnabliki)
hleypur hann úr fúl-
ustu alvöru yfir í
hreinan fíflagang og það
ótrúlega er að þetta gengur
fullkomlega upp.
Sagan fær með öðrum
orðum að njóta sín og kemst
fullkomlega til skila en um
leið engjast áhorfendur um í hlát-
urskrampa í tvo tíma samfleytt.
Sannarlega sérstök upplifun í leik-
húsi.
Sýningin Mr. Skallagrimsson er
hlaðin smáatriðum bæði í texta og
túlkun og því þurfa áhorfendur að
halda athyglinni allan tímann. Þótt
sýningarhúsnæðið sé lítið og sviðs-
mynd nánast engin þá lifnar sagan
við enda nýtir leikarinn og höf-
undurinn allt til hlýtar, bæði eigin
rödd og skrokk, húsnæðið, áhorf-
endur og í raun allt umhverfið sem
hann spilar á af stakri snilld.
Það sem ég gæti helst fundið að
þessari sýningu ef það væri skilyrði
er að svolítið var um endurtekn-
ingar en hinsvegar þola sumir
brandarar það að vera sagðir oftar
en einu sinni sama kvöldið.
Fyrirffam átti ég kannski von á
svipaðri sýningu og Ormstungu
sem sló í gegn fyrir nokkmm áram
og Benedikt samdi og flutti í sam-
starfi við Halldóra Geirharðsdótt-
ur. Vissulega mátti sjá skyldleika-
merki með verkunum en það var
ekki til baga.
Sjálfur sagði Benedikt í viðtali í
Morgunblaðinu fyrir skömmu að
Mr. Skallagrimsson væri annað-
hvort framför eða afturför frá
Ormstungu. Mín skoðun er sú að
þetta sé ffamför. Skallagrimsson er
einstök og sérstök sýning eða öllu
heldur upplifun sem enginn má
láta ffam hjá sér fara. GE
Egilssögu á mjög gamansaman hátt
(sjá leikdóm hér að neðan).
A meðan gestir gengu um húsið
og spjölluðu saman þáðu þeir léttar
veitingar sem afreiddar voru af
mörgum færastu leikuram landsins
en hópurinn var sérstaklega fenginn
til þessa mikilvæga hlutverks.
Húsin tvö; Búðarklettur og Pakk-
húsið við Brákarstmd í Borgamesi,
hafa verið tengd saman á afar glæsi-
legan hátt með nýrri tengibyggingu
og greinilegt að ekkert hefur verið
til sparað til að mynda rétta stemn-
ingu í setrinu. Iðnaðarmenn og aðr-
ir sem að ffamkvæmdinni hafa unn-
ið lögðu síðustu dagana nótt við dag
að ljúka sem mestu af ffamkvæmd-
inni fyrir opnun setursins sem fyrir
löngu var ákveðin þennan dag.
Hjónin Kjartan Ragnarsson og Sig-
ríður Margrét Guðmimdsdóttir, for-
svarsmenn Landnáms Islands ehf.
eru afar ánægð með útkomuna og
þakklát þeim aðilum sem hafa stutt
þau á leiðarenda í þessu verkefni.
Oumdeilanlega er opnun Land-
námsseturs Islands einn af stærri
viðburðunum í ferðaþjónustu á
Vesturlandi á þessu ári og kærkomin
nýjtmg í menningartengdri ferða-
þjónustu f Borgarfirði. KOO
Leikkonumar Sigrún Edda Bjömsdóttir, Ilmur Kristjánsdóttir og Margrét Akadóttir
voru glaðar í bragði og ámegðar með Landnámssetrið.
Atli og Ingvar leikarar voru duglegir á dœlunni.
Gömlu húsin hafa verið tengd saman á mjög ghesilegan hátt.
PISTILL GISLA
Mígandi hamingja
Ég veit ekki hvort það er í
lögum, hvort það eru
óskráðar reglur eða þegj-
andi samkomulag um að
pistlahöfundar hafi allt á
hornum sér þar sem þeir
setja fram sín hjartans mál
hvort sem er í ræðu eða riti.
Ég veit heldur ekki hvort
það er yfirlýst stefna að leita
til þunglyndissjúklinga með
pistlasmíðar en hver sem
ástæðan er þá hef ég í mín-
um pistlum í Skessuhorni
síðustu átta árin reynt að
feta í fótspor mér meiri
manna á þessu sviði. Ég hef
líka haft það fyrir stefhu allt
frá fæðingu að skera mig
ekki úr á nokkurn hátt held-
ur falla í fjöldann hvernig
sem það kann að hafa tekist.
I öllu falli hef ég gert mitt
besta til að kreysta fram
einhverja geðvonsku, helst
vikulega til að standa mina
plikt.
Nú er hinsvegar svo kom-
ið að ég get ekki hamið
gleðilætin. Það er komið
vor og farfuglar, furðu-
hressir þrátt fyrir
fuglaflensufaraldur, mættir
á sviðnar Mýrarnar. Senni-
lega eru þeir svona brattir
vegna þess að þeir lesa ekki
blöð og hlusta ekki á fréttir
og vita þessvegna ekki að
þeir eiga að vera sloj.
Gróðurinn vex líka hraðar
en auga á festi í blessaðri
blíðunni og bæjirnir allt í
kring. Hér á Vesturlandi er
ennfremur rífandi upp-
gangur og önnur landssvæði
koma mér hreinlega ekki
við.
Sem dæmi má nefna af
skipulögðu handahófi að í
Snæfellsbæ á að fara tappa
jöklinum á flöskur og leifa
alheiminum að bergja á. Er
það vissulega hið besta mál
þótt snæfellingar séu vissu-
lega þekktari fyrir með-
höndlun annara drykkja en
blávatns. Dalamenn eru á
ný komnir með fullgild
réttindi til að kála kindum.
James Bond er Snæfelling-
ur, það eitt og sér er mikið
framfaraspor. Egill Skalla-
grímsson er hinsvegar
Borgfirðingur og verður
aldrei annað. Honum hefur
loks verið sýndur viðeigandi
sómi í glæsilegu Landnáms-
setri. A Skaganum er verið
að byggja íbúðir sem duga
til að hýsa hálft landið og
Skagamenn eru við það að
verða Islandsmeistarar í
knattspyrnu þótt einhverjir
kunni að halda öðru fram.
Við þetta má bæta að það
er búið að slá garðinn minn.
Ég gerði það að vísu ekki
sjálfur heldur önnur kyn-
slóð sláttumanna. Ég veit
hinsvegar ekki til þess að
garðurinn sé sérlega sleginn
yfir því. I raun er fátt til að
koma mér úr jafnvægi þessa
daga annað en fréttir af
hreppsnefndarkosningum í
Reykjavík sem dunið hafa á
mér á halftima fresti síðustu
tvö árin eða svo. Kosningar
sem koma mér í raun ekkert
við.
Þegar ég er búinn að setja
niður kartöflurnar sem bíða
á garðsbakkanum og kosn-
ingar í Reykjavíkurhreppi
eru afstaðnar þá hef ég trú á
að ég verði fullkomlega
hamingjusamur.
Gísli Einarsson
í gleðivímu