Skessuhorn


Skessuhorn - 17.05.2006, Síða 7

Skessuhorn - 17.05.2006, Síða 7
3KjjSSIlBífMBM MIÐVIKUDAGUR 17. MAI 2006 7 A meðfylgjandi myndfrá undirskrifdnni em þau Marteinn Njálsson odduiti Leirár- og Melahrepps, SigurSur Svenir Jónsson oddviti Skilmannahrepps, GuSmundur Páll jfóns- son bœjarsljóri Akraneskaupstaðar, Asa Helgadóttir oddviti Innri-Akraneshrepps og Hallfreður Vilhjálmsson oddviti Hvalfjarðarstrandarhrepps. Samstarfssamningur milli sveitarfélaga undirritaður Á síðasta föstudag var samstarfs- samningur milli Akraneskaupstaðar og hreppanna fjögurra sunnan Skarðsheiðar undirritaður í Safna- skálanum á Görðum. Við undirrit- unina voru mætt þau er samstarfs- hópinn skipuðu, oddvitar og fleiri sem að stjórnun sveitarfélaganna koma. Helstu atriði samningsins snúa að brunavörnum og eldvarn- areftirliti, málefhum á sviði félags- og íþróttamála, félagsstarfi aldr- aðra, bókasafnsþjónusm, samning- ur um meðferð og eyðingu sorps, samkomulag um reksmr tónlistar- skóla og skipulagsskrár fyrir Dval- arheimilið Höfða og Byggðasafrúð á Görðum. SO Vélverk undir áætluð- um verktakakostnaði Vélaverk ehf. átti lægsta tilboð í snjómoksmr á Mýrum og í Norð- urárdal en tilboð í verkið voru opn- uð hjá Vegagerðinni á dögunum. Moksmrsleiðirnar eru Snæfellsnes- vegur frá Vesturlandsvegi að Hey- dalsvegi, rúmlega 38 kílómetra leið, og tæplega 36 kílómetra leið um Hringveg 1 ffá Borgarnesi að Vestfjarðavegi. Verktími er ffá 1. október 2006 til 30. apríl 2009. Áætlaður verk- takakosmaður er rúmar 5,3 millj- ónir króna. Vélverk ehf. í Borgar- nesi, bauð tæpar 4,5 milljónir króna eða um 85% af áætluðum kosmaði. Jóhann Á. Guðlaugsson í Búðardal bauð rúmar 6,9 milljónir króna, Akraverk ehf. á Seltjarnar- nesi bauð tæpar 6,6 milljónir króna, Vegamenn ehf. í Raykjavík buðu tæpar 6,6 milljónir króna, Græðir sf. á Flateyri bauð tæpar 6,5 milljónir króna og Borgarverk ehf. í Borgarnesi bauð rúmar 5,4 millj- ónir króna í verkið. SO Frambjóöendur Sjalfstæöisflokksins í nýju sameinuðu sveitarfélagi Kolbeinsstaðarhrepps, Hvítársíðu, Borgarfjarðarsveitar og Borgarbyggðar. SJÁLFSTÆÐISFLOKKURINN Verið velkomin á kosningaskrifstofu okkar að Borgarbraut 57, Borgarnesi s. 437 1460 alltaf heitt á könnunni Opnunartími kosningaskrifstofu: Laugardaga og sunnudaga: kl. 14.00-18.00 Virka daga: kl. 14.00-22.00 Vinnum saman - stöndum saman Styrkveiting Skilmannahrepps kemur ekki á óvart Hallffeður Vilhjálmsson, oddviti Hvalfjarðarstrandarhrepps telur afar dapurlegt að umræða síðustu daga skuli snúast um styrkveitingu Skil- mannahrepps í stað þess að menn einbeiti sér að ffamtíð sameinaðs sveitarfélags sunnan Skarðsheiðar. „Að mínu mati skiptir framtíðin meira máli en fortíðin og því er þessi umræða ekki boðleg samfélaginu,“ sagði Hallfreður í samtali við blaða- mann en hann skipar fyrsta sæti sam-Einingarlista nýs sveitarfélags. „Þessi styrkveiting á í sjálfú sér ekki að koma á óvart þar sem vitað var að Búsetusjóði Skilmannahrepps jtrði haldið utan við sameiningar- ferlið. Aðferð og tímasetning styrks- ins er aftur á móti annað mál og eru skiptar skoðanir hvað það varðar." Hallfreður telur það ekki hlutverk oddvita að ganga í hús og veita styrki en bendir jafnframt á að þessi vafa- sama og umdeilda ákvörðun hafi verið tekin og tdlheyri því fortíðinni. Aðspurður hvort íbúar HvaHjarðar- strandarhrepps eigi von á styrkjum sagði hann ekki gert ráð fyrir slíkum styrkjum í fjárhagsáætlun hreppsins. „Við höfum þess í stað einbeitt okk- ur að lögbundnum verkefhum" sagði Hallffeður að lokum. KÓÓ Tnnri - Akraneshreppur ædar einnig að styrkja sína íbúa Innri - Akraneshreppur hefur nú ákveðið að leggja þrjár milljónir króna til endurbóta á kirkju hreppsins sem er friðuð en hún liggur undir miklum skemmdum. Þá hefur meirihluti hreppsnefhdar einnig samþykkt fimm milljóna króna styrkveitingu sem rennur til íbúa hreppsins í formi málningar en gert er ráð fyrir að þeir verði veittir með sömu skilyrðum um lögheimili líkt og Skilmannahrepp- ur gerði nú á dögunum. Að sögn Ásu Helgadóttur, odd- vita Innri - Akraneshrepps hefur þessi umræða um styrkveitingu átt sér stað ffá því í fyrra en þann 8. maí sl. voru upphæðir styrkjanna ákveðnar. „Styrkir á þessu formi voru veittir í hreppnum fyrir nokkrum árum sem hlutfall af greiðslu fasteignagjalda og því er þetta engin nýjung. Það sem verra er að tímasetningin er svo viðkvæm og þar af leiðandi er hægt að túlka þessa styrki á rangan hátt,“ segir Ása. Sjálf hefur hún ekki viljað blanda sér í umræðuna um styrk- veitingu Skilmannahrepps og á hvaða forsendum hún er veitt en bendir jafnframt á að þetta sé spurning um aðferðafræði frekar en annað. Styrkirnir verða veittir inn- an skamms ef engar athugasemdir berast ffá hinum sveitarfélögunum. KÓÓ Fyrstu burtfarartónleikar frá Tónlistarskóla Stykkishólms Þeir Jósep Blöndal (læknir og pí- anóleikari) og Lárus Ástmar Hann- esson (kennari og söngvari) halda sameiginlega burtfarartónleika frá Tónlistarskóla Stykkishólms í kvöld, fimmtudag. Þeir félagar verða fyrstu nemendur Tónlistar- skólans sem ljúka námi á formlegan hátt með burtfarartónleikum og ef að líkum lætur útskrifast þeir í kjöl- farið. Efnisskrá tónleikanna er fjöl- breytt. Jósep og Lárus spila nokkur lög saman en njóta einnig fulltingis kennara sinna, þeirra Hólmffíðar Friðjónsdótmr og Hólmgeirs Þór- steinssonar. Það má segja að nemendurnir ráðist ekki á garðinn þar sem hann er lægstur enda verða þeir í beinni samkeppni um áhorfendur við okk- ar ástkæru Silvíu Nótt sem stígur á stokk um svipað leiti í Grikklandi. Tónleikahaldarar í Stykkishólmi eru engu að síður bjartsýnir á að aðsókn verði góð og benda á að öll samkeppni sé til góðs. Tónleikarn- ir eru í Stykkishólmskirkju og hefj- ast kl. 20. Aðgangur er ókeypis. JTA V '■ sveinbjorne.bioq.is Kosningaskrifstofa okkar er í Félagsbæ, Borgarnesi. Kosningaskrifstofan verður opin: Mánudaga til föstudaga kl. 16:00 - 22:00. Laugargdaga og sunnudaga kl. 13:00 - 19:00. Síminn á skrifstofunni er 437-1633 Kosningastjóri er Valdimar Sigurjónsson Sími 820-5205, netfang: valdimars@bifrost.is Allir velkomnir Eldri borgarar, harmonikkukvöld í Félagsbæ mánudagskvöldið 22. maí, klukkan 20:00 Byggjum betra samfélag

x

Skessuhorn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.