Skessuhorn - 17.05.2006, Síða 10
10
MIÐVIKUDAGUR 17. MAI 2006
Myndarleg afinælisveisla
Skátafélags Akraness
Skátafélag Akranes hélt upp á 80
ára afrnæli félagsins í skátaskála
sínu, Skátafelli í Skorradal sl. laug-
ardag. Gestir fóru í gönguferð um
svæðið og að henni lokinni var
myndarlegri aímælisveislu slegið
upp með tilheyrandi kræsingum.
Kristján Sveinsson, forseti bæjar-
stjórnar Akraness færði félaginu
eina milljón króna að gjöf frá Akra-
nesbæ en þess má geta að félaginu
bárust fleiri smærri gjafir, meðal
annars frá Bandalagi íslenskra skáta
og peningagjöf ffá Guðna Eyjólfs-
syni. Þá voru fimm eldri skátar
gerðir að heiðursfélögum Skátafé-
lags Akraness en þau hafa öll átt
stóran þátt í hve skátafélagið hefur
skipað stóran sess í bæjarlífi Skaga-
manna og eru því vel að nafnbót-
inni komin.
KÓÓ
Frá vinstri: Bragi Þórðason, Guðjón
Bjamason, Málfríður Þórðardóttir, Sig-
urður B. Sigurðsson og Páll Gíslason
voru útnefnd sem heiðurfélagar Skátafé-
lags Akraness. (Aðsend mynd)
Gestir notuðu tiekifierið og sleiktu sólina sem skein sitt sktert í Skorradalnum á laugar-
daginn var.
Peningafölsunarmál á Akranesi upplýst
Lögreglan á Akranesi hefur upp-
lýst peningafölsunarmál það sem
upp kom á dögunum. Eins og ffarn
kom í fféttum Skessuhorns komu
tveir falsaðir 500 króna seðlar fram
inn á borð gjaldkera KB banka á
Akranesi. Þrír seðlar til viðbótar
komu fram nokkru seinna. \fið
rannsókn málsins kom í ljós að
seðlamir höfðu verið notaðir til
greiðslu í Brekkubæjarskóla og
Grundaskóla á Akranesi.
Grunur beindist að ákveðnum
unglingi en áður en lögreglan hafði
af honum tal gaf hann sig ffam og
viðurkenndi verknaðinn. Játaði
hann að hafa falsað átta seðla. Er
málið því upplýst. Samkvæmt upp-
lýsingum ffá lögreglunni á Akra-
nesi munu hafa runnið tvær grímur
á drengirm þegar hann las fréttir
fjölmiðla af málinu. Mun hann þá
fýrst hafa gert sér grein fýrir hversu
alvarlegum augum verknaður sem
þessi litinn en samkvæmt lögum
getur verknaður sem þessi varðað
fangelsi allt að 12 árum.
Tíundi bekkur í
óvissuferð með OK
Nemendur tíunda bekkjar Klepp-
jámsreykjaskóla ásamt nemendum
ffá Hvítárbakka héldu í óvissuferð
að loknum samræmdum prófum í
síðustu viku. Ovissuferðir af þessu
tagi em nú á dögum algengar og
ágæt tilbreyting efrir stífan undir-
búning og prófföku. Farið var með
hópinn ffá Kleppjámsreykjum sem
leið lá á Akranes þar sem varðskipið
Oðinn beið hans. Siglt var ffá Akra-
nesi vestur á Amarstapa þar sem
ferðalangar vora fluttir í land með
léttabátum. Frá Amarstapa var farið
á Gufuskála þar sem leiðbeinendur
Slysavarnafélagsins Landsbjargar
biðu hópsins og fóra með hann í
rústagöngu og kassaklifur. Gist var á
Gufuskálum um nóttina. Þaðan var
næsta dag farið í hellaskoðtmarferð
imdir leiðsögn Þórs Magnússonar,
staðarhaldara á Gufuskálum. A
heimleiðinni var komið við á Djúpa-
lónssandi og í Rauðfeldsgjá. Að því
loknu var hverjum og einum ekið til
síns heima eftír mjög vel heppnaða
ferð.
Björgunarsveitin OK vill koma á
ffamfæri þakklæti til Landhelgis-
gæslunnar, leiðbeinenda Lands-
bjargar og staðarhaldara á Gufu-
skálum fyrir rausnarskap, góðar
móttökur og velvilja í garð sveitar-
innar. SO
Hópurinn ferðhúinn við bíla OK-manna.
Ferðalangar fluttir að landi úr varðskip-
inu Óðni.
Hópurinn í hellaskoðun.
Hólmverjar hinir nýju
Föstudaginn 12. maí sl. gerðu
nemendur úr námshópnum „Ut-
lagar og herskip" í Grundaskóla
óvænt strandhögg í Geirshólma í
Hvalfirði. Þrátt fyrir mótbárur
hólmans með snarbrött klif í sjó
ffam á alla vegu þá gekk landgang-
an furðu greiðlega. Þegar til kast-
anna kom var fátt um varnir enda
meira en þúsund og fimmtíu ár
síðan Hörður Grímkelsson og hin-
ir vígreifu meðreiðarsveinar hans
vora „höggnir gervallir" í Þyrils-
nesi. Effir stóð þá Helga Haralds-
dóttir jarls af Gautlöndum með
syni sína þá Björn og Grímkel sem
að einni nóttu liðinni skyldu
einnig drepnir. Sund hennar með
drengina úr hólmanum yfir að ósi
Bláskeggsár verður lengi í minnum
haft og vafalaust ein mesta hetju-
dáð sem sögur fara af hér á landi.
Það var enda ekki laust við að
hinir ungu fullhugar sem nú flat-
möguðu sólbakaðir á grasi grónum
hólmanum og skimuðu um víðátt-
una þarna í kring fýndu til skyld-
leika síns við þessa göftugu for-
móður okkar allra. Kannski
dreymdi suma þeirra um að vinna
sín frægðarverk einhverntíma.
Alltént stakk einn garpurinn sér
fýrirvaralaust til sunds en varð frá
að hverfa eftir fáeina tugi metra.
Straumþunginn í innanverðum
firðinum er mikill og sjórinn ís-
kaldur á þessum árstíma. Kannski
verður gerð önnur tilraun síðar við
betri skilyrði og hver veit nema
það takist þá.
Skipstjóri í þessari velheppnuðu
ferð var Valentínus Olason og
Smári Guðnason var lóðs. Fá þeir
bestu þakkir fýrir farsælan flutn-
ing, sem og núverandi ábúandi
Geirshólma hún Asrún Jóhannes-
dóttir sem veitti góðfúslega leyfið
til landtökunnar.
Texti og myndir: LJ ér EÞS
Leó Jóhannesson leiðbeinir ungmennunum við landgönguna í Geirshóima.
Landtaka í Geirshólma, en það var lóðsinn semflutti Hólmverja á svæðið.
Geirshóimi