Skessuhorn


Skessuhorn - 17.05.2006, Page 11

Skessuhorn - 17.05.2006, Page 11
 MIÐVIKUDAGUR 17. MAI 2006 11 s Uthlutað úr Húsvemdunarsjóði Borgarbyggðar Stjórn Húsverndunarsjóðs Borgarbyggðar hefur úthlut- að styrkjum í annað sinn og fór afhending þeirra ffam í Sparisjóði Mýrasýslu fyrir skömmu. Að þessu sinni hlutu tveir aðilar styrki, þ.e. Bjarni Steinarsson vegna endurbóta á gamla íbúðar- húsinu í Straumfirði og Hollvinasamtök Englend- ingavíkur vegna endurbóta á gömlu verslunarhúsunum Englendingavík. MM A myndinni eru Finnbogi Rögnvaldsson f.h. Hollvinasamtaka Englendingavíkur og Bjami Stein- í arsson styrkþegar ásamt stjóm Húsavemdunarsjóðs, en í henni sitja Guihmmdur Eiríksson, Sigríður Björk Jónsdóttir, Bjami Helgason, formathir ogjenný Lind Egilsdóttir. Verslun Tölvuþjónustunnar í höndum nýrra aðila A myndinni eru þeir Ólafur Sigurðsson, Eggert Herbertsson, Bjarki Jóhannesson og Einar Jónsson. Tölvuþjónustan Securstore (TÞS) hefur selt verslunarrekstur sinn til e-bit ehf, nýs fyrirtækis í eigu Bjarka Jóhannessonar, Eggerts Herbertssonar og TÞS. Verslunin sem nú ber heitið Tölvuþjónustan - Verslun verður áfram í húsnæði TÞS við Esjubraut á Akranesi og rekin með svipuðu sniði og verið hefur. Sölu- og markaðsstarf verður þó eflt og lögð verður áhersla á mikið úrval af tæknivörum, gott verð og hátt þjónustustig, að sögn nýju eigendanna. Verslunin er með tækni- og rekstrarvörur ffá öllum helstu tæknibirgjum landsins, s.s Nýherja, EJS, Opnum kerfum, Svartækni, Hátækni og Apple. Þannig geta viðskiptavinir komið í verslun og fengið ráðgjöf um bestu kaupin ffá öllum þessum aðilum. Verslunin mun áfram vera með sölu á vörum og þjónustu ffá Og Voda- fone og 365 ljósavakamiðum. Egg- ert Herbertsson ffamkvæmdastjóri e-bit ehf mim hafa yfirumsjón með verslunarrekstrinum en Ólafur Sig- urðsson verslunarstjóri og Einar Jónsson mtmu áfram sjá um dagleg- an rekstur. Eggert hefur búið hér Akranesi ffá 2002 ásamt fjölskyldu sinni og ffam til þessa sótt vinnu sína til Reykjavíkur. Hann segir ánægjulegt að vera farinn að starfa í heima- byggð. „Eg er sannfærður um að reynsla okkar og menntun nýtist vel í því sem við erum að gera hér, en við höfum báðir sinnt ábyrgðar- stöðum í tæknifyrirtækjum eins og Nýherja og Og Vodafone og báðir lokið meistaragráðu í viðskipta- ffæðum.“ Þó svo að verslunin sé mikilvægur hluti af rekstrinum seg- ir Eggert að talsverður hluti af þeirra tíma fari í að sinna sölu- og markaðsmálum fyrir Tölvuþjónust- una Securstore, þar sem langstærsta verkefnið sé að sýna bæði íslensk- um og breskum fyrirtækjum ffam á ágæti afritunarþjónustunnar sem rekin hefur verið hjá fyrirtækinu undanfarin 2 ár. MM Fjórlembdur gemlingur Sá fáheyrði atburður átti sér stað í Nýræktinni í Stykkishólmi nú fyr- ir skemmstu að gemlingurinn Sjöfh eignaðist fjögur lömb. Að sögn eig- anda Sjafnar, Amars Geirs Ævars- sonar heilsast lömbtmum vel og allt er eðlilegt miðað við aðstæður. Amar segir viðvem búmanna hafa aukist mikið við þessa óvæntu frjó- semi enda þurfi þau hjónakorn Arnar og Guðún Svana að gefa lömbunum úr pela. Þar njóta þau dyggrar aðstoðar Kristins Pálssonar sem er meðeigandi þeirra í fjárhús- inu. Arnar segir ána Sjöfn ekki vera komna úr sinni ræktun því hún sé komin frá Gísla á Vegamótum. Lömbin era öll gimbrar sem að öllu jöfhu myndi kæta hvern bónda, Amar Geir og Kristinn Már og gimbramar jjórar. en Arnar Geir gefur lítáð fyrir það því þetta sé hobbýbúgarður hjá þeim og þau sjái ekkert sérstakt hagræði í þessari ffjósemi. Arnar segir lömbin hafa fengið mikla at- hygli og margir frístundabændur hafi falast eftir að fá lömbin í haust. JTA r n 60 oro ofmœli Fösfudoginn 19. maí nk. verður sexfugur Gunnar Sigurðsson bæjarfullfrúi, framlwæmasfjóri Olís ó Vesfurlandi og f.v. formaður K.F.I.A. Espigrund 3 Akranesi. Hann og eiginkona hans Sigríður Guðmundsdóffir, faka ó mófi gesfum í sal íþróttamiðstöðvarinnar að Jaðarsbökkum ó afmælisdaginn kl. 18:00-20:00 Óskum eftir starfsmanni í minniháttar viðhald og þríf, í og við Hyrnutorg í Borgarnesi. Nánarí upplýsingar gefur Sigríður í síma 660-5057 eða á netfanginu sigleif@vis.is. Mjólkurbflstjórí Sumarafleysing MS Reykjavík, óskar eftir að ráða bílstjóra í sumarafleysingar við söfnun og flutning mjólkur frá mjólkurframleiðendum á Vesturlandi til Reykjavíkur. REYKJAVÍK nnr AVÍK ffll Æskileg búseta er í Borgarnesi eða nágrenni. Nánari upplýsingar veitir Páll Svavarsson að Bitruhálsi 1 - Reykjavík eða í síma 569-2200. Hægt er að senda umsóknir á netfangið starfsmannasvid@ms.is Vinstri græn - VINSTRIHREYFINGIN grænt framboð hreinar línur Kjósum Rún og Sigurð Mikael í bæjarstjórn á Akranesi

x

Skessuhorn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.