Skessuhorn


Skessuhorn - 17.05.2006, Síða 12

Skessuhorn - 17.05.2006, Síða 12
12 MIÐVIKUDAGUR 17. MAÍ 2006 . r.-v%i n... Mœtt í röSina. Vorskólinn byrjaður í Grundarfirði Fyrsti vorskóladagur verðandi nemenda í 1. bekk við Grunnskóla Grundarfjarðar var sl. miðvikudag. 16 nemendur voru mættir í grunn- skólann klukkan 13, spennt á svip og uppfull af áhuga. Hjördís Vil- hjálmsdóttir sérkennari, Ragnheið- ur Þórarinsdóttir aðstoðarskóla- stjóri og María Osk Olafsdóttir sem kenna mun þeim næsta vetur tóku á móti hópnum í andyri skól- ans og eftir að þau höfðu raðað sér fallega upp var gengið til skóla- stofu. Vorskólinn stendur í 5 daga og er hugsaður sem lokaliður í tmdirbúningi fyrir skólabyrjun í samstarfi leikskóla og grunnskóla en fyrr í vetur höfðu börnin komið í heimsókn til að kynnast starfinu á nýjum vinnustað þ.e. í grunnskól- anum. GK Verðlaunaljóðin; Pabbi og Unglingur í fimmta sinn hefúr ljóðasam- keppnin, Ljóð unga fólksins verið haldin í almenningsbókasöfnum landsins. Að þessu sinni voru það fimm almenningsbókasöfh á Vest- urlandi sem sáu um keppnina. Tuttugu og eitt bókasafh tóku þátt og barst fjöldinn allur af ljóðum eða 743 ljóð frá 550 skáldum. Dómnefnd tók við 450 ljóðum eff- ir að grisjun hafði farið fram en í dómnefndinni sátu Iðunn Steins- dóttir rithöfundur, Stefán Máni rit- höfundur og Kristján Krisjánsson rithöfundur og bókaútgefandi. Tvær stúlkur af Akranesi lentu í verðlatmasætum. Ina Sigrún Rún- arsdóttir 12 ára lenti í fyrsta sæti fyrir ljóðið Pabbi í flokki 9 - 12 ára og Bylgja Osp Pedersen 13 ára lenti í þriðja sæti fyrir ljóðið Ung- lingur. Ina Sigrún er nemandi í Grundaskóla og Bylgja Osp er nemandi í Brekkubæjarskóla. SO Hér eru ljóð ínu Sigrúnar og Bylgju Aspar: Pabbi Þú varst alltaf til staðar. En svo fórstu. Þú varst lengi, lengi í burtu. En svo þegar þú komst varstu illa farinn. Eg man ég grét mildð. En ég man samt alltaf glöðu tilfinninguna ixm í mér. Þú komst, þú komst eftir langa bið. Ina Sigrún Rúnarsdóttir hlaut 1. verdlaun tflokki 9-12 ára. Ég bað alltaf fyrir þér að hætta þessu rugh sem þú komst þér í. Ég grét mig í svefh, alla daga. Ina Sigrún Rúnarsdóttir 7.GB, Grundaskóla Akranesi Unglingur Ég er ffek, ég er stífmáluð á hverjum degi, ég er freknufés, ég er með bólur, ég á vini, ég er leiðinleg við foreldra mína. Ég er bara svona. Ég er unglingur. Bylgja Osp Pedersen, í gervi Bylgja Ösp Pedersen Silvíu Nætur, hlaut 3. veri- 8.SS, Brekkubæjarskóla Akranesi laun íflokki 13-16 ára. HB Grandi lang kvótahæsta fyiirtældð HB Grandi hf. hafði yfir að ráða ríflega 45.424 þorskígildistonnum af kvóta þann á vordögum sam- kvæmt nýjum tölum frá Fiskistofu sem hefur efdrlit með aflaheimilda- stöðu stærstu handhafa aflaheim- ilda og eignatengslum þeirra til að ffamfylgja ákvæðum um hámarks- aflahlutdeild einstakra aðila í lög- um um stjórn fiskveiða. HB Grandi er með 10,78% af heildarkvóta landsmanna í þorskígildum talið. Ber fyrirtækið höfuð og herðar yfir önnur fyrirtæki því næst í röðinni er Samherji hf. með 7,32% afla- heimilda og í þriðja sæti er Þor- björn-Fiskanes hf. með 4,44%. Af öðrum fyrirtækjum má nefna að í 20. sæti er Soffanías Cecilsson hf. með 1,09% heildarkvótans, Guðmtmdm Rtmólfsson hf. er í 23. sæti með 0,9% og Hraðfrystihús Hellissands hf. er í 25. sæti með 0,7% heildarkvótans. HJ Enn óráðstafað finunhundruð fennetrum I nýja verslunarhúsinu sem nú rís á Skagaverstúninu á Akranesi verða fimm til tíu mismunandi verslanir en ennþá á eftir að ráð- stafa um fimmhundruð fermetrum af þessu 5100 fermetra húsnæði. Guðmundur Jónsson, fram- kvæmdastjóri Smáragarðs, vildi ekki tjá sig um hvaða verslanir myndi opna í húsinu, en staðfesti þó að þar muni opna verslanir sem ekki hafa verið til staðar á Akranesi áður. Að sögn Guðmundar verður það tilkynnt snemma í haust hvaða aðilar þetta eru. „Við höfum einnig fengið fyrirspurnir frá fyrir- tækjum á Akranesi sem óskað hafa eftir plássi en þær fyrirspurnir hafa verið færri heldur en búist var við. Ég geri samt ráð fyrir að þarna verði einhver fyrirtæki sem stund- að hafa rekstur á Akranesi,“ segir hann. Þá er ljóst að í húsnæðinu verður að finna eina stærstu mat- vöruverslun á landinu því Kaupás hefur fengið um 1700 fermetra til þeirra nota. Nokkrar kenningar hafa verið uppi meðal Skagamanna um hvaða matvöruverslun hér sé að ræða en nú er bara að bíða og sjá hvort einhver þeirra standist. HJ Gígjan - Landssamband íslenskra kvennakóra Þátttakendur á aialfundi Gtgjunnar. Ljósm: Aialhjórg, Kvennakór Akureyrar. Gígjan -Landssamband ís- lenskra kvennakóra hélt árlegan aðalfund sinn í húsnæði Domus Vox fyrir skömmu. Alls eiga 19 kvennakórar aðild að Gígjunni eða um 800 konur um allt land. Mark- mið Gígjunnar er að efla starfsemi kvennakóra, efla samstarf þeirra á milli, safha og miðla upplýsingum um starfssemi kóranna og efla er- lend samskipti. Gígjan heldur úti heimasíðunni www.gigjan.is þar sem birtar eru upplýsingar um að- ilakóra þess og starfsemi þeirra á- samt öðrum gagnlegum upplýs- ingum um söngstarfið. Þar má m.a. upplýsingar um það hvernig megi hafa samband við fulltrúa viðkomandi kóra, varðandi tón- listauppákomur og annað. Lands- mót kvennakóra er haldið þriðja hvert ár en þess á að milli boðið uppá fræðslufyrirlestra og nám- skeið. Fjöldi kvennakóra fara erlendis í tónleikaferðir eins og kvikmynd Léttsveitar Reykjavíkur er dæmi um. Kvennakórar landsins eru að jafnaði tilbúnir til að láta ljós sitt skína fyrir fyrirtæki og stofnanir. Kórarnir efla menningarlífið um allt land með söng sínum og hafa á sínum takteinum vel menntaða stjórnendur og hljóðfæraleikara. Kórarnir hafa margir gefið út geisladiska með sinni tónlist og má finna upplýsinga um þá á heima- síðu Gígjunnar. (jréttatilkynning) Opnuðu alþjóðlega ráðgjafaskriístofu í Borgamesi Þeir Jón Vigfús Bjarnason, nemi í lögfræðideild Viðskiptaháskólans á Bifröst og Davíð Klemenzson, nemi í viðskiptadeild skólans opn- uðu nýlega alþjóðlega ráðgjafa- skrifstofu undir nafninu WSI net- lausnir. Þeir tóku þá ákvörðun að hafa starfsstöðvar fyrirtækisins bæði í Reykjavík og í Borgarnesi en aðalstöðvar WSI eru í Kanada. Jón Vigfús segir það hafa verið einfalda ákvörðun að staðsetja fyr- irtækið m.a. í Borgarnesi. „Vestur- landið hefur verið að vaxa hratt, sérstaklega eftir að göngin komu. Hluti eigenda fyrirtækisins hefur verið við nám á Bifröst og búa í Borgamesi. Akvörðunin var ein- föld; Borgarnes er miðsvæðis, það- an er stutt að fara um allt Vestur- landið og bærinn er nálægt höfuð- borgarsvæðinu. Borgarnes er því kjörinn vettvangur þar sem okkar þjónusta auðveldar fyrirtækjum á Vesturlandi að kynna sínar vömr og þjónustu fyrir umheiminum. Landamæri og hvar fyrirtæki era staðsett er ekki lengur sá þröskuld- ur sem hann var fyrir tíma Inter- netsins,“ segir Jón Vigfús og bætir því við að þeir hafi hug á því að setja upp starfsstöðvar enn víðar hér á landi. SÓK

x

Skessuhorn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.