Skessuhorn - 17.05.2006, Síða 15
SSESsuiÍöBH
MIÐVIKUDAGUR 17. MAI 2006
15
f^eHtiinn—
Affáti og flækjum
Alltaf er eitt-
hvað skemmti-
legt í tilver-
unni, þó
stundum sé
hún grátbros-
leg og skrýtin.
Margir halda
eflaust að á
vettvangi bæj-
arstjómarinnar gerist fátt skondið
en svo er ekld. Síðasti bæjarstjómar-
fundur er í gott dæmi um það.
Hjásetuflokkurinn fer
á flækjustigið
Sjálfetæðisflokkurinn sat hjá við
afgreiðslu fjárhagsáætlimar fyrir árið
2006 þegar tillaga um gamagerðar-
framkvæmdir upp á um 150 milljón-
ir króna var samþykkt. Hann hefur
þó haft mikinn áhuga á malbika eina
götu í bæmun nú á þessu ári og flutt
um það tillögu. Þegar hefur verið
ákveðið að gatan sú skuli malbikuð
sumarið 2007 og því vom Sjálfstæð-
ismenn beðnir að gera grein fyrir
þeim niðurskurði sem þyrfti á móti
til að flýta málinu. Og fjallið tók jóð-
sótt og þá fæddist fill eða eigum við
að segja að farin hafi verið ein
lengsta Fjallabaksleið sem hugsast
gætd til að finna peningana.
Til þess að finna 25 milljónir til að
malbika eina götu var tillaga Sjálf-
stæðismanna þessi:
Að flytja Tónlistarskólann í hið
nýja húsnæði sem keypt var fyrir
nokkmm dögum undir Bókasafhið!
Að hætta við flutning Bókasafiisins,
selja hluta eignarinnar aftur og nota
hluta mismunarins til að malbika
eina götu! Þetta er svo skemmtilega
skondin tillaga að vert er að vekja
sérstaka athygli á henni, en hún er í
fundargerð bæjarstjórnar á Akra-
nesvefnum. Er þetta stjórnsýslan
sem Akumesingar þurfa að venjast
ef Sjálfstæðisflokkurinn og bæjar-
stjóraefhið komast að?
Flækjustágið leyst
Er þetta gert til gamans eða er fát-
ið komið á félagana? Sjálfstæðis-
flokkurinn gat komið með mjög ein-
falda tillögu um fjármiignun þessar-
ar einu götu sem þeir vildu malbika.
Taka eitthvað út úr hinum stóra
gamagerðarpakka meirihlutans eða
leggja til lántöku. Svo einfalt gat það
verið. En stundum fara menn á
flækjustigið og festast þar.
En í alvöru talað, á Tónlistarskól-
inn ekki betra sldlið en svona fárán-
lega uppástungu? Eftir því sem best
verður séð hafa flestir flokkamir
sem bjóða fram það á stefnuskrá
sinrú að byggja nýjan tónlistarskóla.
Slíkt húsnæði þarf að sérhanna og
allur sá undirbúningur þarf að vinn-
ast í samvinnu við sérfræðinga og
starfsfólk skólans. Þetta þarf að
vanda, bæði hvað varðar staðsetn-
ingu, húsnæðisþörf, húsnæðisgerð
og búnað. Slík vinna hefur ekld far-
ið ffam. Þess vegna er tillaga Sjálf-
stæðisflokksins og bæjarstjóraefhis-
ins alveg ótæk. Nær væri að samein-
ast um vel ígrundaða tillögu að und-
irbúningi að uppbyggingu nýs tón-
listarskóla sem ætlaður væri til
langrar ffamtíðar. Samfylkingin vill
ná samstöðu um þetta mál og að það
sé leitt til lykta af metnaði og ffam-
sýni. Það þarf ekki að vera flókið
mál.
Sveinn Kristinsson
~7*enninn~~fr
Kjósum Borgatfjörð!
Samhhða kosningum til sveitar-
stjómar í hinu nýja sameinaða sveit-
arfélagi Borgarbyggðar, Borgar-
fjarðarsveitar, Hvítársíðu- og Kol-
beinsstaðahrepps, verður gerð skoð-
anakönnun um nafn á sveitarfélagið.
Fjórar tillögur em bomar fram og
hefur ein þar afgerandi sérstöðu í
okkar huga. I sameiningarferli sveit-
arfélaga undanfarin ár hafa ný sveit-
arfélög verið misheppin með nafh-
giffir. Sveitarfélög sem heita Árborg,
Fjarðabyggð eða Bláskógabyggð
hafa mjög óljósa skírskotun og fáir
átta sig á hvar mörk þeirra liggja.
Það sama gildir hins vegar ekki um
sveitarfélagið Skagafjörð eða Olfús.
Þau nöfh hafa árhtmdmða gamla
sögu og allir vita hvar þau em og
fyrir hvað þau standa.
I ffamfarasókn næstu ára em
markaðsmál og ímynd mikilvægir
þættir í starfsemi sveitarfélaga
sem vilja laða að sér nýja íbúa. Þar
skiptir nafh máli. Nöfhin Brákar-
byggð, Borgarbyggð eða Mýra-
byggð em til þess fallin að valda erf-
iðleikum og fæla fólk ffá. Þau em
óskýr og óaðlaðandi. Borgarfjörður
hins vegar hefur góða og sterka
ímynd sem byggja má ffekari mark-
aðssókn á og er til þess fallið að laða
til okkar nýtt og kraftmikið fólk.
Borgarfjörður hefur þar að auki
landffæðilega skírskotun sem á með
góðu móti að geta náð yfir allt hið
nýja sveitarfélag. Við skulum ekki
fórna þeirri ímynd sem auðvelt
verðtn að styrkja. Kjósum Sveitarfé-
lagið Borgarfjörð sem nýtt nafn á
okkar sameinaða sveitarfélag!
Agúst Sigurðsson,
rektor Lbhl Hvanneyri
Runólfur Agústsson,
rektor Viðskiptahdskólans á Bifröst
T^etitiinn-,,
2. kafli -
Tilkynning um breytt heimilisfang
Eitt af þeim
mikilvægu
verkefnum sem
sveitarfélög
þurfa að sinna
er markaðs-
seming, enda
samkeppni við
önnur sveitar-
félög rnn íbúa,
fjármagn og verkefhi hörð og fyrir-
séð að hún muni vaxa áfram. Þegar
nýtt sveitarfélag lítur dagsins ljós
verður þessi vinna enn mikilvægari.
Upplýsingamiðlun
inn á við
Það markaðsátak sem bíður okkar
felst annars vegar í því að kynna nýtt
sveitarfélag með nýja stjómsýslu fyr-
ir nýbúum þess, rúmlega 3.600 tals-
ins. Breytingarnar fyrir mörg okkar
eru gríðarlega miklar og því afar
áríðandi að vel takist til við að koma
þeim upplýsingum til skila. Kynna
þarf nýja stjómsýslu sem og breyt-
ingar á þjónustu við íbúa auk þess
sem kynna þarf ólík svæði og sér-
stöðu þeirra innan sveitarfélagsins
fyrir íbúum annarra svæða þess.
Stríður straumur upplýsinga til íbúa
er nauðsynlegur þáttur í uppbygg-
ingu íbúalýðræðis á svæðinu og for-
senda þátttöku.
Markaðssetning út á við
Verkefhi okkar í markaðsmálum
felst hinsvegar í jákvæðri og mark-
vissri kynningu á nýju sveitarfélagi á
landsvísu enda höfum við fulla
ástæðu til að vera ánægð með bú-
setukost okkar.
Öflugt starf í markaðsmálum og
fagleg notkun á fjölmiðlum mun
nýtast okkur sem verkfæri í sam-
keppni við önnur svæði og í baráttu
okkar fyrir hagsmunum okkar á
landsvísu.
Markaðs- og
kynningarfiilltrúi
Borgarlistinn vill gera þá breyt-
ingu á tillögum sameiningarnefhdar
að hálft starf upplýsingafulltrúa
verði gert að fullu starfi markaðs- og
kynningarfulltrúa. Verkefnin eru
ærin bæði inn á við og út á við. Ráða
þarf í starfið á faglegum forsendum
og gæta þarf þess að öll kynningar-
mál séu uppbyggjandi og verði til að
auka samstöðu okkar inn á við og
hróður okkar út á við.
Þór Þorsteinsson
Hóf. skipar 4. sati Borgarlistans.
FILigger
Hörpuskin, Hörpusilki
og Utitex
fást nú hjá KB Búrekstrardeild
Atvinna í Borgarnesi
Starfsfólk óskast í ræstingar.
Kvöld-, nætur- og helgarvinna.
Umsækjendur þurfa að
geta hafið störf sem fyrst.
Upplýsingar veittar í síma:
892-8454
og á netfanginu
bontaekni@simnet.is
BORGABBYGGÐ
Auglýsing um kjörskrá
Kjörskrá Borgarbyggðar vegna
sveitarstjórnarkosninga í sameinuðu sveitarfélagi
Borgarbyggðar, Borgarfjarðarsveitar,
Hvítársíðuhrepps og Kolbeinsstaðahrepps sem
fram eiga að fara 27. maí n.k. liggur frammi á
bæjarskrifstofunni að Borgarbraut 14 á
opnunartíma skrifstofunnar, frá og með
i miðvikudeginum 17. maí til og með föstudeginum
^ 26. maí.
Bæjarritari.
BUREKSTRARDEILD
gBEHBEBBBBI
Egilsholt 1-310 Borgarnes
Afgreiðsla sími: 430-5505 Fax: 430-5501
Opið frá kl. 8-12 og 13-18 alla virka daga
I