Skessuhorn - 17.05.2006, Blaðsíða 23
MIÐVIKUDAGUR 17. MAI 2006
23
aaUMJIIUkj 3
Vonandi er fall fararheill
fyrir Skagamenn
ÍA tókst ekki að fylgja eftir góðri
frammistöðu sinni á undirbúnings-
tímanum í fyrsta leik fslandsmóts-
ins sem hófst á sunnudaginn. Af-
drifaríkt einbeitingaleysi varð til
þess að lærisveinum Sigurðar
Jónssonar í Grindavík tókst að
tryggja sér 3-2 sigur á síðustu
mínútum leiksins.
Það var fyrst og fremst slakur
varnarleikur sem varð Skagaliðinu
að falli. Arnar Gunnlaugsson kom
liðinu yfir á 23. mínútu með góðum
skalla eftir sendingu frá Guðjóni H.
Sveinssyni. Framan af tókst vel að
loka á einhæfan sóknarleik Grind-
víkinga, sem samanstóð af löng-
um sendingum inn á framherjana
Jóhann Þórhallsson og Mounir
Ahandour. Rétt fyrir lok fyrri hálf-
leiks uppskáru Grindvíkingar hins
vegar laun erfiðis síns, Ahandour
komst inn í sendingu varnarmanns
sem ætluð var Bjarka markverði
og skoraði.
í byrjun seinni hálfleiks var
dæmd vítaspyrna á ÍA og Jóhann
Þórhallsson skoraði úr henni og
kom Grindavík í 2-1. Skagamenn
voru mjög ósáttir við dóminn en
þeir mega teljast heppnir að hafa
ekki fengið á sig aðra vítaspyrnu
skömmu síðar þegar Bjarki mark-
vörður lenti í samstuði við einn
Grindvíkinga. Ekkert var dæmt og
á 76. mínútu jafnaði Ellert Jón
Björnsson leikinn með skalla úr
miðjum vítateig og aftur var það
Guðjón H. Sveinsson sem átti fyr-
irgjöfina.
Allt stefndi í jafntefli sem hefði
með sönnu getað talist sanngjörn
úrslit. Grindvíkingar voru hins veg-
ar á öðru máli og eftir slaka horn-
spyrnu Skagamanna barst boltinn
til Jóhanns Þórhallssonar sem var
einn á auðum sjó og átti ekki í
vandræðum með að koma boltan-
um í netið og tryggja Grindvíking-
/ kröppum dansi.
um 3-2 sigur.
ÍA hefur verið spáð góðu gengi á
Islandsmótinu, þjálfarar og leik-
menn spáðu liðinu 2.-3. sæti
ásamt erkifjendunum í KR. Það er
Ijóst að ýmislegt þarf að bæta í leik
liðsins til að sú spá gangi eftir og
kannski eina huggun harmi gegn
að KR-ingar töpuðu einnig í sínum
fyrsta leik, steinlágu gegn FH 0-3.
Það er þó Ijóst að margt býr í
Skagaliðinu og með betri varnar-
leik og yfirvegaðra spili er það til
alls líklegt. Ekki má heldur gleyma
því að Þórður Guðjónsson gat ekki
tekið þátt í leiknum vegna meiðsla
og munar um minna. Sóknarleikur
liðsins var oft og tíðum góður, Arn-
ar Gunnlaugsson hefur engu
gleymt og sendingar Guðjóns
glöddu oft augað.
Ekki er hægt að kvarta yfir því
að skora tvö mörk í fyrsta leik ís-
landsmótsins. Hins vegar var allt
of mikið um einstaklingsmistök í
leiknum og má skrifa einhver mörk
Grindavíkurliðsins á þau. Það er
ekki ætlan Skesshorns að velta
sér upp úr mistökum einstakra
leikmanna, það er þjálfarans að
skerpa á leik sinna manna. Skaga-
menn verða bara að vona að fall
sé fararheill og Óla Þórðar takist
að blása mönnum sínum þann
baráttuanda í brjóst sem hann er
hvað þekktastur fyrir.
KÓP/Ljósm SK
Markalaust jafntefli í
fyrsta leikVíkings
GULLBRÚÐKAUP
Þann 20. maí 2006
eiga þau Reynir
Guðbjartsson og Helga
Björg Sigurðardóttir
Kjarlaksvöllum í Dalasýslu
gullbrúðkaup.
Reynir og Helga Björg
verða heima þennan dag
og verður heitt á könnunni.
N
Viðskiptavinir
Fjöliðjunnar athugið
Fjöliðjan Akranesi og í
Borgarnesi verður lokuð
föstudaginn 19. maí
Forstöðumaður
Ársstaða
heilsugæslulæknis
í Búðardal
Heilsugæslustöðina í Búðardal vantar
heilsugæslulækni í afleysingar í 1 ár
frá og með 1. september 2006.
Stöðin er H2-stöð og við hana starfa 2 læknar.
Stöðin þjónar Dalasýslu og Austur-
Barðastrandasýslu og er vel búin.
Starfið er mjög fjölbreytt og gefandi.
Sérfræðiréttindi í heimilislækningum eru æskileg.
I Nánari upplýsingar hjá Þórði Ingólfssyni yfirlækni
I í síma 434-1113 eða 893-1125 og hjá Pétri
Jónssyni framkvæmdarstjóra í síma 824-5202.
Heilsugæslustöðin Búðardal
Víkingar í Ólafsvík hafa fengið til
sín fimm nýja leikmenn fyrir kom-
andi keppnistímabil í fótboltanum,
en einn þeirra.Vilhjálmur Vilhjálms-
son hefur spilað með liðinu áður.
Aðrir nýir leikmenn eru Bosníu-
mennirnir Adiz Sjerotanovic sem
er 24 ára gamall og Dalibor Nedic
sem á 6 landsleiki fyrir Bosníu og
Herzegóvínu að baki og er hann
32 ára gamall. Landi hans er hinn
31 árs vítaskytta Kevin Fothering-
ham en hann hefur aðeins klúðrað
einu af tuttugu vítum sínum fyrir
skosk lið og Þór Steinar Ólafs sem
er Ólafsvíkurættaður og kemur úr
Breiðabliki. Annar leikmaður,
Matej Grobovsek sem er tuttugu
og þriggja ára gamall er einnig á
leiðinni en hann kemur til landsins
í dag. Hann var fyrirliði síns liðs í
heimalandi sínu Slóveníu.
En Víkingur spilaði fyrsta leik
sinn í fyrstu deildinni á íslands-
mótinu gegn sterku liði Fram.
Leikurinn var rólegur framan af og
átti Víkingur eitt færi í um miðjum
fyrri hálfleik þegar Þór Steinar
Ólafs skaut úr markteig en Gunnar
Sigurðsson markvörður Framara
blakaði boltanum yfir. í fyrri hálfleik
var jafnræði með liðunum en Vík-
ingsmenn voru þó helst til beittari í
sínum sóknaraðgerðum.
Fyrri hluta seinni hálfleiks voru
Framarar ferskari og reyndu hvað
þeir gátu að komast í gegnum
varnarmúr Víkinga sem hélt. Þeirra
fyrsta færi kom á 50. mínútu þeg-
ar Andri Fannar Ottósson átti gott
skot í stöng sem Ragnar Mar Sig-
rúnarson kom í burtu. Víkingar áttu
síðan stórsókn á 70. mínútu þegar
Tryggvi Hafsteinsson slapp inn fyr-
ir eftir frábæra sendingu frá Vil-
hjálmi Vilhjálmssyni en Gunnar
Sigurðsson sá við honum og varði.
Framarar lágu eftir þetta í sókn en
varnarmenn Víkinga spiluðu gífur-
lega vel og komust sterkir sóknar-
menn Safamýrarliðsins aldrei í
gegn. Niðurstaða 0-0 [ skemmti-
legum baráttuleik.
Mikið af áhorfendum mættu frá
Víkingum eða um 300 manns.
„Sjóræningjarnir", nýtt stuðnings-
mannafélag Víkings hélt uppi
stuðinu og söng og hrópaði allan
leikinn. Næsti leikur Víkinga veröur
svo á móti Þrótti Reykjavík og
verður hann spilaður í Ólafsvík á
laugardag klukkan 14.
Ágúst Jóhannesson
dtriftargjafir í mildu úrmcdi
Stíidenta&tjcmian ag StúdentavÓAÍn
'Ðámiir og fkrraavmhandáúr