Skessuhorn


Skessuhorn - 14.06.2006, Blaðsíða 2

Skessuhorn - 14.06.2006, Blaðsíða 2
2 MIÐVIKUDAGUR 14. JÚNI2006 Funda um hlut- verk háskóla í samfélaginu I kvöld fer fram á Bifföst fund- ur um hlutverk háskóla í þróun samfélags. Það eru Rannsóknar- miðstöð Viðskiptaháskólans á Bifröst og Borgarbyggð sem bjóða til kynningarfundarins. Þar kynnir Kolfinna Jóhannesdóttir viðskiptafræðingur og starfsmað- ur Rannsóknamiðstöðvarinnar niðurstöður rannsóknar sinnar á svæðisbundnum áhrifum Við- skiptaháskólans á Bifföst. Eins og ffam hefur komið í Skessu- homi hefur Kolfinna skrifað BS lokaritgerð þar sem m.a. kemur ffam að hlutdeild Viðskiptahá- skólans í mannfjöldaaukningu í Borgarbyggð ffá árinu 1997 sé veruleg. Dregin var sú ályktun að Viðskiptaháskólinn hafi með starfsemi sinni fjölgað yngra fólki og dregið úr kynjahalla á svæðinu. Fjölgtm þekkingarfyrir- tækja í Borgarbyggð virðist mega rekja a.m.k. að nokkm leyti til Bifrastar. Þá hefur Vðskiptahá- skóhnn haft vemleg svæðisbund- in áhrif til hækkunar á menntun- arstigi. MM Til mtnnis Skessuhom minnir á 17. júní hátíðarhöld. Þjóðhátíðardag- inn ber að þessu sinni upp á laugardag. Hátíðarhöld eru mismikil milli sveitarfélaga á Vesturlandi, en þó einhver dagskrá víðast hvar. Veðtyrhorfivr Það verða suðlægar áttir með vætu sunnan- og vestan- lands og nokkuð mildu veðri næstu daga. Spivrntntj vikijnnar í síðustu viku var spurt á skessuhorn.is; Hvernig líst þér á þær breytingar sem eru að verða á ríkisstjórninni? Tæplaga 29% svarenda lýst mjög illa á þessar breytingar, tæp 25% svöruðu að þeim lit- ist mjög vel á þær, 18% líst þokkalega á þær, tæplaga 18% svöruðu því að þeim lítist frek- ar illa á breytingarnar og um 10% töldu sig ekki hafa skoð- un á spurningu vikunnar. í næstu viku spyrjum við: „Ætlar þú á Landsmót hesta- manna að Vind- heimamelum í Skagafirði?" Svaraðu án undanbragða á www.skessuhorn.is Vestlendimji/Vr viNnnar S kess u - horn útnefn- ir að þessu sinni Mar- gréti Frið- jónsdóttur f r a m - k v æ m d a - stjóra Borgfirðingahátíðar Vest- lending vikunnar, fyrir vel heppnaða hátíð vítt og dreift um Borgarfjörð um liðna helgi. Uppsagnir sex bæj arstarfsmanna valda urg Nokkurrar óánægju gætir í Snæ- fellsbæ þessa dagana vegna ákvörð- unar Kristins Jónassonar, bæjar- stjóra um að segja upp sex starfs- mönnum sveitarfélagsins sem starfa við íþróttamannvirki í Olafsvík. Gunnar Om Gunnarsson, oddviti J lista sem situr í minnihluta bæjar- stjómar, segir uppsagnirnar ólög- mætar og gengur svo langt að kalla þær pólitískar ofsóknir. „Bæjar- stjóranum ber skylda til að ræða slíkar uppsagnir við bæjarstjórn áður en gripið er til slíkra aðgerða. Þetta umrædda fólk studdi J listann í aðdraganda kosninga og mér seg- ir svo hugur að það hafi átt þátt í uppsögnunum núna korteri eftir kosningar," sagði Gunnar Om í samtali við Skessuhom. Að sögn Kristins Jónassonar, bæjarstjóra era uppsagnirnar til- komnar vegna þess að endurskipu- leggja eigi starfsemina og hann sé fyrst og fremst að undirbúa það að slíkar breytingar geti gengið efdr. „Við stefnum á að endurráða í störf samkvæmt nýju skipuriti í síðasta lagi 20. júlí nk. og geta þá þeir aðil- ar sem fengu uppsagnarbréf 31. maí sl. sótt um á nýjan leik, eða tíman- lega áður en uppsagnarfrestur rennur út þann 1. september. Eg er fyrst og fremst að gæta hagsmuna bæjarfélagsins og gera okkur kleift að haga starfseminni þannig að hagræði verði sem mest og starfs- kraftar sveitarfélagsins nýtist þar sem þörf fýrir þá er mest hverju sinni,“ sagði Kristinn í samtali við Skessuhorn. Gert er ráð fyrir að málið verði rætt á bæjarstjórnarfundi nk. fimmtudag. Samkvæmt heimildum Skessuhorns er ástæða uppsagn- arma fyrst og ffemst sú að viðkom- andi starfsmenn vildu ekki una því að vera færðir til milli vinnustaða í Olafsvík og á Hellissandi enda telja þeir það brot á ráðningarsamningi sem þeir starfi eftir og þýddi til- færsla meiriháttar breytingar á um- samdri vinnutilhögun. Helga Hafsteinsdóttir er formað- ur STS, Starfsmannafélags Dala og Snæfellsnessýslu, en félagið gætir hagsmtma opinberra starfsmanna á félagssvæðinu og telur 280 félags- menn. Heiga sagðist í samtali við Skessuhom sem minnst vilja tjá sig um málið á þessu stigi, enda við- kvæmt fyrir þá sem í hlut eiga. Sagðist hún hafa fundað með við- komandi félagsmönnum sínum og hefur hún einnig óskað eftir fundi með bæjarstjóra Snæfellsbæjar og yfirmanni íþróttamannvirkja og gerði hún ráð fýrir að sá fundur yrði síðar í þessari viku. „Eg vonast að sjálfsögðu til að þetta mál leysist fljótt og örugglega þannig að allir getir vel við unað,“ sagði Helga. MM Rangar fréttir um sumarlokanir á SHA í fréttum Ríkisútvarpsins síðast- liðinn föstudag og í Morgunblað- inu á laugardag kom fram að vænta mætti lokana á fæðingarþjónustu Sjúkrahúss og heilsugæslustöðvar- innar á Akranesi (SHA). Heimild þessara frétta var bókun Ljós- mæðrafélags Islands sem send var fjölmiðlum. Á heimasíðu SHA kemur ffarn að fréttirnar séu rangar og ekki verði um sumarlokanir að ræða. Fram kemur að haft hafi ver- ið þrívegis samband við fféttastofu útvarps þennan sama dag og óskað leiðréttingar á fréttinni. Stjórn Ljósmæðrafélagsins var einnig ritað erindi með ósk um að bókun þessi væri leiðrétt og jafnframt óskað eft- ir skýringum á villandi staðhæfing- um og að upplýst yrði hvaðan heimildir þessa efnis hefðu borist. Svar ffá formanni félagsins, Guð- laugu Einarsdóttur, barst stofhun- inni þegar á föstudagskvöld og þar segir m.a: „Undirrituð biðst vel- virðingar á því að fæðingardeild SHA hafi ranglega verið nefnd í ályktun Ljósmæðrafélags Islands þar sem stjórn félagsins lýsti á- hyggjum sínum yfir lokunum með- göngu- og fæðingardeilda um land- ið. Misskilningur á upplýsingum sem fengnar voru ffá starfsmanni á LSH um að fæðingardeild SHA væri lokuð olli því að undirrituð mistúlkaði sem um sumarlokanir væri. Undirrituð tekur á sig ábyrgð á þessum misskilningi og hefur þegar leiðrétt ályktunina.“ Itrekað er á heimasíðu SHA að gert sé ráð fýrir óbreyttri starfsemi á SHA í sumar og ekki verði um sumarlokanir að ræða á kvenna- deild né öðrum legudeildum sjúkrahússins fremur en undanfarin ár. HJ Höfrungur bíður heimferðar Blaðamaður Skessuhorns sem leið áttd um höfhina í Klakksvík í Færeyjum um síðustu helgi rakst á kunnuglegt skip sem lá þar í höfn- inni. Var það strandferðaskipið Barsskor sem lokið hefur hlutverki sínu í Færeyjum. Sldpið var smíðað á Akranesi árið 1929 og er 17,75 metrar að lengd og 4,24 metrar að breidd. Við sjósetningu var því gef- ið nafnið Höfrungur og var í eigu Haraldar Böðvarssonar. Höfrungur var seldur til Færeyja árið 1946. Þar var skipið notað til flutninga á pósti og farþegum til og ffá Klakksvík. Eins og fram kom í fréttum Skessuhoms í vor hefur verið tekin ákvörðun um að selja skipið til Akraness fyrir eina færeyska krónu. Lögþingið þarf þó að leggja blessun sína við söluna. Eins og á myndinni má sjá lítur skipið vel út og ekki verður séð að ffásögn kollega okkar á blaðinu Sósíalnum á ástandi skipsins eigi rétt á sér. Þar sagði á sínum tíma að „hann er illa farin og má pumpast hvonn dag fýri ikki fara til botns". Ekki liggur fýrir hvenær getur orðið af heimferð þessa merka skips til Akraness. HJ Sparisjóður Mýrasýslu brátt með öll bankaviðsldpti á Siglufirði Glitnir og Sparisjóður Siglu- fjarðar, sem er að fullu í eigu Spari- sjóðs Mýrasýslu, hafa náð sam- komulagi um að Sparisjóður Siglu- fjarðar kaupi og taki yfir rekstur útibús Glitnis á Siglufirði. „Mark- mið kaupanna er að tryggja við- skiptavinum á Siglufirði áframhald- andi þjónustu í heimabæ en ljóst er að ekki er rekstrarlegur grundvöll- ur fyrir tvær fjármálastofnanir í bænum. Sparisjóður Siglufjarðar yfirtekur samninga við starfsmenn útibúsins fýrir utan tvo starfsmenn sem láta af störfum fýrir aldurs sak- ir,“ segir m.a. í tilkynningu ffá Sparisjóðnum. Stefnt að því að Sparisjóðurinn taki við rekstri úti- búsins þann 26. júní n.k. Viðskipta- vinum útibús Glitnis á Siglufirði verður sent bréf þar sem greint verður nánar ffá flutningi viðskipta þeirra til Sparisjóðsins. MM Starfbæjarstjóra auglýst GRUNDARFJÖRÐUR: Nú hefur starf bæjarstjóra í Grund- arfirði verið auglýst laust til um- sóknar. Sem kunnugt er náði hsti Sjálfstæðisflokksins hrein- um meirihluta í bæjarstjóm og í kosningabaráttunni kom fram að flokkurinn myndi auglýsa starfið laust næði flokkurinn hreinum meirihluta. Núverandi bæjarstjóri, Björg Agústsdóttár, ákvað fýrir nokkra að gefa ekki kost á sér til starfans. Hún mun hins vegar gegna áffam starfi bæjarstjóra þar til nýr hefur ver- ið ráðinn. -hj Stofhfundur lífeyrissjóðs VESTURLAND: Næstkom- andi mánudag fer ffam á Akra- nesi stofnfundur sameinaðs líf- eyrissjóðs Suðurlands og Vest- urlands. Þar verður nýtt nafn og merki sjóðsins kynnt, nýjar sam- þykktir kynntar og kynning á stofnefnahagsreikningi. Þá fer fram kosning stjórnar og vara- manna. Að sögn Gylfa Jónas- sonar, ffamkvæmdastjóra sjóðs- ins verður starfsemin á Akranesi áffam með svipuðu sniði og ver- ið hefur þrátt fýrir sameining- una við Sunnlendinga. -mm Maður reyndist krummi AKRANES: Síðastliðinn sunnudag var lögreglunni á Akranesi tilkynnt um að líklega væri maður kominn hátt upp í Sementsverksmiðjuskorstein- inn. Lögreglumenn fóra á vett- vang en sáu engan mann. Hins- vegar komu þeir auga á hrafn of- arlega í skorsteininum. Líldegt er að tilkynnanda hafi missést en lögreglumennirnir töldu kramma fullfæran um að koma sér niður úr skorsteininum, ef honum sýndist svo og yfirgáfu því vettvang. -so Auglýst eftir sveitarstjóra SUNNAN HEIÐAR: Á næstu dögum verður staða sveit- arstjóra í nýju sveitarfélagi sunnan Skarðsheiðar auglýst laus til umsóknar. Sveitarfélagið varð til við sameiningu Hval- fjarðarstrandarhrepps, Skil- mannahrepps, Innri-Akranes- hrepps og Leirár- og Mela- hrepps. I þeim sveitarfélögum var ekki starfandi sveitarstjóri. Hallfreður Vilhjálmsson oddviti E-Iistans, sem hlaut hreinan meirihluta, segir það hafa verið stefhu listans að auglýsa starfið laust og við það verði að sjálf- sögðu staðið. -hj Bæjarstjómar- skipti í gær AKRANES: Fyrsti fundur nýkjörinnar bæjarstjórnar Akra- neskaupstaðar var haldinn í bæj- arþingsalnum í gær. Á dagskrá var m.a. kosning í nefndir, stjórnir og ráð Akraneskaup- staðar skv. samþykkt tun stjóm og fundarsköp Akraneskaup- staðar svo og ráðning í starf bæj- arstjóra. Þar tók Gísh S Einars- son við bæjarstjórastarfinu af Guðmundi Páli J ónssyni. -mm

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.