Skessuhorn


Skessuhorn - 14.06.2006, Page 18

Skessuhorn - 14.06.2006, Page 18
18 MIÐVIKUDAGUR 14. JUNI2006 ggmsjgiWfSEM Hugleiðingar um ný tækifæri í samein- uðu sveitarfélagi sunnan Skarðsheiðar Nú þegar við erum orðin íbúar í nýju sameinuðu sveitarfélagi er rétt að huga að þeim möguleikum sem opnast við að vera orðin hlutd af stærri heild. Einn af þeim möguleikum er að nú gefst tæki- færi til að stofna öflugri félög en við höfum haft tækifæri til fram að þessu. Þessi mál eru mér afar hugleikin, því að mínu mati er það hluti af því að taka ábyrgð á velferð sinni og samfélagsins að taka þátt í félagsstarfi sem stuðlar að bættu samfélagi. Sú sýn sem allflestir vilja sjá í sínu nánasta umhverfi er ham- ingjusamt og heilbrigt fólk, fallegt um- hverfi, góðir vinir og fjölskylda sem gleðja okkur með nærveru sinni og rétta okkur hjálparhönd ef á þarf að halda. Einn þáttur er styður það er að vera þátttakandi í öflugu kvenfélagi. Kvenfé- lag á að stuðla að samheldni og vináttu meðal kvenna. Kvenfélag á að þjálfa konur til virkrar þátttöku í félagsstörfun og með því að stuðla að því að raddir kvenna heyrist sem víðast í samfélaginu. Kvenfélagskonur láta sig varða málefni aldraðra og barna og geta lagt hönd á plóg tdl að gera líf þeirra gleðiríkara. Kvenfélagskonur láta sig einnig varða okkar nánasta umhverfi, þær eiga og geta bætt ásýnd sveitarfélagsins. Draumur minn er að við konur í sam- einuðu sveitarfélagi berum gæfu til að stofha sameiginlegt og öflugt kvenfélag sem lætur til sín taka í þessum málum. Nú þegar eru starfandi þrjú kvenfélög í sveitarfélaginu, það hefur kostd og galla að rejrna að sameina þessi félög. Þar er stærsti Þrándur í Götu að konur bera í brjósti sterkar tilfinningar til síns gamla félags og eiga erfitt með að sjá það hverfa inn í önnur. Þetta er afar eðlilegt enda hafa konur lagt af mörkum mikla vinnu í sínu gamla félagi og átt þar margar ánægjustundir. Eg er því þeirr- ar skoðxmar að best sé að byrja með hreint borð, ef svo má að orði komast og stofna nýtt félag. Annar vetvangur sem góður er m.a. til að efla og þroska félagsvitund barna og unglinga eru hin gömlu og góðu ung- mennafélög. Eg er einnig þeirrar skoð- unar að það væri gæfuspor fyrir samfé- lagið ef stofnað yrði eitt öflugt ung- mennafélag. Við sem höfum alist upp hér á svæðinu og erum komin af barns- aldri höfum flest starfað í ungmennafé- lagi en fyrr á árum voru Þrestir, Haukur og Vísir með nokkuð blómlegt starf. En tímarnir breytast og á seinni árum hefur fjarað undar starfsemi þessara félaga. Eg tel því að ef og þegar til stofnunar kemur sé mikilvægt að hlusta á raddir ungmennanna og leitast við að rúma sarfsemi sem þeim hugnast og er þeim til þroska innan félagsins, öðruvísi verð- ur þátttaka þeirra ekki virk. Kæru sveitungar, vissulega er sumarið ekki besti tíminn til að stofna ný félög en ég er þeirrar skoðunar að það sé samt sem áður góður tími fýrir starf undir- búningshópa. Þeir hópar gætu auðveld- lega lokið undirbúningsvinnu svo hægt verði að ganga til stofnunar strax á kom- andi hausti. Eg hvet þá er vilja koma að þeirri undirbúningsvinnu að hafa sam- band við mig. Bestu kveðjur, Petrína Ottesen Opið bréf til stjómar Hestamannafélagsins Snæfellings Við félagar í Hesteigendafélaginu Geisla á Hellissandi lýsum furðu okkar á vinnubrögð- um stjórnar Snæfellings varðandi úthlutunar styrkja til byggingar reiðhúsa og reiðskemma á félagssvæði Snæfellings. Þann 10 april síð- astliðinn barst stjórn Geisla bréf ffá Snæfell- ingi. Bréfið var afhent af félögum í Hesteig- endafélaginu Hring í Olafsvík. Erindi þessa bréfs var á þá leið að félagar í Geisla skyldu taka afstöðu til þriggja kosta og svarið skyldi liggja fyrir ekki seinna en 17 april. Var brugðist skjótt við og haldinn nokkuð fjölmennur fundur þar sem sam- þykkt var að gera það að tillögu okkar að þessum 40 milljónum sem til úthlutunar voru skyldi skipt þannig að 10 milljónir færu til félagsins í Stykkishólmi, 20 milljónir til félagsins í Grundarfirði og 5 milljónir á hvort félag í Snæfellsbæ; Hring og Geisla. Ef ekki væri hægt að verða við þessu þá töld- um við að næst besti kosturinn „sem boðið var upp á í bréfinu" væri að reisa stóra reið- höll fyrir Snæfelling í Grundarfirði. Boðið var upp á báða þessa kosti í bréfi Snæfellings, fyrir utan að talað var um 10 milljónir í Snæfellsbæ sem er félagssvæði Geisla og Hrings. Rökin fyrir því að við vild- um skipta þeirri upphæð er að þessi hesteig- endafélög eru með aðstöðu á sitthvoru svæð- inu og vegna fjarlægðar er ekki kostur að samnýta aðstöðuna á daglegum grundvelli, enda mun svona hús nýtast best á vetrum þegar samgöngur eru erfiðar. Ekki brást stjórn Snæfellings síður skjótt við þegar kom að því að afgreiða umsókn okkar, því að okk- ur barst bréf dagsett 20. april, undirskrifað af einum stjórnarmanni Snæfellings, Sigrúnu Bjarnadóttur. Orðrétt var svarið á þessa leið: „Þar sem umsókn Hesteigendafélagsins Geisla á Hell- issandi um styrk til byggingar reiðhúss var ó- fullnægjandi gat stjórn Snæfellings ekki tek- ið hana til greina. Ur sama sveitarfélagi barst einnig umsókn sem uppfyllti kröfur stjórnar og taldi stjórn Snæfellings ekki ráðlegt að sækja um styrk til byggingar á tveimur reið- húsum í sama sveitarfélagi.“ Svo mörg voru þau orð. Nú viljum við spyrja stjóm Snæfellings, hvað er ófullnægj- andi í umsókn okkar og hvað uppfyllir kröfu stjórnar? Við sækjum nákvæmlega um á þeim forsendum sem þið gefið okkur, að velja eitt- hvað af þessum þremur kostum. Einnig vilj- um við spyrja hvernig kynntd Snæfellingur þetta mál? Við fengum fýrst upplýsingar um að við ættum kost á að sækja um þetta fé, 10. april 2006, þegar við fáum bréfið ffá Snæfell- ingi úr höndum Hrings í Olafsvík, sem greinilega höfðu haft vitneskju um þetta í langan tíma og höfðu meira að segja fengið úthlutaða lóð undir reiðhús á félagssvæði Hrings í Olafsvík. Einnig höfðu þeir fengið loforð hjá Snæfellsbæ um styrk í formi nið- urfellingar á aðstöðugjöldum fyrir væntan- legt reiðhús, „allt saman fyrir 10. april“. Því miður lítur þetta út fyrir að hafa verið fýrirffam ákveðið af hálfu „einhverra". Við félagar í Geisla skorum á stjórn Snæ- fellings að sniðganga ekki eitt hesteigendafé- lag af þeim fimm sem eru á svæðinu og end- urskoða afstöðu sína þannig að hún verði til hagsbóta fýrir alla félagsmenn, ekki bara fáa útvalda. Með von um greið og skýr svör. Fyrir hönd Hesteigendafélagsins Geisla Hell- issandi. Reynir Axelsson 'J/íiMihe’HtUj Framhaldssaga fyrir böm - finnst mér lífið vera að „Saga megi ekki gjalda sannleikans.“ Ef sannleikurinn skemmir söguna verður hann bara að gjöra svo vel að víkja sæti. En sjó- menn eru nú ekki einir um þennan hugsun- Jæja, nú er sumar- ið loksins komið, þó sumum þyki það kannski í blautara og hráslagalegra lagi eins og er. Það hlýt- ur að þorna ein- hverntíman. I mansöng fýrir fjármannsrímu af Sigurði ffá Brún yrkir Höskuldur ffá Vatnshomi: Þegar vorar vaknar þrá vorsins börnum öllum hjá, ferðalangar fara á stjá fjöll og dali til að sjá. Blœrínn andar blítt á kinn, búinn langi veturinn, fénaðurinn framgenginn, fákarnir við túngarðinn. Fuglar kveða fjörugt lag, fcerist líf í bóndans hag, lautir grænka og lækjardrag, lömbin fæðast nótt og dag. Vors í blænum vonirnar verða stundum léttfleygar, ungu daladísirnar dreymir þá um ástirnar. Úti í brekkum broshýr snót breiðir faðminn sumri mót, hefir mjúka hönd og fót, hún er að fara á stefnumót. Þetta er að vísu ffekar ort með sveitaróm- antíkina í huga en af því að nú er sjómanna- dagurinn nýliðinn er ekki úr vegi að rifja hér upp kafla úr rímu Stefáns ffá Móskógum af nafna hans Péturssyni þar sem segir af affek- um umrædds Stefáns við sjómennsku: Fram í Kálfárkoti bjó, kynstur sjálfur að sér dró. Einatt hálfur sótti sjó, seig og þjálfuð aflakló. Köld voru svör hjá karlinum en kapp og fjör íhreifingum. Augun snör með afbrígðum er otaði hjör að stórfiskum. Brysti á Cræði í kólgukast kjarngott fæði aldrei brast. Oft í brœði andskotast, ort voru kvæði og drukkið fast. Útiiegum alvanur, allavega þrautreyndur. Sýndist þegar sjötugur sjávarfegurð heillaður. í öllum vanda þarfaþing, þekkti fjandans útsynning. Þegar landið lagði í kring lenti í strandi hetjan slyng. Mátti sverja meinsæri, mannorð verja á skútunni, stýra í hverju stórviðrí, stráka berja úr kojunni. Kompásstrikin kunni öll, kort að strika og þekkti fjöll. Aldrei hik né æðruköll oft þó kvikan gerði spjöll. Ef að löndum öðrum bar eins og Möndull ráðkænn var, oft í vöndu viðbragðssnar. Whiskyblöndu saup hann þar. Sjómannslífið hefur lengi verið fjölbreyti- legt og stundum eitthvað ffásagnarvert inn á milli þó vissulega hendi það stundum sjó- menn eins og fleiri að heiðra þá gullnu reglu arhátt. Fyrir allmörgum árum, þegar skemmtiferðalög vora meiri viðburðir en nú er og framkvæmd þeirra með nokkuð öðru sniði, fór hópur af fólki í skemmtiferð og þar á meðal prestur nokkur, hvort sem hann var nú fararstjóri eða aðeins venjulegur þátttak- andi. Gist var í svefnpokaplássi og eins og góðum guðsþjóni sæmir aðstoðaði prestur alla sem áttu í erfiðleikum, hvers eðlis sem þeir nú voru og blés meðal annars í vindsæng fýrir konu nokkra. Að morgni var svo kveð- ið: Guðfinna var í vanda, sá vandi leystist skjótt. Hún á heilögum anda hvíldi í alla nótt. Það er nú svo með þetta blessað líf að það færir okkur sjaldnast eintóma hamingju né heldur eintómar sorgir heldur blandar ein- hvers konar hæfilega mixtúru úr öllu saman. Eftír Bjama Gíslason er þessi ágæta vísa: Kæla heitt og hita kalt heimurinn er laginn, þó það beri ekki allt upp á sama daginn. Lengi getur mannskepnan lifað á voninni þó hún sé kannske ekki undirstöðufæða ein og sér. Effir ein vonbrigði kvikna nýjar von- ir og nýjar væntingar, kannski tíl þess eins að skapa fleiri vonbrigði, nú eða hugsanlega að rætast. Gísli Olafsson ffá Eiríksstöðum kvað: Lifnar vonin Ijúf og mild, lækkar mótgangsandinn. Ertu sál mín eitthvað skyld öldunum við sandinn. Eftírfarandi vísa effir Guttorm J. Gutt- ormsson ber nafnið vinarkveðja þó raun- veralega sé hún líkari því að um ástarvísu sé að ræða: Vinsemd þín, nú veit ég það var mér besta gjöfin. Héðan skilur okkur að ekkert nema gröfin. Ekki veit ég hver orti þessa hugleiðingu um lífið og tilverana: Lífið er eins og Ijótur poki, sem lafir á snúru í norðanroki og fyllist af vindi svo fýkur tuskan og fer einhvern djöfulinn út í buskann. Steinbjörn Jónsson frá Háafelli virðist ekki hafa farið á mis við vonbrigði lífsins ef marka má eftírfarandi vísu: Vonin mín hún fór á fjöll, fennti og dó í giljum. Gleðin, hún varð úti öll í lifshríðarbyljum. Það var hins vegar Bjarrú ffá Gröf sem lýsti lífinu með þessum orðum: Áfram tifar tímans kvörn, tekst henni margt að gera. Framhaldssaga fyrir börn finnst mér lífið vera. Látum það verða lokaorðin að sinni. Með þökfyrir lesturinn, Dagbjartur K Dagbjartsson Refsstöðum 320 Reykholt S 435 1367 og 849 2115 dd@simnet.is

x

Skessuhorn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.