Skessuhorn - 14.06.2006, Qupperneq 23
MIÐVIKUDAGUR 14. JÚNÍ 2006
23
Fjórir í æfinga-
hóp U17
Lúkas Kostic hefur valið fjóra
leikmenn ÍA í æfingahóp lands-
liðs karla undir sautján ára aldri í
knattspyrnu. Það eru Trausti Sig-
urbjörnsson, Aron Ýmir Péturs-
son, Björn Bergmann Sigurðs-
son og Ragnar Leósson. HJ
Umf. íslendingur
sigraði Sparisjóðs-
hlaupið
Þátttakendur í Sparisjóðs-
hiaupinu.
Sparisjóðshlaup UMSB fór
fram sl. sunnudag. Þrjár sveitir
hlupu. Sveit Umf. íslendings
sigraði hlaupið og sveit Umf.
Dagrenningar varð í öðru sæti. f
þriðja sæti varð sveit starfsfólks
Sparisjóðs Mýrasýslu. Að loknu
hlaupi bauð Sparisjóðurinn upp
á veitingar og allir þátttakendur
fengu vandaðan vasareikni frá
Sparisjóðnum að gjöf. GS
Frá ballinu í OSali. Fleiri myndir má
sjá á heimasiðunni; borgarbyggd.is/odal
LokabaU Óðals í
Borgamesi
Starfsári félagsmiðstöðvarinn-
ar Oðals í Borgarnesi lauk í lið-
inni viku með diskóteki að kvöldi
útskriftardags í grunnskólanum.
Þar mættu nemendur 7. bekkjar
og til og með nýútskrifuðum
nemendum í 10. bekk. DJ Brynj-
ar Már ffá útvarpsstöðinni FM
95,7 mætti með plöturnar sínar í
Oðal og þar var rífandi stemning
á síðasta diskóteki vetrarins allt
til miðnættis. A ballinu var ný
stjórn næsta starfsárs kynnt en í
henni sitja Elfar Már Olafsson,
Auður Þórðardóttir, Oli Þór
Jónsson og Þórkatla Dagný Þór-
arinsdóttir.
MM
Sjómannadagsmót
GRun í Grundarfirði
Sjómannadags-
mót Guðmundar
Runólfssona hf. i
golfi fór fram í
Grundarfirði sl.
föstudag. Ríflega
40 manns tóku
þátt í mótinu.
Golfklúbburinn
fékk við þetta
tækifæri stórt tjald
að gjöf frá Guð-
mundi Runólfs-
syni hf. MM
Gunnlaugur Magnússon var meðal keppenda á
mótinu en hann varð 86 ára á keppnisdaginn og
er hann eldhress að vanda. Hér er Gunnlaugur
ásamt Önnu Maríu og Helgu Ingibjörgu.
Gæðingakeppni og úrtaka Skugga
Gæðingakeppni Hestamanna-
félagsins Skugga var haldið að
Vindási við Borgarnes, sunnu-
daginn 11. júní. Jafnframt mótinu
var haldin úrtaka fyrir landsmótið
sem haldið verður að Vindheima-
melum um mánaðamótin.
Heldur slök þátttaka var í mót-
inu, engin börn tóku þátt, aðeins
einn unglingur, tveir í ungmenna-
flokki, þrír í A-flokki gæðinga og
níu í B-flokki gæðinga. Hesta-
mannafélagið Skuggi á rétt á að
senda tvo keppendur í hverja
grein landsmótsins.
[ forkeppni urðu eftirfarandi
efstir:
A-flokkur gæðinga
1. Grettir Börkur Guðmundsson
og Von frá Búðardal 7,98
2. Gunnar Halldórsson og Gyðja
frá Engimýri 7,75
B-flokkur gæðinga
1. Jakob Sigurðsson og Nykur frá
Hítarnesi 8,23
2. Karl B. Björnsson og Lýsingur
frá Svignaskarði 8,21
3. Viggó Sigursteinsson og
Hringur frá Skjólbrekku8,20
4. Jón Ólafsson og Svaðilfari frá
Báreksstöðum 8,02
5. Grettir Börkur Guðmundsson
og Bragi frá Búðardal 8,01
Bjarki Þór Gunnarsson og
Hljómur frá Borgarnesi en þeir
voru einu keppendur ungmenna-
flokks. Með þeim á myndinni er
Halldór Sigurðsson formaður
Skugga.
Ungmennaflokkur
1. Hans Sonne Lund og Mósart
frá Eskiholti II 8,07
2. Rasmus Christjansen og Hala-
stjarna frá Egilsstaðabæ 8,05
Unglingaflokkur
1. Bjarki Þór Gunnarsson á Hljóm
frá Borgarnesi 7,77
í úrslitum A-flokks gæðinga
sigraði Gyðja og í B-flokki sigraði
Lýsingur.
Þá sigraði Halastjarna í ung-
mennaflokki.
Hestamannafélagið Skuggi
mun aðeins senda 5 keppendur á
landsmót.
SO
Ðaráttusigur í Keflavík
Skagaliðið vann sinn fyrsta leik
sl. fimmtudag þegar liðið fór til
Keflavíkur. Ferðin reyndist til fjár
því liðið sótti sigur gegn Keflvík-
ingum og um leið sín fyrstu stig.
Baráttugleði og sigurvilji skópu
1-0 sigur Skagamanna sem
verma þó enn botnsæti deildar-
innar með þrjú stig. Það er þó
Ijóst að ef liðið býður upp á
meira af því sem var á boðstól-
um í Keflavík eru því allir vegir
færir.
Skagaliðið hefur á köflum í
sumar sýnt fínan fótbolta, en inn
á milli hefur einbeitingarleysi
skotið upp kollinum og stundum
er eins og liðið hafi ekki haft trú á
því sem það er að gera. Allt ann-
að var uppi á teningnum í Kefla-
vík þar sem liðið mætti í leikinn
með fulla trú á eigin getu. Bar-
áttuviljinn einkenndi leik liðsins
og uppskeran var eftir því.
Ólafur Þórðarsson gerði fjöl-
margar breytingar á liðinu og
þær skiluðu sínu. Ellert Jón
Björnsson skoraði mark Skaga-
manna á 22. mínútu og kom það
eftir sókn þar sem allir leikmenn
liðsins gáfu sitt í leikinn. Eftir
góða sókn upp vinstri vænginn
átti Guðjón H. Sveinsson send-
ingu fyrir markið og Arnar Gunn-
laugsson nikkaði boltanum
áfram fyrir markið. Þar kom Ellert
Jón og setti boltann í netið. Það
sem eftir lifði leiks einkenndist af
baráttu og áttu Skagamenn sig-
urinn fullkomlega skilinn.
Það er meira en að segja það
að sækja þrjú stig í Keflavík. Lið-
ið lék gegn FH-ingum í síðustu
umferð og máttu íslandsmeistar-
arnir hafa sig alla við til að landa
sigri. Það munu ekki öll lið feta í
fótspor Skagamanna og er sig-
urinn enn sætari fyrir vikið.
Það er Ijóst að í Skagaliðinu
býr mikill styrkur og geta. Liðið
þarf aðeins að hafa trú á því sem
það er að gera og þá á það eftir
að sigla upp töfluna. Oft hefur
vantað upp á baráttuna í sumar
en þegar hún er fyrir hendi er
hálfur sigur unninn. Nú verður
liðið að halda áfram á þessari
braut og sýna sínar bestu hliðar
á Skaganum á fimmtudaginn, en
þá mætir liðið Breiðablik. Nýlið-
arnir gerðu jafntefli við FH í síð-
asta leik og ÍA verður því að
bjóða upp á sinn besta leik til að
hafa sigur. Með baráttuvilja og
sjálfstrausti er það hins vegar vel
gerlegt.
Verðlaunahafar á Sjómannadagsmóti GRun í Grundarfirði, sem fjallað er um hér til hliðar, í nýja tjaldinu.
LANDMÆLINGAR
ÍSLANDS
...vísa þér veginn
Ferðakort 1:250 000
Nýtt göngu- og reiðleiða-
kort af Suðvesturlandi.
Sérkort
Suðvesturland
1:75 000
Þrjú vönduð landshlutakort með mikilvægum
upplýsingum fyrir ferðamenn. Kortin fást
einnig þrjú saman í öskju ásamt nafnaskrá.
Vegaatlas 1:200000
Ný og glæsileg kortabók I afar hand-
hægu broti. Vegaatlasinn er 82 bls.
og inniheldur m.a. nýjustu upp-
lýsingar um vegi landsins,
gagnleg þemakort og Itar-
lega nafnaskrá. Þessi
bók er ómissandi í bílinn.
Ný útgáfa 2006
Gott ferðakort er lykill að vel heppnaðri ferð. Gerðu kröfur . .
um vandað og nákvæmt ferðakort með nýjustu upplýsingum. WWW.lmi.IS