Skessuhorn - 26.07.2006, Blaðsíða 1
VIKUBLAÐ Á VESTURLANDI
30. tbl. 9. árg. 26. júlí 2006 - Kr. 400 í lausasölu
Virka daga 10-19
Laugard. 10-18
Sunnud. 12-18
nettö
alltaf gott - alltaf ódýrt
Stórlúða á
línuna
Magnús Emanúelsson rær á
Gunnari afa SH ffá Ólafsvík. í
síðustu viku fékk hann sérstakan
happadrátt þegar á færið kom
105 kílóa lúða.
Ljósm. af vef snb.is
Þær stöllur Kristín, Gígja og Auóur eru ungar blómarósir í Reykholtsdal. Halda þ<er þessa dagana hlutaveltu á ýmsum stöóum þar sem
feióamenn koma, eins og á Kleppjárnsreykjum, Reykholti og við Deildartunguhver. Upphaflega stóð til að safnafyrir Rauða krossinn, eins
og svo margir gera, en eftir að bruni kom upp á bœnum Hrísum í Flókadal um helgina og öll rafmagnstæki á bænum eyðilögðust, ákváðu
þœr stöllur að söfnunarféðfieri í að kaupa eitthvað nýtt rafmagnstœki fyrir ábúanda, brauðrist eða dýrara Ueki, allt eftirþví hvemig söfh-
unin gengi. Sýnir þettafallegt hjartalag þessara ungu stúlkna. MM/Ljósm: BHS.
Ibúðarhúsið
í Hrísum
skemmdist
Eldur kom upp í íbúðarhúsinu
í Hrísum í Flókadal undir morg-
un á sunnudag. Abúandi á jörð-
inni, kona á fimmtugsaldri var
ein í húsinu og komst hún út af
sjálfsdáðum. Vaknaði hún við
sprengíngar í rafmagnstöflu
hússins og þykir fullvíst að eld-
urinn hafi komið upp í töflunni.
Slökkvilið Borgarfjarðardala var
kallað út og þurftí að rjúfa þak
til að komast að eldinum en
slökkvistarf gekk greiðlega.
Húsið er mikið skemmt, einkum
í risi, vegna elds en einnig af
sóti, reyk og vatni Þá eru öll raf-
magnstæki ónýt. Hús og innbú
var tryggt.
MM
Ráðherra boðar aðgerðir
í forvamamálum
Frá unglingasamkomu á tjaldstœðunum á Akranesi á Irskum
dögumfyrr í mánuðinum.
M a g n ú s
Stefánsson fé-
lagsmálaráð-
herra hefur
komið af stað
umfangsmik-
illi vinnu
vegna for-
varnamála.
Magnús Stefánsson, Annars vegar
félagsmála?-áðherra. á að draga
upp heildarmynd af því forvarna-
starfi sem þegar er unnið í landinu
og hins vegar á að móta heildstæða
forvamastefnu, líkt og kveðið er á
um í stefnuyfirlýsingu ríkisstjómar-
innar frá 2003. Magnús lagði minn-
isblað þessa efiiis fyrir ríkisstjórnar-
fund í liðinni viku. Auk félagsmála-
ráðuneytisins munu heilbrigðis- og
tryggingamálaráðuneyti, mennta-
málaráðuneyti og dómsmálaráðu-
neytið leggja til fulltrúa í stýrihóp
sem tmdirbúa mun málið.
Magnús segir í samtali við Skessu-
hom að ekkert liggi fyrir um hvort
forvamastarfið, eins og það er nú,
yrði stokkað upp og því breytt með
einhverjum hættí. Fyrst og ffernst
vill hann fá heildarmynd af því starfi
sem unnið væri. „Það
eru mjög margir í
forvamastarfi og við
þurfum að átta okkur
á umfanginu. En ég
er sannfærður um
hægt sé að nýta kraft-
ana markvissara,"
segir Magnús.
Eins og greint hef-
ur verið frá m.a. í
Skessuhorni hafa
fréttir af mikilli
drykkju ungmenna á
bæjarhátíðum vakið
fólk og þ.m.t. ráða-
menn til umhugsun-
ar. Magnús þekkir til
þessara hátíða: „Eg
hef orðið vimi að drykkjuskap ung-
menna á bæjarhátíðum, bæði nú í
sumar og áður. Það er allt of mikið
um að böm og unglingar undir átján
ára flykkist saman til drykkju."
Verslxmarmannahelgin fer í hönd
og telur Magnús vert að hafa
áhyggjur enda geti margt gerst á úti-
hátíðum, bæði gott og svo annað
miður gott. Þess vegna setti hann af
stað samstarf ýmissa aðila sem koma
að forvamamálum í því augnamiði
að vekja foreldra og aðra til um-
hugsunar.
Aðspurður telur Magnús stríðið
gegn unglingadrykkju ekki tapað.
„Eg vona að minnsta kosti ekki. En
það er erfitt og þannig hefúr það
verið og þamúg verður það. Þetta er
barátta sem þarf að heyja alla daga.
og þetta hefst ekki með átaki heldur
markvissu starfi.“
MM
Sigur Rós með
magnaða tónleika
Hljómsveitin Sigur Rós lék fyrir
heimamenn og aðra í félagsheimil-
inu Klifi í Ólafsvík í fyrrakvöld og
vom tónleikarnir þeir fyrstu í tón-
leikaferðalagi þeirra um landið.
Fjöldi fólks lét þetta tækifæri ekki
framhjá sér fara og troðfyllti fé-
lagsheimilið. Það var ekki annað
að sjá en að aðdáendur hljómsveit-
arinnar, sem em á öllum aldri og
af ólíku þjóðerni, gengju út í sælu-
vímu eftir hreint út sagt rafmagn-
aða tónleika. Tónleikarnir em eins
og áður sagði þeir fyrstu af sjö en
ferðalagi þeirra um landið lýkur
með tónleikum á Miklatúni í
Reykjavík nk. sunnudag.
KÓÓ
niiiiini iiiiiii iiii iiii
ATLANTSOLIA
Dísel *Faxabraut 9.