Skessuhorn - 26.07.2006, Side 2
2
MIÐVIKUDAGUR 26. JULI 2006
iWtósUtiÖMf
Arekstur
viðYstu
Garða
Síðdegis á föstudag varð
árekstur við bæinn Ystu Garða í
Kolbeinsstaðahreppi þegar
fólksbíl var ekið inn í hlið rúllu-
vagns. Engin meiðsl urðu á
fólki en fernt var í fólksbílnum.
Tildrög slyssins voru þau að
ökumaður fólksbílsins hafði
ekki veitt eftirtekt stefnuljósum
á dráttarvélinni sem fór fyri'-
rúlluvagninum, en hún var að
beygja útaf veginum. Okumað-
ur fólksbílsins var að taka fram-
úr öðrum faratækjum sem voru
á eftir rúlluvagninum.
ÞSK
Til minnis
Skessuhorn minnir á bæjarhá-
tíðina Á góðri stund sem fer
fram í Crundarfirði um helg-
ina. Mögnuð dagskrá og
margt skemmtilegt um að vera
í fallegum bæ.
Veðijrhorfijr
Spáð er ríkjandi austanátt
næstu daga með vætu í flest-
um landshlutum. Hiti á bilinu
10-20 stig en fer kólnandi.
Spiirniníj vikijnnar
í síðustu viku var spurt á
Skessuhorn.is: Hefur þú ferð-
ast um Vesturland í sumar?
Rúmlega 29% svarenda svör-
uðu því að þeir hefðu oft ferð-
ast um Vesturland í sumar,
tæplega 29% sögðust hafa
ferðast nokkrum sinnum um
landshlutann, 15% sögðust
hafa einu sinni ferðast um Vest-
urland í sumar og rúmlega
27% svarenda hafa aldrei ferð-
ast um Vesturland í sumar.
í næstu viku spyrjum við:
„Ætlar þú á
útihátíð um
Verslunarmanna-
helgina?"
Svaraðu án undanbragða
á www.skessuhorn.is
Vestlendin^tyr
viNnnar
Skessuhorn útnefnir að þessu
sinni hinn 14 ára gamla Flosa
Ólafsson, Vestlending vikunnar
og óskar honum um leið til
hamingju með heimsmeistara-
titilinn í tölti.
Fjörutíu ár frá vígslu
Grundaríj arðarkirkj u
Haldið verður upp á 40 pT * vyfy ' ■' ■ ■ ■ . ■ -
ára vígsluafmæli Grundar-
fjarðarkirkju sunnudaginn
30. júní nk. Hátíðarmessa
verður í Grundarfjarðar-
kirkju þann dag og mun
biskup Islands, Herra Karl
Sigurbjörnsson hefja
vísitasíu sína í Snæfellsness-
og Dalaprófastsdæmi. Mun
hann prédika af þessu tilefni
og sóknarprestur Set-
bergsprestakalls, sr. Elín-
borg Sturludóttir, þjónar
fyrir altari. Þá munu fyrr-
verandi sóknarprestar að-
stoða við guðsþjónustuna.
Boðið verður til kaffisam-
sætis að guðsþjónustunni
lokinni. Einnig verður opnuð sýn- bók“ byggingarmeistara kirkjunnar, og dagbókarbrot ffá byggingartíma
ing í tilefni vígsluafmælisins í Sögu- Guðbjarts Jónssonar. Þar verða til kirkjunnar.
miðstöðinni sem byggir á „gesta- sýnis myndir er hann hélt til haga SO/Ljósm. Sverrir.
Hagnaður SPM
þrefaldast milli ára
Hagnaður Sparisjóðs Mýrasýslu
eftir skatta á fyrri hluta þessa árs
nam tæplega 603 millj. kr. saman-
borið við rúmlega 213 millj. kr.
hagnað á sama tímabili í fyrra. I tril-
kynningu ffá SPM kemur ffam að
meginhluta gengishagnaðar á tíma-
bilinu megi rekja til uppfærslu og
innlausnar á eignarhlut sparisjóðsins
í Exista ehf.
Vaxtatekjur námu 1.651,6 millj.
kr. fyrstu sex mánuði ársins 2006 en
það er 113% hækkun ffá sama tíma-
bili í fyrra. Vaxtagjöld hækkuðu um
179,3% ffá fyrri hluta ársins 2005
og námu 1.324,7 millj. kr. Hreinar
rekstrartekjur voru 1.195,8 millj. kr.
á móti 634,6 millj. kr. í fyrra. Hrein-
ar rekstrartekjur hafa hækkað um
88,4% ffá fyrri hluta ársins 2005.
Framlag í afskriftarreikning útlána
nam 93,9 millj. kr. á fyrri helming
ársins 2006 en var 68,4 millj. kr. fyr-
ir sama tímabil árið 2005. Rekstrar-
gjöld Sparisjóðsins voru 390,4 millj.
kr. á fyrri hluta ársins en voru 304,3
millj. kr. fyrir sama tímabil árið
2005. Rekstrarkostnaður sem hlut-
fall af hreinum rekstrartekjum er
32,6% miðað við 48,0% fyrir fyrri
hluta ársins 2005. Rekstrarkostnað-
ur sem hlutfall af eignum er nú
1,2% en var 1,5% fyrir fyrstu sex
mánuði ársins 2005.
Efhahagur og eigið fé
samstæðunnar
Heildareignir samstæðunnar eru
31.457,7 millj. kr. 30. júní 2006
miðað við 25.698,2 millj. kr. í lok
árs 2005, hafa þær vaxið um 22,4%
fyrstu sex mánuði ársins 2006. Ut-
lán samstæðunnar hafa aukist um
22,3% á árinu og nema þau
25.617,2 millj. kr. 30. júní 2006.
Innlán samstæðunnar hafa aukist
um 19,7% fyrstu sexmánuði ársins
og nema 13.556,0 millj. kr. 30. júní
2006. Eigið fé Sparisjóðs Mýra-
sýslu var 2.696,1 millj. kr. 30. júní
2006 en var 2.094,7 millj. kr. í árs-
lok 2005, aukningin er 28,7%.
Eiginfjárhlutfall samstæðunnar
samkvæmt CAD-reglum er 11,2%
þann 30. júní 2006 en var 11,0%
31. desember 2005.
MM
Þmgmönnum NV-kjördæmis
fækkar um einn
Nú þegar sveitarstjórnarkosning-
ar eru að baki fer hugur stjórnmála-
áhugamanna að beinast að alþingis-
kosningtmum sem haldnar verða
næsta vor. Nú þegar eru hafnar
bollaleggingar víða um skipan mála
við þær kosningar og í því sam-
bandi má nefna þær breytingar sem
í farvatninu eru á forystu Fram-
sóknarflokksins. I haust má búast
við að stofhanir stjórnmálaflokk-
anna fari að ræða með hvaða hætti
staðið verður að uppstillingu á
framboðslistum flokkanna við
kosningarnar.
Því er ekki úr vegi að rifja upp
eitt atriði sem afar lítrið hefur verið
áberandi í hinni pólitísku umræðu.
Þá staðreynd að við þingkosning-
arnar á næsta ári fækkar þingmönn-
um Norðvesturkjördæmis um einn.
Þeir eru nú tíu að tölu en verða níu.
Forsaga málsins er sú að við síðustu
breytingar á kjördæmaskipan var
sett ákvæði í 31. grein stjómar-
skrárinnar um að ef kjósendur á
kjörskrá að baki hverju þingsæti eru
eftir alþingiskosningar helmingi
færri í einu kjördæmi en einhverju
öðru skal landskjörstjórn breyta
fjölda þingsæta í kjördæmum í því
skyni að draga úr þeim mun.
Við síðustu alþingiskosningar
vom kjósendur að baki hverju þing-
sæti í Norðvesturkjördæmi 2.163
en í Suðvesturkjördæmi vom þeir
4.366. Því varð landskjörstjóm að
beita þessu ákvæði og birti auglýs-
ingu þar að lútandi 16. maí 2003.
Haldi búsemþróun áfram með
sama hætti í Norðvesturkjördæmi
gæti áfram verið gripið til þessa á-
kvæðis allt þar til þingmannafjöldi
kjördæmisins verður kominn niður
í sex þingmenn. Það er sá fjöldi sem
þingmannatala hvers kjördæmis má
vera samkvæmt stjórnarskrá. Því
verða færri þingsæti að berjast um í
Norðvesturkjördæmi á komandi
mánuðum.
HJ
Hestaveisla um helgina
Um næsm helgi, dagana 28.-30.
júlí, verður sannkölluð hestaveisla á
Vesturlandi en þá fara fram tvö
stórmót á vestlenskan mælikvarða.
Glitnismótið verður haldið að
Æðarodda og Bikarmótið fer fram í
Búðardal.
Glimismót Dreyra sem áður hét
Islandsbankamótið verður haldið
að Æðarodda dagana 28.-30. júlí.
Keppni hefst síðla dags á fösmdag
og stendur mótið fram á sunnudag.
Glimismótið er stigamót sem telur
til stiga á heimslistann. Keppt verð-
ur í öllum hefðbundnum greinum
og verða veitt peningaverðlaun fyr-
ir fyrsta sæti í 100 m. fljúgandi
skeiði. Auk þess verður keppt í
meistaraflokki ef næg þátttaka næst.
Hið árlega Bikarmót Vesmrlands
verður haldið á nýjum reiðvelli í
Búðardal laugardaginn 29. júlí.
Keppt verður í tölti, fjórgangi,
fimmgangi og gæðingaskeiði í opn-
um flokki, ungmennaflokki, ung-
lingaflokki og barnaflokki. Aðildar-
félög Bikarmótsins eru Dreyri,
Faxi, Glaður, Skuggi og Snæfell-
ingur og má hvert félag senda fjóra
keppendur í hvern flokk. Hesta-
mannafélagið Glaður mun vígja
nýjan reiðvöll við hátíðlega athöfn
klukkan 15:00 á laugardeginum og
munu góðir gestir heiðra félagið
með nærvem sinni af því tilefhi.
SO
Umhverfis-
verðlaun
AKRANES: Umhverfisnefnd
Akraneskaupstaðar hefur ákveðið
að veita umhverfisverðlaun til
fyrirtækja og einstaklinga. Aðtu
en verðlaun verða ákveðin verður
leitað tíl almennings sem gefinn
verður kostur á að koma tilnefh-
ingum sínum á framfæri við
nefiidina. -hj
Ekkert bíla-
þvottaplan
BORGARNES: Það skýmr
ffernur skökJm við að í Borgar-
nesi, þar sem mikið af ferðafólki
á leið um, skuli ekki vera
þvottaplan þar sem fólk getur
skolað af bílum sínum án þess að
greiða sérstaklega fyrir það. Aður
en gamla bensínstöðin sem hýsti
Esso var rifin ásamt smurstöð-
inni og öllu sem því tilheyrði, þá
var hægt að renna sér þar inn á
planið og skola ferðaryldð af bíl-
um. I dag er það svo að á staðn-
um er einungis þvottaaðstaða við
Shellstöðina á yfirbyggðu
þvottastæði en þar þarf að borga
fyrir notkun. Nokkuð margir les-
endur Skessuhorns hafa óskað
eftir því að blaðið vekti máls á því
að á staðnum vantar almennt
þvottaplan. Sömu aðilar skora á
bensínstöðvarnar, bæjaryfirvöld
eða aðra ffamtakssama aðila að
bæta sem fyrst úr þessu ástandi.
-mm
*
IA tekur á móti
Randers FC
AKRANES: ÍA leikur sinn síðari
leik í 1. umferð forkeppni í
UEFA bikarnum á fimmmdag.
IA tekur þá á móti Randers frá
Danmörku á Akranesvelli og
hefst leikurinn klukkan 18:00.
Skagamenn töpuðu fyrri leiknum
sem fór ff am fyrr í mánuðinum í
Danmörku en þeim leik lauk
eitt-núll Randers í vil. Knatt-
spymuáhugafólk er hvatt til að
mæta á völlinn og styðja við bak-
ið á sínum en sama dag leikur
Valur einnig á móti Bröndby frá
Danmörku á Laugardalsvelli í
sömu keppni. -so
Brotist inn
í Eðalfisk
BORGARNES: Brotist var inn í
húsnæði Eðalfisks við Sólbakka í
Borgamesi aðfaranótt fösmdags.
Þaðan var stolið fartölvu fyrir-
tækisins með ýmsum mikilvæg-
um upplýsingum. Þjófarmr bram
upp glugga í hurð og komust
þannig inn. Málið er í rannsókn
lögreglu. -mm
Ellý hætt
í Hvíta húsinu
AKRANES: Á síðasta fundi bæj-
arráðs Akraneskaupstaðar var
tekin fyrir uppsögn forstöðu-
manns Hvíta hússins. Elínborg
Halldórsdóttir, sem gegnt hefur
starfinu ffá opnun hússins vorið
2002, hefur nú sagt starfi sínu
lausu. Athygli vekur að hún gerir
það ffá og með ritunardegi upp-
sagnarbréfsins þann 12. júlí, en
ekld er gert ráð fyrir hefðbtmdn-
um þriggja mánaða uppsagnar-
fresti. Bæjarráð þakkaði Elín-
borgu vel tmnin störf og óskaði
henni velfamaðar á nýjum vett-
vangi. -kóp