Skessuhorn - 26.07.2006, Síða 13
SKESSUHÖEiKI
MIÐVIKUDAGUR 26. JÚLÍ 2006
13
Nýir steindir gluggar á 10 ára
vígsluafmæU Reyldioltskirkju
Reykholtskirkja og Snorrastofa. Gamla kirkjan til hægri á myndinni. Ljósm. Mats Wibe Lund.
Um næstu helgi verða 10 ár síðan
kirkjan í Reykholti var vígð, en það
var á Olafsmessu árið 1996. Af því
tilefni verður Reykholtshátíð sér-
staklega vegleg að þessu sinni og
boðið verður upp á glæsilega tón-
leikaveislu dagana 28. - 30. júlí. Þá
verða einnig kynntir nýir steindir
gluggar efrir Valgerði Bergsdóttur
sem komið heíúr verið fyrir í kirkj-
unni. Með því verður verðlaunatil-
laga hennar frá samkeppni sem
haldin var árið 1992 öll komin upp.
A tíu ára vígsluafmælinu er ekki
úr vegi að líta um öxl og rifja upp
byggingarsögu kirkjunnar. Lengi
hafði verið fyrirhugað að reisa nýja
kirkju í Reykholti áður en ráðist var
í verkefnið, enda gamla kirkjan orð-
in léleg. A sama tíma voru á floti
hugmyndir um byggingu bókhlöðu,
enda á staðurinn merk bókasöfn ífá
liðinni tíð, og um að koma upp að-
stöðu fyrir gestkomandi fræði-
menn. Þegar bygging kirkjunnar
komst á dagskrá ákvað söfhuðurinn
að beita sér fyrir því að allri þessari
aðstöðu yrði komið upp samtímis.
Því var lagt upp með byggingu
kirkju og bókhlöðu og átti með því
að styðja við héraðsskólann ásamt
því sem minningu Snorra Sturlu-
sonar og annarra merkismanna sem
hafa setið í Reykholti yrði haldið á
lofri.
Ríkisstjórn, biskup og kirkjuráð
lýstu fljótlega yfir stuðningi við
yerkefnið og frá fyrstu tíð sýndu
Norðmenn því áhuga að styðja
byggingu Snorrastofu. Nokkur fyr-
irheit voru því komin um fé þegar
Herra Pétur Sigurgeirsson biskup
tók fyrstu skóflustungrma að Reyk-
holtskirkju - Snorrastofu árið 1988,
en í byggingarsjóði voru hins vegar
einungis 10 þúsund krónur. Fram-
kvæmdir á staðnum fóru eftír efn-
um og aðstæðum hverju sinni ffam
til ársins 1995, en þá var búið að
steypa upp bæði húsin og setja tmd-
ir þök. Þá var gamla kirkjan orðin
svo léleg að hún var varla embættis-
fær og var því tekin ákvörðun um
að taka fé að Iáni svo unnt væri að
ljúka byggingu kirkjunnar. Hún var
síðan vígð á Olafsmessu, þann 28.
júlí, árið 1996 eins og áður segir.
Auðgar mannlíf allt
Efrir vígslu kirkjunnar skuldaði
söfhuðurinn mikið en með hjálp
Jöfnunarsjóðs sókna hefur tekist að
standa skil á afborgunum. I kjölfar
heimsóknar forseta Islands, Herra
Olafs Ragnars Grímssonar, til Nor-
egs árið 1997 spratt upp nýr áhugi
þarlendra á að ljúka byggingu
Snorrastofu. Árin 1999 og 2000 bár-
ust fégjafir til stofunnar frá fylkjum
og hreppum í V-Noregi og með
mótframlagi íslenska
ríkisins tókst að ljúka
byggingu Snorrastofu
árið 2000 og var hún
vígð á Olafsmessu það
ár, þann 29. júlí.
Reykholt hefur alla
tíð verið mikið menn-
ingarsetur og kirkjan
og Snorrastofa sinna
því hlutverki með
sóma, ekki síst effir að
héraðsskólinn leið
undir lok. Reykholts-
hátíð hefur verið
haldin síðan árið 1997
og hafa margir
ógleymanlegir lista-
menn komið þar
ffam. Kirkan er enda
annáluð fyrir góðan
hljómbtnð, t.a.m var
Evrópukórinn þar við
æfingar í tíu daga árið
2000. Margir fræði-
menn hafa einnig sótt
í Snorrastofu, en þar
er góður bókakostur
ásamt því að fræði-
mönnum stendur
íbúð til boða, en þar
er nú rannsóknastofa í
miðaldafræðum.
Reykholtskirkja og
Snorrastofa hafa því
auðgað mannlíf á
þessum sögufræga
stað til muna.
Gluggamir
mikið listaverk
Árið 1992 var efnt til samkeppni
um steinda glugga í kirkjunni og
var Valgerður Bergsdóttir hlut-
skörpust eins og áður var að vikið.
Gluggarnir eru fjórir og er mótív
þeirra annars vegar Jóhannesarguð-
spjall og hins vegar Sólarljóð.
Gluggarnir eru mjög sérstakir enda
eru ekki eiginlegir litir í þeim, að-
eins mismunandi gegnsætt gler
blandað málmum. Gluggarnir
breyta því litum effir því hvernig
birtan fellur á þá og má því segja að
það séu margir gluggar í hverjum.
Þess má geta að þýska fyrirtækið
sem ffamleiðir gluggana hefur ver-
ið að störfum í 150 ár og m.a. séð
um gluggana í hinni ffægu Kölnar-
dómkirkju. Glermeistarinn þýski
fullyrti að hann hefði hvergi séð
aðra eins litasamsetningu og fékk
leyfi til að birta mynd af gluggun-
um í bók sem gefin verður út vegna
afmælis fyrirtækisins. I júlí árið
2003 var stafhgluggunum tveimur
komið fyrir og voru þeir gjöf ffú
Margrétar Þ. Garðarsdóttur til
minningar um eiginmann hennar
Halldór H. Jónsson arkitekt, en
sonur þeirra Garðar Halldórsson
húsasmíðameistari ríkisins teiknaði
Reykholtskirkju - Snorrastofu. Efht
var til fjársöfhunar til að koma hin-
um tveimur gluggunum upp og
þrátt fyrir að þeir verði vígðir um
helgina, vantar enn nokkuð fé upp
á. Velunnurum kirkju og staðar er
bent á að söfhunarbaukur liggur
frammi í kirkjunni og einni er hægt
að leggja irm á reikning 4248 í
Sparisjóði Mýrarsýslu.
-KOP
Flligger
Hörpuskln, Hörpusilki
og Utitex
fást nú hjá KB Búrekstrardeild
BUREKSTRARDEILD
csssssm
Egilsholt 1-310 Borgarnes
Afgreiðsla sími: 430-5505 Fax: 430-5501
Opið frá kl. 8-12 og 13-18 alla virka daga
I