Skessuhorn


Skessuhorn - 31.10.2006, Blaðsíða 2

Skessuhorn - 31.10.2006, Blaðsíða 2
2 MIÐVIKUDAGUR 31. OKTOBER 2006 Ttl minnis Skessuhorn minnir á Vöku- daga sem veröa haldnir á Akranesi 2. til 9. nóvember. Þar verður óvenju mikið um að vera á sviði menningar- mála. Nefna má Rolling Sto- nes tónleika, leiksýningu fyrir börn í grunnskólanum, Jazz, hagyrðingakvöld og margt fl. Vectyrhorfivr Á fimmtudaginn er spáð sunnan 10-15 m/s og rign- ingu. Hlýnar og hiti verður 6 til 12 stig síðdegis. Á föstudag og laugardag verður suðvest- anátt og vætusamt hér á Vest- uriandi og hægt kólnandi veð- ur. Á sunnudag er spáð hvassri suðlægri átt og rigningu í flestum landshlutum, en mildu veðri. Á mánudag verð- ur þurrt og bjart. Spwrniruj viKimnar í síðustu viku spurðum við að því hvort fólk hefði hug á að bregða sér á jólahlaðborð á veitingahúsum hér á Vestur- landi. Ríflega þriðjungur, eða 36,1% ætla að njóta frábærra veitinga þessara aðila, 23,8% vita það ekki enn, en 39,8% ætla ekki. „Ertu ánœgð/ur með niðurstöðu prófkjörs Samfylkingarinnar?" Svaraðu án undanbragða á www.skessuhorn.is Vestlendiwjivr viKivnnar Guðbjörg Aðalbergsdóttir, skólameistari í Fjölbrautaskóla Snæfellsness og samstarfsfólk hennar eru Vestlendíngar vik- unnar fyrir að reka metnaðar- fulla skólastefnu sem hefur náð að efla og stækka skólann enn frekar og nú síðast með stækkun áhrifasvæðisins til Patreksfjarðar. Nátt- fata- dagar 25% afsláttur af völdum náttfötum, fimmtudag, föstudag og laugardag. SSuðin KIRKJUBRAUT 2 • AKRANESI SÍMI431 1753 & 861 1599 Göngustígur verði ekld aflientur íbúum til eigin nota Skipulags- og byggingarnefnd Akraness leggst gegn hugmyndum og óskum íbúa við Dalbraut 21 og Esjuvelli 24 á Akranesi um að mega taka göngustíg á milli húsanna til eigin nota. Eins og fram kom í frétt á Skessuhomsvefhum á dögunum óskuðu íbúarnir eftir þessu með bréfi til bæjarráðs þar sem fram kom að stígurinn hafi ekkert verið notaður hingað til og því sé lítil þörf fyrir hann á þessum stað. Auk þess hafi umhirða stígsins af hálfu bæjarins verið sérstaklega slæm í sumar. Bæjarráð tók jákvætt í erindi íbúanna en sendi málið til umsagn- ar tækni- og umhverfissviðs. I bókun skipulags- og byggingar- nefndar segir að nefndin geti ekki fallist á beiðni íbúanna þar sem stígurinn sé hluti af stígakerfi bæj- arins. „Nefndin telur ekki mark- tækt að stígurinn sé „ekkert notað- ur“ þar sem lítil starfsemi hefur verið á Miðbæjarsvæðinu ffam til þessa en breyting er að verða þar á,“ segir í bókun nefndarinnar og er þá væntanlega verið að vísa í þá miklu uppbyggingu sem nú stendur yfir á svæðinu. HJ Eru of frægar hljómsveitír á Landsmóti hestamanna? Hestamannafélagið Fákur lagði fram tillögu á 55. landsþingi Landssambands hestamannafélaga í Borgarnesi um liðna helgi þess efh- is um að beina því til Landsmóts ehf. að gera Landsmót hestamanna ekki að einni stærstu útihátíð lands- ins. I greinargerð með tillögunni segir að kominn sé tími til að fara yfir það hvort nauðsynlegt sé að kaupa margar af stærstu hljómsveit- um landsins til að spila á Lands- móti. ,ÁIeð þessu er verið að laða að fólk sem annars kæmi ekki á mótið og kemur eingöngu þangað til að skemmta sér,“ segir orðrétt í greinargerðinni. Og það eru fleiri sem hljómsveit- ir laða að hestamannamótum ef marka má greinargerðina frá Fáki því í niðurlagi hennar segir orðrétt: „Er það stimpilHnn sem við viljum fá á Landsmót að það sé orðið að útihátíð og að fíkniefnalögreglan þurfi að vera á svæðinu?“ Eftir um- ræður á landsþinginu var tillagan felld. HJ Menningarsjóður Vesturlands undirbýr styrkveitingu Menningaráð Vesturlands undir- býr nú styrkveitingu fyrir næsta ár. Ekki liggur fyrir hversu há upphæð verður til úthlutunar fyrir árið 2007. Tilhögun styrkveitinga er á þann veg að við úthlutun er greidd- ur út helmingur af styrkupphæð og síðan afgangur þegar verkefninu er lokið. Á þann hátt er hægt að fylgj- ast með því að styrkurinn fari í það sem sótt var um. Meðal verkefha sem hlutu styrk og þegar eru kom- in til framkvæmda má nefna Mr. Skallagrímsson, Ungir og gamlir - tónlistardagskrá sem verður á Akra- nesi í næstu viku, IsNord tónlistar- hátíð og svo mætti lengur telja. Mörg verkefnin eru áframhaldandi, þ.e. sótt um þau í bútum og ef vel er að þeim staðið eiga þau fulla möguleika á áffamhaldandi styrk- veitingu. Að sögn Elísabetar Haraldsdótt- ur, menningarfulltrúa Vesturlands er stefnan að styðja ffekar við verk- efni en beinlínis uppbyggingu. „Það er t.d. ekki hægt að sækja um styrk til að ráða starfsmann, en það er hægt að sækja um styrk fyrir verkefni sem starfsmaðurinn vinn- ur. Við erum að vona að þessi sjóð- ur verði atvinnuskapandi og geti einnig stutt við ungt fólk sem vill gera góða hluti í sinni heimasveit,“ sagði Elísabet. BGK MS í Búðardal verður áfram í fuflum rekstri Forstjóri MS segir að mjólkur- stöð MS í Búðardal verði áffam ein af meginstoðum í rekstri fyrirtækis- ins og ekki sé fyrirhugað að draga úr umsvifum þar. Eins og ffam hef- ur komið í fjölmiðlum er í undir- búningi stofhun stórs rekstrarfélags sem sjá mun um ffamleiðslu, sölu og dreifingu mjólkurvara á land- stærstum hluta landsins. Markmið- ið með þessum breytingum er að auka hagræðingu í greininni. MS rekur í dag mjólkurbú í Búðardal sem tekur á móti mjólk ffá bændum á norðanverðu Snæfellsnesi, Dala- sýslu, V-Húnavatnssýslu og Barða- strandarsýsltun. Guðbrandur Sigurðsson forstjóri MS segir í samtali við Skessuhorn að rekstur fýrirtækisins í Búðardal verði áffam ein af meginstoðunum í rekstri fýrirtækisins og þar hafi ver- ið öfhig framleiðsla eftir miklar breytingar á undanförnum árum. „Á næstu árum mun mjólkuriðnað- urinn ganga í gegnum breytingar og ekki útilokað að einhverjar breytingar verði á skipulagi vinnsl- unnar í Búðardal á næstu árum en reksturinn verður öflugur og ein af okkar styrkustu stoðum,“ segir Guðbrandur. HJ Framkvæmdir við hluta Ferjubakkavegar í útboð Vegagerðin hefur auglýst eftir tilboðum í endurbyggingu og styrkingu 1,9 km kafla Ferjubakka- vegar frá Krumshólum að Ferju- bakka í Borgarfirði. Eins og komið hefur fram í Skessuhorni hefur lengi verið kvartað yfir ástandi veg- arins. Gárungar telja að sumar hol- ur í veginum séu meira en þrjátíu ára gamlar og vilpa við Gufuár- brúna sé jafnvel enn eldri. Að sögn Magnúsar V Jóhanns- sonar svæðisstjóra norðvestursvæð- is Vegagerðarinnar er ekki líklegt að íbúar við veginn hoppi hæð sína af gleði við þessar fréttir þar sem lítið ffamkvæmdafé er til ráðstöf- unar. I útboðið er reiknað með um 10 milljónum króna í lagfæringu við Gufuá, sem kemur þá úr ný- framkvæmdasjóði og líklega fást aðar tíu milljónir úr viðhaldssjóði til að laga veginn á öðrum stöðum. Utboðsfrestur rennur út þann 31. október og verkinu skal lokið fýrir 1. júní 2007. BKG Færsla þjóðvegar BORGARNES: Vegagerðin hefur samþykkt beiðni sveitar- stjórnar Borgarbyggðar um að færsla þjóðvegar nr. 1 um Borg- ames verði sett inn á 12 ára vegaáætlun, sem nú er í endur- skoðun. Að sögn Magnúsar V. Jóhannssonar svæðisstjóra norð- vestursvæðis Vegagerðarinnar hefur fram að þessu ekki verið vilji innan sveitarstjórnar Borg- arbyggðar á þessari breytingu á vegstæðinu og því hefur verkið ekki fýrr komist á vegaáætlun. -bgk Bamiahlíð fær gjöf REYKHÓLAR: Verkalýðsfélag Vestfirðinga hélt fýrir nokkra stjórnarfund á Reykhólum. Af því tilefni ákvað stjómin að færa Hjúkrunar- og dvalarheimilinu Barmahlíð gjöf. I samráði við hjúkrunarforstjóra heimilisins ákvað stjóm sjúkrasjóðs verka- lýðsfélagsins að kaupa göngu- bretti af fullkomnustu gerð og færa heimilinu. -hj Styrkir efiúlega tónflstamema HVALFJARÐARSVEIT: Sveitarstjórn Hvalþarðarsveitar hefur ákveðið að styrkja tvo tón- listarnemendur úr sveitarfélag- inu til farar á svonefnt ma- sterklassnámskeið í þver- flautuleik sem haldið verður í -í£.- Zakopane í Póllandi dagana 14.- 21. nóvember. Námskeiðið er margþætt og auk þess gefst nemendum tækifæri til þess að leika saman á kammertónleikum sem verða í lok námskeiðsins. Styrkur sveitarfélagsins nemur um helmingi af kostnaði nem- endanna eða rúmlega þrjátíu þúsund krónur. Nemarnir þær Ásdís Björg Björgvinsdóttir og Sigríður Hjördís Indriðadóttir stunda nám við Tónlistarskól- ann á Akranesi og er kennari þeirra Patrycja Szalkowicz. -hj Róleg vika hjá lögreglu BORGARFJ. - AKRANES: Nokkur umferðaróhöpp vom í liðinni viku í umdæmi Borgar- nesslögreglu. Bílvelta var á Borgarfjarðarbraut við Kleppjársnreyki. I því tilviki var fólkið flutt á heilsugæslustöðina í Borgarnesi en meiðsl reyndust minniháttar. Þá lenti fólksbfll á lyftara á Vesturlandsvegi. Oku- maður bílsins var fluttur á heilsugæslustöðina til skoðunar. Bíllinn er ónýtur og lyftarinn skemmdist nokkuð.Eitt fíkni- efnamál kom upp á borð lög- reglunnar. Þá reyndust 45 manns aka yfir löglegum hraða en enginn þeirra var þó sviptur ökuréttindunum en munu eiga von á sektum. Á Akranesi vora margir teknir fýrir að vera ekki með ökubeltin spennt, en sérstakt átak er hjá lögreglunni þar þessa dagana. Einnig hefur bensínfóturinn verið helst til of þungur og má fólk búast við kæmm vegna þess. Einnig rakst bílaflutningabíll í hæðarslá Hvalfjarðarganganna með þeim afleiðingum að bíll- inn sem var á pallinum skemmd- ist. -kh

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.