Skessuhorn - 31.10.2006, Blaðsíða 6
6
MIÐVIKUDAGUR 31. OKTÓBER 2006
Guðbjartur Hannesson leiðir
lista Samfylkingarinnar
Þegar búið var að telja 150 atkvœöi af tæplega 1700 vorufyrstu tölur lesnar upp í lok
kvöldfréttatíma RUV. Þá var Guðljartur efstu?; Anna Kristín önnur og Vestfirðmgamir
Helga Vala og Sigurður íþriðja ogjjórða sæti. Þessi mynd er tekinn íþann mund sem
fyrstu tölur voru kynntar. Síðar um kvöldið átti röðunin eftir að breytast talsvert. Anna
Kristín varð að gefa eftir annað sœtiðfyrir séra Karli og Helga Vala seig niður listann.
Guðbjartur Hannesson, skóla-
stjóri á Akranesi varð í efsta sæti
prófkjörs Samfylkingarinnar í
Norðvesturkjördæmi sem fram fór
um síðustu helgi. Kosið var á sextán
stöðum í kjördæminu og lauk kjör-
fundi á hádegi á sunnudag. Alls tóku
1.668 manns þátt í prófkjörinu og
segir Eggert Herbertsson formaður
kjörstjómar það vel viðunandi þátt-
töku en flokksbundnir em um 1.300
í kjördæminu. Þeir sem ekki em
flokksbundnir gátu tekið þátt í próf-
kjörinu með því að undirrita stuðn-
ingsyfirlýsingu við flokkinn. I próf-
kjörinu var kosið um skipan fjögurra
efstu sæta framboðslistans en ellefu
manns gáfu kost á sér.
Talning atkvæða hófst síðdegis á
sunnudag í Brekkubæjarskóla á
Akranesi. Guðbjartur hlaut eins og
áður sagði flest atkvæði í fyrsta sæt-
ið eða 477 talsins. Tekur hann því
við hlutverki Jóhanns Arsælssonar,
alþingismanns að leiða listann í kjör-
dæminu, en Jóhann gef eins og
kunnugt er ekki kost á sér til endur-
kjörs. I öðra sæti varð séra Karl V
Matthíasson, fv. alþingismaður með
552 atkvæði í l.-2.sæti, í þriðja sæti
Anna Kristín Gunnarsdóttir, alþing-
ismaður með 582 atkvæði í 1.-3.
sæti. I fjórða sæti varð síðan Sigurð-
ur Pétursson með 790 atkvæði í 1,-
4. sæti. Auðir seðlar og ógildir vora
69 talsins. Kjörstjórn gefur ekki upp
nánari upplýsingar um niðurstöðu
prófkjörsins.
Afar hamingjusamur
Guðbjartur Hannesson segist afar
hamingjusamur og þakklátur með
þann stuðning sem hann fékk í próf-
kjörinu og segist hlakka til að takast
á við þetta nýja hlutverk. „Þetta var
afar breiður hópur sem tók þátt í
prófkjörinu og ég er mjög sáttur við
niðurstöðuna því það er sterk sveit
sem skipar fjögur efstu sætin. Sem
kunnugt er hefur Guðbjartur starfað
í aldarfjórðung sem skólastjóri
Grundaskóla og segist halda áfram
sínum störfum þar til vors.
Sveinn ósár
Sveinn Kristinsson, bæjarfulltrúi
Samfylkingarinnar á Akranesi segist
þakklátur því góða fólki sem studdi
hann í prófkjörinu. Hann sóttist ein-
ungis efrir fyrsta sæti listans. Sveinn
segist hafa teflt djarft því hann hefði
einn ffambjóðenda einungis sóst eft-
ir efsta sætinu. Því hefði að sjálf-
sögðu getað brugðið til beggja vona.
„Guðbjartur og Karl unnu glæsileg-
an sigur í prófkjörinu og ég óska
þeim hjartanlega til hamingju með
árangurinn og sætti mig að sjálf-
sögðu við dóm kjósenda," segir
Sveinn. Hann segist halda áfram
sínum störfum sem fulltrúi Samfylk-
ingarinnar í bæjarstjórn Akraness.
„Eg kem algjörlega ósár frá þessu
prófkjöri og mun ganga glaður og
einbeittur til þeirra starfa sem bíða
mín í lífinu," sagði Sveinn að lokum.
Þriðja sætið
baráttusætið
Séra Karl V Matthíasson segist
afar þakklátur fyrir þann mikla
stuðning sem honum hlotnaðist.
,JVIér er efst í huga þakklæti fyrir
þann mikla stuðning og vináttu sem
mér mættu hvarvetna í kjördæminu í
prófkjörsbaráttunni. Eg þakka líka
mótffambjóðendum drengilega bar-
áttu. Framkvæmd prófkjörsins tókst
mjög vel og þetta var breiður og vel
skipaður hópur sem keppti tun sætin
á framboðslistanum," segir séra
Karl. Hann segist hlakka til barátt-
unnar sem framundan er og telur
efstu sæti listans vel skipuð og bar-
áttan á næstu mánuðum mtrni snúast
um að tryggja kjör Onnu Kristínar
Gunnarsdóttur, sem lenti í þriðja
sæti, á þing. „Það eru mörg mál sem
taka þarf á í okkar þjóðfélagi. Hér
þarf að tryggja ffamfarir öllum ril
handa sem í landinu búa. Það hefur
margt breyst til verri vegar hjá ríkis-
stjórnum liðinna ára og það verður
Samfylkingarinnar að bæta þar úr,“
segir séra Karl að lokum.
HJ/ljósni. MM
Guðbjartur Hannesson að kjósa.
Sextán vilja á D-lista í
Norðvesturkj ördæmi
Sextán manns hafa gefið kjör-
nefnd Sjálfstæðisflokksins í Nor-
vesturkjördæmi til kynna áhuga
sinn á að taka sæti á framboðslista
flokksins fyrir næstu Alþingis-
kosningar. Sem kunnugt er ákvað
kjördæmisráð flokksins að fela
kjörnefnd að leggja tillögu að
framboðslista fyrir kjördæmisráð.
Ásbjörn Óttarsson, formaður kjör-
nefndar segir að næsti fundur
nefndarinnar verði haldinn 11.
nóvember og fyrir þann tíma sé
æskilegt að áhugasamir frambjóð-
endur setji sig í samband við
nefndina. Eins og áður hefur kom-
ið fram í fréttum gefa allir þrír
þingmenn flokksins í kjördæminu
kost á sér.
Þeir sem þegar hafa gefið kost á
sér eru Adolf H. Berndsen Skaga-
strönd, Asdís Guðmundsdóttir
Sauðárkróki, Bergþór Olason
Akranesi, Birna Lárusdóttir Isa-
firði, Borgar Þór Einarsson Akra-
nesi, Einar Kristinn Guðfinnsson
Bolungarvík, Einar Oddur Krist-
jánsson Flateyri, Eygló Kristjáns-
dóttir Reykhólum, Herdís Þórðar-
dóttir Akranesi, Hjörtur Arnason
Borgarnesi, Jakob Falur Garðars-
son Reykjavík, Óðinn Gestsson
Suðureyri, Sturla Böðvarsson
Stykkishólmi, Sunna Gestsdóttir
Blönduósi, Orvar Már Marteins-
son Olafsvík og Þórvör Embla
Guðmundsdóttir Borgarfirði.
HJ
Framsóknarmönnum í
Norðvesturkj ördæmi
fjölgar um íjórðung
FRAMSÓKNARFLOKKURINN
talsins. Sigurður sagði þessa fjölg-
Framsóknarmönnum í
Norðvesturkjördæmi hefur
fjölgað um fjórðung ffá því
að kjördæmisþing flokksins
ákvað að efna til póstkosn-
ingar um skipan framboðs-
lista flokksins í kjördæminu.
Kjörseðlar verða sendir út í
vikunni og þeim ber að koma
til baka til kjörnefhdar fyrir 17.
nóvember en þami dag fer talning
atkvæða fram á Borðeyri.
Sigurður Eyþórsson, fram-
kvæmdastjóri Framsóknarflokksins
segir í samtali við Skessuhorn að
þegar kjördæmisráð tók ákvörðun
um póstkosningu í september hafi
flokksmenn í kjördæminu verið um
2.000 talsins. Kjörskrá við póst-
kosninguna var hins vegar miðuð
við 20. október og þá hafði flokks-
mönnum fjölgað um rúmlega 500
og eru þeir því í dag tæplega 2.600
un ekki einsdæmi í flokknum. Slíkt
hefði gerst áður í aðdraganda próf-
kjörs og póstkosninga. Hann sagði
flokksmönnum hafa fjölgað víðast
hvar í kjördæminu en mest væri þó
fjölgunin í félögum á Norðurlandi
vestra og á Vestfjörðum.
Eins og fram hefur komið í frétt-
um sækjast átta manns effir sæti á
framboðslista flokksins í kjördæm-
inu þar af sækjast tveir efrir fyrsta
sæti listans; þeir Kristinn H. Gtrnn-
arsson og Magnús Stefánsson.
HJ
PISTILL GISLA
Okuhraði
Ég geri mér fullkomlega
grein fyrir því að ég er að
kasta grjóti úr glerhúsi með
því að ræða um hraðakstur
en þegar heitt er inni er líka
allt í lagi að opna glugga.
Fyrir fáum tímum kynnti
samgönguáðherra breyting-
ar á reglugerðum varðandi
umferðarlagabrot. Breyt-
ingarnar felast í því m.a. að
sektargreiðslur vegna
hraðaksturs eru hækkaðar
langt umfram verðbólgu.
Fyrir hönd ríkissjóðs hlýt
ég að gleðjast því mér hefur
sýnst að víða brjótist metn-
aður lögreglumanna helst
fram í því að góma ökufanta
á meðan aðrir fantar fá þá
kannski meira svigrúm til
að sinna sínum hugðarefn-
um. Því miður íyrir mig
vegna þess að umferðar-
lagabrot eru einu lögbrotin
sem ég hef lagt stund á til
þessa. Þætti sumum kannski
ekki mikið og þótt það komi
málinu ekki við þá er ég
ekki viss um að ítrekaður
hraðakstur dugi til að ég sé
gjaldgengur í prófkjör sjálf-
stæðismanna á Suðurlandi.
Ælta ég þó ekki að fegra
mína hegðun á þessu sviði
enda hef ég sjálfsagt hlotið
makleg málagjöld fýrir það.
Fyrir tveimur dögum síð-
an var ég farþegi í bíl sem
ók á eftir lögreglubíl á svæði
þar sem hámarkshraðinn
var 30 km á klukkustund.
Gróft áætlað hefur lög-
reglubíllinn ekki verið und-
ir 60 km hraða en þó voru
forgangsljós ekki notuð né
viðeigandi væl. Okumaður
lögreglubifreiðarinnar
beygði síðan skyndilega út
af veiginum, án þess að gefa
stefnuljós, og stöðvaði síðan
næsta bíl á eftir þeim sem
ég dvaldist í, væntanlega
fýrir of hraðan akstur. Kalt
mat er það að lögbrot lög-
regluþjónsins hafi síst verið
vægara en þess sem tekinn
var. Það var hinsvegar ekki
mitt vandamál í þetta skipti,
aldrei þessu vant.
Tek ég þó fram að ég hef
heilt á litið átt býsna góð
samskipti við umferðarlög-
regluna vítt og breytt um
landið. Full mikil samskipti
reyndar fýrir minn smekk
en góð og á stundum nokk-
uð skemmtileg. Fyrir það
ber að sjálfsögðu að þakka.
Flinu er ekki að leyna að
stundum leynast leifar af
hroka í lögreglubúningum
en það er eitthvað sem á að
vera hægt að ná úr í næstu
efnalaug.
Ég ætla ekki að draga úr
nauðsyn þess að ökumenn
flýti sér hóflega. Fíámarks-
hraði hefur hinsvegar verið
nánast óbreyttur frá því
land byggðist en bifreiðar
sem framleiddar í dag ættu
að vera gerðar fýrir eilítið
meiri hraða en hestvagnar
gærdagsins. Vegirnir hafa
hinsvegar ekki þróast með
sama hraða og þar eru að
mínu mati brýnustu verk-
efnin.
Gísli Einarsson,
lögfræðtngun