Skessuhorn


Skessuhorn - 31.10.2006, Page 9

Skessuhorn - 31.10.2006, Page 9
 MIÐVIKUDAGUR 31. OKTÓBER 2006 9 Tónlistaruppeldi er öllum hollt Rætt við Svein Arnar Sæmundsson um fjölbreytt tónlistar- og kórastarf á Akranesi Blaðamaður Skessuhoms brá sér í Vinaminni, safnaðarheimili Akra- neskirkju, til að ná tali af organista kirkjunnar, Sveini Amari Sæmunds- syni. Boðið var inn í skrifstofu sem bar þess merki hver hana sætd, píanó og nótur prýddu borð og bekki. Greinilegt er að organistinn er afar virkur maður með mörg jám í sínum tónlistareldi. Eins og Islendinga er siður vildi blaðamaður fyrst vita um ætt og uppruna organistans. „Eg er fæddur og uppalinn á Syðstu-Grund í Skagafirði. Foreldr- ar mínir heita Sæmundur Sigur- björnsson og Þorbjörg Eyhildur Gísladóttir, hreinræktaðir Skagfirð- ingar. Eg ólst upp við almenn sveita- störf og hef víða komið við á vinnu- markaðnum. Hef unnið við torf- og grjóthleðslu, ekið vörubíl, unnið í kjötvinnslu og síðar við tónhstar- kennslu. Eg stundaði nám við Tón- hstarskólann í Skagafirði og Tórdist- arskólann á Akureyri. Var samhliða því organisti í Skagafirði og á Akur- eyri. Haustið 2002 kom ég á Akra- nes og hóf hér störf sem organisti. Nú nýverið lauk ég Kantorsprófi frá Tónskóla Þjóðkirkjunnar og hef stundað nám í orgelleik í „kúrsa- formi“ í Kaupmannahöfn og stefni á kórstjómarnám í Svíþjóð með svip- uðu sniði. Eg er kvæntur Þórgunni Stefánsdóttur og eigum við fjóra syni.“ Tónlistarlífið En hvemig er lífið í kirkjukór, erslíkt einhœft, svo sem alltaf verið að syngja sömusálmana? ,Ahs ekki,“ svarar Sveinn Arnar að bragði. „I kirkjukór Akraneskirkju em núna 42 söngmenn og hefur heldur farið ijölgandi í kómum. Það er afar upp- byggandi að syngja og söngur gefur manni mikið, ekki bara röddinni heldur ekki síður líkama og sál. Þetta er fólk á öhum aldri og það hefur myndast góður félagsskapur. Eg reyni að hafa starfið þannig að við séum ekki bara að spreyta okkur á sálmum og kirkjutónlist, heldur hinu veraldlega líka. Ekki það að sálmalög séu eitthvað verri en önnur lög. Þetta er afar ijölbreytt flóra. Maður heyrir oft fólk tala um að það sé ekki hrifið af þessum sálmum. Mörg sálmalög era sérstaklega falleg og gaman að syngja þau og m.a. annars gaf Ellen Kristjánsdóttir út geisladisk með sálmum og var það metsöluplata. Og ekki sakar boð- skapurinn. Og við spreytum okkur líka á stærri kirkjutónlistarverkum. I því sambandi má nefna að núna 5. nóvember verður hátíðarguðþjón- usta í kirkjunni sem allur kórinn tek- ur þátt í og þar verður fluttur kafli úr argentískri messu,“ segir Sveinn Arnar. Hann segir að mikið standi til í vetur. „Við erum að fara í heimsókn til Kanaríeyja í febrúar þar sem við syngjum eina messu og höldum eina tónleika. Þess á milh munum við eiga rólegri daga þama á eyjunum. Astæða þess að við emm að halda í suðurátt, en ekki eitthvert annað, er sú að þar starfar íslenskur prestur, Jóna Lísa Þorsteinsdóttir, sem ég þekki persónulega. Hún veitir Is- lendinum sem á svæðinu búa þjón- ustu sína og ég held að hún sé kom- in í hálfa stöðu þarna syðra en sinnti þessu fyrr í sjálfboðavinnu. En áður en þetta skellur á verður nóg að gera við tónleika- og messu- hald innanlands. Eg hef skipt kóm- um niður í hópa sem skiptist á að syngja við guðsþjónustur en einu sinni í mánuði syngur allur kórinn. Þetta hefur gefist afar vel og kórinn er það vel mannaður að það er ekk- ert vandamál að hafa þetta svona.“ Angelia í nýjan búning Eitthvað fleira verður á döftnni hjá ykkur í vetur? ,Já, við verðum með árlegt kaffi- húsakvöld 10. nóvember. I ár fellur það inn í Vökudaga sem em menn- ingardagar hér á Akranesi. Þar verð- ur hið vinsæla lag Angelia eftir Theodór Einarsson sem Dumbó og Steini fluttu á sínum tíma sett í nýj- an búning og auðvitað rifjar Steini, Sigursteinn Hákonarson, upp gamla takta. Þetta er hluti af syrpu af lög- um eftir Theodór Einarsson, sem ég hef fengið Skarphéðin Hjartarson til að útsetja fyrir okkur og undir leikur Léttsveit kórsins. Kaffihúsakvöldið hefur heppnast vel undanfarin ár og kórfélagar hafa látið hendur standa ffam úr ermum við kökugerðina.“ Samkeppni um sáfimar Ekki ertu einungis að stjóma kirkjukómum? „Nei, nei, ég er með yngri kóra, Bamakór Akraneskirkju sem saman stendur af nemendum í 1.-4. bekk í grunnskóla. Þar er gífurlega góð mæting og mikið gaman. Þetta em svona 20-30 krakkar sem koma sam- an og syngja af innlifun, því þetta er í raun meiri leikur en alvara. En tón- listarlegt uppeldi er mikilvægt að mínu mati, og gott að sýna bömun- um hversu gaman getur verið að syngja í kór. Stúlknakór er einnig starfandi við Akraneskirkju og í honum em stelp- ur ffá 5.-10 bekk. Þær hafa sumar hverjar verið með ffá því í fyrsta bekk, sem er gott. Við erum að æfa jólahelgileik sem vonandi verður fluttur á aðventuhátíðnni. Þar em fjölbreytt lög m.a. blues-kennd. Þetta em allt alvöm lög, sem þær em að syngja, kannski ekki þekkt en afar grípandi. Þessi kór syngur líka einu sinni í mánuði, við fjölskylduguðs- þjónustu. Samt er það svo í þessu sem mörgu öðm að það em alltaf sömu krakkamir sem em virkir alls- staðar. Og í stúlknakómum verð ég að hafa æfingamar á sunnudögum, því það er eini dagurinn sem er laus. Samkeppnin um sálimar er víða, ef svo má segja, segir Sveinn Arnar og brosir við. En ég má ekki gleyma Kammerkórnum sem ég stofnaði eiginlega fyrir sjálfan mig, því ég er afar áhugasamur um alls konar kór- tónlist og kemst ekki yfir nema helminginn af því sem langar til að gera. Þetta er lítdll kór 12-16 manna sem kemur saman og æfir kórverk sem henta kannski ekld stórum kór- um. I honum em aðallega félagar úr kirkjukórnum. Við verðum með tónleika 2. desember í Saurbæ á Hvalfjarðarströnd. Þar ædum við að flytja Kantötu eftir J.S. Bach með strengjasveit og einsöngvurum auk fallegra aðventusálma.“ Jófin og tónleikar Mörgum finnst jólalög og jólatónlist ómissandi þáttur íjólahaldinu, hvemig er staðið að því við Akraneskirkju? „Eg er sammála þessu og því bjóð- um við upp á fjölbreytta tónlist fyrir jólin. Að þessu sinni verða jólatón- leikamir seint á aðventunni því lög- in í ár em mjög hátíðleg og rétt að hafa þessa tónleika sem næst jólum. Það er gott að komast í jólastemn- ingu með því að hlusta á hátíðleg jólalög, nokkram dögum áður en hátíðin gengur í garð. Annars hafa þessir tónleikar verið fjölbreyxtir hjá okkur. I fyrra vorum við með jóla- spyrpu af alls kyns jólalögum, árið þar á undan lét ég gera fyrir okkur jólasögu sem var leiklesin af leikara og inn á milli stmgnir fjölbreyttir jólasöngvar, en í ár er það sem sagt mikill hátíðleiki sem ræður ríkjum. Jólatónleikarnir hverju sinni era ekki tengdir aðventukvöldinu, það er sérstök stund sem fer í þetta, að- ventukvöldið er síðan annað. Flestir tónleikamir era hér í Vinaminni. Hér er góður hljómburður og gott að syngja," sagði þessi notalegi org- anisti að lokum. En nú era hlátrasköllinn orðin há- værari ffammi í anddyrinu og mál fyrir blaðamann að hypja sig, svo organistinn komist á æfingu með yngsta kómum. BGK Sveinn Amar Sœmundsson. menningarhátíð á Akranesi 2.-9. Hóvamber 2006 2. nóvember: 3. nóvember: 4. nóvember: ■ SB Sýning á verkum Eiríks Smith, listmálara Staður: Listasetrið Kirkjuhvoll kl. 17:00 - 19:00. Vilhjáimskvöld á Mörkinni - tónlist eftir Vilhjáim Vilhjálmsson Staður: Mörkin, kl. 22:00. Súputónleikar í Tónlistarskólanum Staður: Tónlistarskólinn við Þjóðbraut, kl. 12:15 -13:00. Rolling Stones tónleikar. Herradeild PÓ Staður: Bíóhöllin kl. 21:00. Aðgangur kr. 2.000. "Fólk í fimm heimsálfum” • Ijósmyndir Friðþjófs Helgasonar, bæjarlistamanns Staður: Húsnæði Skagaleikflokksins Vesturgötu 119. Opið frá kl. 13:00 -18:00 á Vökudögum. Skagaskáldin Staður: Safnaskálinn að Görðum, kl. 15:00 -17:00. “Bach fyrir börnin” • orgelkynning fyrir börn Friðrik Vignir tónlistarkennari annast kynningu á notkun orgels. Staður: Akraneskirkja kl. 11:00. Sýningar á Höfða Málverkasýning Sveins Guðbjarnasonar. Sýning á Ijósmyndum Helga Danielssonar. Sýning á skipslíkönum Sveins Sturlaugssonar. Höfðabasar - handverk og ýmsir munir til sölu. Staður: Dvalarheimilið Höfði kl. 14:00-17:00. 5. nóvember: Leiklist fyrir unglinga, leiklistarverkefni fyrir 13-17 ára Staður: Húsnæði Skagaleikflokksins Vesturgötu 119, kl. 13:00 -16:00. Hátiðarmessa í Akraneskirkju Staður: Akraneskirkja kl. 14:00. Leiklist fyrir unglinga, leiklistarverkefni fyrir 13 -17 ára Staður: Húsnæði Skagaleikflokksins Vesturgötu 119, kl. 13:00 -16:00. Flugeldasýning í boði Orkuveitu Reykjavíkur Staður: íþróttasvæðið á Jaðarsbökkum. kl. 20:00. Hagyrðingakvöld Staður: Safnaskálinn að Görðum kl. 20:30 - 22:30. Ljósmynd: Frsðþjölur Hekjason 6. nóvemben Skátastarf á Akranesi í 80 ár, 1926-2006 Staður: Bókasafn Akraness, kl. 17:00. Upplestur úr bók um skátastarf á Akranesi Staður: Bókasafn Akraness kl. 17:00. 7. nóvember. 8. nóvember: 9. nóvember. 10. nóvemben 13, nóvember: Jasstríó Reynis Sigurðssonar og fl. Staður: Tónlistarskólinn kl. 20:30. Aðgangur kr. 1.000. Leiksýning fyrir börn. ''Sigga og skessan í fjallinu" i boði Sparisjóðsins Akranesi Staður: Grundaskóli kl. 11:00. Brekkubæjarskóli kl. 14:00. Ungir - gamlir, rokkið lifir. Rokktónleikar Staður: Bíóhöllin kl. 20:00. Aðgangurkr. 1.000. Farandleikhús Landsbankans, “Brot úr sögu banka” Leikdagskrá í léttum dúr þar sem rakin er saga Landsbankans, árin 1886-2006, í tónum og tali. Veitingar verða í boði og Sproti verður á staðnum. Staður: Landsbankinn við Suðurgötu kl. 15:30. Tónleikar i Tónlistarskólanum - blásaradeildin Staður: Tónlistarskólinn við Þjóðbraut. kl. 18:15. Hljómsveit Juri Fedurov. Frönsk "varieté” skemmtitónlist Staður: Tónlistarskólinn við Þjóðbraut kl. 20:30. Aðgangur kr. 1.500, skólafólk og eldri borgarar kr. 1.000. Landmælingar íslands - opið hús, sýning skólaverkefna Staður: Stillholt 16-18, kl. 14:00 - 18:00. “Gegn fordómum” Glóðaraflshópurinn býður bæjarbúum að þrykkja handarfar á dúk gegn hverskyns fordómum. Staður: Um allan bæ frá kl. 08:00 - 19:00. Kaffihúsakvöld Kirkjukórs Akraness Staður: Vinaminni kl. 20:00. Aðgangurkr. 1.500. Norræn bókasafnavika 13. -18. nóvember Staður: Bókasafn Akraness, kl. 18:00. Sjá nánar: Akraneskaitpsíaður

x

Skessuhorn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.