Skessuhorn


Skessuhorn - 31.10.2006, Qupperneq 11

Skessuhorn - 31.10.2006, Qupperneq 11
,-r-vtnn..^ I 11 MIÐVIKUDAGUR 31. OKTÓBER 2006 Vinnuhópur um málefiii fiístundabænda í Stykkishóhni tjórn Stvkkishólmsbæjar Gert er ráð fvrir að hópinn Sídpi um verkaskiptinffu og < Bæjarstjórn Stykkishólmsbæjar hefur samþykkt samhljóða að skipa vinnuhóp er hafi það verkefhi að koma með tillögu að stefnu í mál- efhum frístundabænda. Tillagan var flutt af bæjarfulltrúunum Lárusi Astmar Hannessyni, Berglindi As- geirsdóttur og Davíð Sveinssyni. Gert er ráð fyrir að hópinn Skipi fimm fulltrúar. Einn tilnefiidur af Nýræktarfélaginu, einn ffá Fjáreig- endafélaginu, einn ffá landbúnað- arnefnd Stykkishólmsbæjar, einn ffá D-lista og einn ffá L-lista. Samkvæmt tillögunni er gert ráð fyrir að hópurinn komi sér saman um verkaskiptingu og er bæjar- stjóra falið að boða til fyrsta fundar nefhdarinnar. Þá segir að hópurinn haldi að minnsta kosti einn opinn fund með áhugafólki um frístunda- búskap í Stykkishólmi og hópurinn taki ekki lengri tíma en sex mánuði til sinna starfa. HJ Fjölbreytt hlutverk UKV fydr ferðaþjónustuna Upplýsinga- og kynningarmið- stöð Vesturlands (UKV) er heilsárs upplýsingamiðstöð fyrir ferðamenn á Vesturlandi og er hún rekin af sveitarfélögum og fyrirtækjum á svæðinu. Skrifstofan er til húsa í Hyrnunni í Borgarnesi. Hlutverk UKV er að samræma upplýsinga- miðlun um ferðamál á Vesturlandi og sjá um kynningar- og markaðs- mál fyrir landshlutann fyrir inn- lenda sem erlenda ferðamenn. Auk miðstöðvarinnar eru nokkrar svæð- isbundnar upplýsingamiðstöðvar reknar vítt og breitt tun Vesturland. Miðstöðin var opnuð í apríl 2000 og hefur því verið starfrækt í 6 ár. Nýverið héldu Ferðamálasamtök Vesturlands fund þar sem m.a. var fjallað um stöðu UKV. Þar kom fram að töluvert vantaði upp á kynningu á hlutverki UKV fyrir ferðaaðila á Vesturlandi og að skortur á upplýsingum væri m.a. að valda því að erfiðara en ella væri að afla starfseminni fjár, m.a. ffá sveit- arfélögum. „Nýtt sveitarstjórnar- fólk veit t.d. ekki nægjanlega vel hversu fjölbreytt og víðtækt hlut- verk UKV er og úr því verðum við að bæta,“ sagði Andrea M Vigfús- dóttir, starfandi forstöðumaður UKV í samtali við Skessuhorn. Hún segir að stór hluti starfsemi UKV felist í að dreifa upplýsingum, aðallega í bæklingaformi um Vest- urland og á aðrar upplýsingamið- stöðvar um land allt og einnig á ferðaskrifstofur erlendis. Uppfærsla þjónustulista fyrir Vesturland í hin- um ýmsu ferðaritum og öðrum upplýsingaveitum er einnig í hönd- tun starfsfólks UKV, auk þess sem Ferðamálasamtök Vesturlands og UKV halda úti heimasíðu með helstu upplýsingum um þjónustu við ferðamenn á svæðinu. Þær upp- lýsingar má nálgast á www.west.is eða www.vesturland.is „Allir þeir sem hafa tilskilin leyfi og veita ferðamönnum einhverja þjónustu á Vesturlandi, geta sent okkur upp- lýsingar og við setjum þær á heima- síðuna og á þá þjónustulista sem við sendum út. Einnig er hérna minja- gripasala og gott úrval af alls kyns bókum um Island á ýmsum tungu- máltun. Tekjur af minjagripasölu standa undir hluta rekstrarkostnað- ar skrifstofunnar en við teljum að sveitarfélög og fyrirtæki í greininni ættu að leggja starfseminni til meiri peninga því það er hagur greinar- innar að svona starfsemi gangi sem best,“ sagði Andrea að lokum. MM Guðbjartur Hannesson, skólastjóri Grundaskóla d Akranesi gerði sér lítið fyrir og sigraði íprófkjöri Samfylkingarinnar í NV kjördæmi um helgina. Guðbjartur ergestur Skra'argatsins að þessu sinni. Fullt nafn: Guðbjartur Hannesson. Starf: Skólasljóri. Fæðingardagur og ár: 3. júni 1950. Fjölskylduhagir: Giftur Sigrúnu Asmundsdóttur, iðjuþjálfa og á tvær dætur, Bimu og Hönnu Mart'u. Hvemig bíl áttu? Opel Vectra ‘98. Uppáhalds matur? Gott lambakjót og slátur. Uppáhalds drykkur? Vatn og kók. Uppáhalds sjónvarpsefni? Fréttir og íþróttir. Uppáhalds sjónvarpsmaður? Ómar Ragnarsson. Uppábalds innlendur leikari? Edda Björgvinsdóttir. Uppáhalds erlendur leikari? Julia Roberts. Besta bíómyndin? Gaukshreiðrið. Uppáhalds íþróttamaður? David Beckham. Uppáhalds íþróttafélag? ÍA. Uppáhalds stjómmálamaður? lngibjórg Sólrún. Uppáhalds innlendur tónlistarmaður? Flosi Einarsson. Uppáhalds erlendur tónlistarmaður? John Lennon. Uppáhalds rithöjundur? Halldór Kiljan Laxness. Ertu fylgjandi eða andvígur ríkisstjóminni? Andvígur. Hvað meturðu mest ífari annarra? Heiðarleika ogjákvæðni. Hvaðfer mest í taugamar á þér ífari annarra? Oheiðarleiki og nei- kvæðni. Hver er þinn helsti kostur? Umburðarlyndi og réttlætiskennd. Hver erþinn helsti ókostur? Matarást. Hvemig leggst það í þig að gerast þingmaður? Það leggst mjög vel í mig. Það er spennandi verkefni að berjast fyrir þetta stóra kjórdæmi og grunngildi Samfylkingarinnar. Hver verða þín helstu baráttumál á þingi? Helstu baráttumál eru að endurreisa velferðarkerfið, tryggja jófnuð bæði millifólks og byggðarlaga, berjastfyrir sáttum um nýtingu náttúruauðlinda og efla menntun á landsbyggðinni. Það er afnógu af taka. Eitthvað að lokum? Kærar þakkir til stuðningsmanna og alls Samfylk- ingarfólks fyrir þátttökuna í prófkjörinu. Ég treysti á að við stöndum saman í baráttunnifyrir bættu mannlífi í Norðvesturkjördæmi. r Endurmenntunardeild Landbúnaðarhásköia íslands Rúningur og meðferð ullar Guðmundur Hallgrímsson staðarráðsmaður á Hvanneyri. 11.-12. nóvember - Hesti í Borgarfirði. Klaufskurður nautgripa Sigurður Oddur Ragnars. járningarmeistari og bóndi 21. - 22. nóvember - Borgarfirði V Skráningar á www.lbhi.is eða í síma 433 5000 J í AKURS/u/s . ... — —— . - við allra hæfi - Trésmiðjan Akur byggir ívö parhús við Sóltún 14-14a og 16-16a á Hvanneyri. Húsin afhendast fulibúin að utan með grófjafnaðri lóð og óeinangruð að innan. Allar nánari upplýsíngar og sölubækling er hægt að fá á skrífstofu Akurs. PÉ5. Trésmiðjan AKUR ehf. | Smiðjuvöllum 9 • 300 Akranes • Sími: 430 6600 • Fax: 430 6601 | Netfang: akur@akur.ís * Veffang: www.akur.is 'c J ^ w w. M16 . is i M16 ÚTILASER TflG FRÁBÆR SKEMMTUN FYRIR ALLA ALLT ^ HAFÐU SAMBAND NÚNA OG FÁÐU TILBOÐ FYRIR ÞINN HÖP 1 M16@M16 - SÍMI 898 8181

x

Skessuhorn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.