Skessuhorn - 31.10.2006, Qupperneq 13
r
^Munu^i
MIÐVIKUDAGUR 31. OKTÓBER 2006
13
Lærði á tölvu
87 ára gömul
Mikil breyting er orðin á högum Elísabet-
ar. Hún farin úr sinni víðfeðmu sveit þar sem
fjallahringurinn blasti við eins og hann lagði
sig. Flutt til Borgarness í þéttbýlið þar sem
ekkert jarm heyrist í lambi, baul ffá kú og
varla fuglasöngur. Hvernig líður henni við
þessa breytingu?
„Eg er afar sátt. Eg var áttræð þegar Jón
bróðir minn lést og hef verið ein síðan. Það
var því gott að koma hingað í Borgarnes og
njóta hlýrrar umhyggju þeirra sem sinna mér.
Eg fæ hér heim til mín fæði, þvæ ennþá þvott-
inn minn, það er séð um þrifin, til mín kem-
ur hjúkrunarkona öðru hverju og fylgist með
heilsu minni og ég hef samneyti við fólkið hér
í kringum mig. Eg er svosem ekki við hesta-
heilsu, búin að hálfdeyja tvisvar, en mér líður
vel. Eg lærði á tölvu 87 ára gömul. Þannig var
að systir mín keypti sér tölvu en varð bráð-
kvödd í sömu vikunni. Þessi tölva er mér kær
og nota ég hana mikið. Svo get ég lagt kapal í
tölvunni, ég geri það alltaf svona undir svefh-
inn á kvöldin,“ segir Elísabet að lokum. Við
þökkum þessari heiðurskonu fýrir móttök-
urnar, hún sest aftur við tölvuna og leggur
sinn kapal, 95 ára gömul.
Elísabet í hlutverki Grasa - Guddu en Ján bróÖir leikur Sigurð í Dal.
I SafnasvæðiðáAkranesi
I Sími 431 5566 - Fax 431 5567 - Veffang: www.museum.is
Netfang: museum@museum.is
Laugardaginn 4. nóvember kl. 15:00 verður í tilefni
Vökudaga, dagskrá í Garðakaffi sem kallast Skagaskáldin.
Þar verða nokkur valinkunn skáld af Skaganum kynnt
og lesið úr verkum þeirra.
Vegna óviðráðanlegra orsaka fellur Hagyrðingakvöld sem
halda átti í Garðakaffi sunnudaginn 5. nóvember niður.
Á meðan að Vökudagar standa yfir verða systurnar
Jóhanna og Margrét Leópoldsdætur með sýningu á
verkum sínum í Garðakaffi. Sýningin er opin á sama
tíma og söfnin frá kl. 13:00 til 17:00 alla daga.
www.kjolur.is
Til hamingju Akranes!
Síðasdiðið miðvikudagskvöld hélt
Þjóðlagasveit Tónlistarskólans á
Akranesi tónleika í Borgarleikhús-
inu í Reykjavík. Sveidn flutti verkið
Húsið - Milli tveggja heima eftir
stjórnanda sveitarinnar Ragnar
Skúlason. Sveitina skipa stúlkur á
aldrinum 11 - 19 ára úr strengjadeild
skólans en einnig léku með sveitinni
tónlistarmenn á píanó, bassa og
trommur. Sýningin einkenndist af
fiðluleik og söng en á milli laga
brutu þær upp formið með eins kon-
ar talkór, þar sem þær fóru með vel
vaHn og spaugileg ljóðabrot.
Húsfýllir var á tónleikunum og
óhætt að segja að Þjóðlagasveitin
hafi bætt nokkrum rósum í hnappa-
gat sitt eftir ffammistöðu sína á mið-
vikudaginn. Fyrsta lagið gaf tóninn
um það sem koma skyldi því fjörug-
ur taktur var sleginn þar sem fiðlur,
píanó og slagverk fékk notið sín og
salurinn tók fljótt undir með takt-
föstu lófataki. Undir styrkri en
glaðbeittri stjóm Ragnars spiluðu
stúlkumar af ögun og
prúðleik en fyrst og
ffemst skynjaði áhorf-
andinn gleði og kátínu
sem streymdi ffam og
smitaði vel út ffá sér.
Hvergi var feilnóta sleg-
in, hvorki í tónlistar-
flutningnum né söngn-
um og það í sambland
við talkórinn á milli at-
riða gerði tónleikana
ógleymanlega og bráð-
skemmtilega.
Tónlistarskráin var vel valin og
aðgengileg og líklegt má telja að sú
fjöður tilheyri hatti Ragnars Skúla-
sonar. Hontim og stúlkunum öllum,
ásamt aðstandendum sýningarinnar,
er óskað innilega til hamingju með
ffábæra tónleika. Það hlýtur að telj-
ast mikil lyffistöng fyrir bæjarfélag
eins og Akranes að eiga svo fært fólk
í sínum ranni og er öllum til sóma.
Kolbrá Höskuldsdóttir.
Ljósm. Carsten Kristinsson
Græmii
Nú í haust hófst annað námsár
bænda sem taka þátt í Grænni
skógum á Vesturlandi. Um er að
ræða nám sem er sérsniðið að skóg-
arbændum, skipulagt af Landbún-
aðarháskóla Islands. Sams konar
nám hefur farið fram eða er í gangi
hjá hinum landshlutaverkefnunum
í skógrækt. I haust eru tvö skyldu-
námskeið búin en þau voru „fram-
leiðsla og gróursetning skógar-
plantna“ sem fram fór að Reykjum
í Ölfusi 13.-14. október sl. og
„skógarumhirða" sem fram fór á
Hvanneyri, Daníelslundi og í
Reykholti um liðna helgi. Eitt val-
námskeið verður nú á haustönn en
það er „tálgað í tré“ og fer það fram
dagana 17.-18. nóvember. Þáttak-
endur í Grænni skógum á Vestur-
landi eru 33.
skógar á Vesturlandi
Þátttakendur í Grœnni skágum í námsferð í Ölfusi fyrir skömmu.
Einn liður í þessu námi er náms-
ferð til útlanda. Nú hefur verið
ákveðið að fara í námsferð til
Skotlands í águst á næsta ári. Þessi
ferð er ætluð þátttakendum í
Grænni skógum á Vesturlandi og
starfsfólki Vesturlandsskóga.
Skipulagning ferðarinnar er hafin
og fararstjóri verður Arnlín Óla-
dóttir, skógfræðingur á Bakka í
Bjarnarfirði.
MM
Sími 525 8383
ATVINNA
Fosshótel Reykholti
auglýsir eftir húsverði
í fullt starf.
Upplýsingar veitir Baldvin eða
Magnfríður í síma 435 1260
fO«HÚT€L
Hárskerinn
að Kirkjubraut 30
á Akranesi
Qjörir kunnugt:
Lokað verður
frá 14. nóvember
til &. desember.
Síðbúið sumarleyfi.
Jón Hjartarson
Flligger
Hörpuskin, Hörpusilki
og Utitex
fást nú hjá KB Búrekstrardeild
BUREKSTRARDEILD
SORGARNESI
Egilsholt 1-310 Borgarnes
Afgreiðsla sími: 430-5505 Fax: 430-5501
Opið frá kl. 8-12 og 13-18 alla virka daga
I