Skessuhorn


Skessuhorn - 31.10.2006, Blaðsíða 19

Skessuhorn - 31.10.2006, Blaðsíða 19
atttssunui. MIÐVIKUDAGUR 31. OKTOBER 2006 19 Vonast er til að titringsvandamál í Sementsverksmiðjunni hverfi Þess er vænst að titringur frá kvörnum Sementsverksmiðjunnar á Akranesi valdi ekki ónæði hjá ná- grönnum verksmiðjunnar að af- loknum viðgerðum síðla nóvem- bermánaðar. Þetta kom fram á fundi sem Gunnar H. Sigurðsson framkvæmdastjóri verksmiðjunnar átti með Gísla S. Einarssyni bæjar- stjóra á Akranesi. Fundurinn var haldinn í kjölfar kvartana frá íbúum í nágrenni verksmiðjunnar. I bréfi íbúa, og sagt var ffá í síðasta tölu- blaði, var nefndur sá möguleiki að verksmiðjan yrði færð af núverandi stað til Grundartanga. I máli Gunnars kom fram að seinni hluta árs 2004 hafi komið upp titringsvandamál í drifi sem- entskvarnar II í verksmiðjunni. Titringurinn ágerðist mjög hratt og var brugðist við með þeim hætti að pantað var nýtt drifhjól. Mikill titr- ingur barst frá drifinu meðan beðið var eftir varahlutnum en nýtt hjól var sett við í febrúar 2005. Með nýju hjóli minnkaði titringurinn mikið en jókst síðan aftur síðastlið- inn vetur. Haft var samband við ffamleiðanda drifsins en ekki fannst ástæða fýrir vandamálinu. Síðastlið- ið vor komst á samband milli Sem- entsverksmiðjunnar og sérhæfðs fýrirtækis í Þýskalandi. Þetta fýrir- tæki er sérhæft í þungum drifum og sérffæðingur frá þeim framkvæmdi vandasama viðgerð á drifi kvarnar- innar í mars 2006 sem varð til þess að titringur frá kvörninni minnkaði stórum. Sams konar viðgerð bíður sem- entskvarnar I í verksmiðjunni. Sú kvöm er eingöngu notuð þegar mikil sementssala er, eins og raunin •-ÍT' J hefur verið að undanförnu. Hefur titringur frá henni því borist út í umhverfið. Sérfræðingur þýska fýr- irtækisins er væntanlegur til lands- ins 20. nóvember og eftir viðgerð hans er gert ráð fýrir að titringur ffá verksmiðjunni verði viðunandi og valdi að sögn Gunnars ekki ónæði hjá nágrönnum hennar. Efinisknastar valda hvellum íbúar kvörtuðu einnig undan hvellum ffá verksmiðjunni. Loft er notað til þess að losa um efniskn- asta sem setjast inn á ofn verksmiðj- unnar. Gunnar segir efnisknasta þessa geta orðið það mikla að afköst verksmiðjunnar minnka og jafnvel stöðvast ffamleiðsla alveg ef ekkert er að gert. Hann segir því miður ekki þekktar aðrar aðferðir sem duga til hreinsunar efnisknasta. Til þess að minnka ónæði af þessum völdum hafa stjórnendur verk- Opið bréftil þingmanna Norðvesturkjördœmis Við undirritaðir viljum með bréfi þessu vekja athygli á stöðu verk- námsdeilda framhaldsskólanna í frumvarpi til fjárlaga 2007. Allt iðnnám til Reykjavíkur? Samkvæmt fjárlagafrumvarpi fýrir árið 2007 verður dregið úr fjárframlögum til verknáms í fram- haldsskólum. Þetta er gert með því að gera ráð fýrir fleiri nemendum í hópum í iðnnámi og öðrum starfs- brautum. Þetta er gert í gegnum svokallað reiknilíkan menntamála- ráðuneytisins og er raunar ekki í fýrsta skipti sem skólar verða fýrir barðinu á því. Frá því það var tekið upp hefur það oft verið notað til að skerða fjárframlög til framhalds- skólanna. I nýjum viðmiðunarreglum ffá menntamálaráðuneytinu er breytt fjöldaviðmiðum í áföngum í starfs- námi. Þar er miðað við að í fagbók- legum áföngum sé lágmark 18 nemendur á sama tíma og hámarks viðmið í verklegum áfangum er 12 nemendur. Lágmarksviðmið í fag- bóklegum áföngum er sett vegna hagkvæmnissjónarmiða en há- marksviðmiðið í verklegum áföng- um er sett af öryggisástæðum. Á sama tíma og þetta er gert er einnig aukin krafa um heildarnýtingu kennslustunda innan skólanna, og verður hún núna 80%. Má af þessu sjá að svigrúm skóla til að halda úti iðn- og/eða starfsnámi minnkar mjög, þar sem fullur hópur dugar ekki til að ná ofangreindu nýtingar- hlutfalli. Iðnnám er í eðli sínu dýrt nám. Nemendur eru vegna öryggissjón- armiða fáir og aðstaða og búnaður dýr. Þegar við bætist að viðmið er sett óhóflega hátt og aðsókn minnkar er viðbúið að illa fari. Það er augljóst að framhaldsskólar Norðvesturkjördæmis verða að skera niður í iðngreinum og jafhvel fella út. Nú þegar á iðnnám undir högg að sækja í þessum skólum. A sama tíma og eftirspurn eftir iðnmenntuðu fólki hefur aukist, er kreppt að skólunum með þessum aðgerðum. Langar okkur undirrit- aða að spyrja ykkur þingmenn þessa kjördæmis hvernig geti staðið á þessari vitleysu? Ekki hefur vant- að stóru orðin í hátíðarræðunum um að auka veg starfsnáms. Er það virkilega raunin að þingmenn okk- ar, hvar í flokki sem þeir standa, ætli að horfa á aðgerðarlausir? Þá er hætta á að iðnnám verði flutt frá landsbyggðinni til Reykjavíkur, þar sem stærðarinnar vegna er hægt að halda þessi viðmið. Ef svo er, þá er það döpur niðurstaða, þar sem sí- fellt er talað um að gera verknámi hærra undir höfði. Við skorum á ykkur að koma í veg fýrir að starfsnám verði lagt af í kjördæminu. Verknámskennarar við: Fjölbrautaskóla Vesturlands Akranesi Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra Menntaskólanum á Isafirði Samrit sent þingmönnum smiðjunnar lagt áherslu á að ekki sé skotið í ofh seinni part kvölds og að næturlagi. Hefur þessari vinnureglu verið fýlgt að sögn Gunnars en hann segir einstaka sinnum hafa komið upp þær aðstæður í ofninum að nauðsynlegt hafi verið að minnka knast að næturlagi. Hins vegar hafi verið ítrekað við starfs- menn verksmiðjunnar að betra sé að hreinsa knasta úr ofhi seinni hluta dags í von um að minnka notkun byssunnar á kvöldin og á nóttunni eins og kostur er. Þá er nú einnig leitað leiða til þess að draga úr sjón- mengun ffá verk- smiðjunni og hafa einkum voru ræddir möguleik- ar á að reisa hljóð- manir með falleg- um gróðri norð- anvert við ofhhús- ið. Mun verk- ffæðistofan Línu- hönnun framkvæma mælingar og í framhaldi af því gera tillögu að lausnum, séu þær fýrir hendi. Grænt bókhald Starfsleyfi Sementsverksmiðj- unnar frá Umhverfisstofhun gildir til 1. ágúst 2008. Gunnar segir að í starfsleyfinu séu gerðar kröfur til verksmiðjunnar varðandi umhverf- ismál. Verksmiðjunni er meðal ann- ars gert að halda grænt bókhald sem í raun heldur utan um að verk- smiðjan uppfýlli þær kröfur sem gerðar eru í starfsleyfinu. Hann segir verksmiðjunni hafa gengið vel að uppfýlla kröfurnar og raunar fengið hól frá Umhverfisstofnun fýrir gott umhverfisstjórnunarkerfi. Gunnar segir eigendur og stjórn- endur verksmiðjunnar hafa lagt mikla áherslu í gegnum tíðina á að eiga gott samstarf við bæjaryfirvöld á Akranesi og nágranna verksmiðj- unnar. Sementsverksmiðjunni hafi á sínum tíma verið valinn staður að ósk heimamanna og hefur hún ver- ið starff ækt á Akranesi allt frá árinu 1958 og samvinnan við Akurnes- inga hafi verið með eindæmum góð þrátt fýrir viðkvæma staðsetningu verksmiðjunnar. Raunar hafi íbúar sýnt starfseminni skilning og lang- lundargeð sérstaklega veturinn 2004-2005 þegar beðið var eftir nýju drifhjóli. Hann segir stjórn- endur og starfsmenn verksmiðj- unnar vilja áffam vinna í sátt við umhverfi sitt og taka við öllum ábendingum um það sem betur má fara. HJ „Höldum áfram á réttri braut... “ ...Eins og Atli Harðarsson heimsspekingur sagði í grein sinni í Morgunblaðinu fýrir einhverju síð- an. Senn líður að alþingiskosning- um og er framboðskapphlaupið nú þegar hafið og mætir menn keppast um að lofa sinn mann í þaula. Þó er það núna eins og offast að ffam- boðið er meira en eftirspurnin og einhverjir munu sitja eftir með sárt ennið. Sjálfsstæðisflokkurinn hefur engu að síður brugðið á það ráð að reyna að finna jafnvægismagnið með því að stilla upp sínu liði þetta skiptið, þó er ég ekki þeirri hug- myndafræði sammála en ég ætla ekki að fjalla um það hér. Þrjú sæti vann Sjálfsstæðisflokk- urinn seinast og voru Sturla, Einar K og Einar O vel að sætum sínum komnir. Nú fjórum árum seinna eru hægri menn í mikilli sókn, og nefni ég sem dæmi Reykjavík og Akranes byggðafélög sem eru aftur komin í hendur Sjálfstæðismanna. Þ.a.l. liggur það beint við að Sjálfs- stæðisflokkurinn geri kröfu um fjórða sætið í NV-kjördæmi. Borgar Þór Einarsson formaður SUS sækist eftir þessu sæti og tel ég hann vera hárréttan kandídat í það starf að sitja í baráttusæti. Einnig sé ég hann sem forsvarsmann fýrir Akranesbæ því Akranesi vantar tals- mann í ríkisstjórn. Annar ungur aðili hefur einnig varpað því fram að hann sækist eft- ir sæti ofarlega á lista, en það er Bergþór Olason, aðstoðarmaður samgönguráðherra. Samgönguráð- herra hefur eftir því sem ég best veit vart stigið feilspor á yfirstand- andi kjörtímabili og er hann mjög heppinn með aðstoðarmann. Berg- þór sækist eftir 3.-4. sæti og verður líklegast þröngt um manninn efst á Þátttaka í þjóðfélaginu Rétt fýrir aldamót sátum ég og félagi minn saman í miðborg Reykjavíkur og fórum inn á verald- arvefinn eða netið eins og tamt er orðið að kalla það. Þar smelltum við á ljósmynd og biðum í tvær til þrjár mínútur eftir að hún birtist á skjánum. Þetta þótti ágætis nettenging í þá daga. Síðan sátum við og spjölluðum um hvað netið gæti orðið mikilvæg upplýsinga- veita bara ef það tæki ekki svona langan tíma að skoða og vaffa á milli síðna. Þegar ég var að tala við foreldra mína um netið á þessum árum hristu þau hausinn og sögðu að þetta væri eitthvað sem þau kæmu aldrei til með að skilja, hvað þá að nota. I þá daga leit ég á netið sem lúxusvöru, sem sveitastrákur eins og ég kæmi nú ekki til með að nota mikið í ffamtíðinni. Nú er öldin önnur, í orðsins fýllsm merkingu. Ef ég kemst ekki inn á þráðlausa háhraðatengingu „med de samme“ þá líður mér hreinlega eins og mér hafi verið kippt úr sambandi við umheiminn. Daglega ferðast ég um kjördæmið fram og til baka á netinu og fýlgist með hvað er að gerast á hverjum stað. Stór hluti framboðsbaráttunn- ar fer fram í gegnum tölvupóst og netið. A heimasíðunni minni www.valdimar.is gemr fólk heim- sótt mig. Sjónvarpið og útvarpið hefur lát- ið í minni pokann fýrir netinu en bæði fréttir og þætti er hægt að nálgast á netinu og hlusta á það þegar betri tími gefst til. Eg horfi á fréttirnar þegar mér hentar, skoða veðurspá áður en ég held af stað, spjalla við þann sem situr við hlið- ina á mér á MSN til að trafla ekki samræður annarra við borðið, hef samskipti við fólk í mörgum heims- álfum á sama tíma og margt fleira. Foreldrum mínum sem ekki leist á tæknina á sínum tíma taka rúntinn á fréttamiðlunum og senda tölvu- pósta. Mamma er meira að segja farin að spá í að spila Sudoku á net- inu. Sonurinn á heimasíðu og bloggar ásamt því að eiga þess kost að fara á netið og æfa sig fýrir sam- ræmd próf. Allar efasemdir um að netið sé einhver lúxusvara eru horfnar. Núna tel ég að kostur á há- hraðatengingu séu sjálfsögð mann- réttindi. Umræður núna í prófkjörsbarátt- lista þar sem allir sitjandi þingmenn hafa gefið kost á sér í endurkjör. Af þeim tel ég Sturlu Böðvarsson samgönguráðherra og Einar K. Guðfinnson sjávarútvegsráðherra nánast sjálfkjörna í fýrstu tvö sætin. Nú hef ég ekkert um það að segja hvernig lista verðtu raðað þar sem honum verður stdllt upp en myndi ég telja það göfugmannlegt af Ein- ari Oddi að víkja fýrir Bergþóri svo að Sjálfsstæðisflokkurinn geti stillt upp fjórum kanónum, tveimur ung- um og tveimur „eldri.“ Höldum áfram á réttri braut. Þorgeir Ragnarsson, nemi við Háskóla Islands. um hafa mikið beinst að aðgengi fólks og fýr- irtækja að nettenging- um. Þetta er þörf um- ræða, hér þarf að standa saman til þess að koma þessum málum í lag. Mikil- vægi netsins er gríðarlegt, ekki bara til að forvitnast um fréttir heldur er þetta menntatæki, atvinnutæki, ör- yggistæki og svo frv. Ef lappirnar verða dregnar á landsbyggðinni hvað háhraða nettengingar varðar munum við missa af mörgum stór- kostlegum tækifæram. Hver dagur skiptir máli í að koma þessum mál- um á hreint. Eins og áður sagði þá tel ég kost á háhraðanettengingu vera sjálf- sögð mannréttindi. Hraða verður útboðsmálum og vinnu í sambandi við uppsemingu eins og kosmr er. Netleysi takmarkar veralega tæki- færi fólks til þátttöku í þjóðfélag- Vdldimar Sigurjónsson Höfundur býður sigfram í 3. sceti á lista Framsóknarflokksins í Norðvesturkjördæmi.

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.