Skessuhorn


Skessuhorn - 31.10.2006, Síða 22

Skessuhorn - 31.10.2006, Síða 22
22 MIÐVIKUDAGUR 31. OKTOBER 2006 • • • Spuming vikunnar Ertu með eða á móti hvalveiðum? (spurt t Stykkishólmi) Daiva Butkuviene frá Lit- háen, afgreiðsluk. í bakaríi. Eg er á móti og tel að ávinningur Islendinga sé ekki mikill og þetta eigi eftir að koma niður á ferða- þjónustu landsins. Aslaug Kristjánsdóttir, skrifstofukona. Eg er með hvalveiðum, get ekki séð neitt athugavert við að slátra nokkrum hvölum meðan sumir úti í heimi víla ekkifyrir sér að slátrafólki. Nadihe Walterfrá Þýska- landi, innkaupastjóri. Eg er á móti þeim. Bjöm Ásgeir Sumarliðason, nemi. Með hvalveiðum, eigum að nýta auðlindir okkar. Amþór Pálsson, nemi Með hvalveiðum. Eiríkur Smith opnar sýningu í Kirkjuhvoli I tilefni Vökudaga á Akranesi hefst þann 3. nóvember nk. sýning á verkum hins þekkta hafnfirska listamanns Eiríks Smith í Listasetrinu Kirkjuhvoli á Akra- nesi. Þar sýnir Eiríkur yfir 30 verk, bæði olíu- og vatnslitamyndir. Listamanninn Eirík Smith þekkja margir en hann hefur verið afkastamik- ill og eftdrsóttur málari um áratuga- skeið. Hann nam við Myndlista- og handíðaskóla fslands frá 1946-1948, Rostrup Boyesen- einkaskóla í Kaup- mannahöfh 1948-1950 og Academi de la Grande Chaumier París Frakklandi árið 1951. Fyrsta einkasýning hans var í Sjálfstæðishúsinu í Hafnarfirði árið 1948 en síðan hefur hann haldið um 30 einkasýningar og tekið þátt í mörgum samsýningum hér heima og erlendis. Sýningin stendur til 19. nóvember. Listasetrið er opið alla daga nema mánudaga frá kl. 15-18, en með þeirri tmdantekningu að lokað verður sunnu- daginn 5. nóvember. MM Eiríkur í vinnustofu sinni í Hafnarfirði. Ljósm. JLJ Tónlistin er mín gjöf Ylfa Flosadóttir er ungur Akur- nesingur sem vakið hefur verð- skuldaða athygli fyrir frábæra frammistöðu á tónlistarsviðinu. Nýverið hlaut hún, með hljómsveit sinni Ypsilon, fyrstu verðlaun í hæfileikakeppni Fjölbrautaskóla Vestulands. Einnig spilar hún og syngur með Þjóðlagasveit Tónlist- arskólans á Akranesi og hefur auk þess margoft vakið athygli fýrir söng sinn m.a. á vettvangi tónlistar- starfs í grunnskólanum sem hún var í. Ylfa kom í heimsókn á skrifstofu Skessuhorns fyrir skömmu og var að sjálfsögðu gripin í stutt viðtal. Þj óðlagasveitín og fiðlan „Ég er fædd 1987 og hef verið lengi í tónlist. Ég er búin að læra á fiðlu í tíu til ellefu ár en hef ekki verið dugleg að taka nein stig í tón- listarnáminu, það kemur kannski til með að há mér seinna. Ég bara æfi mig og spila svo, það er ekkert flók- ið. Ég er búin að vera í Þjóðlaga- sveitinni síðan í 5. bekk í grunn- skóla og það er gífurlega gaman. Við tökum ýmis verk sem við æfum upp. Núna erum við með verk sem heitir Húsið-milli tveggja heima. Við höfum farið með það á nokkra staði og fengið góðar viðtökur og erum ekki hætt. I gegnum árin hef- ur sveitin verið með mörg verkefiii og haft nóg að gera. Við erum beð- in um að koma frarn á árshátíðum, skemmtunum og þess háttar. Ég er að syngja einsöng með sveitinni í fyrsta sinn og það er frábært. Og viðtökurnar hafa ekki skemmt fyr- ir,“ segir Ylfa aðspurð um tónlistar- starf sitt. Poppið er líka spennandi „Ypsilon er hljómsveit sem ég spila líka í,“ segir Ylfa. „Við höfum Ylfa Flosadóttir. verið í pásu og erum reyndar dálít- ið oft í pásu en komum saman fyrir keppnir og þess háttar til að gera eitthvað. Og núna vorum við svo heppinn að vinna hæfileikakeppn- ina í FVA. Við erum öll mjög góðir vinir og flest sjálfmenntuð í tónlist- inni nema gítarleikarinn, sem er byrjaður í tónlistarskóla. Það er bara gaman að gera fleiri en einn hlut, Þjóðlagasveitin og Ypsilon eru mjög ólíkar sveitir svo það reynir mismunandi á mann.“ Gaman að hitta Andreu „Tónlistin liggur í blóðinu, sér- staklega í pabba fjölskyldu,“ heldur Ylfa áfram. „Mig langar mikið til að læra söng en hef ekki drifið mig enn. Ég held að ég myndi ekki vilja læra klass- ískan söng, ffek- ar bara að læra að nota röddina rétt, svo maður verði ekki hás og rámur eftir tón- leika. Reyndar er ég að fara að hitta Andreu Gylfadóttur núna fljótlega en hún er að koma hingað í tengsl- um við mikla tónleika sem verða í Bíóhöll- inni í næstu viku. Þar verður Hátónsbarka- keppni grunn- skólanna haldin og þar mun ég reyndar syngja sem fyrrverandi Hátónsbarki, ég vann þá keppni þegar ég var í áttunda bekk í Grundaskóla. Pabbi er búinn að skrá mig á eitthvert námskeið hjá Andreu og mig hlakkar mikið til. Það er ekki margt sem hún getur ekki sungið. Það verður gaman að hitta einhvem sem veit hvað hann syngur. Ég hef líka verið að spá í að fara í tónlistarskóla FIH. Þá gæti reyndar sett strik í reikninginn hvað ég hef fá stig í tónlistarnám- Sögufélag Borgaríjarðar kallar eftir eftu í Borgfirðingabók Sögufélag Borgarfjarðar hóf að gefa út ársritið Borgfirðingabók árið 1981 og komu út fjórir árgangar á árunum 1981-1985, en þá féll útgáf- an niður. Utgáfa hófst að nýju 2004 og hafa nú komið út þrír árgangar í röð. Borgfirðingabók hefur verið mjög vel tekið, áskrifendum fjölgar jafnt og þétt og margir hafa lagt bókinni hð með ýmsum hætti, vísindum, sögulegum fróðleik, skáldskap, myndum o. fl. Sögufélaginu virðist því einsýnt að útgáfu ritsins verið haldið áffam. Söguleg efhi hafa verið ríkjandi í ársritinu, en ritstjóm hefur þó lagt áherslu á að gefa greinargott yfirlit um félags- og menningarstarf líð- andi stunda í Borgarfjarðarhéraði. Ýmis félög og félagasamtök hafa átt pistla í bókinni, einnig sveitarfélög og ennffemur menntastofnanir. Þessu vill ritstjóm halda áfram og kallar því nú eftir efni ffá þeim fé- lögum eða félagasamtökum sem kynna vilja starfsemi sína í héraðinu. Borgfirðingabók á að koma út næst í maí 2007. Efhi sem birtast á í því hefti verður að vera komið til rit- stjóra ekki síðar en um miðjan mars 2007. Æskilegt er að það sé í tölvu- tæku formi. Ritstjóri er Finnur Torfi Hjörleifeson, Skúlagötu 19a Borgar- nesi, s. 437 1566 og 820 1566, net- fang: ffh@mi.is. Formaður Sögufé- lags Borgarfjarðar er Snorri Þor- steinsson fyrrverandi ffæðslustjóri, og situr hann í ritnefnd Borgfirð- ingabókar ásamt Snjólaugu Guð- mundsdóttur myndlistarkonu, Brú- arlandi, og Þóru Magnúsdóttur þjóðffæðingi og kennara, Klepp- járnsreykjum. (Fréttatilkynning) inu, en kannski leyfa þeir inntöku- próf og kannski skelli ég mér bara í tónfræði í tónlistarskólanum hér og sæki svo um í FIH, þetta er ekki al- veg affáðið erm.“ Best að spila bara eftir tóneyranu ,Já sko, það er þetta með ffam- tíðina," svarar hún þegar spurt er um næstu skref. „Mig langar að læra hárgreiðslu, vera eins og mamma, eða læra grafíska hönnun og svo er það auðvitað tónlistin. Ég er bara ekki alveg ákveðin ennþá. Eins og er, er ég í fjarnámi ffá Verslunarskóla Islands, vinn í Harðarbakaríi, æfi með Þjóðlaga- sveitinni, svo núna spila ég þetta svolítið efdr eyranu. Mér hefur ver- ið sagt að ég sé með gott tóneyra og því er líklega best að spila bara eftir því,“ sagði þessi frábæra stelpa að lokum. BGK Ypsilon sigraði tón- listarkeppi NEFA Tónlistarkeppni Nemendafélags Fjölbrautaskóla Vesturlands fór fram föstudaginn 20. október. Að þessu sinni nefndist keppnin Námurokk. Hljómsveitin sem sigraði heitir Ypsilon. Hana skip- uðu J. Aðalsteinn Arnason á trommur, Ylfa Flosadóttir söngv- ari, Sigurður Bachmann gítarleik- ari og Björn Breiðfjörð bassaleik- ari. I öðru sæti var hljómsveitin Syna og í þriðja sæti hljómsveitin Darwin Blue. Ylfa Flosadóttir úr hljómsveit- inni Ypsilon var valin besti söngv- ari keppninnar; besti trommari Aðalsteinn Arnason sem trommaði bæði með Ypsilon og Synu; besti gítarleikari Sigurður Bachmann úr hljómsveitinni Ypsilon; besti bassaleikari Björn Breiðfjörð úr hljómsveitinni Ypsilon. Viður- kenningu fyrir bestu sviðsffam- komu hlaut hljómsveitin Black Sheep og Hólmsteinn Valdimars- son sem spilaði á trompet með hljómsveitinni Ferlegheit var kjör- inn besti aukahljóðfæraleikarinn. MM

x

Skessuhorn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.