Skessuhorn


Skessuhorn - 06.12.2006, Side 6

Skessuhorn - 06.12.2006, Side 6
6 MIÐVIKUDAGUR 6. DESEMBER 2006 Sldpulagsnefiid samþykkir breytt deiliskipulag Sólmundarhöfóa Skipulags- og byggingarnefnd Akraneskaupstaðar hefur lagt til við bæjarstjórn að breyting á deiliskipulagi á Sólmundarhöfða verði samþykkt. Gerir nefndin eng- an fyrirvara í samþykkt sinni þrátt fyrir að lögffæðingur nefhdarinnar hafi lagt til að leitað yrði álits sér- ffæðinga á hugsanlegum áhrifum aukinnar umferðar á núverandi og fyrirhugaða starfsemi á Höfða. Minnihluti nefndarinnar ítrekaði mótmæli sín við breytingunni. Eins og ffam hefur komið í frétt- um Skessuhorns er með breytingu deiliskipulagsins veitt heimild til þess að reisa átta hæða fjölbýlishús á höfðantnn í stað fjögurra hæða húss áður og íbúðum fjölgar úr 12 í 31. Lögum samkvæmt var óskað at- hugasemda við breytingu á deiliskipulagi og bárust nefhdinni athugasemdir annars vegar frá Halldóru Jónsdóttru og hins vegar rituðu 117 manns nafn sitt undir undirskriffarlista þar sem breyting- um á skipulagi var mótmælt. Þá hafa einnig verið gerðar athuga- semdir við að á sínum tfma fór fram hugmyndasamkeppni um byggingu á höfðanum þar sem 7 byggingar- verktakar lögðu fram tillögur sínar. Þar var gert ráð fyrir fjögurra hæða byggingu en ekki átta eins og nú stendur til að heimila. Því hafi verktakar ekki setið við sama borð. Fyrir fund nefndarinnar var lögð umsögn sem Ivar Pálsson hdl. vann fyrir nefndina um áðurnefndar at- hugasemdir sem nefndinni bárust. I umsögn hans kemur ffam að þessi breyting geti hugsanlega haff rétt- arlega þýðingu fyrir þá sem tóku þátt í að vinna tillögur að skipulagi svæðisins en slíkt hafi ekki úrslita- þýðingu hvort sveitarstjórn sé heimilt að breyta umræddu skipu- lagi. Þá segir í umsögninni það sé matsatriði hvort það sé jákvætt eða neikvætt fyrir útlit svæðisins að reist verði hús sem er miklu hærra en önnur hús á svæðinu. Meðal þess sem kemur ffam í undirskriftarlistanum er að aukin umferð á svæðinu muni hafa óþæg- indi í för með sér fyrir íbúa á Höfða og geti raskað áformum um upp- byggingu lokaðrar deildar fyrir Alzheimersjúklinga. ívar telur sig ekki geta metið þessa þætti og legg- ur tdl að leitað verði álits sérffæð- inga á því sviði. Skipulags- og byggingarnefnd tekur ekki undir þetta mat Ivars í samþykkt sinni heldur samþykkir breytingu á deiliskipulaginu án fyrirvara. Fulltrúar minnihlutans í nefftd- inni ítrekuðu mótmæli sín við breytdngu skipulagsins. Segir í bók- un minnihlutans að fyrra skipulag hafi verið unnið eftir samráð með hagsmunaaðilum enda hafi verið haft að leiðarljósi að ná breiðri sátt um skipulag viðkvæms svæðis. Nú sé ætlunin að breyta skipulaginu einhliða að ósk verktaka og sá fjöldi mótmæla sem borist hafa sýni að sú sátt sem náðist um skipulag svæðis- ins hafi verið rofin. HJ Gísli og bömin sungu kuldann á brott. Grenndargámar teknir í notkun á Akranesi Þrátt fyrir kalsaveður og kulda létu menn og leikskólabörn það ekki á sig fá er grenndargámarnir við Samkaup Strax á Akranesi voru teknir formlega í notkun í síðustu viku. Gísli S. Einarsson bæjarstjóri bauð viðstadda velkomna og til þess að koma hita í mannskapinn og lyfta örlítið andantun tók Gísli nokkur lög með leikskólabörnun- um sem vaktd óskipta kátínu við- staddra. Loks bauð hann börnun- um að koma því flokkaða rusli í gámana sem þau höfðu komið með með sér og sagði þetta merkan dag fyrir Akumesingar og vonaðist til að þeir myndu nýta sér þá óspart. Gámaþjónusta Vesturlands hf. kom gámunum fyrir en auk þess að vera við Samkaup Strax eru Gámaþjónusta Vesturlands hf. afhenti b<en- um bekk og ruslutunnu í IA litunum aS gjöf grenndargámar einnig við Skaga- ver og Bíóhöllina. Gámaþjónustan færði bænum einnig bekk og rusla- tunnu sem sett var upp fyrir ffam- an bæjarskrifstofurnar að Stillholti, en líkt og gámamir var hvom- tveggja í IA-litunum. KII Prófessorar bera af sér sögusagnir Tveir prófessorar við Háskólann á Bifröst hafa sent frá sér yfirlýs- ingu vegna sögusagna sem þeir segja að gangi á Bifföst um mein- tan þátt þeirra í kæra nemenda á hendur Runólfi Agústssyni rektor til siðanefhdar skólans. I yfirlýs- ingu prófessoranna, Ivars Jónsson- ar og Lilju Mósesdóttur, segir meðal annars: „I tilefhi af því að á Bifröst er orðrómur um að við undirrituð höfum hvatt stúdenta á Bifföst til að leggja fram kæm til siðanefndar Háskólans á Bifföst á hendur Runólfi Agústssyni, rektor, viljum við taka skýrt ffam að við komum hvergi nærri þessu máli.“ Þá segir að stúdentar á Bifröst séu fullfærir um að berjast fyrir hagsmunamálum sínum án íhlut- unar kennara eða annarra starfs- manna skólans. „Það er von okkar að rógburður verði ekki eftirmáli þeirra deilna sem staðið hafa yfir í langan tíma á Bifföst og luku með afsögn rektors. Illskeyttar sögu- sagnir geta auðveldlega þróast í einelti ef ekki er gripið í taumana í tæka tíð.“ HJ Greiðir 200 þúsund á mánuði fyrir þjónustu við ferðamenn Bæjarráð Akraness hefur falið Jóni Pálma Pálssyni bæjarritara að annast samningagerð við Nolan ehf. um leigu bæjarfélagsins á að- stöðu og rekstur upplýsinga- og kynningarmiðstöðvar að Kirkju- braut 8-10. Eins og frarn hefur komið í fréttum Skessuhorns hyggst Nolan ehf. opna þar kaffi- hús og gjafavöruverslun innan skamms en húsnæðið er í eigu SS- verktaka. I ráði er að stoppistöð fyrir strætó verði við húsið. I bókun bæjarráðs kemur fram að framkvæmd þjónustunnar skuli vera með þeim hætti sem markaðsfulltrúi bæjarins á Görðum telur þurfa og má þar nefna aðgengi að tölvum fyrir ferðamenn, aðstöðu fyrir upplýsingakort og bækur, aðgengi að salernum og upplýsingagjöf fyrir ferðamenn. Þá er einnig nefht að gert sé ráð fyrir að farþegar við strætó hafi möguleika á að koma við í húsinu. Fyrir þessa aðstöðu mun bæjarfélagið greiða Nolan ehf. 200 þúsund krónur á mánuði. HJ PISTILL GISLA Aðgát skal höfð! Eg trúi því að fáir íslend- ingar séu svo kaldlyndir að þau fjölmörgu hræðilegu slys sem orðið hafa í umferðinni á þessu ári hafi ekki hreyft við þeim á einhvern hátt. Eg hef ekki lengur tölu á því hversu margir hafa látist í umferðar- slysum á þessu ári. Mér skilst hinsvegar að það nálgist nýtt met svo óskemmtileg tilhugs- un sem það er í þessu tilviki. Þau yfirvöld sem hafa með umferðaröryggismál að gera leggja vissulega sitt af mörk- um með því að takmarka um- ferðarhraða með hertum við- urlögum og lagfæringum á helstu hættusvæðum á þjó- vegunum. Betur má þó ef duga skal og á það sérstaklega við um vegabætur. Þessi ömurlega slysaalda sem brotnað hefur á íslensk- um vegum að undanförnu kallar eðlilega á ennfrekari umræðu um endurbætur á vegakerfinu þar sem álagið er mest og slysin verða flest. Vissulega er það þó alltaf svo, hvort sem langt er eða stutt frá síðasta slysi, að allir vilja betri og breiðari vegi. Sér í lagi þar sem þeir þurfa sjálfir helst að fara um. Hinsvegar get ég ekki leynt því að mér þótti það ósmekklegt, svo ekki sé meira sagt, þegar ákveðnir aðilar ruddust fram á sviðið og kröfðust vegabót á Suðurlandsvegi með tilvísun í slys á Sandskeiði, tveimur dögum fyrr, sem varð tveimur að bana. Fimm ára stúlku og tæplega þrítugum karlmanni. Þar fór fremstur í flokki sóknarpresturinn í Þorláks- höfh. Síst vil ég gera lítið úr nauðsyn þess að tvöfalda Suðurlandsveg þótt mér skilj- ist að vart sé hægt að skella skuldinni alfarið á veginn varðandi banaslysið um helg- ina. Þar var orsökin, sam- kvæmt fréttum, framúrakstur. Sú staðreynd þykir mér gera þennan málflutning enn meira óviðeigandi. Eg tek engu að síður heilshugar undir það að tvöföldun Suð- urlandsvegar er aðkallandi og legg þá áherslu á tvöföldun þar sem ég set spurninga- merki við tilraunir með þrjár akgreinar líkt og eru á um- ræddum vegi að hluta. Eg ók þar um, tvívegis, um síðustu helgi í örlítilli snjóföl og myrkri og átti í mestum vandræðum með að átta mig á því í hvora áttina voru tvær akgreinar. Þ.e.a.s. þar sem akstursáttirnar voru ekki að- greindar með vegriðum. Það breytir því ekki að breikkun vega er víðar aðkallandi, jafh- vel ekki síður en á Suður- landsvegi. Meðal annars á Vesturlandsvegi en þar urðu á smá kafla tvö banaslys með stuttu millibili síðsumars. Tvöföldun Vesturlandsvegar milli Reykjavíkur og Borgar- ness og tvöföldun Suður- landsvegar frá Reykjavík til Selfoss eiga að vera forgangs- verkeftii. Eg ítreka hinsvegar að mér þykir það ósmekklegt þegar menn nota ófarir og hörm- ungar annarra til að koma sér framar í forgangsröðina. Þennig gera menn ekki og það eiga bæði prestvígðir og sauðsvartur almúginn að vita Gísli Einarsson

x

Skessuhorn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.