Skessuhorn - 06.12.2006, Síða 9
§glSSIJH©í2K|
MIÐVIKUDAGUR 6. DESEMBER 2006
9
Níræður syngur í fyrsta sinn á hljómplötu
Það verður að teljast harla óvenju-
legt þegar menn á tíræðisaldri taka
sig til og samþykkja að syngja inn á
hljómplötu í íyrsta sinn, eins og ekk-
ert sé sjálfsagðara. Það gerði hins-
vegar Ami Helgason, landskunnur
vísnagerðarsmiður, póstmeistari til
íjölda ára og baráttumaður fyrir
bindindismálum. Forsaga málsins er
sú að bræðumir Jón Svanur og Lár-
us Péturssynir í Stykkishólmi, voru
búnir að tala um það lengi sín á milli
hvort ekki væri tilvalið að koma ein-
hverjtun böndum á þær vísur sem
Arni Helgason hefur samið í gegn-
um árin.
I samtah við Skessuhom sagði
Láms Pétursson að þeir bræður
hefðu fært þetta í tal við Arna,
skömmu efrir níræðisafrnæli hans,
hvort hann fengist til þess að hljóð-
rita nokkrar vísur með þeim bræðr-
um. Hann var strax til í gírinn og
mættu þeir bræður síðan með nauð-
synlegt tól og tæki
heim til Arna og hófust
handa. Jón Svanur, sem
var vanur að spila tmd-
ir á harmonikku hjá
Ama á skemmtunum,
gerði það einnig á plöt-
unni meðan Ami söng
vísumar. Vísumar em
flestar ffásagnir um h'ð-
andi stundu þar sem
tilverunni er lýst á glett- Jón Svanur
inn og gamansaman
hátt. Um endanlega vinnslu plöt-
unnar sá svo Hafþór Guðmtmdsson
en hann hefur m.a. séð um fram-
leiðslu á hljómplötum Nylon og
fleiri þekktra hstamanna.
Aform þeirra bræðra og Ama fóra
svo leynt að sum bama hans vissu
ekki af fyrirætlunum þeirra fyrr en
ári eftir að hugmyndin kom upp. Af-
raksturinn varð síðan hljómplata
með 10 vísum og gefin út í 120 ein-
og Lárus me5 Ama á milli sín.
Ljósm. Stykkishólmspósturinn.
tökum. Böm Áma færðu Stykkis-
hólmsbæ nokkur eintök plötunnar
að gjöf og tók Elísabet Lára Björg-
vinsdóttir, formaður bæjarráðs við
þeim. Láras segir megin tilgang
þeirra bræðra hafa verið að hlúa að
menningarverðmætum sem ekki
hefðu mátt glatast og hann telur það
einstakt að maður á tíræðisaldri
komi að gerð hljómplötu á þennan
hátt. KH
Lágvöruverðsverslnnin Kaskó
opnuð á Akranesi
Stjárnendur og starfsfólk Kaskó ásamt styrkþegum og hæjarsjóranum á
Akranesi.
Lágvöruverðsverslunin Kaskó,
sem er í eigu Samkaupa, var opnuð á
Akranesi sl. föstudag. Við það tæki-
færi veitti ffamkvæmdastjóri Sam-
kaupa Akranesi tvo styrki að upp-
hæð 250 þúsund krónur. Með opn-
un verslunarinnar búa Samkaups-
menn sig undir aukna samkeppni á
Akranesi. Bæjarstjórinn á Akranesi
segist fagna allri atvinnustarfsemi í
bæjarfélaginu.
Eins og ffam hefur komið í frétt-
um Skessuhorns lokaði verslun
Nettó við Kalmansvelli 26. nóvem-
ber og þann 1. desember var í sama
húsnæði opnuð verslunin Kaskó.
Báðar þessar verslanir em í eigu
Samkaupa. Sturla Eðvarðsson,
framkvæmdastjóri Samkaupa sagði í
ávarpi við opnun verslunarinnar að
með þessari nýju verslun vildi fyrir-
tækið bjóða viðskiptavinum sínum
lægra vöraverð því Kaskó væri lág-
Sturla EAvarðsson, f-amkvœmdastjóri rað-
ar vörum í hillur.
vöruverðs-
verslun. Þar
væri í boði
hnitmiðaðra
vöruúrval og
lægra verð en
hægt væri að
bjóða í
Nettó. Hann
sagði jafn-
ffamt að með
þessari nýju
verslun vildu
Samkaupsmenn búa sig undir aukna
samkeppni í verslun á Akranesi en
sem kunnugt er af fféttum opnar
Krónan verslun á Akranesi innan
tíðar og næsta vor mun Bónus
einnig opna verslun í bænum.
Tveir styrldr veittir
Sturla sagði fyrirtækið hafa átt
ánægjuleg samskipti við Skagamenn
á undanföram áram og sagðist ekki
efast um að áffamhald yrði á því.
Hann sagði fyrirtækið ávallt hafa
talið sig hafa samfélagslegum skyld-
um að gegna og hefði því lagt mörg-
um góðum málum lið í gegnum tíð-
ina og svo yrði áffam. Hann kallaði
að því loknu í Ragnar Skúlason
stjómanda Þjóðlagasveitar Tónhst-
arskólans á Akranesi og afhenti hon-
um 250 þúsund króna styrk til starf-
semi sveitarinnar. Einnig afhenti
Sturla Söndra Björk Olafsdóttur
styrk að sömu upphæð. Sanda Björk
og fjölskylda hennar hefur glímt við
arfgengan sjúkdóm og með styrkn-
um sagðist Sturla vilja sýna Söndra
stuðning í verld í hennar erfiðu bar-
áttu.
Gísli S. Einarsson bæjarstjóri
flutti stutt ávarp við opnun verslun-
arinnar og sagðist fagna allri at-
vinnustarfsemi í bæjarfélaginu og
þakkaði Samkaupsmönnum fyrir
starfsemi þeirra á Akranesi á liðnum
áram og óskaði þeim velfamaðar. Þá
þakkaði hann fyrirtækinu sérstak-
lega fyrir þá samfélagslegu ábyrgð
sem það sýndi með áðumefhdum
styrkveitingum.
HJ
SMIÐIR OSKAST
í BORGARNES
Verktakafyrirtæki í Borgarnesi óskar eftir húsasmíðameisturum eða
vönum mönnum til starfa í eftirfarandi verkefni:
• Uppsteypun
• Lokafrágangur húsbygginga
• Frágangur húsþaka
• Alhliða smíðavinna
• Önnur tilfallandi verkefni
Áhugasömum er bent á að fylla út umsókn á heimasíðu Ráðningarþjónustunnar
www.radning.is og sækja þar sérstaklega um starfið eða hafa samband í síma 588 7700.
Umsjón með starfinu hefur
Inga Steinunn Arnardóttir, inga@radning.is.
SBC Ráðningar
ÞJÓNUSTAN
★
★
★
Allur matur *
á að fara...
með flutningabílum bunum sérhönnudum
kæli- og frystitækjum og geymast í þar til
gerðum vörumóttökum, vottuðum af
gæðaeftirlitskerfi GÁMES. Vel skipulagt
flutningakerfi og reynsla í faglegum matvæla-
flutningum um allt land tryggja að neytand-
inn fær vöru sína ferska innan 24-48 tíma og
alla leið
... upp í munn og
ofan í maga!
Frekari upplýsingar um afgreiðslustaði
er að finna á landflutningar.ís
★
Krókhálsöa • 110Reykjavík • Sími: 588 7700 • Fax: 588 8700 • www.radning.is • radning@radning.is