Skessuhorn


Skessuhorn - 06.12.2006, Blaðsíða 10

Skessuhorn - 06.12.2006, Blaðsíða 10
10 MIÐVIKUDAGUR 6. DESEMBER 2006 dkUSVIIUbJl Efiit veroi til samkeppni um byggingu tónlistarskóla Minnihluti bæjarstjórnar Akra- ness hefur lagt til við bæjarstjórn að efnt verði til samkeppni um ný- byggingu og staðarval fyrir Tón- listarskóla Akraness. Segir í tillög- unni að gert sé ráð fyrir að kostn- aður við hönnun nýs Tónlistar- skóla á árinu 2007 verði um 25 milljónir króna. Til að mæta þeim kostnaði verði hætti við innrétt- ingu á húsnæði fyrir Tónlistar- skóla í verslunarmiðstöð á Mið- bæjarreit, „en sá kostnaður er að minnsta kosti 200 milljónir króna“ segir orðrétt í tillögu minnihlut- ans. Eins og kunnugt er keypti Akra- neskaupstaður 1.300 fermetra hús- næði á Miðbæjarreitnum og hugð- ist fyrri meirihluti bæjarstjórnar flytja bókasafn bæjarins þangað. Þegar nýr meirihluti tók við völd- um í bænum að loknum kosning- um í vor var ákveðið að bókasafiiið yrði áffam á sínum stað en hús- næðið innréttað fýrir Tónlistar- skólann. A dögunum kom fram á fundi framkvæmdanefndar mann- virkja Akraneskaupstaðar að kostnaður við innréttingu húsnæð- is væri kominn í 240 milljónir króna. I greinargerð með tillögu minnihlutans kemur fram að nú- verandi húsnæði Tónlistarskólans sé of lítið og hljóðeinangrun sé óviðunandi. „Lengi hefur verið rætt um að þörf sé á nýju húsnæði fyrir Tónlistarskóla á Akranesi og auk þess er talin mikil þörf á að byggður verði góður salur til tón- leika- og samkomuhalds, en ekkert félagsheimili er á Akranesi. Því er bygging nýs tónlistarskóla ákaflega mikilvægt og þarft verkefni fýrir skóla- og menningarstarf á Akra- nesi til langrar framtíðar.“ segir orðrétt í greinargerðinni. Tillögunni var vísað til seinni umræðu um fjárhagsáætlun ársins 2007. HJ Yngstu bömin í upptöku. Mynd: Elvar M. Olafsson FM Óðal fer í lofdð tólfita desember í þrettánda sinn fer FM Óðal í loftið í Borgarnesi þriðjudaginn 12. desember næstkomandi og stendur til föstudagsins 15. desem- ber. FM Óðal er jólaútvarp barna í grunnskólum Borgarbyggðar og slóðin er www.odal.borgarbyggd.is svo að hægt er að hlusta út um all- an heim. Félagsmiðstöð unglinga í Grunnskóla Borgarness heitir Óðal og þar fer þeirra starfsemi fram. Að útvarpsrekstrinum standa því unglingar í Nemendafélagi Grunnskóla Borgarness, en nem- endafélagsstjórnum hinna skól- anna í Borgarbyggð; Kleppjárns- reykjum og Varmalandi ásamt Laugagerði er boðið að vera með þátt í útvarpinu þar sem fram kem- ur kynning á félagslífi á hverjum stað. Jólaútvarp unglinga í Óðali fór fýrst í loftið árið 1993 með ávarpi þáverandi útvarpsstjóra Margrétar H. Gísladóttur sem þá var formað- ur nemendafélagsins. Að sögn Indriða Jósafatssonar æskulýðs- fulltrúa hafa eins og nærri má geta ótal einstaklingar stigið sín fyrstu spor í því að koma fram á þessum vettvangi. I dag er það orðið hluti af íslenskukennslu í öllum bekkj- um unglingastigs Grunnskóla Borgarness að gera útvarpshand- rit, hvort sem það er notað eða ekki. Bara til að æfa börnin í að gera skiljanlegt handrit á góðu máli og sem allir geta lesið. „Að vera í beinni," er nokkuð sem krefst mikillar þjálfunar og því standa yfir upptökur þessa dagana á efni sem yngstu bekkirnir eru með og verður flutt í útvarpinu þegar það fer í loftið. Að venju verður útvarpið form- lega opnað með ávarpi útvarps- stjóra, sem þetta árið er Elvar M. Ólafsson, sem jafhframt er for- maður nemendafélags Grunnskóla Borgarness. FM Óðal sendir út á 101.3 BGK Síðasti fundur vatnsveitu Borgarhrepps Fyrir rúmum nítján árum stofh- uðu 13 aðilar félag um vatnsveitu í Borgarhreppi. Sú aðgerð var til að bæta úr brýnni þörf, en afar lélegt vam hafði verið á mörgum bæjum í hreppnum. Nú hefur verið ákveðið að leggja veimna niður, þótt félagið komi til með að lifa áffam. Fundur sem haldinn var ný- lega í Valfelli gaf stjórn félagsins formlegt leyfi til að ganga frá samningum við Orkuveitu Reykja- víkur um vatnskaup. Að sögn Þórólfs Sveinssonar, bónda á Ferjubakka er engin skyn- semi í því að reka þessa vamsveim þegar OR er með lögn í gengum hreppinn. Þar er hægt að fá nóg vatn með góðum þrýstingi í stað þess að vatnið renni framhjá, niður í Borgarnes, þaðan til baka í safn- tank í Holti, þar sem því yrði dælt Frá síðastafundi Vatnsveitu Borgarhrepps. A myndinni eru Sveinn og Guchnundur Bjamasynir frá Brennistöíum og Guðmundur Amason Beigalda. Mynd: Eva Sumarliðadóttir. á bæina. Talað er um að setja eina til tvær stofnlagnir, sem selt verð- ur úr. „Félagið sem slíkt verður ekki lagt niður til að byrja með. Það er ágætt að hafa einn sam- nefhara til að sjá um öll samskipti við Orkuveituna, bæði samninga og eins ef eitthvað kemur upp á,“ sagði Þórólfur Sveinsson að lok- um. BGK Eitt atriði úr leikritinu. Sex í sveit firumsýnt í Ólafsvík Þarm 8. desember nk. mtm leik- félag Ólafsvíkur frumsýna verkið „Sex í sveit“ í leikstjórn Gunnsteins Sigurðssonar, sem jafhframt er for- maður leikfélagsins. I samtali við Gunnstein kom fram að mikið líf er í leikfélagi Ólafsvíkur og iðulega væri reynt að setja upp eitt leikverk á ári. Nú væri tveggja mánaða leikæfingaferli að ljúka og menn eðlilega spenntir yfir afrakstrinum. Alfir þeir sem koma að sýningunni eru heimamenn, jafht leikarar sem aðrir og er góður andi innan hóps- ins. Sagði hann sýninguna vera bráðskemmtilega og hvatti hann fólk eindregið að bregða undir sig betri fætinum og skella sér í leikhús til Ólafsvíkur. Sýningarnar verða þrjár, jafnvel fleiri og fara ffam í fé- lagsheimilinu Klifi. KH Vogun hf. bætir við hlut sinn í HB Granda hf. Vogun hf. í Hafnarfirði hefur keypt 5,19 % hlut Kjalars ehf. í Borgarnesi í HB Granda hf. og á nú 40,10% hlut í félaginu eða rúmar 684 milljónir króna að nafnverði. Eins og fram hefur komið í fréttum hafa stærstu hlut- hafar í HB Granda bætt við hluta- fjáreign sína í félaginu að undan- förnu og má þar nefna að KB banki hf. á nú rúm 30% í félaginu. Fyrirtæki og einstaklingar tengdir Arna Vilhjálmssyni stjórnarfor- manni HB Granda og Kristjáni Loftssyni stjórnarmanni eiga nú ríflegan meirihluta í félaginu. Sá misskilningur kom fram í viðskiptafréttum Morgunblaðsins að við kaup Vogunar hf. á hlut Kjalars ehf. hafi myndast tilboðs- skylda í félaginu, það er að félag- inu væri skylt að bjóða öðrum hluthöfum að kaupa hlut þeirra í félaginu. Hið rétta er að sú skylda sem myndast þegar hlutur eins að- ila fer yfir 40% á aðeins við um fé- lög sem skráð eru á aðallista Kauphallar Islands. HB Grandi hf. var afskráð af þeim lista í septem- ber og í kjölfarið var fýrirtækið skrá á iSEC lista Kauphallarinnar. Fyrirtæki á þeim lista lúta almenn- um hlutafjárlögum og þar er slík skylda miðuð við 90% eignarhlut. HJ Framkvæmdir við Þjóðbraut verði boðnar út í desember Meirihluti bæjarstjórnar Akra- ness hefur lagt til að bæjarstjórn samþykki að fela bæjarstjóra og sviðsstjóra tækni- og umhverfis- sviðs að leita eftir samningum við Vegagerðina um framkvæmdir við Þjóðbraut. Eins og fram hefur komið í fréttum Skessuhorns taldi Magnús Jóhannesson, svæðisstjóri Vegagerðarinnar á Norðvestur- svæði í byrjun nóvember að undir- búningur og höimun nýrrar Þjóð- brautar myndi ljúka um miðjan nóvember. I tillögu meirihlutans segir að fallist hafi verið á að unnt sé að bjóða ffamkvæmdina út í þessum mánuði og nú sé unnið að því að fá framkvæmdina fyrr inn á vegaáætl- un en gert sé ráð fýrir. Því verði leitað eftir samrúngum við Vega- gerðina um að hefja framkvæmdir á árinu 2007. Þjóðbraut var áður helsta samgönguæðin inn í þéttbýl- ið á Akranesi áður en Hvalfjarðar- göngin komu til sögunnar en þá var lagður nýr vegur til Akraness. Um nokkurt skeið hafa bæjaryfirvöld sótt það mjög fast að Þjóðbrautin tæki við fýrra hlutverki sínu. Tillögu meirihlutans var vísað til seinni umræðu um fjárhagsáætlun ársins 2007. HJ

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.