Skessuhorn - 06.12.2006, Side 11
MIÐVIKUDAGUR 6. DESEMBER 2006
11
Munuiii eftir okkar minnstxi bræðrum!
Um jólin finnur fólk mest fyrir
því ef það á um sárt að binda á ein-
hvern hátt. I góðærinu eru ekki all-
ir jafn vel settir.
Síðustu fjögur til fimm árin hafa
konur á Akranesi starfað undir
nafni Mæðrastyrksnefndar, þótt
hópurinn sé í engu sambandi við
neíndina í Reykjavík, en með svip-
að hlutverk þó. Fyrir hópnum hef-
ur farið Anita Gunnarsdóttir sem
segir þörfina mun meiri en marga
renni í grun. „Það eru ekki bara
íbúar á Akranesi og nágrenni sem
þurfa hjálp, heldur einnig ffá Borg-
arnesi, Borgarfirði og Snæfellsnesi.
Og hingað hafa einungis komið Is-
lendingar. Allt starfið er unnið í
sjálfboðavinnu og finnst konunum
yndislegt að geta veitt lið. „
Konurnar hafa fengið gjafir frá
fyrirtækjum, sem hafa verið dugleg
að gefa í þennan sameiginlega pott,
eða pengingastyrki frá bönkunum
sem nýttur er til kaupa á kjöti sem
fer á heimili þeirra sem minna
mega sín. Skagaleikflokkurinn hef-
ur lánað þeim húsnæði sitt og þetta
árið eru þær í nýja húsi flokksins að
Vesturgötu 119. Þangað eru allir
velkomnir sem þurfa á liðsinni að
halda.
Skorturinn í alsnæktar-
samfélagi sárastur
Þorbjörn Hlynur Arnason, pró-
fastur Borgarfjarðarprófastsdæmis
sagðist vel geta tekið undir reynslu
þessarra kvenna. „Skorturinn í al-
snæktarsamfélagi er mikið sárari en
í fátæku samfélagi og líklega er til-
finningin sárari út af öllu umtahnu
um góðæri og gildar buddur. Það
eru býsna margir sem eiga fátt og
hafa lítdð milli handa, þurfa að velta
fyrir sér hverri krónu en bera það
ekki utan á sér. Við reynum að
leggja lið ef hægt er og alltaf er
hægt að leita til sóknapresta til að fá
styrki í gegnum Hjálparstofnun
kirkjunnar og enginn ætti að víla
fyrir sér að gera það,“ sagði Þor-
björn Hlynur að lokum.
Ekkert atvinnuleysi
skiptir máli
Félagsmálastjóri Borgarbyggðar,
Hjördís Hjartardóttir segir lítrið um
að fólk sæki um fjárhagsaðstoð til
sveitarfélagis. „Þetta hefur lítið
breyst, hvorki aukist né minnkað.
Fyrst og fremst tel ég að það sé
góðri stöðu á atvinnumarkaðinum
að þakka. Þetta er láglaunasvæði en
allir sem vettlingi geta valdið geta
fengið vinnu og það hefur mikið að
segja,“ segir Hjördís.
BGK
Unnið að fínstillingu ryknema
Hvali) arðarganga
Starfsmenn Spalar, sem á og rek- ætlað að mæla sviffyksmengun og þá að enn væri verið að finstilla
ur Hvalfjarðargöngin, vinna þessa ræsa loftræsiblásara sjálfvirkt, sé nemana en því starfi myndi ljúka
dagana að því að fiínstilla ryknema þess þörf. næstu daga. Með svona tækni væri
ganganna og mun því rykmengun í Vegfarandi sem leið átti um alltaf nauðsynlegt að finna takt sem
göngunum fara minnkandi á næst- göngin á dögunum þótti loftið í þeir væru í þann veginn að ná en
unni. Eins og ffarn hefur komið í þyngra lagi. I samtali við Skessu- ástandið í göngunum væri þó ffek-
Skessuhorni, voru ryknemar settir hom, sagði Marinó Tryggvason, af- ar gott núna og ekki þörf á mikilli
upp í göngunum í haust og er þeim greiðslustjóri Spalar, ástæðuna vera ryklosun miðað við árstíma. KH
Forsíða mynddisksins með þáttum Gtsla Einarssonar.
Út og suður
á geisladisk
Ríkisútvarpið hefur sent ffá sér
mynddiskinn „Ut og suður - á ferð
um landið með Gísla Einarssyni." I
þáttunum bregður Gísli upp svip-
myndum af ólíku fólki sem hefur
frá mörgu að segja. I þessu safni
þáttanna ffá 2005-2006 er rætt við
margs konar fólk með ólíkan bak-
grunn. Svo nokkuð sé nefht er flog-
ið til Parísar með Karlakór Kjal-
nesinga, farið í heimsókn til ungrar
stúlku sem stofnaði veitingastað í
Oxnadal, hús tekið á geðhjúkrunar-
ffæðingi sem rekur sitt eigið fyrir-
tæki í Fljótshlíðinni og talað við
fyrrverandi liðsforingja í norska
hernum sem nú er æðarbóndi í
Reykhólasveit. MM
Menntaskóli Borgarfjarðar ehf óskar eftir tilboðum í verkið:
Menntaskóli Borgarfjarðar
2. áfangi Uppsteypa
Um er að ræða skólahúsnæði fyrir framhaldsskóla um 3000 m2
nettóstærð. Reisa skal mannvirkið úr forsteyptum og staðsteyptum
byggingahlutum, leggja grunnlagnir og fylla að húsi.
Helstu stærðir eru:
Forsteyptar plötueiningar...... 3.200 m2
Forsteyptir veggjaeiningar..... 3.500 m2
Staðsteyptir veggir.............. 1.500 m2
Verkinu skal að fullu lokið 30. apríl 2007.
Útboðsgögn verða seld á skrifstofu Menntaskóla Borgarfjarðar,
Bjarnarbraut 8, 310 Borgarnes, og hjá Hönnun, Grensásvegi 1,
108 Reykjavík frá og með miðvikudeginum 6. desember 2006.
Verð útboðsgagna er 5.000 kr.
Tilboð verða opnuð á skrifstofu Menntaskóla Borgarfjarðar,
Bjarnarbraut 8, 310 Borgarnes
miðvikudaginn 20. desember 2006, kl. 14:00.
_________________________________________________________________________-
r ^
Auglýsing um deiliskipulag frístundabyggðar
í landi Kalastaða, Hvalfjarðarsveit
Samkvæmt ákvæðum 1. mgr. 25 gr. Skipulags-og byggingarlaga nr. 73/1997 er hér
með lýst eftir athugasemdum við tillögu að deiliskipulagi frístundabyggðar i landi
Katastaða Hvalfjarðarsveit.
Deiliskipulagstillagan er í samræmi við aðalskipulag Hvalfjarðarstrandarhrepps 2002-
2014 og gerír ráð fyrír 49 lóðum frá 0,5 tit 2,0 hektara stærð.
Tillagan ásamt skipulags- og byggingarskilmálum liggurframmi á skrífstofu
Hvalfjarðarsveitar Innrímel 3 frá 6.12.2006 tit 3.1.2007 á venjutegum skrífstofutíma.
Athugasemdum skat skita á skrífstofu skiputags- og byggingarfutttrúa Miðgarði fyrír
i 17.1.2007 og skutu þær vera skríftegar.
j Þeir sem ekki gera athugasemd innan titgreinds frests tetjast samþykkir tittögunni.
I Skipulags- og byggingarfulltrúi
v__________________________________________________________________________/
Púlsinn kominn út
í Grundaskóla
í tilefni af 25 ára afmæli
Grundaskóla á Akranesi
var ákveðið að gefa skóla-
blaðið Púlsinn út í sérstakri
afmælisútgáfu og er blaðið
nú komið út. Það er veg-
legt að þessu sinni, m.a.
eru þar viðtöl við nemend-
ur úr öllum útskriftarár-
göngum ffá stofnun skól-
ans. Nemendur úr 10. bekk
báru blaðið út í öll hús á
Akranesi í vikunni sem
leið.
MM
Sérfræðingur
Laust til umsóknar starf sérfræðings á Skattstofu
Vesturlandsumdæmis.
Starfið: Starfið er við álagningu, eftirlit og aðra framkvaemd við
virðisaukaskatt.
Hæfisskilyrði: Æskilegt er að umsækjandi hafi háskólapróf í viðskiptafræði,
eða reynslu og kunnáttu í bókhalds- og skrifstofustörfum. Þekking á
skattframkvæmd er æskileg, svo og jákvætt viðmót og hæfni í mannlegum
samskiptum.
í boði eru góð starfsskilyrði og áhugaverð verkefni. Laun eru samkvæmt
kjarasamningi fjármálaráðherra og BHMR eða BSRB. Laun taka ennfremur
mið af einstaklingsbundnum hæfileikum og frammistöðu í starfi. Um
starfskjör, réttindi og skyldur gilda að öðru leyti lög um réttindi og skyldur
starfsmanna ríkisins nr. 70/1996.
Umsóknarfrestur er til 29. desember 2006. Umsóknum ásamt upplýsingum
um menntun, fyrri störf, meðmæiendur og annað sem umsækjandi vill
taka fram skal skilað til skattstjóra, Stefáns Skjaldarsonar, sem gefur
nánari upplýsingar um störfin í síma 430 2900.
Upphaf starfs: Miðað er við að nýr starfsmaður hefji störf sem fyrst.
Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun
um ráðningu hefur verið tekin.
Skattstjórinn í Vesturlandsumdæmi
Stillholti 16-18 • 300 Akranes