Skessuhorn


Skessuhorn - 06.12.2006, Side 12

Skessuhorn - 06.12.2006, Side 12
12 MIÐVIKUDAGUR 6. DESEMBER 2006 §SE$SÍl'H©i2EI Rauðgreni er jólatréð mitt -Rætt við Birgi Hauksson skógarvörð í Norðurárdal Birgir Hauksson skógarvörður í Tröð. Skógrækt ríkisins á Vestulandi hefur höfuðstöðvar sínar á Hreða- vatni í Borgarfirði. Þar er skógar- vörður Birgir Hauksson. Nú styttist til jóla og því þótti blaðamanni Skessuhorns sjálfsagt að heyra í skógarverðinum um jólatrén og um- hirðu þeirra. Birgir og félagar í Skógræktinni eru þegar byrjaðir að höggva tré og byrjuðu reyndar fyrir löngu. „Stóru trén byrjum við að höggva snemma, eða í október, segir Birgir. Mesta tömin í skógarhögginu hefst þó ekld fyrr en í byrjun nóvember. Trén þurfa að vera komin í hendur þeirra sem sjá um uppsetningu á þeim, vel fyrir fyrsta sunnudag í að- ventu. Salan á þesstun stóru trjám sem mest fara til stórfyrirtækja og sveitarfélaga er aðal tekjulindin okk- ar núna. Það kemur til af því að lítið hefur verið gróðursett af trjám und- anfarin ár og framboð Skógræktar- innar þar af leiðandi á jólatrjám tek- ið miklum breytingum. Aður fyrr hjuggum við venjuleg heimihstré en eigum ekki mikið eftir af þeim. Bráðlega förum við að gróðursetja aftur og munum þá geta selt heimil- istré á ný.“ Oðruvísi jólatrésala Undanfarin misseri hefur það aukist að landsmenn arki út í skóg vopnaðir sög og velji sér sitt eigið jólatré til að höggva. Skógrækt ríkis- ins býður einnig upp á þessa þjón- ustu hér á Vesturlandi. „Við erum með eitt svæði þar sem fólk getur mætt með sögina, það er í Selskógi í Skorradal. Við auglýsum ákveðna helgi sem í ár verður 16. til 17. desember og höfum starfsfólk á svæðinu til að leiðbeina og hjálpa fólki. Skógræktin er einnig með hefðbundna jólatréssölu í starfsstöð sinni að Hvammi í Skorradal. Fyrir því er áratuga hefð. Agúst Amason forveri minn þar byrjaði á þessu. Þar er reyndar bara opið á hefðbundn- um vinnutíma.“ Jólatrjáatíska Það er spennandi að vita hvort skógarverðinum finnist vera einhver ákveðin tíska í jólatrjám, því tískan hefur svo víða inngrip. „Um árabil var mjög mikið um innflutt tré en ég held að það sé að breytast. Það eru í gangi nýir samn- ingar milli stórra verslana hér við innlenda trjásöluaðila þannig að næstu árin verða að mestu íslensk tré sem skreyta heimili okkar á jólum. Einnig er alltaf að færast í vöxt að fjölskyldur kaupi gervijólatré og noti þá sama tréð í áraraðir, enda eru þau alltaf að verða vandaðri og raun- verulegri.“ Eigendumir Scevar Harðarson og Sigurjón Jónsson við opnun verslunarinnar. Sldpavík stækkar við sig Skipavík hf. í Stykkishólmi opn- aði nýtt og stærra verslunarhús- næði fyrir byggingavörur og heim- ilistæki sl. föstudag. Verslunin, sem áður var í gamla hluta bæjarins, er nú komin í nýtt 70 fermetrum stærra húsnæði við Aðalgötu. Jafh- ffamt er möguleiki til stækkunar verslunarrýmis um 100 fermetrar. I samtali við Sævar Harðarson, framkvæmdastjóra Skipavíkur, kom ffarn að allt hafi gengið ákaflega vel með bygginguna og flutning versl- unarinnar og viðtökur bæjarbúa væru góðar. Með stækkuninni ykju þeir verulega vöruúrval, bæði í byggingavörum en einnig í heimil- istækjum en þar er Skipavík í sam- starfi við önnur fyrirtæki, svo sem Rafkaup, Sjónvarpsmiðstöðina, Bílanaust og fleiri. I nýja húsinu er einnig vínbúð ÁTVR og í byrjun apríl mun Lyfja einnig flytja þar inn með sinn rekstur. Þrátt fyrir að stækkunin sé ekki meiri en 70 fer- metrar, er nýtingin á húsnæðinu mun betri en á gamla staðnum og staðsetning verslunarinnar er á besta stað í bænum. Framkvæmdir hófust við hús- næðið í byrjun ágúst þannig að greinilegt er að ekki hefur tekið langan tíma að koma henni upp enda sagði Sævar Hólmara yfirleitt snögga í ffamkvæmdum. KII/ Ijósm. Stykkishólmspósturinn. Helstu tegundir Við báðum Birgi um að útskýra helstu tegundir trjáa sem eru í boði og údista kosti þeirra og galla: Sitka greni „Stóru trén sem við erum að selja hér eru nánast öll sitkagreni. Það færist þó í vöxt að fólk velji sér svo- leiðis tré til að hafa inni enda eru þau ágætlega barrheldin." Rauðgreni „Þetta er hið hefðbundna norræna jólatré. Það hefur haff það orð á sér að missa barrið heldur mikið en það er til ágætis ráð við því. Það þarf að setja grenið strax í vatnsfötu, til dæmis fjögurra h'tra málningarfötu, strax um kvöldið sem það er höggvið og passa að það sé í vami alveg til jóla. Og svo auðvitað látið vera í vatni um jólin. Svo er bara að saga nýtt sár þegar maður færir það inn. Þá ætti barrið að falla sáralítið af því.“ Stafafura Furan er ffamtíðarjólatréð að mati Birgis. „Fólk sem byrjar að hafa furu um jólin vill yfirleitt ekkert annað upp ffá því. Það er góð lykt af fur- unni og hún stendur vel. Það er að vaxa mikáð upp af furu svo að aukn- ar vinsældir hennar verða ekkert vandamál. Hún þolir þurrk vel en maður verður að passa að hafa hana ekki við ofn.“ Normansþinur „Þessi tegund er yfirleitt talin góð lausn fyrir þá sem vilja greni án þess að vera sífellt að ryksuga í kringum jólatréð. Normansþinurinn, sem hægt er að kaupa hér á landi, er inn- fluttur, meðal annars ffá Danmörku og Póllandi. I Danmörku er hann til dæmis ræktaður á stórum jólatré- sökrum og khpptur til.“ Fjallaþinur „Er jafn barrheldinn og normans- þinurinn og er kominn í ræktun hér á landi.“ Blágrenið „Er barrheldið tré, þétt og fallegt, en er ekki mjög algengt hér því það er seinvaxið." Birgir býr að Tröð í Norðurárdal, skammt ffá Hreðavatni, ásamt konu sinni Gróu Ragnvaldsdóttur, kenn- ara í Varmalandsskóla, og tveimur bömum þeirra. En hvaða gerð af jólatré velur skógarvörðurinn fyrir sig og sína? „Heima hjá mér er alltaf tveggja metra rauðgreni og ég játa það að ég er ffekar kröfúharður með það. Stundum er þetta effi hlutinn af stóra tré sem ég nota. Síðan snyrti ég það aðeins til, þannig að það komist betur að veggnum. Jólatréð verður jú auðvitað alltaf að vera á sama stað.“ Birgir og fjölskylda er ekki ein um að vera vanaföst þegar kemur að jólatrénu. Eins og flest sem viðkem- ur jólunum erum við fastheldin á hefðimar og viljum hafa hlutina eins og þeir hafa alltaf verið. Rrv Félagsmiðstöðin Hosiló opnar á Varmalandi Á miðvikudag í liðinni viku var stór dagur fyrir unglinga í Varma- landsskóla en þá var opnuð félags- miðstöð í anddyri félagsheimilisins Þinghamars. Haldin var glæsileg opnunarhátíð og fékk félagsmið- stöðin nafnið Hosiló í samkeppni sem haldin var um nafnið meðal nemenda á unglingastigi skólans. Nafnið merkir stað eða herbergi sem notalegt er að dvelja í. A ann- að hundrað manns mættu á hátíð- ina sem tókst í alla staði vel. Eftir að Indriði Jósafatsson, íþrótta- og æskulýðsfúlltrúi hafði farið nokkur orðum um aðdrag- anda að stofnun félagsmiðstöðvar í Varmalandi flutti formaður tóm- stundanefndar og forseti sveitar- stjórnar, Björn Bjarki Þorsteinsson ávarp og afhenti nemendaráði hús- næðið formlega til afnota. Spari- sjóður Mýrasýslu færði félagsmið- stöðinni billjardborð að gjöf og Nemendafélag Grunnskóla Borg- arness færði félagsmiðstöðinni flatskjá en mikið og gott samstarf er á milli nemendafélaganna. Þórunn M Oðinsdóttir, skóla- stjóri Varmalandsskóla flutti ávarp og kom fram að hún væntir mikils af þessari viðbót við félagsstarfið á svæðinu um leið og hún afhenti unglingum gjöf frá skólanum. Viðstaddir fögnuðu því að ung- lingarnir væru nú komnir með að- stöðu sem tengdi saman félagsstarf og íþróttastarf ungmennafélagsins en með þessu gera menn ráð fyrir að virkni nemendafélags skólans aukist en það stjórnar innra starfi félagsmiðstöðvarinnar. Að formlegri opnun lokinni voru nemendur með kaffisölu til að safna peningum til tækjakaupa fyrir félagsmiðstöðina. Starfsmaður í hlutastarfi í fé- lagsmiðstöðinni Hosilo er Andrea Davíðsdóttir. Félagsmiðstöðin verður opin mánudaga til fimmtu- daga frá kl. 15 - 17 en einnig verð- ur kvöldopnun eitt kvöld í viku í Gauknum Bifröst ef þátttaka verð- ur næg. MM/ Ljósm. Óli Þór og uppl. IJ Félagsmálanámskeið haldið áHvann Ungmennafélag Islands og Bændasamtök Islands hafa staðið fyrir félagsmálanámskeiðum um allt land þetta ár. Dagana 28. og 29. nóvember var haldið félags- málanámskeið á Hvanneyri í um- sjón Ungmennasambands Borgar- fjarðar. Farið var í fundarstjórnun, fundarsköp og framkomu í ræðu- stóli. Námskeiðið var h'flegt og ffæð- andi og var ekki annað að sjá en þátttakendur skemmtu sér hið besta. Leiðbeinendur voru Birgit Raschhofer, Petrea Kr. Friðriks- dóttir og Ingimundur K Guð- mundsson öll ffá JC hreifingunni. GS Þátttakendur. Leiðbeinendumir Birgit og Petrea sitja fremstar.

x

Skessuhorn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.