Skessuhorn


Skessuhorn - 06.12.2006, Síða 14

Skessuhorn - 06.12.2006, Síða 14
14 MIÐVIKUDAGUR 6. DESEMBER 2006 ^KUsunu^ Kveikt á jólatrénu í Borgamesi Það var hátíðleg og góð stund í Borgarnesi síðdegis á sunnudag þegar kveikt var á ljósum jólatrésins í Kveldúlfsgarði við Ráðhúsið. Björn Bjarki Þorsteins- son, forseti bæjarstjómar flutti ávarp en honum til að- stoðar við að tendra ljósin á trénu vom þau Bjartur Finnbogason og Marie Peter, nemendur í 1. bekk Gnmnskóla Borgarfjarðar á Hvanneyri. Meðal ann- arra atriða á samkomunni má nelna að Freyjukórinn söng og krakkar úr Laugagerðisskóla, undir stjórn Steinunnar Pálsdóttur, sungu jólalög af innlifun. Nokkrir jólasveinar létu sjá sig á svæðinu og gáfu börnum epli. Heitt kakó var í boði fyrir eldri kynslóð- ina og var það í umsjón 9. bekkjar grannskóla staðar- ins. Veðrið var einstaklega gott og nutu bæði eldri og yngri stundarinnar. MM Ljósin tendruð á jólatrénu á Akratorgi Fjölmenni var viðstatt þegar ljósin vora tendrað á jólatrénu á Akratorgi á Akranesi á laugardaginn. Að vanda vora það íbúar Tönder, vinabæjar Akraness í Danmörku, sem færðu Akurnesingum tréð að gjöf. Skólahljómssveit Akraness flutti jólalög undir stjóm Onnu Nikulásdóttur og skátar buðu gestum heitt kakó og piparkökur. Það var Helga Gunnarsdóttir hjá Norræna félaginu á Akranesi sem afhenti tréð og Gísli S. Einarsson bæjarstjóri tók við því fyrir hönd bæjar- ins og þakkaði þann hlýhug sem íbúar Tönder sýna Akumesingum með gjöf þessari. Það var svo Helga Rún Hafþórsdóttir sem tendraði ljósin. Börnum til mikillar gleði fengu fjórir jólasvein- ar leyfi Grýlu til þess að skreppa til byggða og vera viðstaddir athöfnina. Skemmtu þeir viðstöddum með ærslum sínum og söng og að því loknu færðu þeir bömum mandarínur. llj Jólasveinamir hita hér uppfyrir innkomu sína á Akratorgið. Eftirvantingin leyndi sér ekki hjá bömunum. Leikstjóramir fylgjast með vökulum augum, Lárust Astmar Hannesson og Auður Rafnsdóttir. Frelsið á fjölunum í Stykkishólmi I Grunnskóla Stykkishólms stendur mikið til þessa dagana því í undirbúningi er ffumsýning á leik- verkinu Frelsi effir Skagamennina Flosa Einarsson og Gunnar Sturlu Hervarsson. Það eru krakkar úr ní- unda og tíunda bekk skólans sem sjá um uppsetningu verksins ásamt kennuram sínum, þeim Lárasi Ast- mari Hannessyni og Auði Rafns- dóttur sem leikstýra því í samein- ingu. Einnig fá þau tónhstarkenn- ara skólans, Martin Markvoll til liðs við sig en hann stjómar tónhst- inni og níu manna hljómstveit sem er skipuð 12-17 ára krökkum. Söngleikurinn, sem náði miklum vinsældum á Akranesi og í ná- grannabyggðum á sínum tíma, fjallar um vináttu, einelti, ung- lingatísku og síðast en ekki síst tengist hann í þjóðsagnaarf okkar Islendinga. I viðtali við Skessuhom, sagði Láras þetta í þriðja sinn sem skól- inn réðist í svona verkefni og sagði hann það allra stærsta hingað til. I þetta skiptið fengu þau þrjú tmg- menni til liðs við sig úr Fjölbrauta- skóla Snæfellinga sem einnig taka þátt í sýningunni. Krakkarnir leggja mikinn memað í sýninguna að sögn Lárasar og sjá um flest sem henni viðkemur en að auki væra foreldrar virkjaðir í að sauma bún- inga og annað þess háttar. Láras sagði það sérlega gaman að sjá hvað krakkamir legðu sig fram, hópur- inn þjappaðist á jákvæðan hátt sam- an og alltaf kæmu einhverjir krakk- ar, sem ekki hefðu áður komið ná- lægt leiklist, á óvart með glæsileg- um tilþrifum á sviðinu. Frumsýning verðtu' fimmmdag- inn 7. desember og ráðgert er að sýningar verði fimm. A síðusm sýn- inguna verður svo öllum skólakrökkum á Nesinu boðið og balli slegið upp þar sem stefnt er að glensi og glaumi ffam efrir kvöldi. KH/ljósm. af vef Grunnskóla Stykkishólms. Krakkamir við æfingar. Yfirlitssýningu Páls Guðmunds- sonar á Húsafelli sem staðið hefur í Safnahúsinu í Borgarnesi lauk sl. fösmdag og af því tilefrii heiðraðu vinir Páls listamanninn að kvöldi fullveldisdagsins. Þar mætm þeir Páll á Húsafelli heiðraour og héldu menningarvöku þar sem tónar flæddu, rímur vora kveðnar og söngur fyllti salinn. Dagskráin var frjálsleg og nota- leg stemning sveif yfir vötnum. Snorri á Fossum, Steindór Ander- sen, Frank og Gunnar Kvaran komu ffam og stóðu allir sína vakt með mikilli prýði. Athygli vakti að Sigurrósar menn mætm ekki en þeir höfðu ætlað að slá nokkra tóna á steinhörpu Páls en það gerði hinsvegar alsherjargoðið Hilmar Orn Hilmarsson. Hann framflutti lag effir sig sjálfan við ljóð Guð- mundar Böðvarssonar; Rauða steininn og fórst það vel úr hendi. I lokin gaf Páll vinum sínum tákn- rænar gjafir en það voru litlir steinar þar sem hver steinn skír- skotaði til vinanna. Vakti það al- merma kátínu og lukku, enda gjaf- imar til þess gefnar. KH Gunnar Kvaran fór fimum fingrum um sellóið. Stemningin var notaleg ogfiölmargir Borgfirðingar lögðu leið sína á samkomuna. i Vimm 1 mé Mw 1 Páll gaf vinum sínum táknrœnar gjafir en m.a. gafhann Steindóri Andersen stein sem átti að tákna konu.

x

Skessuhorn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.