Skessuhorn - 06.12.2006, Síða 19
..«■ -.-.i im. .. :
MIÐVIKUDAGUR 6. DESEMBER 2006
19
Jólasamkeppni meðal grunnskólabama á Vesturlandi
Jólasögur og jólamyndir óskast!
Skessuhorn
gengst nú annað
árið í röð fyrir
samkeppni meðal
grunnskólabarna
á Vesturlandi í
gerð jólamyndar
og jólasögu. Ann-
arsvegar býðst
öllum börnum á
aldrinum 6-10
ára (1.-5. bekkur)
að senda inn
teiknaðar og lit-
aðar myndir (A4)
þar sem þemað á
að vera Jólin.
Hinsvegar býðst
börnum á aldrin-
um 11-16 ára (6,-
10. bekkur) að
senda inn jóla-
sögu. Lengd jóla-
sögunnar má vera
hálf til ein síða A4
Allir fá þar eitthvað fallegt
Hér áður fyrr var almennur sið-
ur að gera eitthvað fallegt til jól-
anna. Sem betur fer er svo víða
enn. Eldri borgarar í Dalabyggð
eru farnir að hugsa fyrir jólagjöf-
unum. Þeir mæta í handavinnu í
Silfurtún í hverri viku svo allir fái
eitthvað fallegt á jólum. Myndirn-
ar tala sínu máli en myndasmiður-
inn er Erla Sigurðardóttir sem
hefur aðstoðað fólkið í handavinn-
unni.
BGK
Um 30% ellilífeyrisþega búa ekki við
mannsæmandi lífskjör
Blekkingar stjórnvalda í skatta-
málum sýna virðingarleysi og van-
mat á skilningi og þekkingu al-
mennings. Hér verður fjallað um
þau mál sem ekki fengust rædd í
Asmundarnefndinni svokölluðu.
Vert er að hafa í huga að árið 1995
var lögum um ellilaun breytt á þann
veg, að ellilaunin ættu ekki að fylgja
þróun launa, heldur taka mið af
þróuninni. Afleiðingarnar urðu þær
sem hér er lýst.
Staðreynd er að skattbyrði flestra
heimila í landinu jókst á árunum
1995 - 2005. Skattbyrði lágtekju-
fólks, þ.á.m. ellilífeyrisþega, öryrkja
og láglaunafólks á vinnumarkaði
jókst mest, en minnkaði á fámenn-
an hóp hátekjufólks. Að vísu hafa
stjórnvöld lækkað álagningu skatta
úr 41,9% í 38,6% á árunum 1995
til 2005 og hamra stöðugt á þessari
takmörkuðu skýringu í öllum svar-
greinum. Stjórnvöld „gleyma“ að
geta þess að samtímis var skatt-
ffjálsi hluti teknanna takmarkaður
með því að hækka ekki skattleysis-
mörkin með verðlaginu. Smávegis
hækkun á skattleysismörkun í ASI
samningum í vor úr 79.000 kr. í
90.000 dugir skammt - enda feng-
ust skattleysismál og skattar ekki
rædd á fimdum Asmundarnefhdar-
innar sálugu. Skattleysismörk ættu
nú að vera 125.000. Stjórnvöld telja
að almenningur greiði meiri skatt
því að tekjur hafi hækkað. Með
þessari fullyrðingu gera stjórnvöld
sig sek um villandi málflutning,
sem jaðrar við einlægan brotavilja í
fölsun staðreynda. Ljóst er að þeir
urðu fyrir mestri aukningu skatt-
byrðarinnar sem búa við minnsta
hækkun tekna, þ.e. að sífellt lægri
rauntekjur eru skattlagðar af fullum
þunga. Þetta er ekki einungis skoð-
tm okkar í LEB heldur margítrek-
aðar skoðanir prófessora og margra
ffæðimanna í viðskipta og hagffæði
við háskóla landsins. Margt bendir
til þess að grunnhyggnar skýringar
stjórnvalda í þessum málum muni
koma þeim í koll hafandi í huga að
almenngur á Islandi hefur verið vel
læs frá miðri 18. öld.
I næstu grein verður skýrt frá því
hvernig skattstefha stjórnvalda hef-
ur stóraukið latmamismun í landinu
s.l. áratug og sorfið mjög að högum
þeirra er lægstar tekjur hafa.
Olafur Olafsson.
með 12 punkta letri.
Valdar verða 3 bestu myndirnar
og 3 bestu jólasögurnar að mati
dómnefhdar og verða þær birtar í
Jólablaði Skessuhorns sem kemur
út 20. desember. Veitt verða þrenn
verðlaun í hvorum flokki og fær
vinningshafinn í hvorum flokki
stafræna ljósmyndavél í verðlaun af
gerðinni Olympus Mju 700 með
7,1 milljón pixla upplausn, hreyfi-
myndatöku með hljóði og 19 Mb
innbyggðu minni. Fyrir 2. sæti í
hvorum flokki verður veitt 10 þús-
und króna gjafabréf og 5 þúsund
króna gjafabréf fyrir 3. sætið.
Skilaffestur í samkeppnina er 10.
desember nk. Myndir skulu sendar í
pósti á heimilisfangið: Skessuhorn
ehf., Kirkjubraut 54, 300 Akranesi
og munið að merkja vel myndirnar
á bakhlið þeirra (nafn, aldur, síma-
númer, heimili og skóli). Jólasög-
urnar skulu sendar á rafrænu formi
í tölvupósti á netfangið:
skessuhorn@skessuhorn.is og
einnig þar þarf að koma fram nafh
höfundar, aldur, símanúmer, heim-
ili og skóli.
Skessuhorn hvetur alla krakka á
Vesturlandi til að taka þátt í þessum
skemmtilega leik, senda okkur
myndir og sögur og hver veit - þú
gætir unnið!
Gangi ykkur vel
Svœdisskrifstofa málefna fatlaðra
RÆSTITÆKNIR
Svæðisskrifstofa málefna fatlaðra á Vesturlandi
óskar eftir að ráða ræstitækni á
svæðisskrifstofuna Bjamarbraut 8, Borgamesi.
Ræstingin er metin sem tæplega 20% starf og
fer fram tvisvar í viku.
Frekari upplýsingar eru veittar á
svæðisskrifstofunni eða hjá Magnúsi
Þorgrímssyni í síma 437 1780 eða 893 8580.
Umsóknarfrestur er til 20. desember.
fjf.j.7pl INGI TRYGGVASON hdl.
/1^,1• 1>/ lögg. fasteigna- og skipasali
FASTEIGNIR í RORGARNESI
HRAFNAKLETTUR 6
íbúð á 1. hæð í fjölbýlishúsi, 96
ferm. Hol flísalagt. Stofaogþijú
herbergi parketlagt. Eldhús
parketlagt, viðar-innrétting.
Baðherbergi dúklagt, ljós
viðarinnrétting og tengi fyrir
þvottavél. Sér geymsla,
i sameiginleg geymsla og þvottahús í kjallara.
I Verð: 16.500.000
HRAFNAKLETTUR 8
_ . íbúð á 1 hæð í fjölbýlishúsi, 96
»'Í"hhEBK H'O'' ferm. Hol, stotá og þijú herbergi
parketlagt. Auka-herbergi í stofu
parketlagt. Eldhús parketlagt,
viðar-innrétting. Baðherbergi
flísalagt, lítil viðarinnrétting og
tengi fyrir þvottavél. Sér
geymsla, sameiginleg geymsla og þvottahús í kjallara.
Verð: 15.500.000
BORGARBRAUT 65A
Verð: 10.800.000
íbúð fyrir aldraða og/eða öryrkja
í fjölbýlishúsi, 49 ferm. Hol,
samliggjandi stofa, eldhús og
herbergi. Baðherbergi. íbúðin
er öll dúklögð. Viðarinnrétting
í eldhúsi og góðir skápar í
herbergi. Geymsla á 1. hæð.
Allar nánari upplýsingar á skrifstofu
Ingi Tryggvason hdl. löggiltur fasteigna- og skipasali
Borgarbraut 61,310 Borgarnes,
s. 437 1700, 860 2181 - fax 437 1017,
netfang: Iit@simnet.is - veffang: lit.is