Skessuhorn - 06.12.2006, Page 22
22
MIÐVIKUDAGUR 6. DESEMBER 2006
SlfiÉSiSlíjílilöBM
Snæfell á toppinn
Lið Snæfells í Stykkishólmi er
komið í fyrsta sæti úrvalsdeildar-
innar í körfuknattleik eftir góðan
sigur á liði Crindavíkur á mánu-
dagskvöld. Leikurinn fór fram í
Grindavík. Heimamenn komu
mun ákveðnari til leiks og höfðu
forystu eftirfyrsta leikhluta 23-22.
Þeir héldu sínu striki í öðrum leik-
hluta en náðu ekki afgerandi for-
ystu. Staðan í hálfleik var 42-38. í
þriðja leikhluta náðu Snæfellingar
loks að sýna sitt rétta andlit og í
lok hans höfðu þeir náð frum-
kvæði í leiknum og höfðu í lok
hans skorað 56 stig gegn 55 stig-
um Grindvíkinga. í síðasta leik-
hluta tókst Snæfellingum að inn-
sigla sigur sinn 75-68.
Stigahæstur Snæfellinga var
Hlynur Bæringsson með 15 stig,
Ingvaldur Hafsteinsson, Sigurður
Á. Þorvaldsson og Justin Shouse
skoruðu 14 stig hver, Jón Ó. Jóns-
son skoraði 11 stig, Bjarne Ó.
Nielsen skoraði 5 og Helgi R.
Guðmundsson skoraði 2 stig.
Þegar níu umferðum er lokið í
úrvalsdeildinni eru Snæfellingar
efstir með 16 stig og lið Skalla-
gríms er í öðru sæti með 14 stig.
HJ
Frá einum af sigurleikjum Skallagríms á liðnum vikum. Ljósm. Svanur Steinars-
• • • • S • • >C
Sjo sigrar i roö
hjá Skallagrími
Leikmenn Skallagríms unnu
sinn sjöunda sigur í röð á sunnu-
dagskvöld þegar þeir lögðu Þór
að velli í Þorlákshöfn í níundu
umferð úrvalsdeildarinnar í
körfuknattleik. Skallarnir eru nú
efstir að stigum í deildinni með
14 stig eins og lið KR og Snæfells
sem reyndar á leik til góða. Segja
má að sigur Skallagríms hafi
aldrei verið í hættu og í hálfleik
leiddu þeir 46:37. Munurinn
jókst enn frekar í þriðja leikhluta
og að honum loknum var mun-
urinn orðinn 25 stig. í leikslok
höfðu Skallagrímsmenn skorað
98 stig en leikmenn Þórs 80.
Pétur Már Sigurðsson var
stigahæstur í liði Skallagríms
með 26 stig, Darrell Flake skoraði
19 stig, Dimitar Karadzoski skor-
aði 15 og Axel Kárason skoraði
13 stig.
HJ
Verðum bestir þegar
upp verður staðið
Segir Geof Kotila þjálfari Snæfells
Geof Kotila.
Blaðamaður
Skessuhorns heyrði
hljóðið í Geof
Kotila, þjálfara
Snæfells, rétt áður
en liðið lagði af
stað til Grindarvík-
ur sl. mánudag.
Geof var hress og
sagði að auðvitað
sæti bikarleikurinn
við Grindavík í
þeim, þar sem úr-
slitin hefðu ekki
verið eins og best
hefði verið á kosið.
Hinsvegar væri
Snæfell ákveðið í
að koma sterkari til
leiks og sýna meiri
hörku en síðast,
sem greinilega
skilaði sér, því eins og allir vita
unnu þeir Grindavík síðasta
mánudag. „Undirbúningurinn
hefur verið fólginn í því að ein-
beita sér að okkar leik og kerfum
og því sem við þurfum að laga.
Við höfum minna verið að hugsa
um þá. Auðvitað eru margir góð-
ir einstaklingar í Grindarvíkurlið-
inu. Þeir eiga sem dæmi góðar
skyttur, en ef við vinnum okkar
heimavinnu vel, stöndum við vel
að vígi. Við eigum alveg að geta
unnið Grindvíkinga og leikurinn í
kvöld er mikilvægur fyrir báða. Ef
við vinnum skjótumst við upp í
efsta sæti deildarinnar, sem auð-
vitað væri frábært, svo sigur á
móti Grindavík yrði óneitanlega
sætur. Hins vegar vita allir að það
er ekki gott að spila í Grindavík.
Heimavöllur þeirra er geysilega
sterkur, þeir spila vel heima og
þurfa að vinna svo það er einnig
pressa á þeim."
Þurfum að stoppa liðin
Snæfeli hefur vegnað vel það
sem af er í deildinni en gekk ekki
eins vel í bikarnum. „Eins og
staðan er núna eru mörg lið sem
geta unnið okkur ef þeir eiga
góðan leik og við slakan, en
markmiðið er að gera liðið eitt
það besta á íslandi fyrir lok tíma-
bilsins. Til þess að ná árangri
þurfum við hinsvegar að geta
stoppað mótherjana og vera til-
búnir til að leika. Ef leikmenn eru
ekki tilbúnir gengur auðvitað
ekkert upp. Ég vil ekkert tjá mig
um hvernig liðið var á síðasta ári,
þá var ég ekki hér. Ég er hinsveg-
ar nýr og við eigum nokkuð í
land ennþá en það er engu að
kvíða með það, eins og ég sagði
áðan, stefni ég að því að gera lið-
ið eitt það besta, jafnvel það
besta í lok tímabilsins. Og ég er
ekkert hræddur um að svo geti
ekki orðið. Okkur hefur farið fram
og erum í framför svo allt er
þetta í áttina," sagði Geof.
íslendingar eiga
marga góða
körfuknattleiksmenn
Glöggt er gests augað og
væntanlega hefur Geof tekið eft-
ir einhverju sem þykir sérstakt í
tengslum við körfuboltann á ís-
landi.
„Ég er alveg undrandi á því
hversu íslendingar eiga góða
körfuknattleiksmenn. Hér búa
bara rúmlega þrjúhundruð þús-
und manns og samt eru svona
mörg úrvals lið, með svo jafna
getu. Þar sem ég bjó áður í Dan-
mörku voru frekar eitt til tvö lið
sem báru af og skáru sig úr,
þannig er því ekki varið hérna.
Mörg liðin eru ótrúlega jöfn og
góð og gaman verður að fylgjast
með framvindu mála í vetur."
Vindurinn að
gera okkur brjáiuð
Svo að lokum varð auðvitað að
spyrja hinnar klassísku spurning-
ar. „How do you like lceland,"
eða hvernig líkar þér á íslandi?
„Kuldinn er alls ekkert vanda-
mál hér," segir Geof „og við
erum sammála um það fjölskyld-
an. Hins vegar er þessi vindur al-
veg að gera okkur brjáluð. Það er
lagt af stað úr bænum í þokka-
legu veðri, þegar komið er upp á
fjallveginn þá er stórhríð, svo er
haldið ögn lengra þá slotar byln-
um en við tekur svo mikill vindur
að maður á fullt í fangi með að
halda bílnum á veginum. Þetta er
alveg ótrúlegt veðurfar. Við hjón-
in eigum tvær dætur sem eru
með okkur hér og fram að þessu
eru allir ánægðir og líður vel."
Og þar með var Geof rokinn.
Átti eftir að kveðja konuna og svo
var að bruna af stað á Suðurnes-
in.
BGK
Ijósm. Stykkishólmspósturinn.
Valur er alveg á jörðinni þrátt fyrir gott gengi
Valur Ingimundarson, þjálfari Skallagríms.
„Við erum nánast með sama lið-
ið og í fyrra, nema við höfum nýj-
an Bandaríkjamann, Darrel Flake
sem leysir af George Byrd frá síð-
asta tímabili. Við erum staddir þar
í deildinni sem við eigum skilið að
vera. Þótt okkur hafi ekki gengið
alveg eins og við vildum í upphafi,
vorum óheppnir að tapa fyrstu
leikjunum, þá erum við nú búnir
að vinna sjö leiki í röð, svo allt er á
réttri leið. Það er afar jöfn barátta
í deildinni, mikil spenna og nauð-
synlegt fyrir okkur að finna út
hvort við stöndumst þessa pressu.
Það hafa allir gott af því," segir
Valur Ingimundarson þjálfari
Skallagríms en lið hans hefur náð
frábærum árangri í síðustu leikjum
efstu deildarinnar og vermir topp-
sæti.
Gerum gott betra
Liðinu hefur vaxið fiskur um
hrygg undan farin ár og leikgleði
virðist vera ríkjandi.
„Við höfum ekkert breytt miklu
frá síðasta ári, erum að spila svip-
að í sókninni en varnarleikurinn er
öðruvísi en var. Markmiðið í upp-
byggingu á liðinu er afar einfalt,
það er bara að gera gott betra, að
verða betri í því sem við erum
góðir í. Með það að leiðarsljósi er
lagt upp fyrir hvern leik og skilar
okkur drjúgt áfram. Andinn í lið-
inu er einstaklega góður, mikil
leikgleði sem hefur allt að segja."
Ekkert kalt á toppnum
Þegar Skessuhorn náði tali af
Vali sl. mánudag var leik Snæfells
og Grindavíkur ekki lokið. En
hvernig tilfinning ætli það sé að
vera á toppnum, svona almennt?
„Það er gaman að prófa að vera
á toppnum þótt það verði kannski
bara í einn dag," segir hann. „Við
deilum sætinu með öðrum en
þetta er alveg ágætt. Við erum
samt ekki í neinu háloftaflugi,
stöndum alveg með báðar fætur á
jörðinni. Hins vegar gefur það
þessu öllu óneitanlega meira gildi
að ná svona góðum árangri. Allir
hafa gott af því að glíma við ögr-
anir, það þarf líka sterk bein til að
þola góða daga."
Fjósiö okkar frábært
Heimavöllur Skallagríms þykir
ekki árennilegur heim að sækja og
hefur áhangendum liðsins fjölgað
jafnt og þétt síðustu árin.
„Fjósið okkar er frábært, þetta
er fyrirmyndar heimavöllur sem
við höfum hér. Við köllum íþrótta-
húsið Fjósið og það nafn er alveg
viðeigandi í landbúnaðarhéraði
eins og Borgarfirði. Stuðningsaðil-
ar okkar hafa sannarlega staðið
við bakið á okkur vel og dyggi-
lega, svo það er ekkert árennilegt
að koma hingað og spila. En
svona eiga heimavellir að vera,
styðja myndarlega við bakið á sín-
um."
Spennandi leikur
15. desember
Síðustu árin hefur grannaslagur-
inn; Skallagrímur-Snæfell verið
afar spennandi, nú er slíkur leikur
á dagskrá 15. desember.
„Þetta verð-
ur afar spenn-
andi viður-
eign. Liðin eru
svo jöfn. Það
hefur verið
toppslagur
síðustu tvö til
þrjú árin. Fyrr,
þegar liðin
voru neðar,
var þetta
kannski ekki
alveg jafn
spennandi, en
núna er útlit
fyrir hörkuleik.
Það skiptir eig-
inlega ekki
máli hvernig leikurinn í kvöld fer
[mánudag], viðureign þessara liða
verður jafn skemmtileg hvort sem
Snæfell vinnur eða ekki."
Tökum einn leik í einu
Nú er spurning hvort Skalla-
grími tekst að halda gefnum hlut.
Enn eru eftir tveir leikir í fyrri um-
ferð og töluverður tími til vors.
„Við höldum bara áfram sömu
stefnu. Gera betur í dag en í gær.
Enn eru eftir tveir leikir í fyrstu
umferð, svo deildin er alls ekki
búin ennþá. Við spyrjum að
leikslokum í þessu eins og öðru og
förum þetta á jákvæðninni," sagði
Valur Ingimundarson að lokum.
BGK