Skessuhorn - 03.01.2007, Side 6
6
MIÐVIKUDAGUR 3. JANUAR 2007
§KgsslJsgOER1
Nýr bátur til Akraness
Á laugardaginn var kom í fyrsta
sinn til heimahafnar á Akranesi
Ebbi AK-37. Báturinn er smíðaður
í Reykjavík hjá Seiglu ehf. og er af
gerðinni Seigur 1500, sem er
stærsta gerð plastbáta á Islandi.
Báturinn er í eigu Ebba-útgerðar
og ffamkvæmdastjóri og skipstjóri
Ebba er Eymar Einarsson. Fjöl-
menni tók á móti nýja bátnum við
komuna til Akraness. Viðstöddum
var boðið að skoða bátinn og
einnig var gestum boðin dýrindis
fiskisúpa í tilefni dagsins. Meðal
þeirra sem tóku á móti nýja bátnum
voru Gísli S. Einarsson bæjarstjóri
og Gtmnar Sigurðsson forsetd bæj-
arstjórnar Akraness.
I stuttri ræðu þakkaði Gísli fyrir
þann dug og þor sem eigendur
bátsins sýna og þakkaði fyrir hönd
bæjarbúa framtak þeirra. Afhenti
hann Eymari blómvönd í þakklæt-
isskyni. HJ
Vegleg íjölskylduhátíð
á vígslu Grábrókarveitu
Frá Grábrákarhrauni í Norðurárdal með Bijröst og
Bauluna í baksýn.
Vígsla Gráborgarveitu, nýrrar
vatnsveitu Orkuveitu Reykjavíkur í
Borgarfirði, fer fram föstudaginn 5.
janúar 2007 með veglegri hátíð. Það
gerist ekki á hverjum degi að heilt
sveitarfélag fái aðgang að nýrri
vatnsveitu sem þessari, þar sem
hraunsíað hágæða vatn úr Norður-
árdal mun leika um krana íbúanna.
Því þótti tilefni tdl að fagna tíma-
mótunum með hátíð allrar fjölskyld-
unnar í stað hefðbundinnar skálar-
ræðusamkomu.
Vígslan fer ffam í Skallagríms-
garði í Borgamesi ef veðurguðirnir
samþykkja þá tdlhögun. Ef ekki þá
verður athöfnin færð inn í íþrótta-
húsið í Borgarnesi. Vígslan hefst kl.
17:00 með stuttum ávörpum. Að
þeim orðum sögðum mun hvert at-
riðið reka annað: Snorri Hjálmars-
son tenór ásamt Páli á Húsafelli með
steinhörpuna stíga fyrstir á stokk, þá
kemur Bjami töframaður og galdrar,
bamakór flytur nokkur lög, Gísli
Einarsson flytur vatnshugvekju og
síðast en ekki síst kemur stórsveitin
Á móti sól með Magna Asgeirsson í
broddi fylkingar og skemmtir í
Skallagrímsgarðinum. Hátíðinni
lýkur síðan með mikilli flugeldasýn-
ingu á íþróttavallarsvæðinu sem
björgunarsveitin Brák stýrir. A
meðan dagskrá verður á sviði munu
skátar úr Borgarnesi,
sem em á leið á alheims-
mót skáta næsta sumar,
sjá um að skenkja gest-
um í Skallagrímsgarði
heitu kakói og kleinum í
boði OR. Einnig munu
„klakaskurðarmeistarar"
vera að störfum meðan
dagskrá varir. OR vonast
til að sem flestdr sjái sér
fært að mæta í Skalla-
grímsgarðinn og minnir
fólk á að klæða sig efidr veðri, í sam-
ræmi við árstíma og verðurfar.
Leysir verulegan
neysluvatnsvanda
Þegar Orkuveitan eignaðist vams-
veiturnar í Borgamesi og á Bifföst
var það áskilið við kaupin að fyrir-
tækið réðist í endurbætur á vatnsöfl-
tm fyrir héraðið, sem þegar vom á-
form um. Víða í byggðum Borgar-
fjarðar var þá úrbóta þörf hvað varð-
ar magn neysluvatns og gæði þess.
Vænlegast þótti að leita fanga í Grá-
brókarhrauni og við tilraunaboranir
þar á árinu 2004 fundust prýðileg
vamsból í grennd við Biff öst. Nú er
lokið lögn nýrrar vamsæðar allt ffá
Bifföst í Borgarnes og er hún ríflega
30 kílómetra löng. Á leiðinni em
nokkrar stórar sumarhúsabyggðir
auk bújarða og gefst þeim kosmr á
að tengjast nýju lögninni. Talsverð-
ur skormr hefur verið á góðu
neysluvami í nokkrum þessara
byggða og munu byggðirnar í Mun-
aðarnesi og Stóm Skógtun t.a.m.
njóta vatns úr Grábrókarveitunni.
Lagning vamsleiðslunnar hefur
staðið ffá árinu 2004 en leitast var
við að fella ffamkvæmdir við lögn
hennar saman við vegagerð. Lögnin
liggur meðfram þjóðvegi 1 um
Borgarfjörð en síðustu misseri hafa
endurbætur staðið yfir á hringvegin-
um á hluta milli Borgamess og Bif-
rastar. VST í Borgarnesi hannaði
nýju veituna en verktakafyrirtæki
heimamanna, Borgarverk og Sólfell,
sáu að mestu um verklegar fram-
kvæmdir. MM
Undirskrilt samgönguraðherra fól ekki í sér skuldbindingu
Frá undirskriftinni sem vitnað er til íjréttinni. Frá vinstri: Guðmundur Páll Jónsson,
þáverandi bæjarstjóri á Akranesi, Sturla BöSvarsson samgönguráðherra og Guðbrandur
Bogason formaður Ökukennarafélags Islands.
í bréfi sem Ragnhildur Hjalta-
dóttir ráðuneytisstjóri í samgöngu-
ráðuneytdnu sendi bæjaryfirvöldum
á Akranesi kemur ff am að undirritun
Smrlu Böðvarssonar samgönguráð-
herra á viljayfirlýsingu um samstarf
um rekstur sérhannaðs ökukennslu-
svæðis á Akranesi hafi hvorki falið í
sér þátttöku í rekstri svæðisins né út-
hlutun á sérleyfi eða einkaleyfi tdl
starfseminnar. Jafnframt leggur
ráðuneytið áherslu á að sem fyrst
liggi fyrir hverjir era tilbúnir til þess
að taka að sér rekstur slíkra svæða á
grundvelli reglugerðar sem ráðu-
neytið mun staðfesta á næstunni.
Eins og fram hefur komið í
Skessuhomi var viljayfirlýsing um
formlegt samstarf tdl að undirbúa
stofhun fyrirtækis um rekstur öku-
kennsluvæðis rmdirritað af Akranes-
kaupstað og Okukennarafélagi Is-
lands þann 24. apríl sl. og staðfesti
Smrla Böðvarsson samgönguráð-
herra það með undirritun sinni eins
og segir í fféttatilkynningu ffá ráðu-
neytinu þann dag. „Verkefninu
verður hrint í ffamkvæmd á næsm
mánuðum í samstarfi við samgöngu-
yfirvöld og aðra sem sinna umferð-
aröryggismálum," segir orðrétt í
fréttatilkynningunni.
Undanfarna mánuði hefur verið
unnið að undirbtiningi málsins á
Akranesi meðal annars með skipu-
lagsvinnu. Fleiri höfðu þó áhuga á
málinu og í frétt Skessuhoms síðla
septembermánaðar kom fram að
samgönguráðuneytið hafi ákveðið
að efna tdl forvals vegna hugsanlegs
reksmr slíks svæðis. Með því væra
valdir þeir aðilar sem keppa myndu
um rekstur með einkaleyfi eða sér-
leyfi í huga í þrjú til fimm ár.
í byrjun desember komu tveir
starfsmenn ráðuneytisins til við-
ræðna við bæjarráð um málið. Bæj-
arráði fannst skýringar þeirra ekki
fullnægjandi og óskaði ráðið efrir
skýrum svöram samgönguráðherra
um hvort staðið yrði við viljayfirlýs-
inguna eins Gunnar Sigurðsson for-
seti bæjarstjórnar komst að orði.
I áðurnefndu bréfi Ragnhildar
segir að þegar hafist var handa við
smíði reglugerðar hafi ekki legið fyr-
ir hvort einhverjir væra tilbúnir til
þess að hefja reksmr slíks svæðis á Is-
landi og þess vegna hafi samstarf
Akraneskaupstaðar og Okukennara-
félags Islands verið „mikilvægt inn-
legg“. Jafnframt hafi ráðuneytið
skoðað hvort sérleyfi til rekstrarins
yrði veitt „þ.e. ef enginn eða aðeins
einn aðili treysti sér til að fara í
reksmr af þessum toga,“ segir í bréfi
Ragnhildar. Þegar í ljós hafi komið
að nokkrir aðilar væra tilbúnir í
rekstur sem þennan hafi allar hug-
myndir um sérleyfi vikið.
Bæjarráð Akraness vísaði bréfi
Ragnhildar til umfjöllunar starfs-
hóps um ökugerði.
HJ
PISTILL GISLA
Sem betur fer fer allt í hring
og hringnum er yfirleitt lokað
um áramót. Þá er flugeldum
skotið upp og árið er gert upp.
Menn líta um öxl og rifja upp
það sem hæst bar og lægst á
árinu og berja sér á brjóst og
ætla að gera enn betur á næsta
ári en því sem var að líða,
jafhvel þótt þeir telji að ekki sé
hægt að gera betur.
I árslok er það líka venja að
hampa því sem upp úr stóð á
árinu. I öllum fjölmiðlum er
að finna langa lista yfir
aff ekaskrá ársins og snillingum
ársins raðað eftir verðleikum.
Það er m.a. venjan að velja
mann ársins, konu ársins og
jafhvel hest ársins. Síðan eru
það pör ársins, kjólar ársins og
hárgreiðsla ársins í þeim
fjölmiðlum sem láta sig slík
málefni varða. Þar er jafnvel
líka að finna skilnað ársins,
skandal ársins og ýmislegt
fleira í þeim dúr.
Eg hef að sjálfsögðu gert
minn lista í árslok sem byggir á
mun vísindalegri grunni en
aðrir slíkir sem enn hafa verið
birtir.
Maður ársins að mínu mati
er að sjálfsögðu Arni Johnsen
sem fékk fyrirgefningu
syndanna í prófkjöri og var á
ný bannfærður tveimur
mínútum síðar fyrir þau
tæknilegu mistök að tala um
tæknileg mistök. Dómari
ársins var Magnús Þór
Hafsteinsson, fordómari öllu
heldur, því honum tókst, hvort
sem það var með eða án vilja,
að æsa upp mestu
fordómaumræðu síðari tíma
hér á landi. Allt gott og blessað
um það að segja í sjálfu sér því
hvað sem mönnum finnst um
málið þá er það umræðu vert.
Fórnarlamb ársins er að
sjálfsögðu Nylon flokkurinn
vegna þess að Bretar höfnuðu
gerviefhahljómsveitinni vegna
hvalveiða íslendinga. Ymsum
þótti að vísu undarlegt að
Bretar skyldu blanda saman
Nylonflokknum og
hvalveiðum en tengingin er
augljós. Eg hef nefnilega reynt
að hlusta á þessa tónlist og það
er virkilega kvalafullt svo ekki
sé meira sagt.
Astand ársins var síðan
brotthvarf varnarliðsins frá
Keflavíkurflugvelli en það
skapaði alvarlegt ástand fyrir
ástandskonur sem ekki eiga
lengur í nein hús að venda. Þar
er hinsvegar kominn
grundvöllur fyrir næsta
útrásarævintýri Islendinga því
víða um heim má finna
þurfandi hermenn. Hinsvegar
má furða sig á því af hverju í
ósköpunum Eggert
Magnússon keypti ekki
varnarliðið til að sameina það
Vest Ham. Eftir sex núll ósigur
á nýársdag er það deginum
ljósara að það vantar sárlega
varnarlið þar á bæ.
Að lokum tilnefhi ég þig sem
lesanda ársins fyrir óþrjótandi
þrautseigju og langlundargeð
að lesa þetta endemis bull,
viku eftir viku.
Gísli Einarsson,
ekkert ársins því miður.