Skessuhorn - 03.01.2007, Síða 10
10
MIÐVIKUDAGUR 3. JANÚAR 2007
Fjölbrautaskóli Vesturlands brautskráir 49 nemendur
Þann 21. desember sl. voru
brautskráðir 49 nemendur frá
Fjölbrautaskóla Vesturlands á
Akranesi. Af félagsfræðabraut voru
brautskráðir sextán stúdentar, af
málabraut tveir stúdentar, af nátt-
úrufræðibraut ellefu stúdentar, af
námsbraut í húsasmíði brautskráð-
ist einn nemandi, í rafvirkjun fjórt-
án nemendur, einn nemandi í vél-
virkjun, einn nemandi af viðskipta-
braut brautskráðist og þrír nemar
með viðbótarnám til stúdents-
prófs.
Að vanda hlutu nokkrir nem-
endur verðlaun og viðurkenningar
fyrir árangur sinn. Daði Jónsson
hlaut verðlaun fyrir bestan árangur
útskriftarnema í verklegum grein-
um og fyrir góðan árangur í raf-
iðngreinum. Gunnar Smári Jón-
björnsson hlaut verðlaun fyrir
störf að forvarnarmálum og Ivar
Arnason hlaut verðlaun fyrir góð-
an árangur í tölvufræðum. Þá hlaut
María Mist Helgadóttir verðlaun
fyrir góðan árangur í ensku,
frönsku og í sálffæði og uppeldis-
fræði. Márus Lúðvík Heiðarsson
hlaut verðlaun fyrir góðan árangur
í rafiðngreinum og Sigurlaug As-
mundsdóttir hlaut verðlaun fyrir
góðan árangur í ensku. Þá hlaut
Steinunn Eðvaldsdóttir verðlaun
fyrir góðan árangur í dönsku og
þýsku og Þór Daníel Hammer
Olafsson fyrir góðan árangur í raf-
iðngreinum, verðlaun sem IJ gaf.
Bestum árangri á stúdentsprófi
náði Stefán Jóhann Sigurðsson og
hann hlaut einnig verðlaun fyrir
góðan árangur í ensku og dönsku.
Aður en útskriftarathöfhin hófst
lék klarínettukór Skólahljómsveitar
Akraness og einnig léku Kristín
Edda Egilsdóttir og Guðmundur
Freyr Hallgrímsson saman á klar-
ínett og píanó, Karitas Osk Olafs-
dóttir og Birna Björk Sigurgeirs-
dóttir léku saman á flautu og píanó
og Steinunn Eðvaldsdóttir söng við
undirleik Bimu Bjarkar Sigurgeirs-
dóttur.
Hörður Helgason skólameistari
kvaddi Þórólf Ævar Sigurðsson
íþróttakennara sem lét af störfum
við skólann í sumar eftir langan og
farsælan kennsluferil. Færði hann
Þórólfi listaverk að gjöf ffá skólan-
um. Fyrir hönd útskriftarnema
flutti Hafdís Mjöll Lárusdóttir
ávarp. Við lok samkomunnar risu
gestir úr sætum og sungu Bráðum
koma blessuð jólin og því loknu
þáðu gestir veitingar í boði skólans.
HJ/ Ijósm. Myndsmiðjan,
Akranesi.
Nýstúdentamir frá vinstri: Amþór Pálsson Stykkishólmi, Ami Asgeirsson Stykkishólmi,
Bima Karlsdóttir Grundarfirði, Gunnlaugur Ingi Gunnarsson Stykkishólmi, Gunn-
laugur Smárason Stykkishólmi, Ingihjörg Eyrún Bergvinsdóttir Grundarfirði, Jón Osk-
ar Ólafsson Stykkishólmi, Oddný Assa jóhannsdóttir Grundarfirði, Ragnar Smári Guð-
mundsson Grundarfirði og Vignir Bjamason Staðarsveit (Snæfellsbæ).
Tíu stúdentar útskrif-
aðir frá Fjölbrautaskóla
Snæfellinga
Lesblind og útskrifaðist
með hæstu einkunn
séu á staðnum. 1
verkefnatímum er
hægt að sækja sér
frekari þekkingu í
námsgreinunum, en
nemendur þurfa ekki
að mæta frekar en
þeir sjálfir vilja.
Þetta fyrirkomulag
er ekki ósvipað og
tíðkast í háskólum en
þannig em nemend-
ur virkjaðir í að bera
ábyrgð á eigin námi.
Með fjarnámstækn-
inni er öllum verk-
efnum skilað inn á
tölvum, jafnvel er
hægt að bregða sér
til útlanda og stunda
námið þaðan, svo
Oddný Assa á útskriftardaginn.
Ljósm.: Jóhann Óli Hilmarsson
Þann 20. janúar sl. fór fram
brautskráning 10 nýstúdenta frá
Fjölbrautaskóla Snæfellinga í
Gmndarfirði og var þetta þriðja út-
skriftarathöfnin í sögu skólans.
Fimm þeirra luku prófi af náttúm-
fræðibraut, fjórir af félagsfræði-
braut og einn nemandi útskrifaðist
með viðbótarnám til stúdentsprófs.
Fimm nemendanna em úr Stykkis-
hólmi, fjórir úr Grondarfirði og
einn úr Staðarsveit.
Oddný Assa Jóhannsdóttir nem-
andi á náttúrufræðabraut hlaut
þrenn verðlaun við útskriftina.
Hún hlaut verðlaun fyrir bestan ár-
angur á stúdentsprófi en þau verð-
laun vom gefin af sveitarfélögun-
um sem standa að skólanum, þ.e.
Grundarfjarðarbæ, Helgafellssveit,
Stykkishólmsbæ og Snæfellsbæ.
Fyrir góðan árangur í íslensku
hlaut hún verðlaun gefin af Eddu-
miðlun og verðlaun frá Fjölbrauta-
skóla Snæfellinga fyrir góðan ár-
angur í spænsku. Verðlaun fyrir
góðan árangur í líffræði gefin af KB
banka hlaut Ingibjörg Eyrún Berg-
vinsdóttir.
Fjölbrautaskóli Snæfellinga hóf
starfsemi sína haustið 2004 en tveir
útskrifarnemanna þau Jón Oskar
Olafsson og Ingibjörg Eyrún hafa
sttmdað allt sitt framhaldsskólanám
á Snæfellsnesi, Jón Oskar í frarn-
haldsdeild Fjölbrautaskóla Vestur-
lands í Stykkishólmi en Ingibjörg í
fjarnámssetri sem starffækt var í
Gnmdarfirði en þau hófu síðan
bæði nám við Fjölbrautaskólann
þegar hann tók til starfa og luku því
námi til stúdentsprófs á þremur og
hálfu ári.
Við athöfnina söng Guðlaugur
Ingi Gunnarsson einn nýstúdenta
og lék undir á flygil skólans. Hrafti-
hildur Hallvarðsdóttir, félags-
greinakennari flutti kveðjuorð til
nemenda fyrir hönd starfsfólks
skólans en hún hefur átt nokkra
samleið með hluta nemendanna
þar sem hún var umsjónarkennari
þeirra í grunnskóla og síðan kenn-
ari þeirra við FSN. Ingibjörg
Eyrún Bergvinsdóttir flutti kveðju-
orð fyrir hönd nýstúdenta. Að at-
höfn lokinni var boðið upp á kaffi-
veitingar í skólanum. GK
Skömmu fyrir jól útskrifaði
Fjölbrautaskóli Snæfellinga tíu ný-
stúdenta og var það þriðja útskrift-
arathöfnin í sögu skólans. Athygli
vakti árangur Oddnýjar Ossu Jó-
hannsdóttur, nemanda á náttúru-
fræðibraut, sem hlaut þrenn verð-
laun fyrir góðan árangur, fyrir
bestan árangur á stúdentsprófi, í
íslensku og spænsku. Skessuhorn
sló á þráðinn til Oddnýjar Ossu og
forvitnaðist örlítið um hana og
skólagönguna.
Ávörpuð með nafhi
fyrsta daginn
„Ég er úr Reykjavík en kynntist
kærasta mínum í Fjölbraut við Ar-
múla og eitt sumarið ákváðum við
að flytja til Grundarfjarðar, en
hann er þaðan. Sumardvölin
reyndist það góð að við færðum
okkur um set, fluttumst alfarið til
tengdaforeldra minni í Grundar-
firði og hófum nám við Fjöl-
brautaskóla Snæfellinga," segir
Oddný Assa, er blaðamaður spyr
hana um upprunann og hvernig
það hafi komið til að hún hóf nám
á Snæfellsnesi.
„Mér líkaði skólinn strax mjög
vel, kennararnir voru góðir og mér
fannst frábært þegar ég byrjaði
fyrsta daginn, að jafnvel konan á
skrifstofunni vissi nákvæmlega
hver ég var og ávarpaði mig með
nafni, þótt ég vissi ekkert hver hún
væri. Allt var miklu persónulegra
og við kynntumst vel hvert öðm,
enda stundum raðaðist það þannig
að sami kennarinn var með okkur í
tímum yfir heilan dag.“
Byggt upp
með fjarnámssniði
Oddný Assa segir námið í Fjöl-
brautaskólanum á Snæfellsnesi frá-
bmgðnara öðrum skólum að því
leyti að mikið er um verkefnatíma
en einnig er notast við fjarnáms-
tæknina, þrátt fyrir að nemendur
fremi sem viðkom-
andi hafi aðgang að tölvu. Einnig
var hægt að taka próf á þennan
hátt og fyrirlestrar eru oft fluttir á
skjáum þótt fyrirlesarinn hafi verið
staddur annarsstaðar á landinu.
Vön því að
leggja mikið á sig
„Ég er lesblind og þarf því sér-
staklega mikinn tíma fyrir námið,“
útskýrir Oddný Assa, „en þetta er
náttúrlega bara mikil og þrotlaus
vinna,“ bætir hún hógvær við en
vissulega er námsárangurinn enn
glæsilegri fyrir vikið. „Ég greindist
ekki með lesblindu fyrr en ég kom
í menntaskóla en fram að því fékk
ég enga sérstaka aðstoð. I sann-
leika sagt varð ég ekki almennilega
læs fyrr en um átta ára aldur og
þakka það miklum stuðningi for-
eldra minna, sem vora endalaust
dugleg að halda mér við efnið og
gáfust aldrei upp á að kenna mér
að lesa. Ég hef alla tíð þurft að
leggja mikið á mig í sambandi við
námið og einfaldlega beygt mig
undir það.
Stefnir á
fj ármálaverkfiræði
Hún bætir því við að eftir að les-
blindan var greind hafi hún átt þess
kost að fá lengri próftíma og það
hafi hún nýtt sér í þeim greinum
sem hún taldi sig þurfa. „Einnig fékk
ég t.d. að hlusta á Sjálfstætt fólk í ís-
lensku, af hljóðdiskum og slapp
þ.a.l. við að lesa bókina, sem er í
kringum 600 síður, en með þannig
tækni er hægt að leysa ýmislegt,"
segir hún.
Aðspurðu um framhaldið að
loknu stúdentsprófi segir Oddný
Assa: „Ég horfi til náms tengt stærð-
ffæði, en það var ein af mínum upp-
áhaldsgreinum auk íslenskunnar. I
Háskólanum í Reykjavík er kennd
fjármálaverkfræði sem ég býst við að
byrja í næsta haust. Ég mun þurfa að
flytja til Reykjavíkur og kvíði því
ekkert sérstaklega enda fólkið mitt
allt þaðan. Ég vil hins vegar taka
fram að það hefur verið dásamlegt
að búa hjá tengdaforeldmm mínum
hér fyrir vestan, sem hafa reynst mér
ákaflega vel í alla staði,“ segir náms-
hesturinn Oddný Assa að lokum.
KH