Skessuhorn - 03.01.2007, Síða 11
SSlSSIIHOBKi
MIÐVIKUDAGUR 3. JANÚAR 2007
11
Giftusamleg björgun
Ingunnar AK
í Akraneshöfn
Leynir heldur hér við skipið meðan verið var að ræsa
vélar þess. Stuttu stðar missir Leynir afl þegar tógfór í
skrúfu lóðsbátsins. Atburðarásin var hrb'ð en snör hand-
tök starfsmanna hafnarinnar, HB Granda og Björgun-
arfélagsmanna urðu tilþess að ekki varð tjón á skipinu.
Starfsmönnum Akra-
neshafnar, félögum í
Björgunarfélagi Akra-
ness og starfsmönnum
HB Granda tókst með
harðfylgi að bjarga
fjölveiðiskipmu Ingurmi
AK efrir að það slitnaði
frá bryggju í slæmu
veðri að kvöldi 21. des-
ember. Aðeins hárs-
breidd munaði að illa
færi og skipið ræki út úr
höfninni. Skipið er
óskemmt og lóðsbátur-
inn Leynir einnig.
A áttunda tímanum
um kvöldið rifnaði upp
einn af þeim bryggju-
pollum sem Ingunn var
bundin við og við það komst los á
skipið sem endaði með því að aðrar
landfestar skipsins slimuðu og rak
skipið út höfnina. Mikil mildi þyk-
ir að skipið skyldi ekki rekast utan í
Víking AK og Bjarna Olafsson AK
sem lágu einnig í höfninni. Þegar
Ingunni rak upp að hafnargarðin-
um utar tókst starfsmanni HB
Granda að krækja í eina landfesti
og festa hana á bryggjupolla. Tókst
með því að varna því að skipið ræki
út úr höfninni. Um það leyti voru
starfsmenn hafnarinnar komnir á
vettvang á dráttar- og lóðsbátnum
Leyni. Tókst þeim að koma skipinu
að Sementsbryggjunni þar sem það
var tryggilega fest. Ekki mátti
tæpara standa því þá hafði Leynir
fengið tóg í skrúfuna og missti við
það afl. Ekki munu hafa orðið
skemmdir á Ingunni að öðru leyti
en því að landgangur skipsins
skemmdist. Skamma stund tók að
losa úr skrúfu Leynis.
Ingunn AK-150 er eitt glæsileg-
asta skip landsmanna. Það er 1.217
brúttórúmlestir að stærð smíðað í
Chile árið 2000. Leynir er einn af
nýjustu dráttar- og lóðsbátum
landsmanna smíðaður í Hollandi
árið 2000. Hann er tæpar 44 rúm-
lestir að stærð.
HJ/ljósm. MM
Meðfylgjandi mynd var tekin í upphafi fundarins ogá henni eruf.v. Ólafur Amalds
prófessor, Einar Sveinbjömsson aðstoðarmaður ráðherra, Jón Gunnar Ottósson forstjóri
Náttúrufrœðistofnunar Islands, Jónína Bjartmarz umhverflsráðherra, Finnbogi Rögn-
valdsson srveitarstjómarmaður í Borgarbyggð, Þorvaldur T. Jónsson rekstrarstjóri Lbhl,
Páll S. Brynjarsson sveitarstjóri Borgarbyggðar, Sveinbjöm Eyjólfsson sveitarstjómar-
maður í Borgarbyggð, Bj'öm Bjarki Þorsteinsson sveitarstjómarmaður t Borgarbyggð og
Agúst Sigurðsson rektor Lbhl. Ljósm. AÞ
Góður fundur
Borgfirðinga með
umhverfisráðherra
Jóm'na Bjartmarz umhverfisráð-
herra hitti í vikunni fyrir jól for-
svarsmenn Borgarbyggðar og
Landbúnaðarháskóla Islands í
húsakynnum háskólans á Hvann-
eyri. A fundinum var ráðherra
kynntar hugmyndir heimamanna
tun hugsanlegan flutning Náttúru-
ffæðistofnunar Islands og Náttúru-
gripasafhs Islands til Hvanneyrar.
Eins og fram hefur komið í fréttum
hefur sveitarstjórn Borgarbyggðar
boðið allt að 100 milljónum króna
til þess að greiða fyrir flutningi
stofnananna í sveitarfélagið en þær
hafa sem kunngt er átt við mikinn
húsnæðisvanda að etja og einnig
hafa gripir safnsins verið í hættu.
Með ráðherra í för var meðal
annarra Jón Gunnar Ottósson for-
stjóri Náttúrufræðistofnunar.
Finnbogi Rögnvaldsson sveitar-
stjórnarmaður í Borgarbyggð segir
þennan fund hafa staðið til um tíma
en hafi komið til nú á mjög heppi-
legum tíma þegar rædd er framtíð-
arstaðsetning þessara stofnana.
Finnbogi segir áhuga manna á
þessu máli ekki nýjan af nálinni í
Borgarfirði. „Hugsanlegur flutn-
ingur þessara stofnana hefur verið
ræddur á vettvangi sveitarstjórna á
svæðinu í á þriðja ár og málið hefur
verið rætt við þrjá umhverfisráð-
herra,“ segir Finnbogi.
Hann segir að heimamenn hafi
kynnt hugmyndir sínar fyrir ráð-
herra og einnig það mikla upp-
byggingarstarf sem fram hefur far-
ið að undanförnu í háskólasamfé-
laginu á Hvanneyri og þá miklu
rannsóknarstarfsemi sem þar fer
fram. „Vegna starfseminnar á
Hvanneyri og þeirrar uppbygging-
ar sem þar fer fram væru þessar
stofnanir vel staðsettar á Hvann-
eyri og flumingur þeirra þangað
myndi hafa í för með sér talsverð
samlegðaráhrif," segir Finnbogi.
Hann segir fundinn hafa verið
mjög góðan en engar ákvarðanir
hafi verið teknar á honum og engin
loforð hafi þar verið gefin um
framhald málsins. HJ
Jólatrjám verður safnað saman
sunnudaginn 7. janúar og
mánudaginn 8. janúar
frá ki 8:00 -16:00.
1fið biðjum fólk að setjajólatré á
gangstéttar fyrir framan hús sín
þessa daga.
Nánarí upplýsingar í síma: 899-9755
Ifið óskum Akurnesingum gleðilegs nýs
árs og þökkum samstarfið á nýliðnu árí!
Akraneskaupstaður GÁMA
Kjör á íþrótta-
manni Akraness
nni Akraness fyrir árið
2006 fer fram laugardaginn 6. janúar
(á þrettándanum). Athöfnin fer fram i
íþróttamiðstöðinni að Jaóarsbökkum
strax að lokinni flugeldasýningu.
Bæjarbúar eru boðnir velkomnir á kjörið,
1 þiggja heitt kakó og Léttar veitingar.
Frá kjöri (þróttamanns Akraness 2005
íþróttabandalag Akraness www.ia.is
UPPHAF
EifissKsi V0RANNAR 2007
Stundatöflur fyrir vorönn 2007 verða birtar á INNU fyrir
kl. 8 mánudaginn 8. janúar. Þeir sem ekki hafa aðgang að INNU
fá stundatöflur sinar afhentar þann dag kl. 10 - 12.
Nýir nemendur eiga að koma til fundar í skólanum
mánudaginn 8. janúar kl. 10.
Heimavistin opnar sunnudaginn 7. janúar kl. 18.
Kennsla í dagskóla hefst kl. 12:25 mánudaginn 8. janúar.
Skólabíll fer frá Borgarnesi mánudaginn 8. janúar kl. 9:15 og 11:40.
i Reglulegur skólaakstur frá Borgarnesi hefst þriðjudaginn 9. janúar kl. 7:45.
Bóksala
Penninn, Kirkjubraut 54 Akranesi, verður með þær bækur til
sölu sem notaðar eru í kennslu í Fjölbrautaskóla Vesturlands.
Bókalista og fleiri gagnlegar upplýsingar má finna á heimasíðu skólans:
http://www.fva.is