Skessuhorn - 24.01.2007, Síða 7
SBlSSlíii©ER
MIÐVIKUDAGUR 24. JANUAR 2007
7
Meirihluti foreldra vill
Varmalandsskóla áfram
I könnun sem gerð
var af nemendum Há-
skólans á Bifröst kemur
fram að rúmlega helm-
ingur foreldra á skóla-
svæði Varmalandsskóla
vill að skólinn verði þar
áffam. Það voru þau
Arni Þ. Oskarsson, Jó-
hanna Jóhannsdóttir,
Katrín B. Guðjónsdótt-
ir og Stefán S. Bergs-
son, nemendur við fé-
lagsvísinda- og hag-
fræðideild skólans sem
gerðu könnunina undir
leiðsögn Grétars Þ. Ey-
þórssonar forstöðu-
manns deildarinnar.
Fram kemur í könnun-
inni að ef stofnaður yrði grunn-
skóli á Bifröst og Varmalandsskóli
myndi leggjast af, myndu tveir
þriðju hiutar foreldra vilja að
börnin gengu í þann skóla en
þriðjungur að börnin færu að
Kleppjárnsreykjum.
Hlutfall þeirra sem myndu vilja
að börnin sæktu skóla að Bifröst er
nær það sama og hlutfall foreldra
sem býr þar. Hinsvegar vekur at-
hygli að nær 40% þeirra foreldra
sem á Bifröst búa vilja halda skól-
anum á Varmalandi. Getum er leitt
að því í skýrslunni að skýringar
geti verið að gott sé að börnin séu
ekki á Biffastarsvæðinu meðan for-
eldrarnir eru sjálfir að stunda sitt
nám og annað hitt að tengsl barn-
anna við sveitina myndu algjörlega
rofna.
Ekkert foreldri sem býr í sveit-
inni í kringum Bifföst lítur þannig
á að staðsetning skóla á Bifröst sé
vænlegur kostur fyrir framtíðar
staðsetningu grunnskóla, segir í
skýrsltmni. Talið er að líklegasta
HS-Verktak fær áhalda-
húsavinnuna í Borgamesi
Borgarbyggð bauð fyrir stutm út
svokallaða áhaldahúsavinnu sem
felur meðal annars í sér snjómokst-
ur á vetrum og slátt á sumrum.
Kostnaðaráætlun hljóðaði uppá
15.822.770 kr. Effirtalin fýrirtæki
buðu í verkið:
H.S. Verktak,
Borgamesi kr. 12.439.635
Islenska Gámafélagið ehf.
kr. 14.395.482
Borgarverk Borgamesi
kr. 22.500.000
Sigurði Páli Harðarsyni, for-
stöðumanni framkvæmdasviðs var
falið að ræða við lægstbjóðanda.
Þegar Skessuhorn hafði samband
við Halldór Sigurðsson, eiganda
HS-Verktaks var hann staddur í
Reykjavík. „Þeir ákváðu að taka
tilboðinu og ég er að kaupa vélar
því vinnan byrjar á miðvikudag,"
sagði Halldór.
BGK
Skipulagsmál
í Borgarbyggð
Almennur fundur um
skipulagsmál í Borgarbyggð.
Tími:
Mánudaginn 29. janúar 2007 kl. 20.00
Staður:
Hótel Borgarnes
Dagskrá:
• Almenn staða á skipulagsmálum
• Skipulag við Borgarbraut 55-59
• Kynning á nýju íbúðarhverfi í Bjargslandi
• Veitingahús við Hrafnaklett
• Upphaf byggðar handan Borgarvogs
Vonumst til að sem flestir íbúar sjái
sér fært að mæta.
Borgarbyggð
skýringin sé sú að tíminn sem
börnin myndu sitja í skólabílnum
yrði töluvert meiri fyrir flest þeirra
og einnig að hin hraða uppbygg-
ing sem orðið hefur á Bifröst geti
virkað fráhrindandi fyrir fólk sem
býr í sveit.
BGK
Stigahœstu einstaklingarnir voru þau Salóme Jónsdóttir og Kristinn Gauti Gunnarsson
og afhenti Helgi Daníelsson, hróðir Báru, þeim gUsilega hikara að móti loknu.
Bárumótið í sundi
Hið árlega Bárumót í sundi var
haldið í Bjarnalaug á Akranesi 22.
janúar. A því móti reyna með sér 8-
12 ára krakkar úr sundfélaginu og á
efdr er slegið upp mikilli pizzu-
veislu. Allir keppendur fá verð-
launapening og stigahæsta stelpan
og stigahæsti strákurinn fá farand-
bikara sem gefnir eru til minningar
um Báru Daníelsdótmr. Mótið
gekk mjög vel og voru miklar bæt-
ingar hjá þessum efnilegu strnd-
mönnum en um 50 keppendur
mætm til leiks. GHK
Islenska járnblendifélagið
ehf er málmframleiðslu-
fyrirtæki staðsett á
Grundartanga í Hvalfirði,
sem erí u.þ.b. 30-40 mín.
akstursfjarlægð frá
Reykjavík. Verksmiðjan
framleiðir ýmsar tegundir
kísiljárns sem er notað
bæði í stál- og málm-
steypuiðnaði. Árið 2007
verður byggð ný
framleiðslueining sem
nýtir framleiðslu eins af
ofnum fyrirtækisins til
þéss að framleiða
sérhæfð afbrigði af
kísiljárni til nota í málm-
steypuiðnaði.
íslenska járnblendifélagið
ehf. er I eigu Elkem AS sem
er alþjóðlegt fyrirtæki með
höfuðstöðvar I Noregi.
Elkem er eitt af fremstu
málm- og efnisfram-
leiðendum I heiminum.
® Elkem
íslenska járnblendifélagið hf-
lcelandic Alloys Ltd.
...leitar að ofngæslumönnum
og starfsmanni í gæðaeftirlit
Ofnagæslumenn:
Starfs- og ábyrgðarsvið:
• Framleiðsluteymi ofna - vaktavinna
Hæfniskröfur:
• Áhugi á að vinna við sérhæfða framleiðslu
• Hæfni til að skilja tækilega hluti
• Vera orðinn 18 ára
• Verður að geta átt samskipti á íslensku
Æskilegir eiginleikar:
• Jákvæðni og sveigjanleiki
• Vinna vel í teymi en einnig sjálfstætt
• Sterk gæðavitund
• Gott vinnusiðferði
• Hugsa fyrirbyggjandi
• Vinnusemi
• Vilji til að læra
• Vera ábyrg/ur
Starfsmaður í gæðaeftirlit:
Viðkomandi mun starfa á rannsóknastofu fyrirtækisins og heyra undir
stjórnanda rannsóknastofu. Meðal verkefna rannsóknarstofu er gæðaeftirlit
hráefna, vöru í framleiðsluferli og lokaafurða fyrir afhendingu til viðskiptavina.
Starfs- og ábyrgðarsvið:
Almenn störf á rannsóknastofu, m.a. við sýnatöku, vinnslu og mælingar
á sýnum, skráningu á niðurstöðum mælinga í gagnagrunna.
Hæfniskröfur:
• Reynsla af tölvunotkun, t.d. texta- eða gagnavinnslu, eræskileg
• Sjálfstæði í vinnubrögðum
• Nákvæmni í vinnubrögðum
• Hæfni í samskiptum
Við bjóðum upp á fjölbreytt verkefni og spennandi vinnuumhverfi, möguleika
til að þróast í starfi og góð launakjör. Konur eru hvattar til að sækja um.
Umsækjendur þurfa að geta hafið störf sem fyrst.
Vinsamlegast sendið umsókn til:
íslenska járnblendifélagið ehf
Grundartangi
Skilmannahreppur
301 Akranes
Eða hafið samband við:
Ofnagæslumenn:
Ómar Sigurðsson, farsími: 8606 248
Omar.Sigurdsson@alloy.is
Starfsmaður í gæðaeftirlit:
Hlynur Sigurbjörnsson, farsími: 8606 119
Hlynur.Sigurbjornsson@alioy.is