Skessuhorn - 24.01.2007, Blaðsíða 13
cUSSSUMÖiæi
MIÐVIKUDAGUR 24. JANÚAR 2007
13
ans er löngu sprungið svo ég mun
leggja enn frekari áherslu á fjar-
kennslu. Þótt við séum að byggja
þá er fjarkennslan mikilvægur þátt-
ur í námi nútímans og við munum
halda áfram að vaxa. Ég sé fyrir
mér samstarf við aðra skóla bæði á
háskólastigi og öðrum stigum.
Einnig samvinnu við samfélagið
hér í Borgarfirði, sem er sterkt og
hefur verið forystusamfélag í Is-
landssögunni um langa hríð. Ég tel
að áfram verði Borgarfjörður lykil-
staður í íslensku samfélagi með
fólki sem kveðið hefur að.“
Að fólk sé sátt
við sjálft sig
Eins og komið hefur fram er
Agúst alinn upp í stórri fjölskyldu.
Þau hjón eru mikið fjölskyldufólk.
Héldu upp á þrjátíu og fimm ára
brúðkaupsafmæli fyrir stuttu og
fara líklega ekki að breyta til í þeim
efnum úr þessu. Finnst gott að hafa
fólkið sitt í kringum sig. Börnin eru
flogin úr hreiðrinu en barnabörnin
eru orðin tvo. „Við erum búin að
Agúst Einarsson settur inn í embœtti rektors mánudaginn 15. janúar síðastliðinn.
innrétta lítið barnaherbergi í hús-
næðinu okkar hér á Bifröst svo
hægt sé að taka á móti barnabörn-
unum einhverja daga eða um helg-
ar, fá að vera afi og amma, segir
Agúst og andlitið ljómar þegar fjöl-
skylduna ber á góma, greinilegt að
honum er annt um fólkið sitt. „Það
er eiginlega okkar mesta ánægja
núorðið í lífinu að vera innan um
börnin okkar og barnabörnin. Við
erum að taka upp úr kössunum,
koma okkur fyrir og líst vel á allt
sem komið er. Við verðum hérna
bæði hjónin, en komum til með að
halda tvö heimili fyrst um sinn.
Kolbrún, konan mín, er lífeinda-
fræðingur og vann við það uns hún
varð að breyta um vegna ofhæmis.
Þá einhenti hún sér í sagnfræðina,
lauk þar prófi og hefur unnið við
það. Okkur finnst ekkert fásinni
hér, þótt við komum úr höfuðborg-
inni. Eins og ég sagði fyrr höfum
við verið víða og líkað vel á öllum
stöðum. Það er jafh dásamlegt að
vera hér á Bifröst eins og í Róm,
Sidney eða París, heimurinn er al-
veg jafh fjölbreytilegur í Borgar-
firði og annars staðar. Það er aðal-
atriðið að fólk sé í sátt við sjálft sig,
þá líður því vel hvar sem er,“ sagði
Agúst Einarsson rektor að lokum.
Blaðamaður þakkar fyrir sig.
Kveður og óskar rektor og fjöl-
skyldu hans velfarnaðar á ókomn-
um árum; á nýjum stað - einum
þeim fallegasta á landinu.
BGK
Fimm œttliðir í beinan kvenlegg. Frá vinstri sitjandi: Saunn Ólafsdóttir með Freyju
Benediktsdóttur ífanginu og eettmóðirin Kristín Siguriardóttir. Standandi frá vinstri
Kristtn Sigurðardóttir yngri og Sceunn Andrésdóttir.
Fimm ætdiðir
í beinan kvenlegg
Það hefur löngum þótt gæfu-
merki að eiga góðu bamaláni að
fagna. Sú var tíðin að fréttnæmt
þóttd á Islandi ef einhver náði þeim
áfanga að vera í fjölskyldu með
fimm ættliði á lífi. Með betri heilsu
landsmanna og auknu langlífi verð-
ur þetta æ algegnara. Hins vegar er
það kannski ffétmæmt ef fimm ætt-
liðir, í beinan kvenlegg þar sem all-
ar konurnar em elstu böm sinna
mæðra em á lífi.
Kristín Sigurðardóttir í Borgar-
nesi er ein af þeim lánssömu. Hún
varð 95 ára 12. janúar síðastliðinn
og er því fædd 1912. Elsta barn
hennar er Sæunn, fædd 1930, elsta
barn hennar er Kristín fædd 1950,
elsta barn Kristínar er Sæunn fædd
1972 og elsta barn hennar er
Freyja, fædd 2001. í þessari fjöl-
skyldu hafa kvenlitningarnir
greinilega verið í essinu sínu.
MM
LV fagnar ákvörðun
fj ármálaráðherra
Stjórn Landssambands veiðifé-
laga (LV) hefur samþykkti ályktun
þar sem fagnað er ákvörðun fjár-
málaráðherra að taka til endur-
skoðunar aðkomu ríkisvaldsins að
framkvæmd laganna um þjóðlend-
ur. Minnir stjórn félagsins á að í at-
hugasemdum með frumvarpi til
þjóðlendulaga og í framsögu þáver-
andi forsætisráðherra komi skýrt
fram að lögin skyldu taka einkum
til svæða á miðhálendi Islands, sem
ekki hafa verið afmörkuð beint
með lögum.
„LV leggur þunga áherslu á að
eignarréttur skráðra landeigenda sé
virmr og ekki verði gerðar kröfur
um land innan þinglýstra eignar-
landa, nema fyrir liggi gögn sem
veikja viðkomandi landamerkjabréf
verulega. LV telur það ekki sam-
rýmast vilja Alþingis þegar ríkis-
valdið gerir nú ítrustu kröfur um
land og leggur þannig óhóflega
sönnunarbyrði á landeigendur sem
ekki verður risið undir í einstökum
tilvikum sökum þess að skjöl og
önnur gögn um eignarhaldið hafa
glatast. Þá telur LV það grundvall-
aratriði að ríkisvaldið gæti meðal-
hófs og uni úrskurði Obyggða-
nefndar um þjóðlendur. Ella sanni
ríkisvaldið rétt sinn til lands en
öfug sönnunarbyrði verði ekki lögð
á skráða landeigendur eins og nú
hefur verið gert. Stjóm Landssam-
bands veiðifélaga skorar á stjórn-
völd og Alþingi að beita sér nú þeg-
ar fyrir því að framkvæmd laganna
nr. 58/1998 um þjóðlendur verði
breytt til samræmis við upphafleg-
an tilgang þeirra" segir orðrétt í
samþykkt félagsins.
HJ
Laufey og Þröstur tjjósinu á Stakkhamri.
Ljósm. Helgi Bjamason, Morgunblaðinu.
Kúabú á Vesturlandi í fararbroddi
Niðurstöður liggja nú fyrir úr
skýrsluhaldi nautgriparæktarinnar
árið 2006. Þær mótast að vonum
talsvert af hinu breytta framleiðslu-
umhverfi á árinu þar sem markað-
urinn kallaði eftir allri mjólk sem
hægt var að framleiða sem verður
að teljast mikil breyting frá ffarn-
leiðslutakmörkunum undangeng-
inna ára og áratuga. Þá fjölgar kúm
sem em skýrslufærðar yfir þústmd
frá árinu 2005, en talsvert yfir 90%
af allri mjólk í landinu kemur ffá
búum sem em í skýrsluhaldi. Þar
sem búum í mjólkurframleiðslu
fækkar með hverju ári stækka búin
hratt og taldi meðalbúið 33,3 ár-
skýr og hafði stækkað um það bil
um 10% ffá árinu áður.
Ymislegt nýtt og fróðlegt kemur
í ljós þegar rýnt er í tölurnar. I
fyrsta sinn skilar íslensk kýr ársaf-
urðum yfir 13 tonn, en það var kýr-
in Blúnda frá Helluvaði á Rangár-
völlum sem skilaði sem nemur
þrefalt hærri ársnyt en meðalkýr
skilaði hér á landi fyrir aðeins örfá-
um áram síðan. Meðalafurðir eftir
árskú á landinu era nú 5.383 kg af
mjólk og er það aukning um 102 kg
ffá árinu 2005. Efnahlutföll breyt-
ast á æskilegan hátt, fituhlutfall
lækkar lítillega en próteinhlutfall
mjólkur hækkar. Hver kýr ffam-
leiðir þannig 5 kg meira af verðefn-
um árið 2006 en árið áður.
Vestlensk afburðabú
Það vekur einnig athygli sá mikli
og góði árangur sem vestlensk kúa-
bú era að ná. A toppnum yfir af-
urðahæstu búin trónir bú þeirra
Laufeyjar Bjarnadóttur og Þrastar
Aðalbjarnarson á Stakkhamri á
Snæfellsnesi með samtals 7.896 kg.
meðalafurðir eftir kúnna. Þau
Laufey og Þröstur tóku fyrir
nokkram áram síðan við búi af for-
eldrum Laufeyjar og hafa byggt
upp og stækkað búið veralega. Þau
era bæði langskólagengin í búfjár-
ffæðum og hafa m.a. bæði starfað
sem ráðunautar.
í upphafi skyldi
endinn skoða
I samtali við Skessuhorn sagði
Laufey að mörgu bæri að þakka
þennan góða árangur. Þau hjón
hafa bæði góða undirstöðumennt-
un, era búffæðikandidatar og hafa
starfað sem ráðunautar. „Ég hef
einnig starfað við rannsóknir og
kennslu. A Möðravöllum var ég
meðal annars við rannsóknir á fóðr-
un mjólkurkúa og eins kenndi ég á
Hvanneyri. Við erum sammála um
það hjónin að við hefðum ekki
treyst okkur til að ná þessum ár-
angri strax eftdr skólagöngu, það er
nauðsynlegt að hafa reynsluna með.
Það skiptir ekki öllu máli hvemig
eða hvaðan námið er sótt, í form-
legum skóla eða lífinu, ef það kem-
ur að gagni. Við tókum hér við afar
góðu búi. Foreldrar mínir hafa
stundað markvissa ræktun svo efni-
viðurinn var til staðar. Við ákváðum
hinsvegar að stækka búið mjög
hratt með fáum gripum og hámarki
hjá hverri kú er ekki enn náð. I
upphafi skyldi einnig endinn skoða
og við undirbúum kúna ffá fæðingu
með markvissri fóðrun og um-
hyggju með tilliti til hlutverks
hennar síðar, þ.e. að mjólka mikið.
Afraksturinn getum við líklega
þakkað efhiviðnum sem var til stað-
ar, þekkingu okkar og reynslu.
Markmið okkar er að gera betur í
dag en í gær og við vonum að þessi
árangur hér verði hvatning fyrir
aðra bændur,“ sagði Laufey Bjarna-
dóttir að lokum.
I öðra sæti yfir afurðahæstu búin
á landinu er síðan kúabú Soffíu
Jónsdóttur á Efri Brunná, Saurbæ í
Dölum en þar mælist meðalnyt eft-
ir árskú 7.742 kg. Mælt í efhamagni
mjólkur era tvö efstu búin þau
sömu og era með mesta mjólkur-
magnið. Þetta era meiri meðalaf-
urðir á þessum tveimur efsm búum
en dæmi era um áður hér á landi.
Afburðakýr einnig
Þá era fleiri bú í landshlutanum
sem koma sér á spjöld sögunnar því
í magni talið era tvær kýr ffá bæj-
unum Kvennabrekku í Miðdölum
og Heggsstöðum í Andakíl sem era
í röðum afurðahæstu kúa hér á
landi. Þær kýr sem skipa sér í 5
efstu sætin með magn mjólkur era
þessar:
1. Blúnda 468, Helluvaði, Rangár-
völlum - 13.321 kg
2. Subba 33, Kvennabrekku, Mið-
dölum - 13.011 kg
3. 19 7, Stórumörk, Eyjafjöllum -
11.863 kg
4. Panda 12, Stóru-Mástungu,
Gnúpverjahreppi - 11.142 kg
3. Sól 82, Heggsstöðum, Andakíl -
11.039 kg
MM/BGK