Skessuhorn - 24.01.2007, Blaðsíða 8
8
MIÐVIKUDAGUR 24. JANÚAR 2007
akUavnuw:
Samningur Spalar og
Vegagerðarinnar flýtir framkvæmdum
Sjálfsagt hefur ekki hvarflað aS nokkrum manniþann ll.júlíárið 1998 að átta árum síðar variþað efst á haugi í umrœöunni ai
nauðsynlegt vœri að tvöfalda göngin vegna þess að þau 'önnuðu ekki lengur þeim fjölda híla sem þarfieri um. Slíkt er þó raunin . A
myndinni opnar Davíð Oddsson, þáverandi forsœtisráðherra göngin formlega. Hjá honum eruþeir Halldór Blöndal, þáv. samgönguráð-
herra og Gísli Gíslason, sljómarformaður Spalar.
í samkomulagi Spalar og Vega-
gerðarinnar sem undirritað var 9.
janúar sl. er gert ráð fyrir því að
veggjald verði innheimt til ársloka
2018 og verðgildi þess verði í meg-
indráttum svipað og það verður
efrir lækkun virðisaukaskatts þann
l. mars 2007. Samkvæmt sam-
komulaginu verður því hluta tekna
Spalar varið til undirbúnings tvö-
földunar hringvegarins á Kjalar-
nesi og tvöföldunar Hvalfjarðar-
ganga.
Samkomulagið
er í heild sinni
svohljóðandi:
Samkomulag um niðurstöður
viðræðna Vegagerðarinnar og
Spalar ehf. vegna tvöföldunar
Hringvegar á Kjalamesi og tvö-
földunar Hvalfjarðarganga.
1. Aðilar era sammála um nauð-
syn þess að bæta umferðarmann-
virki Hringvegar á Kjalarnesi og
fyrirsjáanlega þörf á aukinni af-
kastagetu Hvalfjarðarganga.
Nauðsynlegar framkvæmdir verði
m. a. til þess að auka umferðarör-
yggi. Eftirfarandi efnisatriði voru
lögð til grundvallar viðræðum að-
ila:
1. Tvöföldun Hringvegar á Kjal-
arnesi frá Kollafirði að Hvalfjarð-
argöngum.
ii. Hvalfjarðargöng tvöfölduð.
iii. Veggjald verði innheimt í
Hvalfjarðargöng í samræmi við
gildandi samninga við ríkið og
lánasamninga Spalar ehf. til árs-
loka 2018. Verðgildi gjaldsins
haldist í megindráttum frá því sem
það verður vorið 2007 efrir að
virðisaukaskattur lækkar.
2. Samkomulag er um að Spölur
ehf. ljúki að fullu greiðslu láns
vegna arðgreiðslna til Vegagerðar-
inar, sem nemur um 150 m.kr.,
þann 30. september 2007. Fé þessu
verði á árunum 2007 og 2008 var-
ið til undirbúnings vegna tvöföld-
unar Hringvegar á Kjalarnesi og
tvöföldunar Hvalfjarðarganga, t.d.
vegna skipulagsmála, til að fram-
kvæma umhverfismat vegna fyrr-
greinds vegar og gera umhverfis-
skýrslu vegna tvöföldunar gang-
anna, til nauðsynlegra landakaupa
vegna vegagerðar frá Kollafirði að
Hvalfjarðaraegamótum og eftir at-
vikum til hönnunar á hinum nýja
vegi. Jafnframt mun Vegagerðin
leggja fram a.m.k. 100 m.kr., á
þessum tveimur árum til þessara
verkefna.
3. Aðilar eru sammála um að
koma á fót samstarfsnefnd vegna
þessara framangreindra verkefna
þar sem farið verði yfir ffamgang
einstakra verkþátta og tilhögtm og
skoðtmum aðila komið á framfæri.
4. Aðilar eru sammála um að
ræða möguleika áframhaldandi
samstarfs, hvað þessum verkefnum
viðkemur, þegar efnisatriði sam-
kvæmt 2. tl hafa fengið eðlilegan
framgang.
Stjóm SSV fagnar
samningnum
Stjóm Samtaka sveitarfélaga á
Vesturlandi hefur samþykkt álykt-
un þar sem fagnað er samkomulagi
Spalar og Vegagerðarinnar um „að
tryggja fjármuni til að hefja undir-
búning að tvöföldun vegarins um
Kjalarnes og tvöföldtm Hvalfjarð-
arganga,“ eins og segir orðrétt í
ályktuninni. Þá segir að góðar
samgöngur séu forsenda framfara
mannlífs,
búsetuskil-
yrða og at-
vinnulífs á
Ve s t u r -
landi. Bent
er á að ffá
o p n u n
Hvalfjarð-
a r g a n g a
hafi umferð
um þau
fjórfaldast
og til þess
að mæta sífellt vaxandi umferð og
tryggja gott aðgengi til og frá
Vesturlandi, ásamt því að bæta um-
ferðaröryggi, sé tímabært að hefja
markvissan undirbúning þessara
mikilvægu verkefna.
Aðspurð hvort eðlilegt sé að
gjaldtaka komi til umræðu þegar
samgöngubætur á Vesturlandi
koma við sögu á sama tíma og rætt
er um tvöföldum Suðurlandsvegar
án beinnar gjaldtöku minnir Sig-
ríður Finsen, formaður stjórnar
SSV á að vegna gjaldtökunnar á
sínum tíma hafi tekist að ráðast
mun fyrr í framkvæmdir við Hval-
fjarðargöng. Því væri ekki óeðli-
legt að slíkt væri einnig til umræðu
nú. Lykilatriðið væri þó að með
þessum samningi væri málið kom-
ið í ákveðinn farveg.
Mótmæla veggjaldi
og vilja þjóðveg vestan
Akrafjalls
Gísli S Einarsson, bæjarstjóri á
Akranesi segir það að sjálfsögðu
fagnaðarefni að hreyfing skuli
komin á þessar bráðnauðsynlegu
framkvæmdir. Hins vegar sé stefn-
an skýr hvað veggjöldin varðar og
vísar þar til meirihlutasamkomulag
Sjálfstæðisflokksins og Frjálslynda
flokksins í bæjarstjórn þar sem seg-
ir að Akraneskaupstaður þrýsti á
um lækkun eða afnám veggjalds í
Hvalfjarðargöngum. Því mótmæli
bæjarráð Akraness því að áfram
skuli gert ráð fyrir því að greidd
verði veggjöld á þessari leið til
2018. Jafnframt segir Gísli að
Akraneskaupstaður muni leggja
þunga áherslu á, m.a. sem eignar-
aðili í Speli,
að tvöföld-
un Hval-
f j a r ð a r -
ganga og
vegagerð í
tengslum
við það
v e r ð i
skipulögð á
þann veg
að framtíð-
a r 1 e g a
þjóðvegar-
ins norður í land verði vestan
Akrafjalls. „Við leggjum þunga
áherslu á að nýr þjóðvegur verði
lagður utan Grunnfjarðar. Með því
verndum við best lífríki fjarðarins
því með núverandi legu vegarins er
lífríki hans í hættu ef slys verða.“
Engar skuldbindingar
um álögur
Gísli Gíslason, formaður stjórn-
ar Spalar segir enga skuldbindingu
felast í samkomulaginu um að
veggjöld verði greidd af notkun
hinna væntanlegu mannvirkja.
Hann segir að í núverandi samn-
ingum Spalar við ríkið og fjármála-
stofnanir sé gert ráð fyrir greiðslu
veggjalds til 2018 og því sé ekki
um neinar nýjar álögur að tefla.
„Þvert á móti liggur fyrir að
veggjaldið mun lækka þegar virðis-
aukaskattur lækkar 1. mars og í vor
verða einnig gerðar minniháttar
breytingar á gjaldskránni. Eina
breytingin sem nú verður er sú að
lán frá Vegagerðinni að fjárhæð
150 milljónir króna, sem Spölur
átti að greiða til baka 2018, greið-
ist á árinu 2007. I staðinn skuld-
b i n d u r
Vegagerðin
sig til þess
að nýta þá
fjármuni,
ásamt 100
milljónum
til viðbót-
ar, til þess
að hefja nú
þegar und-
irbúning
að tvöföld-
un þjóð-
vegarins frá Kollafirði að Hval-
fjarðargöngum og tvöföldun
þeirra. Því er í raun verið að hefja
nú þegar undirbúning fram-
kvæmda sem 82% lesenda Skessu-
horns töldu að ætti að vera for-
gangsverkefni í samgöngumálum.
Því miður var það verk ekki komið
á undirbúningsstig en verður það
nú með þessum samningi. Stjórn
Spalar hefur með afskiptum sínum
af málinu viljað tryggja að sam-
göngur á svæðinu verði sem ör-
uggastar fyrir vegfarendur og að á-
framhaldandi uppbygging sam-
göngumannvirkja tryggi áfram þá
jákvæðu þróun sem orðið hefur
eftir tilkomu Hvalfjarðarganga
milli Vesturlands og höfuðborgar-
svæðisins.“
Ríkið getur yfirtekið
reksturinn
Gísli segir ekki ljóst hvort þær
250 milljónir króna sem til ráð-
stöfunar eru til undirbúningsins
dugi né heldur hvort takist að ljúka
undirbúningnum árið 2008 en er
bjartsýnn á að svo verði. „Takist
það er ekkert því til fyrirstöðu að
framkvæmdum verði lokið á árun-
um 2011-2012. Ég trúi því að það
sé innan þeirra tímamarka sem
bjartsýnustu menn hafa þorað að
vona fram að þessu.“ Hann segir
að þrátt fyrir að nú sé undirbún-
ingur að framkvæmdum að hefjast
sé ekkert ákveðið með hvaða hætti
verði staðið að fjármögnun fram-
kvæmda en að samkomulagið gerir
ekki ráð fyrir nýrri gjaldtöku. „Til
þessa verks, sem væntanlega mun
kosta 6,5-7 milljarða króna, þarf að
koma fjármagn frá ríkinu en Spöl-
ur getur ef um semst aðstoðað við
heildarfjármögnun verksins. Von-
andi mun takast að afla þeirra fjár-
mtma þannig að framkvæmdir geti
hafist þegar undirbúningi lýkur.
Það er heldur ekkert því til fyrir-
stöðu að stjórnmálamenn taki þá
ákvörðun að yfirtaka rekstur Spal-
ar og hætta gjaldtöku í Hvalfjarð-
argöngum. Það er pólitísk ákvörð-
un sem ekki er á færi Spalar að
taka.“
Gísli segir að tvöföldtm Hval-
fjarðarganga muni liggja samsíða
núverandi göngum og komi því
upp á sama stað og nú. Því breytist
engar forsendur um framtíðarlegu
þjóðvegarins við tvöföldunina og
því alls ekki komið í veg fyrir vega-
gerð við Grunnafjörð verði sú leið
valin.
Ráðherra segir
samninginn flýta
framkvæmdum
Sturla Böðvarsson, samgöngu-
ráðherra segir í samtali við Skessu-
horn að með samkomulagi stjórnar
Spalar ehf. og Vegagerðinnar sé
verið að nýta reynslu og þekkingu
beggja aðila til þess að flýta undir-
búningi og framkvæmdum við tvö-
földun veg-
arins um
Kj alarnes
frá Kolla-
firði að
Hvalfjarð-
argöngum
og sömu-
leiðis tvö-
f ö 1 d u n
þeirra.
S t u r 1 a
segist hafa
fundað með
stjórnendum Spalar fýrir nokkru
síðan þar sem þeir hafi kynnt hug-
myndir sem flýtt gætu undirbún-
ingi framkvæmda. Hann hafi í
kjölfarið falið Vegagerðinni að
ræða við stjórn Spalar og þær við-
ræður hafi leitt af sér umrætt sam-
komulag. Þá segir hann að í sam-
komulaginu sé engin skuldbinding
um áframhaldandi gjaldtöku í
Hvalfjarðargöngum en minnir á að
samkvæmt núgildandi samningum
við fjármálastofnanir sé gert ráð
fyrir gjaldtöku til 2018.
Aðspurður hvort gert verði ráð
fyrir fjárveitingu til tvöföldunar
Hvalfjarðarganga við endurskoðun
núgildandi vegaáætlunar segir
Sturla svo ekki vera. Samkvæmt
samkomulaginu sé fjármögnun
undirbúnings framkvæmdanna
tryggð. Ekki sé hinsvegar tímabært
að hefja framkvæmdir við tvöföld-
un Hvalfjarðarganga nú og því bíði
ákvörðun um fjármögnum þeirra
endurskoðunar vegaáætlunar á ár-
inu 2009. Það sé í fullu samræmi
við þann tímaramma sem sam-
komulagið gerir ráð fyrir. Hins-
vegar muni framkvæmdir við veg
um Kjalarnes ekki bíða svo lengi
enda hafi fjármögnun til þeirra
ffamkvæmda þegar verið tryggð að
hluta.
HJ
Sigríður Finsen,
formaður stíómar SSK
Sturla Böðvarsson,
samgönguráðherra.