Morgunblaðið - 28.05.2019, Síða 1
Þ R I Ð J U D A G U R 2 8. M A Í 2 0 1 9
Stofnað 1913 124. tölublað 107. árgangur
250 BÖRN FÁ
SEND BOÐS-
KORT Á ÞING
NÝTA VEÐRIÐ
OG BYRJA
SLÁTT
NÝ SÝNING
UM LITLJU
HAFMEYJUNA
BÆNDUR HEFJA HEYSKAP 6 LEIKHÓPURINN LOTTA 28BARNAÞING 4
Ólíklegt er að meira en 260 milljónir
evra, jafnvirði 36 milljarða króna, fá-
ist upp í 500 milljóna evra lán, jafn-
virði 69,5 milljarða króna, sem Seðla-
banki Íslands veitti Kaupþingi 6.
október 2008 til að forða bankanum
frá gjaldþroti. Veð bankans í danska
FIH-bankanum hefur rýrnað sem
þessu nemur. Kom þetta fram í kynn-
ingu Más Guðmundssonar seðla-
bankastjóra á skýrslu um þrauta-
varalánið og sölu FIH.
Már telur mikilvægt að draga lær-
dóma af þessu máli og nefnir sérstak-
lega tvö atriði. Í
fyrsta lagi að
skýra þurfi betur
stjórnsýsluna við
veitingu lána til
þrautavara. Því er
svarað í frumvarpi
um Seðlabankann
sem liggur fyrir
Alþingi. Í öðru
lagi bendir hann á
að ekki sé heppilegt að taka sem veð
hlutabréf erlends banka þegar Seðla-
bankinn veitir lán til innlends banka.
„Það er alveg ljóst, eftir á að hyggja,
að það hefði verið betra að gera þetta
ekki. En er það fullkomlega óskiljan-
legt í ljósi aðstæðna? Mér virðist það
ekki,“ segir Már.
Már skýrir drátt á skilum skýrsl-
unnar meðal annars með auknu um-
fangi hennar, önnum starfsmanna
sem komu að samningum um sölu á
FIH og vinnu við að finna út úr því
um hvaða efnisatriði ætti að ríkja
trúnaður. Loks nefnir hann að gögn
bankans varðandi lánveitinguna séu
fátækleg. »11
Helmingur endurheimtist
Seðlabankinn var 4 ár að kanna lán og sölu FIH-bankans
Már Guðmundsson
Arnar Þór Ingólfsson
arnarth@mbl.is
Björgólfur Thor Björgólfsson, auð-
ugasti maður Íslands, tók þátt í
skuldafjárútboði WOW air sem lauk
18. september síðastliðinn og lagði
félaginu til þrjár milljónir evra í
gegnum félag sitt Reliquum.
Þetta er á meðal þess sem kemur
fram í nýrri bók Stefáns Einars
Stefánsson, viðskiptafréttastjóra
Morgunblaðsins, um ris og fall
WOW air, sem
kemur út í dag. Í
bókinni varpar
höfundur ljósi á
hverjir það voru
sem tóku þátt í
skuldafjárútboði
flugfélagsins og
segir gögn benda
sterklega til þess
að ríflega helm-
ingur þeirra 50,15 milljóna evra
sem flugfélagið náði að safna í út-
boðinu hafi fengist á þeim forsend-
um að skuldabréfakaupendur
myndu breyta skammtímaskuldum
flugfélagsins í langtímaskuldir, eins
og fram hefur komið í fjölmiðlum
að hafi verið gert í tilfelli Arion
banka.
Auk Arion banka og félags
Björgólfs Thors voru flugvélaleigu-
fyrirtækin Avalon og AirLease Cor-
poration, flugvélaframleiðandinn
Airbus, REA ehf., móðurfélag Air-
port Associates, og S9 ehf., félag
Margrétar Ásgeirsdóttur, fyrrver-
andi eiginkonu Skúla Mogensen, á
meðal þeirra fyrirtækja með við-
skiptatengsl við WOW air sem tóku
þátt í útboði félagsins. Þannig var
yfir helmingur þess fjár sem safn-
aðist í útboðinu frá einstaklingum
og fyrirtækjum sem stóðu flug-
félaginu og Skúla Mogensen stofn-
anda þess nærri, persónulega eða
vegna viðskiptahagsmuna.
Björgólfur keypti í útboði WOW
Gögn sögð benda til þess að helmingur þess sem safnaðist hafi farið í skuldir
MHulunni svipt af útboði... »10
Björgólfur Thor
Björgólfsson
Smáþjóðaleikarnir voru settir með glæsibrag í
gamla borgarhlutanum í Budva í Svartfjalla-
landi í gærkvöld. Þetta er í fyrsta sinn sem
Svartfjallaland er gestgjafi leikanna og aðeins í
fjórða sinn sem Svartfellingar taka þátt en leik-
arnir voru fyrst haldnir fyrir 24 árum.
Keppni á leikunum hefst í dag. Alls taka 120
íslenskir íþróttamenn þátt í leikunum í átta
keppnisgreinum. »25
Alls keppa 120 Íslendingar í átta íþróttagreinum
Ljósmynd/Montenegro2019.me
Svartfellingar eru gestgjafar Smáþjóðaleikanna í fyrsta sinn
Kaupverð nýs
Herjólfs verður
rúmlega 31 millj-
ón evra eða sem
svarar til 4,3
milljarða króna á
gengi dagsins,
eftir að Vega-
gerðin hefur fall-
ist á að greiða
rúmlega 200
milljónir til við-
bótar við umsamið kaupverð til
þess að leysa úr deilum við pólsku
skipasmíðastöðina. Samkomulag er
í burðarliðnum. Auk þess fellur
Vegagerðin frá kröfu um 280 millj-
ónir vegna tafa á afhendingu skips-
ins. Skipasmíðastöðin hafði krafðist
1,2 milljóna króna greiðslu til við-
bótar við umsamið verð. »6
Ferjan kostar 4,3
milljarða króna
Herjólfur Nýja ferj-
an er enn í Póllandi.
Blönduós, Dalvík, Hvolsvöllur og
Siglufjörður komu áberandi verst
út þegar skoðuð voru gögn frá und-
anförnum árum um umferðaróhöpp
og umferðarslys sem orðið höfðu á
þjóðvegum sem liggja í gegnum
þéttbýlisstaði. Óhappatíðnin þar
var ýmist mun hærri en meðal-
óhappatíðni fyrir alla þjóðvegi í
gegnum þéttbýli eða tíðnin hafði
hækkað síðastliðin ár.
Þetta kemur fram í nýrri skýrslu
sem EFLA verkfræðistofa vann fyr-
ir rannsóknarsjóð Vegagerð-
arinnar, Umferðaröryggi á þjóð-
vegum í þéttbýli. Þar er m.a. bent á
ýmsar mögulegar úrbætur og er
búið að gera sumar þeirra. »14
Morgunblaðið/Jón Sigurðsson
Blönduós Þjóðvegur 1 liggur í gegnum
þéttbýlið og á honum hafa orðið óhöpp.
Þjóðvegir í þéttbýli
geta valdið hættu
Sigurður Ingi Jóhannsson sam-
gönguráðherra vonast til þess að
starfshópur sem falið var að skoða
hugmyndir um að færa alþjóða-
flugvöllinn yfir í Hvassahraun skili
niðurstöðum innan nokkurra vikna.
Starfhópinn skipaði Sigurður Ingi
til þess að skoða eldri hugmyndir um
ávinning þess að alþjóðaflugvöllur
yrði staðsettur í Hvassahrauni og
huga að staðsetningu innanlands-
flugvallar á höfuðborgarsvæðinu.
Þegar niðurstaða starfshópsins ligg-
ur fyrir og fyrsta flugstefna Íslands
hefur litið dagsins ljós vonast Sig-
urður Ingi til þess að loks verði hægt
að bera saman epli og epli og taka
ákvarðanir í framhaldinu. »2
Aðstæður í Hvassa-
hrauni skoðaðar
Carbon Recycling International,
CRI, sem rekur metanólverksmiðju
í Svartsengi, stefnir að því að gera
samninga á næstunni um fleiri met-
anólverksmiðjur í Kína, í kjölfar
samninga um verksmiðju sem nú er
unnið að. Einnig er unnið að sam-
bærilegum verkefnum í Evrópu.
Stefnt er að því að hefja tvö ný
verkefni á ári.
Ætlunin er að ljúka samningum
um fyrstu verksmiðjuna í Kína í
sumar en hún er á vegum efnafram-
leiðandans Henan Shuncheng
Group. Hún mun geta unnið met-
anól úr vetni og koltvísýringi. Það
tekur um tvö ár að hanna verk-
smiðjuna og setja hana upp. »12
Stefna að tveimur
verksmiðjum á ári