Morgunblaðið - 28.05.2019, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 28.05.2019, Blaðsíða 26
26 ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 28. MAÍ 2019 Ásdís Hjálmsdóttir, Íslandsmethafi í spjótkasti, meiddist ekki alvarlega þegar hún varð að hætta við keppni á því sem átti að verða hennar fyrsta mót á árinu, í Noregi í síðustu viku. Ásdís fékk „sting“ í lærið í síðasta upphit- unarkasti sínu í Noregi og ákvað að hætta við keppni af þeim sökum. Nú er komin niðurstaða úr segulómun sem sýnir að engin rifa myndaðist í vöðva eða sin. Sennilega var því aðeins um sterkan krampa að ræða vegna kulda og meiðslin því ekki alvarleg. Ásdís ætlaði sér að vera meðal keppenda á Smáþjóða- leikunum í Svartfjallalandi sem settir voru í gærkvöld en til stóð að hún ferðaðist þangað í fyrradag: „Þá vissi ég ekki hvað þetta væri svo við ákváðum að taka enga sénsa og sleppa Smá- þjóðaleikunum. Það var líka óþarfa áhætta að keppa beint eftir þetta því þó að þetta hafi bara verið krampi þá er ekki sniðugt að fara beint í að kasta á fullu aftur,“ sagði Ásdís við mbl.is í gær. Hún mun fara varlega í sakirnar næstu daga en stefnir á að keppa á móti í Finnlandi 22. júní og gæti mögulega keppt á fleiri mótum fram að því, til að mynda móti í Sollentuna í Svíþjóð 18. júní. sport@mbl.is Meiðsli Ásdísar ekki alvarleg Ásdís Hjálmsdóttir 0:1 Barbára Sól Gísladóttir 33. 1:1 Elín Metta Jensen 34. 2:1 Elín Metta Jensen 44. 3:1 Elín Metta Jensen 81. 4:1 Guðrún K. Sigurðardóttir 89. I Gul spjöldElín Metta Jensen, Val, Cassie Boren, Selfossi, Þóra Jónsdóttir, Sel- fossi. VALUR – SELFOSS 4:1 I Rauð spjöldEkkert. MM Elín Metta Jensen (Val) M Margrét Lára Viðarsdóttir (Val) Hlín Eiríksdóttir (Val) Karítas Tómasdóttir (Selfossi) Dómari: Gunnar F. Róbertsson, 7. Áhorfendur: 205. HLÍÐARENDI/ÁRBÆR/ VESTMANNAEYJAR Edda Garðarsdóttir Jóhann Ingi Hafþórsson Þórður Yngvi Sigursveinsson Valsarar komu sér á topp Pepsi Max-deildar kvennaí knattspyrnu með 4:1 sigri á Selfyssingum í gær- kvöldi á Hlíðarenda. Gestirnir spiluðu ágætlega í byrj- un leiks, virtust vera til alls líklegir í skyndiáhlaupum sínum og litu ágætlega út í varnarleik sínum. Valsmenn héldu hinsvegar bolt- anum betur og voru, ef eitthvað er, of rólegir á boltann og leyfðu sér að sækja á ansi mörgum. Selfyssingar gæddu sér fyrstir á markasúpu kvöldsins eftir um hálftíma leik þegar Barbára lék listavel á varn- armenn Vals og smurði svo skoti vel upp í sammarann hjá Söndru, óverjandi. Knappt mínútu seinna var kraðak í vítateig eftir horn- spyrnu Hallberu og það var engin önnur en Elín Metta sem hirti hreyturnar þegar boltinn datt fyrir fætur hennar og hún þakkaði fyrir með snyrtilegu jöfnunarmarki. Elín Metta var svo aftur á ferðinni þegar hún hnaut um knöttinn er hún hljóp við hlið Cassie Lee og fékk um- deilda vítaspyrnu sem hún skoraði örugglega úr, mjúkt, ljúft og róandi fyrir heimamenn, sárt fyrir gestina. Seinni hálfleikur var eins og sóknaræfing Valsmanna. Gestirnir gengu á gufunum eftir klukkutíma leik, en fyrir þann tíma voru þeir ekki heldur sérlega ógnandi fram á við. Það hjálpaði ekki til að Vals- konur mættu tvíefldar til leiks út í seinni hálfleikinn, bættu í hraðann og áttu helmingi fleiri skottilraunir en í þeim fyrri. Elín Metta full- komnaði þrennuna með frábærri afgreiðslu eftir að Cassie Lee hitti ekki boltann í öftustu víglínu. Frá- bær frammistaða hjá Elínu Mettu, hennar allra besti leikur í sumar. Varamaðurinn Guðrún Karítas kór- ónaði yfirburði Vals með fjórða og síðasta markinu, þegar hún komst ein inn fyrir með allt of mikinn tíma og kláraði vel með föstu skoti. Sel- fyssingar þurfa fleiri leiðtoga ætli þær ekki að blanda sér í botnbar- áttuna, annað dugar a.m.k. ekki á móti stjörnum prýddu liði Vals. HK/Víkingur sneri taflinu við HK/Víkingur vann sterkan 2:1- útisigur á Fylki í Árbænum. Fylkir var með forystu í hálfleik, 1:0. Með skipulögðum varnarleik og sterk- um skyndisóknum tókst HK/ Víkingum hins vegar að snúa tafl- inu við í seinni hálfleik. Fyrri hálfleikurinn var kafla- skiptur. HK/Víkingur byrjaði vel, en eftir því sem leið á náði Fylkir betri tökum á leiknum. Fylk- iskonur fóru því með verðskuldað forskot í hálfleikinn. Heimakonur sváfu hins vegar á verðinum snemma í seinni hálfleik og HK/ Víkingi tókst að jafna metin. Þrátt fyrir þónokkur færi hjá Fylki, skoruðu gestirnir sigurmarkið eftir skyndisókn. Fylkisliðið er með spennandi unga leikmenn í sínum röðum og spilaði liðið oft fínan fótbolta í gær. Það vantar hins vegar markaskor- ara til að reka endahnút á góðar sóknir. Marija Radojicic spilaði vel í gær, en hún var samt sem áður ekki sérstaklega nálægt því að skora. Radojicic var drjúg í 1. deildinni á síðustu leiktíð, en hún virðist eiga erfitt með að taka skrefið í efstu deild, hvað markaskorun varðar. Stefanía Ragnarsdóttir komst hvað eftir annað upp hægri kantinn og átti fínar fyrirgjafir, en það vantaði framherja í réttu svæðin. Hulda Hrund Arnarsdóttir, lykil- maður í sóknarleik Fylkis, virðist ekki alveg vera heil heilsu og mun- ar um minna. Hún hefur gæði í að fara illa með varnarmenn, en hún hefur oft spilað betur en í gær og var tekin af velli í seinni hálfleik. Til að Fylkir vinni fótboltaleiki þarf hún að vera hættulegri fram á við. Hinum megin var Karólína Jack spræk og skoraði hún verðskuldað mark í seinni hálfleik. Fatma Kara er með mikil gæði og átti hún mjög stóran þátt í báðum mörkum HK/ Víkings. Þegar Kara tekur á rás og sækir á varnir andstæðinganna skapast oftast hætta. Bæði lið eru með sex stig eftir fimm leiki og virðast ætla að berj- ast fyrir tilverurétti sínum í efstu deild. Hvort þau nái því markmiði veldur mikið á leikjunum hvors við annað. Þessi úrslit gætu því haft mikið að segja þegar talið verður úr stigapokanum í lok sumars. Valur gefur ekki þuml- ung eftir  HK/Víkingur skellti Fylki í Árbæ og ÍBV vann stórsigur á Stjörnunni Mark Karólína Jack skorar fyrra mark HK/Víkings án þess að María Björg Fjölnisdóttir og Cecilia Rán Rúnarsdóttir mark- vörður fái rönd við reist.  Grindvíkingurinn Jón Axel Guð- mundsson er hættur við að gefa kost á sér í nýliðavali NBA-deildarinnar í körfuknattleik í júní og mun leika með Davidson næsta vetur sem verður hans síðasta tímabil í NCAA. Samherji hans Kellan Grady gerir slíkt hið sama og Davidson getur því stillt upp sama byrjunarliði næsta vetur og það gerði síðasta vetur.  Spánverjinn Raúl Rocha hefur ver- ið ráðinn þjálfari meistaraflokksliða karla og kvenna í blaki hjá Þrótti Nes- kaupstað fyrir næsta keppnistímabil. Rocha þekkir vel til hér á landi eftir að hafa þjálfað og leikið með liði Fjalla- byggðar keppnistímabilið 2017/18.  Landsliðsfólkið Elvar Örn Jóns- son og Perla Ruth Albertsdóttir voru valin leik- menn ársins hjá handknattleiks- deild Selfoss. Val þeirra var kynnt á lokahófi hand- knattleiksdeildar Selfoss á laugardag- inn.  Sarunas Marciulionis, sem gerði það gott í NBA-deildinni í körfuknatt- leik á tíunda áratugnum, er orðinn þingmaður á Evrópuþinginu. Fékk hann brautargengi í Evrópukosning- unum síðasta sunnudag og hlaut 32.591 atkvæði. Marciulionis er Lithái og var lykilmaður í liði Litháen sem fékk bronsverðlaun á Ólympíuleikum eftir sjálfstæðið, bæði 1992 og 1996. Áður vann hann ólympíugull með Sov- étríkjunum árið 1988. Í NBA var hann þekktastur fyrir framgöngu sína með Golden State Warriors á árunum 1989-1994. Eitt ogannað

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.