Morgunblaðið - 28.05.2019, Blaðsíða 22
22 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 28. MAÍ 2019
ENGINN
ÐBÆTTUR SYKUR
ENGIN
ROTVARNAREFNI
85%
TÓMATPÚRRA
VI
50 ára Þórunn er úr
Fossvoginum í
Reykjavík en býr í
Kópavogi. Hún er
klínískur lyfjafræð-
ingur á Landspít-
alanum og klínískur
lektor við HÍ. Hún er
fyrrverandi landsliðskona í sundi.
Dóttir: Rebekka Ýr Guðbjörnsdóttir, f.
1999.
Foreldrar: Guðmundur Harðarson, f.
1946, íþróttafræðingur og fv. sund-
þjálfari og landsliðsþjálfari, og Ragna
María Ragnarsdóttir, f. 1948. Þau eru
eigendur sundverslunarinnar Aqua
Sport. Móðir Rögnu Maríu var María,
elsta barn nóbelsskáldsins Halldórs
Laxness.
Þórunn Kristín
Guðmundsdóttir
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Það getur verið tilbreyting í því að
kynnast fólki utan þess hrings sem þú
venjulega umgengst. Láttu þig dreyma um
betri tíð og sá draumur mun rætast.
20. apríl - 20. maí
Naut Nú verður þú að axla þá ábyrgð sem
þú hefur tekið að þér. Ekki sofna á verð-
inum, reyndu að halda í horfinu heima fyr-
ir.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Hvað sem þú tekur þér fyrir
hendur í dag skaltu leyfa öðrum að hjálpa
til. Þú gefur vandamálum þínum ekki mik-
inn gaum og þess vegna hverfa þau.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Verslun og viðskipti eru viðfangs-
efni dagsins. Gefðu þér tíma til að slaka á
og njóta lífsins líka. Mörg ferðalög eru í
farvatninu.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Taktu málin í þínar hendur og rann-
sakaðu þau ofan í kjölinn. Leyfið börn-
unum að taka þátt í heimilishaldinu.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Alvarlegt samtal við nágranna mun
skila betri samvinnu. Vertu með svör á
takteinum þegar ungviðið spyr einhvers
23. sept. - 22. okt.
Vog Það að hafa trú á sjálfum sér er frá-
bær tilfinning, æfðu þig. Hjón vinna sig út
úr áskorunum með því að taka höndum
saman.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Treystu hugboðum sem þú
færð í dag. Einbeittu þér að þeim verk-
efnum sem fyrir liggja og þá sjá aðrir þínar
bestu hliðar.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Vertu þér meðvitandi um það
sem fær þig til þess að fara í vörn í dag.
Kannski finnst þér þú ekkert heppin/n
manneskja en það ertu ef þú skoðar málið
betur.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Ritgerðin er í höfn og útskriftin
fram undan, þú átt skilið að skemmta þér.
Haustið verður skemmtilegt, þú færð til-
boð sem þú ættir að íhuga alvarlega.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Þú ert svo kappsfull/ur að þér
hættir til að sýna öðrum óþolinmæði sem
vinna hægar.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Þú hefur þörf fyrir að drottna yfir
öðrum og ert leiðtogi frá náttúrunnar
hendi. Engu að síður verðurðu að sýna að
þú sért starfinu vaxin/n.
Fjölskylda
Eiginkona Helga er Birna Páls-
dóttir, f. 30.5. 1953, fyrrverandi
flugfreyja og skrifstofumaður. For-
eldrar hennar voru hjónin Páll H.
Pálsson, f. 24.11. 1920, d. 6.8. 2008,
stórkaupmaður í Reykjavík, og
Bryndís Guðmundsdóttir, f. 16.7.
1920, d. 26.4. 2009, húsmóðir.
Börn Helga og Birnu eru: 1)
Bryndís, f. 16.4. 1977, starfar í
sins og síðar í stjórn Hönnunar-
safns Íslands í Garðabæ, eftir að
hann flutti þangað.
Síðan Helgi komst á eftirlauna-
aldur hefur hann sinnt baráttu
eldra fólks fyrir mannsæmandi
ævikvöldi. Hann er einn stofnenda
Gráa hersins og ritstýrir heimasíðu
og facebooksíðu baráttuhópsins.
Helgi vinnur að myndlist í hjáverk-
um, en þau hjón fluttu til Horsens
á Jótlandi fyrir tveimur árum.
H
elgi Pétursson fæddist
í Reykjavík 28. maí
1949 en ólst upp í
Kópavogi þar sem
hann bjó fram yfir
tvítugt.
Helgi lauk kennaraprófi frá
Kennaraskóla Íslands vorið 1970 og
kenndi við Þinghólsskóla í Kópavogi
fram á árið 1974. Helgi lauk einnig
BA-prófi í fjölmiðlun frá American
University í Washington DC árið
1983.
Á þessum árum var vegur Ríó
tríósins hvað mestur, en Helgi gekk
til liðs við þá Ólaf Þórðarson og
Halldór Fannar árið 1966. Síðar
kom Ágúst Atlason til skjalanna.
Fyrsta plata þeirra félaga kom út
árið 1967 en síðan varð ferillinn nán-
ast óslitinn til 2011 þegar Ólafur
lést.
Ríóið starfaði í 50 ár og lék víðs
vegar hérlendis og erlendis.
Hljómplötur þeirra urðu á þriðja
tug, þeir gerðu fjölda sjónvarps-
þátta og tónleikaraðir þeirra gengu
fyrir fullu húsi mánuðum saman.
Nánir samstarfsmenn þeirra voru
alla tíð þeir Jónas Friðrik Guðna-
son, Gunnar Þórðarson, Björn
Thoroddsen og Magnús R. Ein-
arsson.
Frá árinu 1975 starfaði Helgi við
fjölmiðlun og markaðsmál. Hann
var ráðinn blaðamaður á nýstofn-
uðu Dagblaði og starfaði síðan sem
fréttamaður á Ríkisútvarpinu, á
Stöð tvö, ritstjóri Vikunnar og NT,
markaðsstjóri Samvinnuferða-
Landsýnar og vefstjóri hjá Orku-
veitu Reykjavíkur.
Helgi tók þátt í stofnun R-listans
í Reykjavík og var borgarfulltrúi
listans. Hann átti sæti í fjölda
nefnda og ráða, sérstaklega á sviði
ferðamála og margvíslegra menn-
ingarmála. Hann var formaður
ferðamálanefndar, sat í ferðamála-
ráði, menningarmálanefnd, um-
hverfisnefnd, samgöngunefnd og
var formaður nefndar sem skilaði
fyrstu stefnu Reykjavíkurborgar
um ferðaþjónustu. Helgi átti sæti í
borgarráði, stjórn Sorpu, Efna-
móttökunnar, Aflvaka, Innkaupa-
stofnunar, í stjórn Sjóminjasafn-
starfsmannahaldi skattaráðuneytis
Danmerkur í Horsens. Eiginmaður
hennar er Martin Sövang Dietlev-
sen, stjórnmálafræðingur frá Há-
skóla Íslands og kapteinn í danska
hernum. Börn þeirra eru Símon
Karl, Emma Birna og Kristian
Helgi; 2) Pétur, f. 26.9. 1978, stoð-
tækjafræðingur hjá Össuri, kvænt-
ur Brynhildi Örnu Jónsdóttur
þroskaþjálfa hjá velferðarsviði
Reykjavíkurborgar. Börn þeirra eru
Helgi Pétursson, tónlistarmaður og fyrrverandi borgarfulltrúi – 70 ára
Fjölskyldan Helgi og Birna ásamt börnum, mökum þeirra og barnabörnum að undanskildu yngsta barnabarninu,
Eddu Kristínu Snorradóttur, sem var ófædd þegar myndin var tekin.
Á skilið það lof sem hann fær
Ríó tríó Með Ólafi, Ágústi og Helga á myndinni eru Björn Thoroddsen og
Gunnar Þórðarson sem voru nánir samstarfsmenn Ríó tríósins.
Hjónin Helgi og Birna fluttu til
Horsens fyrir tveimur árum.
40 ára Edda ólst upp
í Hafnarnesi í Horna-
firði en býr í Reykja-
vík. Hún er hársnyrtir
á rakarastofunni Re-
bel og sminka í Þjóð-
leikhúsinu. Hún er að
læra svifflug.
Börn: Jóhanna Freyja Stefánsdóttir, f.
2008, og Sigurjón Felix Stefánsson, f.
2010.
Foreldrar: Þórarinn Sigvaldason, f.
1953, matráður í Seljahlíð, og Jóhanna
Jóhannesdóttir, f. 1959, vinnur í félags-
heimilinu Hvassaleiti. Þau eru búsett í
Reykjavík. Móðir Þórarins var Erla, dóttir
Guðnýjar Richter tónlistarmanns sem
lék m.a. á píanó í Þjóðleikhúsinu í fjölda
ára.
Friðrikka Edda
Þórarinsdóttir
Til hamingju með daginn
Reykjavík Nökkvi Brynjólfur Gíslason
fæddist 7. september 2018 kl. 7.06.
Hann vó 3.920 g og var 53 cm langur.
Foreldrar hans eru Unnur Kristín
Brynjólfsdóttir og Gísli Örn Jónsson.
Nýr borgari