Morgunblaðið - 28.05.2019, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 28.05.2019, Blaðsíða 11
FRÉTTIR 11Innlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 28. MAÍ 2019 Bæjarlind 6 | sími 554 7030 Við erum á facebook Kr. 7.900 Str. 36-52 Fleiri litir Buxur Sigurður Ægisson Siglufirði Þessa dagana er verið að skipta um perur í styttri Héðinsfjarðar- göngunum, þ.e.a.s. þeim sem ná frá Siglufirði og yfir í Héðinsfjörð og eru 3,9 km löng. Lýsingin hef- ur til þessa verið lágþrýst natríum NaL sem gefur gul ljós en nýtir hins vegar rafmagn vel. LED- perurnar sem verið er að setja í staðinn nýta rafmagn enn betur, að sögn Gísla Eiríkssonar, for- stöðumanns hjá Vegagerðinni. „Nú er svo komið að það er um það bil verið að hætta að fram- leiða svona perur eins og við höf- um verið að nota og banna þær, í Evrópu a.m.k. Vegagerðin á um 40 km af slíkri lýsingu í göngum sem þarf eitthvað að breyta. Það er víst mikið til af svona ljósum í heiminum og það er farið að fram- leiða LED-perur sem passa í þau. Vegagerðin setur þessar perur upp í styttri göngum í Héðinsfirði til prufu, um 220 ljós. Það þarf að skipta um ákveðinn búnað í ljós- inu, taka „startarann“ fyrir NaL- peruna og setja einhvern „driver“ sem hentar LED-perunni,“sagði Gísli. Skipt um perur í Héðinsfjarðargöngum Morgunblaðið/Sigurður Ægisson Þorsteinn Ásgrímsson Gunnlaugur Snær Ólafsson Freyr Bjarnason Már Guðmundsson seðlabankastjóri kynnti í gær skýrslu bankans um þrautavaralán sem veitt var bank- anum Kaupþingi sjötta október 2008. Var bankanum veitt 500 millj- óna evra lán, jafvirði 69,5 milljarða króna á núgildandi gengi, til þess að bjarga bankanum frá gjaldþroti. Fékk Seðlabankinn að veði eignar- hlut Kaupþings í FIH-bankanum í Danmörku. Sagði Már ólíklegt að meira en 260 milljónir evra, jafnvirði 36 milljarða króna, sem þegar hafa fengist, muni verða innheimtar vegna lánsins. Hann sagði einnig mikilvægt að draga lærdóm af reynslunni um þrautavaralán sem Seðlabankinn veitti Kaupþingi rétt fyrir fall bank- ans. Í fyrsta lagi þurfi að skýra stjórnsýslu í kringum veitingu lána til þrautavara betur og í öðru lagi að draga þann lærdóm að veð í hlutafé erlends banka sé ekki heppilegt þeg- ar veitt er lán til innlendra banka. „Það er alveg ljóst, eftir á að hyggja, að það hefði verið betra að gera þetta ekki. En er það fullkomlega óskiljanlegt í ljósi aðstæðna? Mér virðist ekki,“ var haft eftir Má á mbl.is í gær. Skýrslunnar hefur verið beðið í um fjögur ár og sagði Már að fyrst um sinn hefði verið gert ráð fyrir að gerð yrði skýrsla um sölu FIH- bankans, en að umfang hennar hefði stækkað í kjölfar þess að forsætis- ráðherra hefði í nóvember á síðasta ári óskað eftir því að Seðlabankinn myndi afla upplýsinga um það hvernig lánsfénu hefði verið ráðstaf- að. Jafnframt hefði tekið tíma að „samræma efni og breyta vegna nýrra upplýsinga eða til að leysa vandamál varðandi trúnaðarskyldu“. Reyndu að selja strax Fljótlega eftir fall Kaupþings reyndi Seðlabankinn að koma hlut sínum í FIH-bankanum í sölu. Sýndu fjórir bankanum áhuga, en aðeins eitt formlegt tilboð barst. Þá vildi Skandinaviska Enskilda Ban- ken (SEB) í Svíþjóð aðeins hluta reksturs FIH, sem sneri að hefð- bundinni lánastarfsemi og fyrir- tækjaráðgjöf. „Seðlabankinn og slitabú Kaupþings vildu selja FIH í heilu lagi og því var tilboði SEB hafnað.“ Þá segir í skýrslunni að söluferlið hafi fjarað út. FIH-bankinn var seldur árið 2010 „undir miklum þrýstingi frá dönsk- um stjórnvöldum,“ að því er segir í skýrslunni. „Þrátt fyrir að Finan- stilsynet hefði á annað ár sýnt hinu óbeina eignarhaldi Seðlabankans á FIH skilning þá mat Seðlabankinn það á þessum tíma að þolinmæði danskra stjórnvalda væri að þverra.“ Voru áætlanir um framtíð og fjármögnun FIH ekki taldar nægilega sannfærandi. „Þá var aug- ljóst að dönskum stjórnvöldum var mest í mun að vernda danska hags- muni en ekki íslenska og að þau myndu ekki víla fyrir sér að grípa til aðgerða um leið og þau teldu þörf á.“ Engin skilyrði Fram kemur í skýrslu Seðlabank- ans að ekki liggi fyrir nein gögn sem túlka megi sem beiðni um lán frá Kaupþingi, jafnframt var engin skrifleg samþykkt gerð um veitingu lánsins. „Það var tekin ákvörðun um að veita lán, annars hefði ég ekki framkvæmt veðsetninguna. En þetta voru ótrúlegir tímar og það brann allt í kringum mann,“ segir Sigríður Logadóttir, yfirlögfræðing- ur Seðlabanka Íslands, þegar hún er spurð út í skort á gögnum um lán- veitinguna. „Af hálfu Seðlabankans voru Kaupþingi engin skilyrði sett fyrir ráðstöfun lánsfjárhæðarinnar. Hún bættist því við laust fé bankans 6. október 2008 sem hann ráðstafaði samkvæmt eigin ákvörðunum. Í Seðlabankanum var engar upplýs- ingar að finna um ráðstöfun lánsfjár- ins,“ segir í skýrslunni. Í skýrslunni er rakin rúm heimild Seðlabankans til þess að veita lán til þrautavara og er vísað til ákvæðis laga um Seðlabanka Íslands frá 2001. Hinsvegar er þar vísað til þess að Seðlabankinn hafi heimild til þess að setja skilyrði fyrir þrautavara- lánum eftir eigin ákvörðun. Spurður hvort bankinn hefði betur sett slík skilyrði þar sem löggjafinn hafi árið 2001 gert ráð fyrir heimild til þess, segir hann ákvæði laga ekki fyrst og fremst snúa að skilyrðum er varða ráðstöfun lánsins heldur hvort banki sé í lausafjárvanda. „Auðvitað mætti alveg hugsa sér það, þegar banki fer fram á slíkt [þrautavaralán], að hann verði látinn sýna fram á það hvernig lánveitingin nýtist til þess að komast í gegnum þennan skafl sem hann stendur frammi fyrir.“ Skoðuðu ekki saknæmi „Aðrir gætu náttúrlega sagt að það var líka að koma þarna inn ann- að fé, 698 [milljónir evra]. Í hvað var það nýtt? Það var þarna útstreymi á öðrum liðum eins og gjaldeyrisvið- skiptum og við vitum ekkert ná- kvæmlega hvað var á bak við það en það ætti að vera eðlilegt að líta þann- ig á að ef þeir sem voru að rannsaka þessi mál töldu eitthvað óeðlilegt þá hefðu þeir átt að skoða það og kannski var það gert,“ segir Már. Hann segir Seðlabankann ekki hafa skoðað annað en það sem sneri að ákvörðunum bankans og var því ekki tekið til skoðunar hvort eitt- hvert saknæmt athæfi hefði átt sér stað við ráðstöfun þess fjár sem lán- að var Kaupþingi. „Ef þú ert að tala um saknæmi þá ertu að fara að tala um einhverja einstaklinga og við eig- um enga lögsögu í því. Það er bara annarra að véla um það en ég get sagt að það var ekkert sem maður hnaut um.“ „Aðalatriðið í þessu er að við hugsum aðeins og drögum lærdóma inn í framtíðina varðandi hvernig á að standa að svona málum í framtíð- inni. Auðvitað er það svo að við erum búin að tapa 240 milljónum evra, svona líklegast, og það er ekki gott,“ segir seðlabankastjóri. Upplýsa um Kaupþingslánið  Þrautavaralán sem SÍ veitti Kaupþingi 2008 rakið í nýrri skýrslu  Engin skilyrði voru sett um ráð- stöfun lánsfjárins  Seðlabankastjóri segir að eftir á að hyggja hefði verið betra að veita ekki lánið Morgunblaðið/Hari Uppgjör Már Guðmundsson seðlabankastjóri kynnti í gær skýrslu bankans um þrautavaralán sem veitt var Kaup- þingi haustið 2008. Hann sagði ekki gott að bankinn hefði tapað 240 milljónum evra á lánveitingunni. Þrautavaralán Seðlabankans til Kaupþings Allar upphæðir eru í milljónum evra Staðan á reikningi Kaupþings í upphafi dags 6. október 2008 -387 Lán Seðlabankans til Kaupþings, greitt inn á reikning bankans 6. október 500 Aðrar inngreiðslur á reikninginn 698 Útgreiðslur af evrureikningi Kaupþings frá þeim tímapunkti Útgreiðslur til innstæðueigenda í Kaupþing EDGE 225 Greiðsla til norræns seðlabanka 170 Greiðsla til tveggja erlendra félaga vegna útgáfu CLN skuldabréfa. 50 Greiðsla vegna veðkalls í tengslum við endurkaupasamning til tveggja evrópskra banka 47 Greiðslur vegna gjaldeyrisviðskipta 203 Smágreiðslur (lægri en 10 milljónir evra), 4–500 talsins, í heild 114,5 Samtals útgreiðslur af evrureikningi félagsins til dagsloka 8. október 2008 810 Staðan á reikningi félagsins í dagslok 0,6 Boðað hefur verið til sáttafunda í þremur kjaradeilum hjá ríkis- sáttasemjara í vikunni. Í dag á að fara fram sáttafundur í deilu Mjólkurfræðingafélags Íslands og Samtaka atvinnulífsins en henni var vísað til sáttameðferðar um miðjan mars sl. Á morgun er svo boðað til sátta- fundar í kjaradeilu flugumferðar- stjóra og Samtaka atvinnulífsins fyr- ir hönd Isavia en því máli var vísað til ríkissáttasemjara um miðjan apríl sl. Og á föstudaginn stendur til að haldinn verði sáttafundur í kjara- deilu Flugfreyjufélags Íslands og Samtaka atvinnulífsins fyrir hönd Icelandair, sem vísað var til sátta- semjara 8. apríl. Morgunblaðið/Golli Sáttaumleitanir Nokkrar kjaradeil- ur eru í höndum ríkissáttasemjara. Sáttafundir í þremur deilum

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.