Morgunblaðið - 28.05.2019, Side 14

Morgunblaðið - 28.05.2019, Side 14
14 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 28. MAÍ 2019 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Aldrei þessuvant varnokkur spenna í kringum kosningar til ESB- þingsins. Þess vegna varð þátt- taka í kosningunum ívið meiri nú en endranær. Kjósendur til ESB-þings verða ekkert varir við þá sem hljóta kosningu eftir að þeir hafa pakkað golfkylfunum og tekið fram matseðlana. Af þessum 751 þingmanni þá hefur það helst verið Nigel Farage sem náð hefur athygli þegar hann hefur leikið sér dálítið að æðstu- strumpum búrokrata á þeim tveimur mínútum sem hann fær úthlutaðar til andsvara. Búró- kratar telja brexit vera niður- lægingu fyrir sig og ögrun við glæstar vonir um nýtt ofurríki sem þeir eru ákveðnir í að koma á og jafn staðfastir í að segja að það standi ekki til. Eina hugg- unin var að með útgöngu Breta losnuðu þeir við óþægindin Ni- gel Farage. Theresa May, sem hafði greitt atkvæði gegn útgöngu Breta, fékk þakklæti í öfugu hlutfalli frá þeim í Brussel. Þeir léku hana svo grátt að ömurlegt var að sjá þær aðfarir. Hún hættir sem leiðtogi eftir 10 daga og seinustu kosningar undir hennar merki liggja fyrir. Flokkurinn, annar af höfuð- flokkum í landinu um langa hríð, lenti í 5. sæti á landsvísu, á eftir Brexitflokknum, Frjáls- lyndum, Græningjum og Verka- mannaflokki með 9% at- kvæðanna. Nýfæddur flokkur Farage var með um 32% fylgi, sem var í átt að fjórföldu fylgi þessa höfuðflokks breskra stjórnmála. Þegar kjósendur höfðu sagt sitt var komið að fréttaskýr- endum. Þeir voru fjarri því að vera jafnvel með á nótunum og kjósendur. En flokkshestar virtust á hinn bóginn breyttir menn. Jafnvel þeir sem höfðu elt frú May út að jaðri eyðimerk- urinnar, og jafnvel þreytt eyði- merkurgönguna með henni allt þar til sandurinn hafði fyllt öll vit, virtust hafa fengið slíkt högg á talningarnótt að sand- storkin augun sáu loks ljósið. Nú, segja þeir flestir, verðum við ekki aðeins að lofa því að tryggja útgönguna úr ESB heldur líka að efna það. Þetta eru því gjörbeyttir menn. Þá skynja allir að loforðið beinist nú að okkur sjálfum svo að lík- urnar á efndum hafa breyst verulega. Verkefni Íhalds- flokksins, það eina og það lang- mikilvægasta (svo notast sé við skilgreiningar May), er að kannast loks við fyrir hvað flokkurinn stendur. Hann verð- ur að kannast við sjálfan sig á nýjan leik. Á þetta augljósa, sem áður var hulið, benda þeir nú hver af öðr- um forystumenn flokksins sem setti hrakfarametið í þessum kosn- ingum. Boris Johnson, sem enn er talinn líklegasti framtíðar- leiðtoginn, segir „að hirting þjóðarinnar á flokknum hafi verið einstaklega harkaleg“. Og hann bætir við að bregðist flokkurinn ekki rétt við, og þekki sjálfan sig á ný, þá séu kjósendur líklegir til að setja hann varanlega til hliðar. Í þessum orðum felst það sem margir höfðu kosið að gleyma, að kjósendur höfðu ákveðið útgöngu og treystu því að ekki yrði reynt að eyðileggja þá ákvörðun með klækjum. Í þróuðu lýðræðisríki mátti einn- ig vera ljóst að þeir sem urðu undir voru flestir heilir í því líka og byggðu á því að niður- staða harðsnúinna kosninga yrði virt í hvívetna. Embætt- ismenn frú May, í þéttu sam- ráði við valdamenn í Brussel, leiddu hana út á leið glötunar- innar. Þeir sögðu að þegar þjóð væri svo klofin yrði að finna „málamiðlun“. Hefðu þeir sem vildu vera kyrrir í ESB unnið með 52% gegn 48%, hvað hefði þá gerst? Dettur einhverjum í hug að embættismenn hefðu krafist þess að fá að gera mála- miðlun við þau 48% sem töpuðu og sjá til þess að þrátt fyrir úr- slitin myndu Bretar fara hálfa leiðina út? Það er örugglega rétt hjá Johnson að daginn sem nýr for- sætisráðherra tekur við af þeim sem kom Íhaldsflokknum niður í 9% atkvæða þarf að tilkynna að Bretland fari úr ESB þann 31. október nk. Liggi þá fyrir boðlegt samkomulag við Bruss- el um tæknileg úrlausnarefni þá er það prýðilegt. Vanti slíka pappíra úr skrifræðinu, þá það. Ekkert til að gera veður út af. Hugsanleg vandamál yrðu þá leyst frá degi til dags. Hvernig datt mönnum í hug að láta Berlínarmúrinn hrynja öllum á óvart án þess að hafa 2.000 síðna skýrslu undirritaða af öllum aðilum um hvernig ætti að klofa yfir hann? Eða þá að sjá á bak sovétóhugnaðinum öllum án þess að hafa slíka skýrslu í fórum sínum. Hefði Brussel ráðið hefði niðurstaðan sjálfsagt orðið sú að illskárra væri að hafa sov- étið áfram með öllu sínu gúlagi, stóru og smáu, en ekki „kasta sér fram af brúninni“ (eins og er sagt nú) án útgöngusamn- ings. Almenningur lýsti frati á svona stjórnmálamenn. Og það ekki í seinasta skipti. Ekki er talið útilokað að rothöggið í ESB- kosningunum dugi til að rétta ruglaða stjórnmálamenn af} Djarfar fyrir degi nýjum Þ að var ánægjulegt að sjá hversu margir tóku þátt í því að fagna 90 ára afmæli Sjálfstæðisflokksins í blíðskaparveðri um allt land um liðna helgi. Það, hversu margir gáfu sér tíma til að fagna þessum merkilega áfanga, gefur glögga mynd af stöðu Sjálfstæð- isflokksins sem hefur alltaf átt erindi við þjóð- ina, allt frá stofnun til dagsins í dag. Á þeim tíma hefur flokkurinn átt hvað mestan þátt í uppbyggingu þessa samfélags sem við búum við í dag, hvort sem litið er til velferðarmála, utanríkismála eða alþjóðasamstarfs, mannrétt- inda, menntamála, atvinnu- og nýsköpunar og áfram má telja. Sjálfstæðisflokkurinn hefur alltaf lagt áherslu á grunngildi um frelsi einstaklingsins til orða og athafna, minni ríkisafskipti, frjáls viðskipti, lægri skatta og öflugt atvinnulíf. Þessi atriði áttu, eiga enn og munu áfram eiga erindi við almenning, þá sérstaklega þar sem sífellt er gerð krafa um hærri skatta, aukin útgjöld og aðra útþenslu hins opin- bera. Saga flokksins er góð og merkileg. Á sama tíma og við lítum yfir farinn veg er ekki síður mikilvægt að líta til framtíðar. Það er það sem mun gera Sjálfstæðisflokkinn áfram að stærsta hreyfiafli íslenskra stjórnmála; hvetja nýtt fólk til starfa innan flokksins og gera sjálfstæðismenn stolta af því að tilheyra þessum stærsta stjórnmálaflokki landsins. Rétt er það sem áður hefur verið haldið fram í þessu blaði að uppfinningamenn hafa lengi reynt að finna upp eilífðarvélina og ekki tekist. Því er mikilvægt að festast ekki í fortíð- inni, heldur þróast í takt við nýja tíma og leiða þær óumflýjanlegu breytingar sem framtíðin mun hafa með sér fremur en að óttast þær. Við tökumst á við framtíðina með opnum hug en stöndum vörð um grunngildin sem eiga jafn mikið upp á pallborðið árið 2019 og árið 1929. Það er ekki hlutverk Sjálfstæðisflokks- ins að standa vörð um úreltar hugmyndir sem þóttu einu sinni góðar. Við gerum greinarmun á grunngildum og einstaka stefnumálum eða úrræðum sem einu sinni virkuðu. Um leið og við berum virðingu fyrir sögunni er mikilvægt að við mótum framtíðina. Styrkleiki Sjálfstæðisflokksins hefur í gegn- um tíðina verið sú mikla breidd af fólki sem bæði styður og starfar í flokknum, fólk á öllum aldri og úti um allt land. Innan flokksins ríkja ólík sjónarmið um ýmis mál en stefnan stendur á traustum grunni. Í krafti fjöldans býr flokkurinn að mikilvægri reynslu þeirra sem hafa verið lengi í stjórnmálum um leið og ungt og hæfi- leikaríkt fólk haslar sér völl. Hvort tveggja er forsenda þess að flokkurinn vaxi og dafni. aslaugs@althingi.is Áslaug Arna Sigurbjörns- dóttir Pistill Flokkur sem á sér framtíð Höfundur er formaður utanríkismálanefndar og ritari Sjálfstæðisflokksins. STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjóri: Davíð Oddsson Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Ritstjóri og framkvæmdastjóri: Haraldur Johannessen FRÉTTASKÝRING Guðni Einarsson gudni@mbl.is Blönduós, Dalvík, Hvols-völlur og Siglufjörðurkomu áberandi verst útþegar skoðuð voru gögn frá undanförnum árum um umferð- aróhöpp og umferðarslys sem orðið höfðu á þjóðvegum sem liggja í gegn- um þéttbýlisstaði. Óhappatíðnin þar var ýmist mun hærri en meðal- óhappatíðni fyrir alla þjóðvegi í gegnum þéttbýli eða tíðnin hafði hækkað síðastliðin ár. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu sem unnin var fyrir rannsóknarsjóð Vegagerð- arinnar (sjá fylgigrein). Þjóðvegir liggja í gegnum þó- nokkra þéttbýlisstaði og eru þeir oft mikilvægir samgönguásar fyrir inn- anbæjarumferð á viðkomandi stöð- um. Umferð á þjóðvegum landsins, einkum þjóðvegi 1, hefur aukist mik- ið á undanförnum árum. Þannig jókst umferð á þjóðvegum um allt að 20% frá árinu 2008 til 2017. Umferð- aróhöpp þar sem enginn meiddist voru um 80% allra umferðaróhappa á þjóðvegum í þéttbýli, að undanskildu höfuðborgarsvæðinu, á þessu tíma- bili. Þá varð mikil umferðaraukning á síðastliðnum fjórum árum, einkum á árunum 2015-2016, og er hún rakin til aukins ferðamannastraums. Víða er umbóta þörf Talið er að ýmissa úrbóta sé þörf á öllum þessum fjórum þétt- býlisstöðum í því skyni að auka um- ferðaröryggi. Þar á meðal má nefna miðeyjar á vegum, þrengingu vega, þéttbýlishlið, það að bæta sjónsvið ökumanna og breytta útfærslu á gatnamótum. Sum þessara atriða eru þegar komin til framkvæmda. Fram kemur í skýrslunni að flest óhöpp í þéttbýli verði við vega- mót. Eitt það helsta sem hægt er að gera til að auka umferðaröryggi á þjóðvegum er að fækka tengingum inn á vegina og gera breytingar á gatnamótum. Í skýrslunni segir m.a. að forðast skuli að hafa forgangs- stýrð X-vegamót og ætti heldur að hafa tvö T-vegamót eða hringtorg. Þá þykir óæskilegt að hafa bíla- stæði á þjóðvegi og á að leita leiða til þess að aðskilja bílastæðin frá veg- inum eða fjarlægja þau. Aðskilnaður akstursstefna með miðeyjum gerir akstursleiðir skýrari við vegamót einkum ef um er að ræða sér akrein fyrir vinstri beygjur. Reyna á að hafa fáar gang- brautir yfir þjóðvegi og tryggja ör- yggi þeirra með því að hafa miðeyju milli akreina sem þarf að fara yfir. Miðeyjar hafa einnig þau áhrif að ökumenn minnka iðulega hraðann þegar farið er framhjá þeim þar sem vegurinn hefur verið þrengdur. Algengt er að gripið sé til að- gerða til að draga úr umferðarhraða á þjóðvegum í þéttbýli og er það gjarnan gert við innkomu í þéttbýlið. Hraðavaraskiltum sem sýna öku- hraða ökutækja hefur fjölgað og er þeim gjarnan komið fyrir þar sem ökumenn nálgast þéttbýlið. Einnig eru víða svonefnd þéttbýlishlið en með þeim er varað við breyttu um- hverfi og lægri hámarkshraða í þétt- býlinu. Oft eru svonefndir buldu- spelir settir á veginn þegar nær dregur þéttbýlinu en höggin frá þeim minna ökumenn á að draga úr hraðanum. Einnig er hægt að þrengja veginn eða koma fyrir sveigju með miðeyju til að ökumenn hægi á sér. Í nokkrum tilfellum hefur verið rætt um að færa þjóðvegi út fyrir þéttbýlið til að minnka umferð- arhraða og umferðarþunga. Margir eru því mótfallnir og telja að það muni draga úr verslun og þjónustu á viðkomandi þéttbýlisstað. Hugað að öryggi á þjóðvegum í þéttbýli Morgunblaðið/Árni Sæberg Hvolsvöllur Þjóðvegur 1 og Fljótshlíðarvegur eru þjóðvegir innan Hvols- vallar. Frá 2008-2017 urðu 12 óhöpp á þessum tveimur vegum. Umferðaröryggi á þjóðvegum í þéttbýli er heiti rannsóknar- skýrslu sem unnin var fyrir og styrkt af rannsóknarsjóði Vega- gerðarinnar. Arna Kristjáns- dóttir og Bryndís Friðriksdóttir hjá EFLU verkfræðistofu unnu verkefnið og bera þær ábyrgð á innihaldi skýrslunnar. Markmið verkefnisins var að skoða valda kafla á þjóðvegum sem liggja í gegnum þéttbýli og meta hvort laga þurfi vegar- kafla til að bæta umferðarör- yggi. Þróun umferðar var skoð- uð og eins gögn um umferðar- óhöpp og slys undanfarin ár. Lagt var mat á það hvaða veg- kaflar ógna mest umferðarör- yggi innan þéttbýlanna. Valdir voru ellefu staðir þar sem höfðu orðið fleiri en sex slys/óhöpp á vegarkaflanum 2008-2017, meðalóhappatíðni væri hærri en 0,5, íbúar væru færri en 5.000 og að þjóðvegur væri beggja vegna þéttbýlisins. Umferðarör- yggi í þéttbýli ÞJÓÐVEGIR Í ÞÉTTBÝLI

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.