Morgunblaðið - 28.05.2019, Side 16

Morgunblaðið - 28.05.2019, Side 16
16 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 28. MAÍ 2019 Við leitum að söluráðgjafa í verslun okkar en starfið felst aðallega í sölu á ljósum, heyrnartólum, smáraftækjum og saumavélum – allt vörumerki á heimsmælikvarða. Ef þú ert jákvæð manneskja, sölu- og þjónustudrifin, stundvís, dugleg, skemmtileg og fær í mannlegum samskiptum ættirðu að heyra í okkur. Pfaff er rótgróið fjölskyldufyrirtæki sem hefur verið starfrækt síðan 1929. Við berum virðingu fyrir fjölskyldugildum og vinnum ekki á laugardögum á sumrin og höfum heldur ekki lengri opnun fyrir jólin. Umsóknir sendast á rannveig@hagvangur.is Ekki er óalgengt, að menn sem enn eru á lífi á níræðisafmælinu gefi upp öndina um það leyti, saddir lífdaga og sjá ekki tilganginn í frekari bardaga. Svo virðist vera með Sjálf- stæðisflokkinn á þess- um tímamótum. Eft- irgjöfin í tilskipanaflóði Evrópusambandsins er orðin slík, að ráðist er á grundvall- arforsendur tilvistar okkar Íslend- inga á norðurhjara veraldar, Orku- stofnun afhent ESB með skertu sjálfstæði í kjölfarið og öldum af- leiðinga. Þar tók steininn úr og hef ég því ákveðið að segja mig úr Sjálfstæðisflokknum eftir birtingu þessarar greinar. Bjartari dagar Flokkurinn hefur átt öllu bjart- ari daga. Þó byrjuðu kynni mín af honum illa á Landsfundi árið 1988, þar sem ég barðist fyrir óheftu frelsi í útflutningi og hafði sigur í viðskiptanefnd, en Þorsteinn Páls- son, þáverandi formaður, stöðvaði það af, svo að niðurstaðan yrði „… nema þar sem sérstakar að- stæður krefjast þess“ svo að stóru samtökin hefðu Bandaríkin, salt- fisk, síld o.s.frv. En alvörufrelsi til athafna tók við með Davíð Odds- syni árið 1991 og uppgangstíman- um sem entist fram að alþjóðlega hruninu, þegar vinstri vængurinn tók við taumunum víða, með mark- aðinn í sárum. ESB til vandræða Alvöruvandræði Sjálfstæð- isflokksins hófust vegna Evrópu- sambandsins (ESB), sem eru ólýð- ræðisleg samtök sósíalista í mörgum ríkjum Evrópu. Hinar tal- andi stéttir innan Sjálfstæðis- flokksins, sem leiddar eru af SA, SI, Viðskiptaráði og viðlíka sam- tökum, gerðust mjög hallar undir aðild að ESB. Fjölmiðlar ræddu einungis við þess konar fulltrúa flokksins, svo að út liti eins og þar færi rödd okkar allra, en hver landsfundurinn á eftir öðrum var samt einarður gegn aðild að evr- ópsku kratasamtökunum. Þá komst sú hefð á að varaformaður Sjálf- stæðisflokksins yrði kona sem að- hylltist ESB-gildi. Þar með færðist flokkurinn fjær sjálfstæðisgildum sínum og hefur ekki náð sér síðan. Ógöngur Undirgefnin gagnvart ESB varð alger við Icesave-málið. Þar gaf forysta flokksins ítrekað eftir, sem leiddi okkur í ógöngur, allt í trássi við samþykktir andsfundar. Forseti Íslands skar okkur tvisvar úr þeirri snöru, góðu heilli. Aðild að ESB Aðildarumsóknin að ESB reynist lífseig. Raunverulegur vilji til þess að senda hana út í hafsauga hefur ekki verið fyrir hendi hjá forystu Sjálfstæðisflokksins. Gert var „hlé“ á umsókn, síðan „hætt“ og loks „slitið“, en aldrei var hún aftur- kölluð, heldur bíður hún eins og púki á fjósbitanum eftir næsta tækifæri. Von var á skýrari línum þegar margir ESB- sinnar fóru yfir í Viðreisn, en samt svífur andi ESB enn yfir vötnunum. Fylgismenn þess í öllum flokkum lögðust á eitt til þess að dásama framgang EES- samningsins, sem verður ansi ólík- ur sjálfum sér með hverri nýrri til- skipun frá Brussel, sérstaklega þriðju orkutilskipuninni. Þau okkar sem leggjast gegn henni eru nú út- hrópuð af flokksforystunni sem einangrunarsinnar, gegn alþjóð- legri samvinnu og jafnvel mannrétt- indum. Ótrúlegur framgangur og rangtúlkanir þess- ara samherja okkar orsaka úrsögn mína og margra fleiri. Hlaðið á EES Allt í einu er margbreyttur EES- samningur það besta sem fram hefur komið síðan niðursneitt brauð var fundið upp. Hann reyndist okkur vel framan af, áður en ESA- dómstóllinn breyttist alfarið í enn eitt ESB-batteríið og ESB-sinnar tóku að hampa honum og hverri til- skipun, þegar ljóst varð að fylgi Ís- lendinga yrði aldrei nægilegt til inngöngu í sósíalista-sambandið. Fylgispekt við breyttan EES- samning þýðir að Alþingi er valda- lítið gegn honum. Harður atgangur flestra sjálfstæðisþingmanna gegn hægri hluta flokks síns vegna and- stöðu hans við orkupakka þrjú herðir til muna baráttu gegn EES- samningnum, sem var lítil áður. Samningur sem áður valdi það besta úr báðum heimum fyrir Ís- land breytist nú hratt í móttöku- stöð ESB-tilskipana án möguleika Alþingis til þess að halda einungis því sem okkur hentar. Ef það hent- ar ekki ESB og svo ólíklega fer að búrókratarnir slíta samningnum, þá er ljóst að farið hefur fé betra, enda verður Bretland ekki lengur í því batteríi nk. nóvember ef guð lofar. Hægt er að æra óstöðugan með því sem tekið er undir með kúg- unarþáttum ESB undanfarið: flóttamannakvótar og kolefnislos- unarkvótar eru ágæt dæmi, en hér hindrar plássleysi umfjöllun um slíkt. Óreiða í borginni Sjálfstæðisflokkurinn í borginni er heill kapítuli út af fyrir sig. Upp- safnaður vandræðagangur er veru- legur, þar sem fyrri forusta hamp- aði flestu því sem frá Samfylkingu kom, að venju í óþökk landsfundar. Verst var samþykkið við aðalskipu- lag Reykjavíkur í boði Samfylk- ingar og afarsamningurinn um Reykjavíkurflugvöll, hvort tveggja dauðadómur Sjálfstæðisflokksins í borginni. Enn er bætt við með borgarlínunni, sem berjast þyrfti gegn af meiri krafti, og óendanlegri sóun fjármuna okkar. Vel reyndist að oddvitinn var kosinn, en hann þurfti síðan að leiða ósamstæðan hóp sem raðað var í fyrirfram. Dagur og co. hafa enn frjálsari hendur til þess að rústa Reykjavík og breyta henni í paradís ídealist- anna, algerlega óháð 80% ferða- langa sem kjósa að nota bílinn sinn. Niðurstaðan er því miður að Sjálfstæðisflokkurinn hætti að fylgja grasrót sinni, sjálfstæðum einstaklingum sem fylgjandi eru fullveldi Íslands og ábyrgu frelsi til athafna, án erlendra yfirráða. Ekki er líklegt að það breytist í bráð. Virðum grasrótina Eftir Ívar Pálsson »…sérstaklega þriðju orkutilskipuninni. Þau okkar sem leggjast gegn henni eru nú út- hrópuð af flokksforyst- unni sem einangr- unarsinnar, gegn alþjóðlegri samvinnu og jafnvel mannréttindum. Ívar Pálsson Höfundur er viðskiptafræðingur með eigið útflutningsfyrirtæki í áratugi. Síðustu ár höfum við upplifað einstaka tíma, fordæmalaust hagvaxtarskeið. Hag- vaxtarskeið sem heim- ilin og ríkissjóður hafa verið dugleg að nýta sér til þess að greiða niður skuldir. Nú sér fyrir endann á þessu tímabili, því miður. Því hefði verið óskandi að Reykjavíkurborg hefði nýtt þetta tímabil til þess að greiða niður skuldir, lækka fjármagns- kostnað og hagræða í rekstri. Það væri óskandi að ársreikningur Reykjavíkurborgar fyrir árið 2018 staðfesti að aðhalds hefði verið gætt. Þess væri óskandi að ráðdeild í rekstri hefði ráðið för. En þegar mað- ur spyr sig hvort svo hafi verið með ársreikning Reykjavíkurborgar fyrir árið 2018 að skuldir hafi verið lækk- aðar og borginni hafi undirbúið sig fyrir mögur ár þá er það því miður ekki svo. Afkoma borgarinnar er lak- ari en árið 2017, annar rekstr- arkostnaður vex, fjár- magnskostnaður vex, skuldir vaxa. Já, skuldir jukust á þessu for- dæmalausa hagvaxt- arskeiði, um 2 milljarða á mánuði árið 2018. Þrátt fyrir auknar tekjur borgarinnar. Klúðraði Reykjavík- urborg góðærinu? Núna stöndum við á þröskuldi samdráttar- tíma og tekjur borgar- innar gætu dregist saman. Hvernig getum við mætt samdrætti? Ætlar Reykjavíkurborg að hækka skatta og gjöld? Nei, sem betur fer má segja, verður ekki hægt að auka álögur á borgarbúa með lög- legum hætti, sú leið hefur þegar verið nýtt, allt er í hámarki. Eftir bankahrunið varð að draga úr þeim fjármunum sem lagðir voru í viðhald á húsnæði leikskóla, grunn- skóla, frístunda og félagsmiðstöðva. Það var leið til þess að spara til að halda úti grunnþjónustu. En þegar birti til og tekjur borgarinnar jukust var viðhaldsfríu stefnunni haldið áfram og peningum borgarbúa eytt í gæluverkefni Nú er í óefni komið og langt í land að mikilli og brýnni uppsafnaðri við- haldsþörf í leikskólum, grunnskólum, félags- og frístundamiðstöðvum verði mætt. Ef við sinnum ekki viðhaldi á hús- næði þá er vandinn fljótur að verða mjög kostnaðarsamur, það höfum við heldur betur rekið okkur á, á þessu ári. Í Breiðholtsskóla er lokuð heil álma vegna myglu, Fossvogsskóli er allur lokaður vegna myglu, leikskólar og frístundamiðstöðvar hafa líka ver- ið í vanda. Vanda sem bitnar á fjölda barna og foreldrum þeirra. 22 leikskólar á samtals 26 starfs- stöðvum og 12 grunnskólar sendu upplýsingar um að Umhverfis- og skipulagssvið hafi ekki brugðist við síðustu athugasemdum Heilbrigð- iseftirlits Reykjavíkur frá 2018. Það eru því 38 starfstöðvar þar sem Heil- brigðiseftirlit Reykjavíkur hefur komið með athugasemdir við og þeim hefur ekki verið sinnt. Það er mik- ilvægt að brugðist sé hratt og vel við athugasemdum Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur. Ég virkilega vona það að á þessum málum verði tekið af meiri festu en hefur verið hingað til. Það er ótækt að athugasemdum Heil- brigðiseftirlits Reykjavíkur sé sinnt seint og illa. Við verðum að forgangsraða mun meira fjármagni til viðhalds, það er allt of dýrt fyrir okkur þegar að hús- næði okkar Reykvíkinga liggur undir skemmdum. Miðað við þann mikla tekjuafgang sem meirihlutinn í Reykjavík vill meina að sé þá ætti að vera lítið mál að ganga í verkið. Við getum að minnst kosti ekki búið við sinnuleysið áfram. Ársreikningur Reykjavíkurborgar 2018 Eftir Valgerði Sigurðardóttur » Skuldir jukust á þessu fordæmalausa hagvaxtarskeiði um tvo milljarða á mánuði árið 2018. Þrátt fyrir auknar tekjur borgarinnar. Valgerður Sigurðardóttir Höfundur er borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins. valgerdur.sigurdardottir@reykjavik.is ÞÚ FINNUR ALLT Á FINNA.IS „Houston, we have a problem.“ – Þannig hljóðaði neyðarkallið frá geimfarinu Appollo 13. Nú hljóma neyðarköll héðan og þaðan frá geim- stöðinni Jörð. Hún sé að farast og engin vörn í sjónmáli. En hver á að heyra köllin og bjarga? Ekki virðast aðrar nálægar plánetur félegri til búsetu. Súrefni og annað lífsnauð- synlegt af enn skornari skammti en hér og lítið til að halla sér að. Ekki einu sinni hægt að tína rusl svo gagn sé að. Svona próblem hafa komið fyrir áður, að vísu fyrir löngu en þá veltu risaeðlur sér alsælar í seftjörnum og úðuðu í sig gróðrinum eins og eng- inn væri morgundagurinn. Vatnið sá um að halda þeim á floti þótt þær væru orðnar of þungar. Allt í einu voru þær horfnar af yfirborði jarðar. Úreltar. Maðurinn kom í staðinn. Nú er hann kominn að endimörkum. Enginn vill viðurkenna hvers vegna. Tegundin hefur fjölgað sér of mikið. Hvernig væri að hætta að elt- ast við fjúkandi plast út um allar jarðir en nota heldur það plast sem leysir vandann – verjuna gömlu og góðu? Sunnlendingur. Velvakandi Svarað í síma 569-1100 frá kl. 10-12 velvakandi@mbl.is Kolefnisjafningur og risaeðlur

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.