Morgunblaðið - 28.05.2019, Side 28

Morgunblaðið - 28.05.2019, Side 28
28 MENNING MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 28. MAÍ 2019 DRAUMAEIGN Á SPÁNI Nánar á www.spanareignir.is ÞÚ ERT Í ÖRUGGUMHÖNDUMHJÁ OKKUR Aðalheiður Karlsdóttir Löggiltur fasteignasali adalheidur@spanareignir.is Sími 893 2495 Ármúla 4-6, Reykjavík Karl Bernburg Viðskiptafræðingur karl@spanareignir.is Sími 777 4277 Ármúla 4-6, Reykjavík • 3 svefnherbergi – 2 baðherbergi • Fataherbergi – Tæki í eldhúsi fylg ja • Sérgarður með einkasundlaug • Sameiginlegur sundlaugargarður • Fallegt útsýni • Flott hönnun – vandaður frágangur • Golf, verslanir, veitingastaðir í göngufæri HÚSGÖGN AÐ EIGIN VALI FYRIR Ikr. 500.000,- fylg ja með í kaupunum Alg jör GOLF paradís Verð frá 46.400.000 Ikr. (339.000 evrur, gengi 1evra/137Ikr.) Við höfum selt fasteignir á Spáni síðan 2001 GLÆSILEGAR GOLFVILLUR LA FINCA golfvöllurinn Fallegt umhverfi – stutt frá flugvelli Morgunblaðið/Eggert Ragnheiður Birgisdóttir ragnheidurb@mbl.is „Við höfum verið að leika okkur með gömul ævintýri. Grimmsævintýrin og H.C. Andersen eru svolítið í uppáhaldi hjá okkur,“ segir Anna Bergljót Thorarensen sem skrifar og leikstýrir nýju verki Leikhópsins Lottu sem frum- sýnt var 25. maí síðastliðinn. Hún tekur ekki þátt í sýningunni sjálfri eins og hún er vön sem skýrist af því að hún á von á barni um mitt sumar. Að þessu sinni varð Litla hafmeyjan eftir H.C. And- ersen fyrir valinu og spinnur Anna Bergljót nýtt verk út frá því. „Litla hafmeyjan hefur einhvern veginn aldrei komið til greina hjá okkur vegna þess að hún gerist í sjó og það er frekar flókið að setja upp sjó á landi, utandyra.“ Í ár ákvað leikhópurinn þó að slá til. „Eftir að hafa grínast með það að við yrðum að ferðast á milli sundlauga eða sýna í höfnum landsins ákváðum við að byggja sjó sem hluta af leik- myndinni sem ferðast með okkur um allt land,“ útskýrir leikstjórinn. Færa verkið inn í nútímann Anna Bergljót segir leikhópinn ekki nýta Disney-útgáfur af þeim ævintýrum sem hann tekur fyrir. Til dæmis er tónlistin í verkunum frum- samin. „Við erum alltaf að búa til okkar eigin verk og þá byggjum við á upprunalegu ævintýrunum og reynum að láta það sem aðrir höf- undar hafa spunnið út frá þeim ekki trufla okkur,“ segir leikstjórinn og bætir svo við: „Að því sögðu þá er ekki mikið líkt með Litlu hafmeyj- unni okkar og verki H.C. And- ersens, ekkert annað en hafmeyja sem fær fætur til þess að komast upp á land.“ Anna Bergljót segir ástæðu haf- meyjunnar fyrir því að ferðast upp á land þá að hún verði ástfangin af prinsi eins og í danska ævintýrinu. „Okkur finnst það hálfómerkileg ástæða til þess að skera af sér sporðinn. Við færum þetta talsvert inn í nútímann. Hennar markmið er í rauninni að bjarga hafinu sem er að fyllast af rusli.“ Verkið fór smám saman að leggja áherslu á umhverf- ismál. „Auðvitað lifi ég og hrærist sem höfundur í sama heimi og við hin og núna er þetta auðvitað það sem er efst á baugi,“ segir Anna og útskýrir að þótt hún hafi ekki áður tengt Litlu hafmeyjuna við um- hverfismál hafi það legið beint við í þetta sinn. „Vitundarvakningin er svo mikil í þjóðfélaginu og hjá sjálfri mér. Mér finnst mikilvægt að leik- húsið endurspegli þjóðfélagið og vandamálin sem við stöndum frammi fyrir.“ Snúa á staðalímyndir Hún segir leikhópinn hafa lagt ríka áherslu á það síðustu ár að boð- skapur verkanna skipti máli og að honum sé komið til skila á skiljan- legan hátt fyrir yngstu aldurshóp- ana. „Við teljum okkur þó ekkert vera að predika. Þetta er fyrst og fremst stórskemmtilegt ævintýri.“ Í sýningunni er ekki ein hafmeyja heldur þrjár; tvær hafmeyjur og einn marbendill. Ekkert hlutverk er skrifað án þess að það sé sambæri- leg persóna af öðru kyni skýrir Anna Bergljót. Hún lagði einnig upp með að snúa fyrirframgefnum hug- myndum um karllæga og kvenlæga eiginleika á hvolf. „Það hefur verið rauði þráðurinn í þessu öllu hjá okk- ur. Það er mikilvægt til þess að búa til fyrirmyndir.Verkið er um tvo ótrúlega flotta krakka og við leggj- um áherslu á að þeir séu ólíkir þeim stöðluðu ímyndum sem birtast krökkunum í flestu því efni sem þeim er boðið upp á.“ Vindur versti óvinurinn Allar sýningar leikhópsins fara fram utandyra, ýmist í Elliðaárdaln- um eða á grænum svæðum víðs veg- ar um landið. „Sumarið í fyrra hefði átt að vera hið mikla hafmeyju- sumar því þá voru bara allir blaut- ir,“ segir Anna Bergljót og bætir við að leikhópurinn hafi ekki fundið mikið fyrir minni aðsókn vegna ótal rigningardaga síðasta sumars og þakkar það dyggum aðdáendahópi Lottu. „Við sjálf erum vatnsheld og það er leikmyndin líka en þegar hvessir geta skapast vandamál. Vindurinn er okkar versti óvinur. Ef vindur fer yfir vissan hraða er hreinlega hættulegt að sýna,“ segir Anna Bergljót. Leikhópurinn hefur einstaka sinnum þurft að hætta við sýningu vegna veðurs og stundum brugðið á það ráð að færa sýninguna inn. Anna Bergljót lýsir eftirminnilegum dögum sumarið þegar Eyjafjallajök- ull gaus og halda varð sýningar inn- andyra vegna öskufalls. Hún nefnir einnig að svifryksmengun hafi haft áhrif. „Þegar fólki er ráðlagt að vera innan dyra bjóðum við því auðvitað ekki upp á útileikhús.“ Þetta eru þó undantekningartilfelli og yfirleitt býður leikhópurinn Lotta gestum upp á ævintýralega upplifun sama hvernig viðrar. Á hverju ári bætist aðeins í fjölda sýningargesta á leiksýningum Lottu. „Við höldum að við hljótum að vera að gera eitthvað rétt og styrkjumst í þeirri trú að það sé þörf á þessu leikhúsi sem við bjóð- um upp á,“ segir Anna Bergljót að lokum. Upplýsingar um sýningar sumarsins má finna á vefnum leik- hopurinnlotta.is. Hafmeyjar í Elliðaárdal  Leikhópurinn Lotta sýnir Litlu hafmeyjuna  Umhverfisvernd og kynjajafn- rétti  „Fyrst og fremst stórskemmtilegt ævintýri,“ segir leikstjóri og höfundur Anna Bergljót Thorarensen Hafmeyjur Thelma Hrönn Sigurdórsdóttir og Andrea Ösp Karls- dóttir í hlutverkum. Gunnhildur Þórðardóttir myndlistar- maður gefur út sína fimmtu ljóðabók, Upp- haf – Árstíð- arljóð í Gunn- arshúsi í dag kl. 19. Samtímis kynnir hún nýja lágmynd sem nefnist Jafnréttisplattinn og er mynd af Bríeti Bjarnhéðins- dóttur, baráttukonu um réttindi kvenna. „Til eru margar gerðir af skúlptúrum af körlum sem hafa sett svip sinn á íslenska sögu og samtíma en það er skort- ur á skúlptúrum af konum. Þær hafa ekki fengið sinn sess í íslenskri samtímalistasögu né þá viðurkenningu sem þær eiga skil- ið. Konur eru stöðugt minntar á hversu litlu hlutverki þær hafa gegnt í sögunni og þess vegna er hér komið komið eins konar mót- efni við karlaskúlptúrum og t.d. lágmyndinni af Jóni Sigurðssyni. Markmiðið er að gefa út plattann sem söluvöru í upphafi árs 2020 sem er stuttu eftir fullveldis- afmælið og sem eins konar upp- hitun fyrir 100 ára kosningarétt íslenskra kvenna án aldurs- ákvæðis sem var samþykkt á alþingi árið 1920,“ segir í til- kynningu. Jafnréttisplattinn kynntur í dag Bríet Bjarnhéðinsdóttir Boðið verður upp á kvöld- göngu með sýningarstjórum og listamönnum útisýningarinnar Úthverfi í Breið- holti í kvöld kl. 19.30. Sýningar- stjórar eru Aðalheiður Valgeirs- dóttir og Aldís Arnardóttir. Lagt er af stað frá Gerðubergi og gengið milli nokkurra verka í Efra- og Neðra-Breiðholti, en gangan endar við Arnarbakka, á grænu svæði við hlið Breiðholtsskóla. Úthverfi er annar áfangi í röð fimm sumarsýn- inga sem settar eru upp í aðdrag- anda 50 ára afmælis Myndhöggv- arafélagsins í Reykjavík árið 2022. Kvöldganga um Út- hverfi í Breiðholti Aðalheiður og Aldís Ragna Fróðadóttir, textílhönnuður og myndlistarmaður, er bæjar- listamaður Kópavogs 2019. Valið á Rögnu var kynnt við hátíðlega við- höfn í Salnum í Kópavogi fyrir skemmstu. Í tilkynningu frá Kópa- vogsbæ kemur fram að Ragna muni sem bæjarlistamaður vinna í sam- vinnu við Menningarhúsin í Kópa- vogi að verkefnum og viðburðum sem tengjast textíl og umhverfis- sjónarmiðum. „Ég hef mikið velt fyrir mér um- hverfisvitund í tengslum við textíl og hef áhuga á að tengja saman börn og eldri borgara í því verk- efni. Samvinna kynslóða í hand- verki er mjög áhugaverð að mínu mati og verður spennandi að fá tækifæri til að vinna að henni og vil ég þakka lista- og menningarráði fyrir útnefninguna sem bæjar- listamaður Kópavogs,“ er haft eftir Rögnu í tilkynningunni. Bæjarlistamaður Karen Elísabet Hall- dórsdóttir, Ármann Kr. Ólafsson, Ragna Fróðadóttir og Soffía Karlsdóttir. Ragna Fróðadóttir bæjarlistamaður Safnið á röngunni – Skráning á keramiksafni nefnist sýning sem opnuð hefur verið í Hönnunarsafni Íslands. „Anna Eyjólfsdóttir myndlistarmaður hóf söfnun á leirmunum eftir íslenska listamenn árið 1979. Árið 2017 samanstóð safnið af tæplega 2.000 gripum, sem spanna tímabilið frá 1932 til dagsins í dag. Þetta er stærsta einstaka keramiksafn landsins. Hönnunarsafn Íslands eignaðist það með styrk frá Bláa lóninu. Næstu mánuði mun starfsfólk Hönnunarsafns Íslands ásamt ýmsum góðum gestum skrásetja keramikgripina í sýn- ingarsal safnsins, en skráning er viðamikill hluti af starfsemi safna. Hér geta gestir fylgst með þegar hlutir eru teknir upp úr kössum, ljósmynd- aðir, skráðir í safnmunaskrá og þeim loks pakkað eftir kúnstarinnar reglum. Markmiðið er að hluturinn varðveitist en sé um leið aðgengileg- ur ásamt þeim upplýsingum sem til eru um hann. Skráning er spennandi ferli sem víkkar sjóndeildarhringinn, kveikir neista og tengingar, hug- myndir, samtöl og minningar,“ segir í tilkynningu. Sýningin stendur til 27. október. Skráning á keramiksafni næstu mánuði

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.