Morgunblaðið - 04.06.2019, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 04.06.2019, Blaðsíða 23
DÆGRADVÖL 23 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 4. JÚNÍ 2019 HAGI ehf Stórhöfða 37 • 110 Reykjavík • S. 414-3700 • hagi@hagi.is • Hagi ehf HILTI Hágæða vinnuföt í miklu úrvali Sérmerkjum fyrir fyrirtæki Verkfæri og festingar Mikið úrval af öryggisvörum Nú fástS s vinnuföt í „FINNDU ÚT HVER HEFUR VERIÐ AÐ TALA VIÐ FJÖLMIÐLANA. VIÐ MEGUM EKKI VIÐ FREKARI LEKUM.” „PABBI, SJÁÐU HVAÐ ÉG GET!” Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... að hugsa eingöngu um hana. Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann HVERS VEGNA HANGA ALLIR SVONA MIKIÐ Í SÍMUNUM SÍNUM? BEST AÐ GÚGGLA ÞAÐ SKOÐAÐU LÍKA SKIL GREININGUNA Á „KALDHÆÐNI” HVAÐ ERTU AÐ LESA? ÞETTA ER ÁSTARSAGA! ER HÚN EINS OG ÁSTARSAGAN OKKAR? JÁ, EF ÞÚ ÁTT VIÐ AÐ HÚN SÉ SKÁLDSAGA? … Börn Sigurðar eru 1) Sigríður Helga Sigurðardóttir, f. 9. mars 1970, leikskólakennari búsett á Blönduósi, maki: Einar Óli Fossdal, sjúkraflutningamaður; 2) Þórdís Sigurðardóttir, f. 2. ágúst 1981, bóndi og tamningamaður í Sól- heimagerði í Blönduhlíð í Skaga- firði. Maki: Eyþór Einarsson, ráðu- nautur og bóndi; 3) Birta Berg Sigurðardóttir, f. 9. febrúar 1985, bóndi á Vatnsleysu í Biskups- tungum. Maki: Rúnar Björn Guð- mundsson, bóndi og smiður; 4) Jón- ína Sigurðardóttir, f. 3. ágúst 1986, næringarráðgjafi, búsett í Kaup- mannahöfn. Barnabörnin eru orðin sex og barnabarnabörnin eru tvö. Systkini Sigurðar: Sigrún Guðdís Halldórsdóttir, f. 20. febrúar 1931, d. 7. maí 2017, húsfreyja í Reykja- vik; Guðný Halldóra Halldórsdóttir, f. 27. september 1934, d. 5. febrúar 2001, húsfreyja á Hvanneyri; Arn- dís Sigþrúður Halldórsdóttir, f. 30. júní 1938, búsett í Reykjavík; Guð- rún Magnea Halldórsdóttir, f. 6. september 1940, búsett í Reykjavík; Hulda Árný Halldórsdóttir, f. 24. maí 1944, búsett á Akranesi; Ben- óný Kári Halldórsson, f. 31. mars 1946, búsettur í Reykjavík; Óskar Bergur Halldórsson, f. 23. sept- ember 1947, búsettur á Krossi í Lundarreykjadal; Jón Gunnlaugur Halldórsson, f. 20. maí 1953, búsett- ur í Hvalfjarðarsveit. Foreldrar Sigurðar voru hjónin Halldór Bjarni Benónýsson, f. 5. apríl 1903, d. 29. ágúst 1973, bóndi á Krossi í Lundarreykjadal, og Ás- laug Lilja Árnadóttir, f. 27. janúar 1909, d. 13. febrúar 1995, húsfreyja á Krossi. Sigurður Halldórsson Halldóra Guðmundsdóttir húsfreyja á Tungufelli Magnús Eggertsson bóndi á Tungufelli í Lundarreykjadal Guðný Magnúsdóttir húsfreyja á Háafelli Benóný Helgason bóndi á Háafelli í Skorradal Halldór Bjarni Benónýson bóndi á Krossi Björg Halldórsdóttir húsfreyja í Ytri-Galtarvík Helgi Bjarnason bóndi í Ytri-Galtarvík í Skilmannahreppi Þrúður Jónsdóttir húsfreyja á Múlastöðum Jón Guðmundsson bóndi á Múlastöðum í Flókadal Arndís Jónsdóttir húsfreyja á Oddsstöðum Árni Sveinbjörnsson bóndi á Oddsstöðum í Lundarreykjadal Guðlaug Kristjánsdóttir húsfreyja á Oddsstöðum Sveinbjörn Árnason bóndi á Oddsstöðum Úr frændgarði Sigurðar Halldórssonar Áslaug Lilja Árnadóttir húsfreyja á Krossi í Lundarreykjadal Helgi R. Einarsson tók sér „há-degislúr á sauðburði“: Þegar að þreyttur er þá fer og halla mér. Eftir ½ tíma kríu ég hress er að nýju og hugsa til hreyfings fer. Páll Imsland heilsar leirliði í end- ann á sauðburði með þeirri at- hugasemd að hann segi nú ekki að limran sú arna sé nátengd sauð- burði: Brynjúlfur Jensson á Bakkanum bjó þar með Kötu í Slakkanum. Þau flugust á mikið og fyrir það vikið þá stóð ekki’ á stálhraustum krakkanum. Ég hitti gamlan vin, Þóru Elfu Björnsdóttur, í Nóatúni og hún rifj- aði upp þessa vísu eftir Hagalín: Kóngurinn í Asíá átti dóttur hreina; hún var gul og hún var blá og hafði nýrnasteina. Guðmundur á Sandi segir frá því, að Skarða-Gísli hafi verið ölkær, einkum þegar hann kom í kaupstað. Einhverju sinni keypti hann brenni- vínsstaup og renndi úr því í einu. Johnsen kaupmaður var þar nær- staddur – þeir elduðu löngum grátt silfur – og hafði orð um það, að þessi aðferð væri „svolaleg“. Gísli gegndi þegar með þessari vísu: Hálsinn skola mér er mál, mín því hol er kverkin. Ég mun þola þessa skál; það eru svolamerkin. Því var eitt sinn spáð fyrir Gísla að hann færi illa fyrir drykkjuskap- inn; þá kvað hann þetta: Lífsins enda allir fá, eilíf sendast launin hæfu, en ölvafjendur ekki þá eiga í hendi mína gæfu. Eg mun svelgja eins og var öls og félga kaupum, þó skinhelgir hræsnarar hafi velgju á staupum. Félga merkir fjölga. Guðmundur gat ekki stillt sig um að setja í ritgerð um Stephan G. „tvær alíslenskar vísur“ eftir hann: Gyllt er brá á bjarga sal, blómstrum gljáir haginn. Tindrar áin ofan dal út í bláan sæinn. Meðan ís í útlegð fer en auðir rísa hjallar sólskinsvísu syngja þér sumardísir allar. Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Á sauðburði og sitt lítið af hverju

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.