Morgunblaðið - 04.06.2019, Blaðsíða 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 4. JÚNÍ 2019
Sindragata 12c | Ísafirði | Sími 456 1300 | smidjan@velsmidjan.is
FYRIR BÍLINN
FJARLÆGIR
BLETTI EFTIR OLÍU, FITU, MALBIK
EIGINLEIKAR
NÆR TIL ERFIÐRA STAÐA
ÖRUGGT
Á ALLT PLAST
PLAST
HREINSIEFNI
FYRIR BÍLAINNRÉTTINGAR
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Vorið er hlýtt og lúpínubreiður á
sunnanverðu landinu eru flestar
komnar í fullan blóma, öllu fyrr en
vanalega. Það sést vel á stórum
bláum breiðum, svo sem við Vífils-
staðavatn í Garðabæ þar sem með-
fylgjandi mynd var tekin. Nýlegar
mælingar Náttúrufræðistofnunar
Íslands sýna að nú þekur lúpínan
um 300 ferkílómetra lands og víða
er framvindan hröð. Skiptar skoð-
anir eru um ágæti þessarar ágengu
jurtar í íslenskri náttúru, en komið
var með fræ hennar til Íslands frá
Alaska árið 1944.
„Á sumum breiðum færir lúpínan
sig fram um tvo til þrjá metra á ári
og svo berst fræ með ám og vötnum
og sáir sér víðar,“ segir Hreinn
Óskarsson, sviðsstjóri hjá Skóg-
ræktinni.
Þótt mörgum sé ami að lúpínunni
fylgja henni líka margir kostir, seg-
ir Hreinn. Jurtin meðal annars
bindi kolefni og myndi jarðveg á
rýru landi. Einnig nemur hún nit-
uráburð úr andrúmloftinu, allt að
15-20 kg á hektara á ári. Sömuleiðis
sé lúpínan góður undanfari birki-
ræktunar enda hörfi hún þegar
annar gróður kemst á legg.
sbs@mbl.is
Lúpínan blómstr-
ar snemma í ár
Miklar breiður Góður undanfari
Morgunblaðið/Ómar
Blátt Víða eru stórar breiður lúpínu á höfuðborgarsvæðinu, svo sem við Vífilsstaðavatn, við Keldur og í Úlfarsfelli.
Hjörtur J. Guðmundsson
hjortur@mbl.is
„Þetta eru í raun og veru kannski
miklu stærri tímamót en maður ger-
ir sér grein fyrir í fyrstu lotu og þá
erum við í rauninni komin með þenn-
an ramma í kringum íslensku heil-
brigðisþjónustuna sem er sambæri-
legur við það sem við sjáum í
löndunum í kringum okkur,“ segir
Svandís Svavarsdóttir heilbrigðis-
ráðherra í samtali við Morgunblaðið,
en hún kynnti á blaðamannafundi í
gær nýsamþykkta heilbrigðisstefnu
stjórnvalda til ársins 2030.
Svandís greindi frá því á fundin-
um að heilbrigðisstefnan hefði verið
samþykkt nokkuð óvænt fyrir síð-
ustu helgi í ljósi þess að tími þings-
ins hefði að undanförnu farið í að
fjalla um eitt mál sem hefði stöðvað
afgreiðslu annarra. Vísaði hún þar
til þriðja orkupakka Evrópusam-
bandsins. Stefnan hefði síðan verið
samþykkt mótatkvæðalaust á Al-
þingi en 14 sátu hins vegar hjá.
Vitum hvert við erum að fara
„Með þessari stefnu vitum við
hvert við erum að fara og hvert við
erum að hreyfa okkur,“ sagði Svan-
dís ennfremur. Með stefnunni væri
kominn rammi sem síðan væri hægt
að móta stefnur einstakra hluta heil-
brigðisþjónustunnar innan. Meðal
annars er lögð áhersla í stefnunni á
aukinn sveigjanleika, aukinn hvata,
betri upplýsingagjöf til sjúklinga og
aðstandenda og upplýsta ákvörðun
sjúklinga.
„Við erum núna komin raunveru-
lega með þessa hugsun að við skipt-
um heilbrigðisþjónustunni í þrjú
stig. Þetta eru hugtök sem margir
þekkja en við höfum kannski ekki
verið að beita þeim mjög markvisst.
Við eigum til dæmis alveg eftir að
skrifa þau í heilbrigðislögin. Þá er
fyrsta stigs þjónusta þjónusta
heilsugæslunnar, þar sem þú kemur
fyrst með heilbrigðisvandamál, og
síðan er þriðja stigs þjónustan
Landspítalinn þar sem flóknustu að-
gerðir og meðferðir fara fram. En
þarna á milli er annars stigs þjón-
ustan sem er í rauninni bæði heil-
brigðisstofnanir úti um land, sjálf-
stætt starfandi sérfræðingar,
geðheilsuteymi og aðrir aðilar,“ seg-
ir ráðherrann.
Framlag Birgis mikilvægt
Svandís segir það hafa skipt miklu
að hafa með sér í þessari vinnu Birgi
Jakobsson, aðstoðarmann sinn, sem
hafi gríðarlega yfirgripsmikla
reynslu af heilbrigðismálum bæði
hér innan lands sem og í Svíþjóð og
Noregi, en Birgir er fyrrverandi
landlæknir og var áður meðal ann-
ars forstjóri Karolinska sjúkrahúss-
ins í Stokkhólmi. „Birgir var alveg
ómetanlegur í þessari vinnu og við
að leggja þessar línur og var í raun-
inni ritstjóri stefnunnar,“ segir
Svandís og bætir að lokum við:
„Þannig að ég er mjög ánægð í dag.“
Rammi settur um heilbrigðismálin
Heilbrigðisstefna stjórnvalda til 2030 tímamót segir heilbrigðisráðherra Með stefnunni kominn
rammi utan um einstaka hluta heilbrigðisþjónustunnar Sambærilegt við nágrannalönd Íslands
Morgunblaðið/Hjörtur
Heilbrigði Ráðherra sagði að heilbrigðisstefnan hefði verið afgreidd nokkuð óvænt í þinginu fyrir helgi.
Jón Birgir Eiríksson
jbe@mbl.is
Meðalhiti í maí var sá sami og í
apríl að því er fram kemur í færslu
á vef Trausta Jónssonar veðurfræð-
ings um veðurfarið í maí. Í færsl-
unni kemur fram að hitafar á land-
inu í maí hafi verið gjörólíkt því
sem var á síðasta ári, en hiti var að
hans sögn ofan meðallags um land-
ið vestanvert og var mánuðurinn
meðal þeirra fimm til sex hlýjustu á
öldinni.
Trausti segir að svalara hafi ver-
ið um landið austanvert og kaldast
að tiltölu á Suðausturlandi. Þar hef-
ur maí aðeins þrisvar verið kaldari
það sem af er öldinni. „Tvö kulda-
köst gerði í mánuðinum – það sem
enn stendur og svo annað sem stóð
stóran hluta fyrsta þriðjungs mán-
aðarins. Mjög hlýtt var hins vegar
á milli þessara tveggja kuldakasta,“
ritar Trausti.
Meðalhiti í Reykjavík var 7,7 stig
í maí og 5,9 stig á Akureyri. „Svo
fór að maí varð kaldari heldur en
apríl mjög víða á Norður- og Aust-
urlandi,“ ritar Trausti, en neikvæði
munurinn varð mestur á Mánár-
bakka. Þar var maí -1,5 stigum
kaldari en apríl. „Á hálendinu sunn-
anverðu hlýnaði hins vegar veru-
lega milli apríl og maí, mest við
Setur, +2,7 stig. Trúlega hefur
óvenjusnemmbær snjóleysing á
þessum slóðum ýtt undir þetta,“
ritar Trausti.
Hlýtt var í veðri í maímánuði
milli tveggja kuldakasta
Meðalhiti var 7,7 stig í Reykjavík og 5,9 stig á Akureyri
Morgunblaðið/Eggert
Blíða Borgarbúar nutu sólar óvenju
marga daga maímánaðar.
Mikill aðdragandi er að sam-
þykkt heilbrigðisstefnu stjórn-
valda til ársins 2030 að sögn
Svandísar Svavarsdóttur heil-
brigðisráðherra þar sem mikill
fjöldi heilbrigðisstarfsmanna
kom við sögu.
Fram kom á blaðamannafund-
inum að ferlið sjálft, sem leitt
hefði að lokum til þeirrar stefnu
sem samþykkt var fyrir síðustu
helgi, hefði ekki síst verið gagn-
legt fyrir fulltrúa einstakra
sviða heilbrigðiskerfisins til
þess að ræða saman, stilla bet-
ur saman starfsemi sviðanna og
leysa úr vandamálum.
Ferlið sjálft
gagnlegt
HEILBRIGÐISSTEFNA