Morgunblaðið - 04.06.2019, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 04.06.2019, Blaðsíða 20
20 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 4. JÚNÍ 2019 Láttu nú ljósið þitt loga við rúmið mitt. Hafðu þar sess og sæti, signaði Jesús mæti. Eins láttu ljósið þitt lýsa í hjarta mitt, skína í sál og sinni, sjálfur vaktu þar inni. Lát húmið milt og hljótt hlúa að mér í nótt og mig að nýju minna á mildi arma þinna. Ég fel minn allan hag einum þér nótt og dag, ljósið af ljósi þínu lifi í hjarta mínu. (Sigurbjörn Einarsson) Hvíldu í friði elsku pabbi minn. Þín dóttir Kristjana S. Helgadóttir. Tengdafaðir minn er látinn eftir snarpa en harða baráttu við hið miskunnarlausa mein sem krabbameinið er. Hann flutti með alla fjölskylduna árið 1992 á Arn- ardrang í Landbroti og ákvað að gerast bóndi. Þar kom borgar- barnið ég árið 1997 í fyrsta skipt- ið eftir að hafa kynnst Kristjönu. Ég held að honum hafi ekkert lit- ist á mig í byrjun en ég held að við höfum verið ágætir saman eftir það. Ég gleymi því aldrei þegar ég var klæddur í vinnugalla og stíg- vél og hent inn í traktor með tengdapabba og leiðin lá í fjár- húsið. Ég átti mjög erfitt með að fara inn í fjárhúsið út af lyktinni og þurfti aðeins að lofta út áður en ég fór inn, man að hann hló al- veg ógurlega að mér. Nokkrum mánuðum seinna stóð maður fastur í skít, pungsveittur að hjálpa honum að moka út. Þau Helgi Vilberg Jóhannsson ✝ Helgi Vilbergfæddist 22. maí 1952. Hann lést 20. maí 2019. Útför hans fór fram 29. maí 2019. voru ekki fá skiptin sem við vorum sam- an úti í fjárhúsi að moka út, í sauðburði og eða hanna kerfi til að auðvelda bú- störfin, okkur fannst ekkert skemmtilegt að gefa með loftlausum hjólbörum. Það var líka mjög gaman að taka þátt í heyskap á sumrin og maður var svo frjáls úti á túni að snúa klukkutímunum saman fram og til baka á hinum ýmsu traktorum sem allir höfðu sitt nafn. Öll vinn- an við að halda tækjum í lagi var líka eftirminnileg og maður var stundum svo reiður út í legur og tinda sem hafa bara eitt mark- mið, að bila og eyðileggja. Stund- um vorum við langt fram eftir nóttu að gera við, en ég var mjög góður í því að rétta verkfærin. Eftir langa daga lágum við líka oft úti á túni og horfðum á stjörnubjartan himininn og öll stjörnuhröpin. Nú ert þú þar og líður vel hjá mömmu þinni, pabba og Þorláki, bið að heilsa þeim. Helgi var mjög góður við barnabörnin sín og elskaði að fá þau í heimsókn. Þórdís Ósk og afi eiga mjög mikið af minningum saman úr fjárhús- inu, enda hafði hann mikið gaman af því að taka myndbönd og myndir af þeim, þær minningar eru ómetanlegar núna. Eftir sitja líka minningar um ferðalög, ættarmót, sumarbú- staði og skemmtilega ferð sem við fórum í til Benidorm. Á þeim tíma fór fram eitt af stórmótum í fótbolta og við gallharðir stuðn- ingsmenn Englands, fundum okkur lítinn enskan bar þar sem við horfðum saman á leikina með gallhörðum Njöllum. Við horfð- um á síðasta leikinn með þeim og þá var búið að taka frá fyrir okk- ur sæti og tekið á móti okkur eins og við ættum staðinn, þennan dag áttum við líka Benidorm því við fórum í bæjarferð eftir leikinn og komum frekar seint heim, tengdamamma og Kristjana voru ekkert með stórt bros þegar við mættum mjög hressir upp á hót- el. Við sögðumst hafa lent í fang- elsi. Við skemmtum okkur mjög vel þennan dag, og rifjuðum við þetta oft upp. En ég gæti sagt endalaust margar sögur og rifjað upp fleiri minningar um þennan mikla og stóra mann sem hann tengda- pabbi var, ég á eftir að sakna hans, sakna sveitarinnar og jafn- vel á ég eftir að sakna þessa að moka skít með honum fram á rauða nótt. Guð styrki okkur sem minn- umst Helga, sem við kveðjum í dag, og ég veit að þú munt fylgj- ast með mér og þínum. Þinn tengdasonur Einar Þór Sigurgeirsson. Elsku besti afi. Við söknum þín. Þú verður alltaf í hjarta okk- ar og við munum aldrei gleyma þér. Þú ert okkar besti, þú ert fal- legur, yndislegur, hjálpsamur og góður. Nú ert þú farinn upp í skýin og hittir Guð og Jesú. Núna ertu á góðum stað, þeir passa þig. Nú færðu að hitta mömmu þína, pabba þinn og Þorlák. Við vitum að núna líður þér vel og við minnumst þín með söknuði en líka gleði yfir öllum skemmti- legu stundunum sem við áttum saman. Við elskum þig. Þórdís Ósk Einarsdóttir, Katrín Ýr Einarsdóttir, Bjarki Þór Einarsson. Við Helgi höfðum nánast ekki þekkst neitt þrátt fyrir að vera systkinabörn. Í áratugi hafði ég ekki heyrt af þér en leiðir okkar lágu aftur saman við jarðarför móður þinnar fyrir u.þ.b. ári. Þú varst kominn með krabbamein og horfurnar ekkert allt of góðar. Ég bauð þér heim í kaffi þar sem ég útskýrði fyrir þér fagnaðar- erindið um Jesú og þú bauðst honum inn í líf þitt. Ég bauð þér einnig á samkomu í CTF-kirkj- unni, sem þú þáðir strax. Þar sástu óvænt Helgu Dís dóttur þína og síðan fór Sigurdís þín einnig að koma og stundum barnabörnin. Við áttum fjölmörg yndisleg föstudagskvöld saman. Þú elskaðir að lofa Guð og varst næmur fyrir nærveru hans. Oft sast þú hugsandi og sagðir: „Vá- áá – vááá“ þegar nærvera Guðs var sem áþreifanlegust og þú fannst kraft hans streyma um þig allan. Margoft upplifðir þú Guð snerta við þér og lækna þig af margvíslegum verkjum og mein- um. Ég trúði því fram á hinstu stund að Guð myndi gera þig al- heilan og leyfa þér að vera lengur með okkur hér á jörðu en áætlun hans var önnur og hvað getur maður annað en tekið undir með Job þegar hann sagði: „Drottinn gaf og Drottinn tók, lofað veri nafn Drottins.“ Vikulegi heima- hópurinn sem hittist heima hjá okkur Hannesi á miðvikudags- kvöldum var líka vettvangur þar sem þú lést þig aldrei vanta svo framarlega sem þú mögulega gast komið. Þar myndaðist sönn vinátta og traust sem þú nefndir oft hvað þú mætir mikils og værir þakklátur fyrir að hafa eignast. Við deildum baráttu og sigrum, gleði og sorgum, báðum saman og byggðumst upp í trúnni. Aldr- ei brást það að þegar við drógum orð úr „hamborgaranum“, mannakornsöskjunni góðu, að orðin sem við fengum voru beint inn í aðstæður. Þín verður sárt saknað, bæði í kirkjunni og ekki síður í heima- hópnum. Ég er afskaplega þakk- lát fyrir að hafa kynnst þér svo náið síðasta árið sem þú lifðir og að þú skulir hafa eignast svo ein- læga trú á Jesú sem skiptir öllu máli við dauðans dyr. Síðast þeg- ar þú komst í kirkjuna varstu svo illa á þig kominn líkamlega að þínir nánustu vildu helst hringja á sjúkrabíl og koma þér aftur á spítala. Þá man ég að þú sagðir: „Ég vil ekki fara á spítalann, ég vil bara Jesú. Mig langar bara að fara heim og hlusta á lofgjörð- arlög.“ Helgi er nú kominn til Jesú sem hann elskaði. Hann er kominn með himneskan líkama, alheill og laus við allar þjáningar. Um leið og ég votta fjölskyldu Helga dýpstu samúð get ég ekki annað en samglaðst honum með yndislegt hlutskipti og hlakka til að sjá hann á himnum. Guðrún Margrét Pálsdóttir. Það er ótrúlegt til þess að vita að Helgi sé farinn. Minningarnar hrannast upp hver á fætur ann- arri. Sigurdís (Dísa) konan hans er systurdóttir mömmu. Tengslin voru náin og fórum við fjölskyld- an, mamma og pabbi, ég og Steina systir í margar skemmti- legar ferðir með Helga og fjöl- skyldu hans. Það verður stundum þannig að ættingjar verða misn- ánir manni. Helgi og Dísa, Ingi- björg Þóra, Jóhann, Kristjana og Helga Dís hafa alltaf verið okkur náin. Þeir sem þekktu Helga vita að hann var með eindæmum hjálp- samur. Við systkinin og pabbi fengum oft hjálp með bílana og annað sem til féll. Það var sama hvað Helgi tók sér fyrir hendur, allt lék í höndunum á honum. Skipti það einu hvort heldur hann keyrði strætó, smíðaði, gerði við bíla eða eitthvað annað. Hann sigraði í ökuleikni vagnstjóra hjá strætó og smíðaði oft ótrúlega flotta hluti úr nánast engu. Ég man eftir því að pabbi og mamma höfðu eitt sinn keypt litasjónvarp en þau vantaði stand undir sjónvarpið. Skömmu síðar kom Helgi með heimasmíðaðan stand og tók ekki í mál að fá borgað fyrir þetta. Hann vissi að foreldrar mínir höfðu ekki allt of mikið á milli handanna Ég hef lengi haft brennandi áhuga á bílum og því áhugamáli deildum við Helgi. Eins og ég nefndi áðan var hann mér svo mikil blessun í mörgu. Eitt sinn var ég heldur fljótfær að kaupa mér bíl. Ég komst að því daginn eftir kaupin að skottið var svo ryðgað að það vantaði næstum allan botninn í það. Eitthvað bar ég mig aumlega út af þessu við Helga. Hann sagði mér koma með bílinn til sín. Hann gerði listavel við skottið, og ég er ekki frá því að það hafi litið betur út en þegar bíllinn var nýr. Það gladdi mig mikið þegar ég heyrði að Helgi og Dísa myndu taka við bænum Arnardrangi, fæðingarstað mömmu. Ég vissi að staðurinn yrði í góðum hönd- um sem varð raunin. Helgi var duglegur að hjálpa sveitungum sínum á margvíslegan hátt. Það var alltaf tilhlökkun hjá mér og pabba heitnum að heimsækja Arnardrang. Við fengum ávallt höfðinglegar móttökur og skipti þá engu máli hversu mikið þau höfðu að gera. Helgi var mikill fjölskyldu- maður og það sást langar leiðir hversu stoltur eiginmaður og fað- ir hann var. Þau hjónin voru samhent og árangurinn var eftir því. Börnin þeirra eru hvert öðru yndislegra og blessun hvar sem þau koma. Það var mér mikið áfall þegar ég heyrði að Helgi hefði greinst með krabbamein. Helgi og Dísa fóru oftar í bæinn vegna þessa og fóru þau hjónin oft með dóttur sinni á kristilega samkomur. Ég man ennþá eftir því þegar ég hitti þau þar. Tár þakklætis fylltu augu mín. Trúin á Guð átti eftir að reynast honum mikill akkur á erfiðri stund. Hann vissi hvert hann myndi fara að þessu jarð- vistarlífi loknu. Ég veit að ég mun hitta hann á himnum, þar sem hann er núna, laus við þjáningar krabbameins- ins og líður vel. Í þeirri fullvissu kveð ég með söknuði Helga Vilberg Jóhanns- son. Guð blessi minningu hans. Stefán Ingi Guðjónsson. Raðauglýsingar Félagsstarf eldri borgara Aflagrandi 40 Athygli er vakin á sýningu á munum Friðriks Friðriks- sonar sem er íbúi á Aflagranda 40. Friðrik er óviðjafnanlegur safnari og kennir ýmissa grasa í hans safni. Sýningin er á opnuartíma húss- ins kl. 8.30-15.45 og stendur til fimmtudagsins 6. júní. Heitt á könn- unni og kökur og kruðerí á vægu verði. Árskógar 4 Smíðar, útskurður, pappamódel með leiðbeinanda kl. 9- 16. Opin handavinnustofa kl. 9-12. Opið hús t.d. spil kl. 13-15. Brids kl. 12.30. Bónusbíllinn fer frá Árskógum 6-8 kl. 12.30. Handavinnuhópur kl. 12-16. MS fræðslu- og félagsstarf kl. 14-16. Opið fyrir innipútt og 18 holu útipúttvöll. Hádegismatur kl. 11.40-12.45. Kaffisala kl. 14.45-15.30. Heitt á könnunni, allir velkomnir. S. 535-2700. Boðinn Brids og kanasta kl. 13. Bólstaðarhlíð 43 Minnum á smíðaverkstæðið, þar er Albert fyrir hádegi. Opin handverksstofa kl. 9-16. Yngingar jóga með hláturívafi kl. 9-9.50. Morgunkaffi kl. 10-10.30. Botsía kl. 10.40-11.20. Göngutúr um nágrennið kl. 13. Heimsókn á Stakkaborg kl. 13.30. Bónusrútan kemur kl. 14.40. Opið kaffihús kl. 14.30-15.15. Hverfið mitt, íbúafundur í boði borgarinnar kl. 16-18. Félagsmiðstöðin Hæðargarði 31 Kaffispjall og blöðin við hring- borðið kl. 8.50. Listasmiðja kl. 9-12. Hádegismatur kl. 11.30. Brids kl. 13. Kríurnar myndlistarhópur kl. 13-16. Enska kl. 13-15. Gáfumanna- kaffi kl. 14.30. Hugmyndabankinn opinn kl. 9-16. Allir velkomnir óháð aldri. Nánari upplýsingar í síma 411-2790. Garðabær Vatnsleikfimi Sjálandi kl. 7.30/15. Karlaleikfimi Ásgarði kl. 12. Gönguhópur frá Jónshúsi kl. 10. Bónusrúta frá Jónshúsi kl. 14.45. Gerðuberg 3-5 Opin handavinnustofa kl. 8.30-16. Keramik málun kl. 9-12. Glervinnustofa með leiðbeinanda kl. 13-16. Leikfimi gönguhóps kl. 10-10.30. Gönguhópur um hverfið kl. 10.30. Allir velkomnir. Hvassaleiti 56-58 Félagsmiðstöðin er opin frá kl. 8-16, blöðin og púsl liggja frammi. Morgunkaffi kl. 8.30-10.30, útvarpsleikfimi kl. 9.45, hádegismatur kl. 11.30. Brids í handavinnustofu kl. 13, kaffi kl. 14.30. Norðurbrún 1 Morgunleikfimi kl. 9.45, lesið upp úr blöðum kl. 10.15, upplestur kl. 11, hádegisverður kl. 11.30-12.30, samverustund með djákna kl. 13, kaffihúsaferð á Das kl. 14. Smáauglýsingar Sumarhús Sumarhús – Gestahús – Breytingar  Framleiðum stórglæsileg sumarhús í ýmsum stærðum.  Tökum að okkur stækkun og breytingar á eldri húsum.  Smíðum gestahús – margar útfærslur.  Sjáum um almennt viðhald á sumarhúsum og sólpöllum.  Setjum niður heita potta og smíðum palla og skjólveggi. Áratugareynsla – endilega kynnið ykkur málið. Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn, sími 892-3742 og 483-3693, www.tresmidjan.is Sjómaður óskar eftur sumarbústað Ó.E. sumarbústað í langtímaleigu, keyrslufjarlægð frá Rvk. Er sjómaður og því sjaldan í landi en mundi vilja njóta þegar það er. Reyklaus, reglu- og tillitssamur. Greiðslugeta 70k per mánuð. Hafa samband í 55@55.is Byggingavörur Harðviður til húsabygginga Sjá nánar á www.vidur.is Vatnsklæðning, panill, pallaefni, parket, útihurðir o.fl. Gæði á góðu verði. Nýkomnar Eurotec A2 harð- viðarskrúfur. Penofin harðviðarolía. Indus ehf., Óseyrarbraut 2, Hf. Upplýsingar hjá Magnúsi í símum 660 0230 og 561 1122. Ýmislegt Húsviðhald FLÍSALAGNIR - MÚRVERK FLOTUN - SANDSPARSL MÁLUN - TRÉVERK Ásamt öllu almennu viðhaldi fasteigna Áratuga reynsla og þekking skilar fagmennsku og gæðum Tímavinna eða tilboð Strúctor byggingaþjónusta ehf. S. 893 6994     Elsku hjartans pabbi okkar, sambýlismaður, afi og tengdafaðir, SIGURÐUR JENS SVERRISSON bóndi í Hvammi 2, Þistilfirði, lést laugardaginn 25. maí. Útförin fer fram frá Þórshafnarkirkju laugardaginn 8. júní klukkan 13. Margrét J. Sigurðardóttir Halldóra Sif Sigurðardóttir Ólafur Aðalsteinn Sigurðsson Ásgerður Sigurðardóttir Kristín Jónsdóttir barnabörn og tengdasynir Elskulegur eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir og afi, GUÐJÓN ANTONSSON frá Skeggjastöðum, Vestur-Landeyjum, varð bráðkvaddur miðvikudaginn 29. maí. Útför hans fer fram frá Akureyjarkirkju, Vestur-Landeyjum, laugardaginn 8. júní klukkan 14. Svanborg E. Óskarsdóttir Ólöf Mjöll Guðjónsdóttir Halldór Kristinn Guðjónsson Erla Magnúsdóttir Anton Vignir Guðjónsson Nína Guðrún Guðjónsdóttir Arnar Gíslason Eygló Þóra Harðardóttir Sigurður Einar Vilhelmsson Óskar Rúnar Harðarson Jóna Dóra Óskarsdóttir Arnfríður Kristrún Sveinsd. Magnús Gabríel Haraldsson og barnabörn

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.