Morgunblaðið - 04.06.2019, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 04.06.2019, Blaðsíða 18
18 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 4. JÚNÍ 2019 ✝ Gunnar Ragn-arsson fæddist í Lokinhamradal í Arnarfirði 20. júní 1926. Hann lést á Landspítalanum við Hringbraut 20. maí 2019. Gunnar var son- ur hjónanna Krist- ínar Sveinbjörns- dóttur húsfreyju, f. 8.12. 1899, d. 13.8. 1977, og Ragnars Guð- mundssonar frá Meðaldal í Dýrafirði, f. 9.9. 1900, d. 27.1. 1963, oddvita í Auðkúluhreppi og bónda á Lokinhömrum og síðar Hrafnabjörgum. Gunnar var næstelstur níu alsystkina. Þau eru: Sigríður, f. 1924, d. 1998, Ólafur, f. 1927, d. 1948, Guðmundur, f. 1930, d. 1981, Grétar, f. 1933, d. 1952, Anika, f. 1934, gift Guðjóni Ármanni Eyjólfssyni, Berg- þóra, f. 1937, gift Guðjóni Á. Jónssyni, Höskuldur, f. 1942, kvæntur Guðmundu Guð- mundsdóttur, Halla, f. 1943, d. 1950. Hálfsystur Gunnars sam- feðra eru: Sigrún, f. 1934, gift Ragnari Valdimarssyni, og Lilja, f. 1946, gift Baldri Kristjánssyni. Fyrri kona Gunnars var Þórdís Hilmarsdóttir, f. 12.9. farandkennslu, sótti kvöld- skóla á Þingeyri hálfan vetur og var einn vetur á Núpi í Dýrafirði. Eftir það lauk hann kennaraprófi frá Kennara- skóla Íslands og tók stúdents- próf frá Menntaskólanum í Reykjavík utanskóla árið eftir. Hann stundaði nám í tungu- málum og forspjallsvísindum við Háskóla Íslands og nam ensku, listasögu og heimspeki við Edinborgarháskóla. Þaðan lauk hann M.A. Honours-prófi með heimspeki sem aðalgrein sumarið 1955. Eftir heimkom- una vann hann á Lands- bókasafni Íslands, kenndi við Kennaraskólann og Náms- flokka Reykjavíkur. Hann stundaði framhaldsnám við McGill-háskóla í Montreal í Kanada veturinn 1958-1959. Eftir það vann hann um hríð í gjaldeyriseftirliti Seðlabank- ans og kenndi dönsku við Menntaskólann í Reykjavík. Árið 1963 varð hann skóla- stjóri grunnskólans í Bolung- arvík og gegndi því starfi til ársins 1991. Eftir að Gunnar fór á eftirlaun fékkst hann við þýðingar og þýddi fjölmörg þekkt heimspekirit. Hann kynnti sér menntunarheim- speki Johns Deweys við Cent- er for Dewey Studies í Car- bondale í Illinois í Banda- ríkjunum og gerði auk þess nokkra útvarpsþætti um heim- spekileg efni. Útför Gunnars fer fram frá Fríkirkjunni í Reykjavík í dag, 4. júní 2019, klukkan 15. 1930, d. 10.7. 2013. Þau skildu. Þeirra dóttir er Margrét, f. 30. janúar 1953. Eftir- lifandi eiginkona Gunnars er Anna Sigríður Skarp- héðinsdóttir kenn- ari, f. í Reykjavík 5. apríl 1932. Þau gengu í hjónaband árið 1957. Börn Gunnars og Önnu eru: 1) Helga Kristín, f. 14. júní 1957, gift Þorleifi Óskarssyni, f. 6. mars 1958. Börn þeirra eru: a) Gunnar Már, f. 1989. Sam- býliskona hans er Birna Er- lingsdóttir, f. 1989. Þau eiga eina dóttur, Hörpu Sigríði, f. 2015, og b) Óskar Helgi, f. 1996, í sambúð með Söru Þ. Finnbogadóttur, f. 1997. 2) Vilhjálmur, f. 18. mars 1959. Fyrri kona hans var Zuilma Gabríela Sigurðardóttir, f. 1962. Þau skildu. Sonur þeirra er Ari Þór, f. 1981. Seinni kona Vilhjálms er Liming Dai, f. 1974. Gunnar ólst upp á Lokin- hömrum til 14 ára aldurs þeg- ar fjölskyldan flutti á Hrafna- björg. Hugur hans stóð til mennta en í upphafi var skóla- gangan þó stopul. Hann fékk Gunnar, tengdafaðir minn, var um margt merkilegur maður. Hann ólst upp í afskekktri sveit, Lokinhamradal í Arnarfirði, þar sem hvorki var rafmagn né renn- andi vatn og samgöngur með eindæmum erfiðar. Hann fór ungur að slá með orfi og ljá, sækja sjóinn og vinna önnur störf sem sinna þurfti á stóru fjárbúi. Hann hafði reyndar eng- an áhuga á sauðfé eða búskap en sjómennskan höfðaði til hans. Sjósókn varð þó ekki hlutskipti hans, hann vildi ganga mennta- veginn og foreldrar hans studdu hann í því enda var Gunnar ein- stökum gáfum gæddur. Ungur að árum var hann látinn kenna systkinum sínum því ekki var auðvelt fyrir farkennarann að komast til þeirra um torfærar vegleysur. Einnig kenndi hann öðrum börnum í Arnarfirði með leyfi skólayfirvalda. Skólaganga Gunnars hófst í kvöldskóla á Þingeyri í hálfan vetur og eftir það fór hann í Hér- aðsskólann á Núpi í Dýrafirði. Þaðan lá leiðin til Reykjavíkur og þar lauk hann kennaraprófi og stúdentsprófi. Þá lagði hann stund á ensku, dönsku, frönsku og forspjallsvísindi í Háskóla Ís- lands og fór eftir það til Ed- inborgar þar sem hann lauk námi í heimspeki frá Edinborgarháskóla. Árið 1963 fékk Gunnar skjólastjórastöðu í Bolungarvík og fluttu þau Anna vestur með tvö ung börn. Þar áttu þau far- sælan feril, en Anna kenndi við skólann frá fyrstu tíð. Gunnar hafði ekki hugsað sér að vera í Bolungarvík til frambúðar. Sú varð þó raunin því þar voru þau hjónin í tæpa þrjá áratugi. Fljót- lega fór hann að fást við þýð- ingar öll sumur og lagði grunn- inn að því þýðingarstarfi sem hann vann að í 30 ár eftir að hann fór á eftirlaun. Gunnar var víðsýnn skólamað- ur og kom því m.a. á að farið var að kenna ensku strax á barna- stigi. Hann kenndi alltaf með- fram skólastjórastarfinu, m.a. ensku og mannkynssögu og síðar einnig heimspeki við Mennta- skólann á Ísafirði. Heimili þeirra hjóna fyrir vestan var gestkvæmt, enda voru þau höfðingjar heim að sækja. Þar var mikið spjallað, einkum um skólamál, bókmennt- ir og heimspeki. Gunnar var skemmtilegur viðræðu og áhuga- samur um menn og málefni. Anna og Gunnar nutu þess að ferðast um landið. Mér er minn- isstæð ferð sem við fórum með þeim inn á hálendi Austfjarða á 85 ára afmælisdaginn hans. Þá var m.a. komið við á Kárahnjúk- um en Gunnar vildi sjá með eigin augum þá umdeildu virkjun sem þar var reist. Þegar þau hjónin fluttu til Reykjavíkur urðum við Helga þeirrar gæfu aðnjótandi að hafa þau fyrir nágranna. Í Eskihlíð 10 var alltaf opið hús fyrir syni okk- ar frá unga aldri. Gunnar og Anna létu sér einstaklega annt um þroska þeirra og menntun, kenndu þeim og fylgdust með þeim alla tíð. Verður aldrei nóg- samlega þakkað fyrir þann mikilvæga þátt sem þau áttu í uppeldi þeirra. Að leiðarlokum – þegar ég minnist Gunnars – bregður fyrir í huganum mynd af honum, full- um af eldmóði, við tölvuna í her- berginu þar sem veggir eru þaktir bókum. Heimspeki og menntunarmál voru Gunnari alla tíð ástríða og á því sviði auðn- aðist honum að fá miklu áorkað. Blessuð sé minning hans. Þorleifur Óskarsson. Mætur maður er fallinn frá. Við þau tímamót er mér ljúft að minnast einstaklega góðrar við- kynningar við Gunnar Ragnars- son og konu hans, Önnu Skarp- héðinsdóttur, en þeim sóma- hjónum kynntist ég, unglingur að aldri, er ég dvaldi á heimili þeirra í Bolungarvík fyrir hálf- um fimmta áratug. Ég hafði eignast dóttur þeirra, Helgu Kristínu, að vinkonu í mennta- skóla og ekki kom annað til greina af þeirra hálfu en að ég byggi hjá þeim þegar til tals kom að ég réðist með vinkonu minni vestur til að vinna þar sumar- langt „í fiski“. Það var með smá- vegis fiðring í maganum sem ég fór vestur en allur ótti reyndist sannarlega ástæðulaus: þarna var ég aufúsugestur og naut mikillar gestrisni og vinsemdar. Heimilið var skemmtilegt, bæk- ur úti um allt svo að ekki þurfti einu sinni að fara á bókasafnið og þar datt ég sannarlega í lukkupottinn. Samræðurnar á skólastjóraheimilinu voru líka auðgandi og oft „heimspekileg- ar“ enda húsbóndinn hámennt- aður heimspekingur. Ekki var þó blaðrað að óþörfu, Gunnar var fremur fámáll og gekk oft hummandi um gólf í þungum þönkum en fylgdist þó betur með en mann grunaði því að hann skaut gjarnan inn í sam- ræðurnar smellnum athuga- semdum öllum að óvörum. End- aði sumarið með heimsókn foreldra minna, sem voru jafn- velkomin og ég, er þau komu vestur að sækja mig og var fast- mælum bundið að þetta yrði ekki síðasta heimsóknin. Reyndar var ég líka heimagangur á „auka- heimili“ þeirra hjóna í Reykjavík þar sem kynnunum var viðhaldið enda þurftum við Helga ekkert smávegis að spjalla öll mennta- skólaárin. Svo kom að því að fara aftur vestur í lok menntaskólans til að afla skotsilfurs til fyrirhug- aðrar Frakklandsferðar okkar Helgu – og ekki var við það kom- andi, frekar en fyrri daginn, að fá að endurgjalda greiðann með nokkru móti. Þessi vetrarheim- sókn, sem stóð eitthvað á annan mánuð, er mér, borgarbarninu, einnig ógleymanleg: að vaða skafla upp í mið læri, vera send heim úr frystihúsinu um miðjan dag í rökkrinu þegar rafmagnið fór, sitja við kertaljós og prjóna og svo fljúgandi glerið í órahárri Óshlíðinni ef menn brugðu sér af bæ inn á Ísafjörð. Allt er þetta sem gerst hafi í gær. Ég hef engu að síður átt því láni að fagna að hafa fylgst með þeim hjónum af og til í áranna rás og alltaf hefur verið sérlega ánægjulegt að hitta þau og sjá hversu hress og ræðin þau hafa verið þrátt fyrir hækkandi aldur. Það er ekki fyrr en á allra síð- ustu misserum sem Gunnar fór að kenna heilsubrests en andlegt atgervi hans var alla tíð ósnert. Ég verð þessum einstöku vel- gjörðarmönnum mínum ætíð ein- læglega þakklát fyrir að hafa opnað mér heimili sitt á þeim miklu mótunarárum sem ung- lingsárin eru. Það hefur vafa- laust haft meiri áhrif á mig en ég hef nokkurn tíma almennilega gert mér grein fyrir. Hjartans Anna, Helga, Villi og aðrir aðstandendur. Þið fáið mínar innilegustu samúðarkveðjur í þeirri von að minningarnar um merkan mann og kæran eigin- mann, föður, afa og vin megi milda söknuðinn og verða að fjársjóði sem hvorki mölur né ryð fær grandað. Áslaug J. Marinósdóttir. Hann stendur álútur og styð- ur hægri hendi á borðplötuna undir kaffikönnu kennarastof- unnar, setur á tölu um fánýti mannlegrar tilveru þegar sóst er eftir eintómum hégóma – og kveður fast að orði. Nei, hér er ekki á ferðinni neitt slitrótt muldur í barm sér. Hvert einasta hljóð tungunnar hljómar svikalaust „svo að heyr- ist í gegnum brimgnýinn og eld- gosadrunurnar“ eins og segir á einum stað. Af sjálfu leiddi, að Gunnar Ragnarsson var áheyri- legastur upplesari einhver, sem hugsast gat. Mér er sem ég heyri enn þá flugið í flutningn- um, þegar hann las sögu af dýru brauði: „Því sem manni er trúað fyrir, því er manni trúað fyrir … Héld maður þurfi ekki einlægt að vera að éta, sagði konan. Það er ósiður … Og ég veit ekki fyr, segir konan, en mig er farið að lánga í kaffi.“ Gunnar var fullkomlega laus við hvers konar uppskafnings- hátt, dyndilmennsku og smjaður. Svo hreinskilinn var hann og falslaus, að ýmsum mun hafa þótt nóg um; Bolvíkingar höfðu þó margir munninn fyrir neðan nefið sjálfir. Haft var eftir barn- krakka langt innan við fermingu: „Gunnsi skólastjóri! Maður segir nú bara nokkur vel valin orð við hann og svo steinheldur hann kjafti!“ Óþarft að taka fram, að bragðið mundi fráleitt hafa lán- ast þótt beitt hefði verið, sem reyndar ekki var. Andlegt atgervi hans var af þeirri stærðargráðu, að dr. Broddi heitinn skólastjóri Kenn- araskólans mun hafa látið svo um mælt, að nemanda á borð við Gunnar fengju skólastofnanir inn fyrir dyr hjá sér einu sinni á öld. Lærisveinninn skrifaði seinna snilldargrein um meistara sinn, sem hann mat mest allra manna. Ég hygg, að Gunnar hafi verið músíkalskur að hófi; mér er raunar nær að halda að hann hafi verið laglaus. Þeim mun meira undur að sonarsonur hans skuli einn flinkastur íslenskra fiðluleikara, sem nú eru á dög- um. En afi drengsins í móður- ætt, erlendur maður, mun hafa verið virtúós á þetta viðkvæma hljóðfæri. Gunnar samdi bók um ensk- ameríska heimspekinginn A.N. Whitehead. Þá þýddi hann með ágætum á íslensku ritið „Sam- ræður um trúarbrögðin“ eftir skoska heimspekinginn David Hume (1711-1776), sem talinn hefur verið fremstur hugsuða á Bretlandseyjum. Hann kenndi, að gagnslaust væri að freista þess að útlista reynslu manna með því að vísa til hins yfirnátt- úrulega. Nær væri að einbeita sér að lífinu hérna megin grafar og deyja síðan án uggs og ótta. Víst er, að prestum við Djúp var betra að vera ekki að marki slak- ir í trúfræðinni, ef rökrætt skyldi við skólastjórann í Vík- inni. Þau hjón Anna og Gunnar voru samhent og starfshættir í skólanum í Bolungarvík mjög vandaðir. Anna kenndi íslensku og bókmenntir með mikilli hind, nákvæm og gjörhugul í hvívetna. Mér er til efs að margir lesendur Gunnar Ragnarsson ✝ Guðbjörg EddaGuðmunds- dóttir, Didda, fædd- ist í Keflavík 20. janúar 1936. Hún lést á hjúkrunar- heimilinu Hrafnistu í Garðabæ 24. maí 2019. Foreldrar henn- ar voru Guðmundur Alfreð Finnboga- son, fræðimaður og ættfræðingur frá Tjarnarkoti í Innri-Njarðvík, f. 8. nóvember 1912, d. 19. apríl 1987, og Guð- laug Ingveldur Bergþórsdóttir frá Suðurgarði í Vestmanna- eyjum, f. 18. nóvember 1908, d. 4. apríl 1985. Systkini Diddu: Drengur (óskírður) f. 22. nóvem- ber 1933, d. 27. mars 1934, Stef- anía, f. 28. október 1934, d. 1. ágúst 2018, Finnbogi Geir, f. 4. október 1937, Laufey Ósk, f. 10. september 1940, Jón Björgvin, f. 16. desember 1941, d. 27. apríl 1942, og Jón Már, f. 16. ágúst 1943. Árið 1958 kynntist Didda Búa Jóhannssyni, f. 25.7. 1931, d. 13.3. 2001. Þau slitu samvistum árið 1966. Þeirra börn: 1) Aldís Búadóttir þroskaþjálfi, f. 2.3. 1961. Börn hennar og Heimis Sigursveinssonar trésmíðameist- ara, f. 15. maí 1959, eru a) Eva Dís, f. 2. júní 1982, unnusti henn- ar er Pawel Radwanski, f. 6. september 1985. b) Íris Edda, f. 8. febrúar 1984, unnusti hennar er Atli Ævar Ingólfsson, f. 6. maí 1988. c) Karítas, f. 18. apríl 1990, unnusti hennar er Magnús Mar- geir Stefánsson, f. 9. maí 1986. d) Diljá, f. 19. júní 1992, unnusti hennar er Árni Freyr Ásgeirs- son, f. 10. mars 1992. 2) Jóhann Búason rafvirki, f. 31.1. 1965. Börn hans og Eyglóar Sigtryggs- dóttur stuðningsfulltrúa, f. 1. febrúar 1964, eru a) Katrín, f. 12. janúar 1990, sambýlismaður hennar er Aðalsteinn Ólafsson, f. 19. ágúst 1977. b) Bjarki, f. 9. ágúst 1997, sambýliskona hans er Aleksandra Klara Wasilewska, f. 27. júní 1996. Árið 1975 giftist Didda Sigurði Magnússyni, f. 13. mars 1934, d. 3. nóvember 2009. Þau slitu samvistum 1986. Þeirra sonur er Sigurður Fjalar verkfræðingur, f. 9. apríl 1979. Börn hans og unnustu hans, Hildar Guðnýjar Ásgeirsdóttur sjúkra- þjálfara og lýðheilsufræðings, eru Ásgeir Gauti, f. 28. júní 2017, fyrir á Sigurður Fjalar Ylfu Mar- gréti, f. 2. febrúar 2012, af fyrra sambandi. Börn Sigurðar af fyrra hjónabandi eru Magnús rafvirkjameistari, f. 18. ágúst 1953, Anna Guðrún lífeindafræð- ingur, f. 22. mars 1956, Sigríður kennari, f. 16. júlí 1957, Halldór Sigurður lyftusérfræðingur, f. 11. ágúst 1963, Esther hár- greiðslumeistari, f. 23. júlí 1966. Didda lagði fimmtán ára að aldri upp í ferðalög til ýmissa landa þar sem hún vann við þrif á sjúkrahúsum, s.s. í Svíþjóð og Englandi, ásamt því að vinna sem nokkurs konar au pair hjá hjón- um í Kaliforníu í Bandaríkjunum um tíma. Hún vann við sím- svörun á Hreyfli um átta ára skeið. Um 1975 vann hún sem hótelstýra á Raufarhöfn og nokkru síðar sem starfsmaður í loðnubræðslu Síldarverksmiðju ríkisins á Siglufirði. Í byrjun ní- unda áratugarins var hún sauð- fjár- og refabóndi í Lyngási í Kelduhverfi. Síðustu starfsárin vann hún við umönnun, meðal annars á dvalarheimili aldraðra á Blesastöðum í Skeiða- og Gnúp- verjahreppi og síðan í Arnarholti á Kjalarnesi á meðan það þjónaði sem endurhæfingarstöð fyrir geðfatlaða. Síðustu árin átti hún við veikindi að stríða. Útför Diddu fer fram frá Digraneskirkju í dag, 4. júní 2019, klukkan 15. Elsku amma Didda, með hár úr silfri og hjarta úr gulli. Við kveðjum þig með sorg í hjarta og með tár á hvarmi en um leið vaknar eilítið bros á vör þeg- ar við hugsum til þess að nú sért þú komin á góðan stað. Við áttum margar góðar stundir með ömmu Diddu. Það var alltaf stutt í brosið hjá þér, elsku amma. Þú varst alltaf svo góð við okkur, tókst á móti okkur með hlýjan faðm og með bros á vör. Börnunum okkar, barna- barnabörnunum þínum, þótti alltaf gaman að koma til þín því að þú söngst fyrir þau og lékst þér við þau. Umhyggjusemi og vinsemd var alltaf að finna hjá þér, elsku amma. Þú hafðir einn- ig mikinn áhuga á að vita hvernig okkur vegnaði í lífinu, hvort sem það sneri að skóla, íþróttum eða áhugamálum. Þú varst alltaf stórglæsileg með stórt hjarta, elsku amma. Þú hafðir sterkar skoðanir sem fengu okkur oft til þess að fara dýpra í samræður og spjall um daginn og veginn og þá fengum við sögur af þér sem við hlust- uðum á hugfangnar. Þú varst samkvæm sjálfri þér og hrein- skilin og alltaf góð við okkur, með kaffi tilbúið og tilbúin í spjall. Þú varst hörkudugleg, mikil fyrirmynd og gafst frá þér já- kvæða orku hvert sem þú fórst. Við litum alltaf mikið upp til þín, bæði varstu alltaf svo vel til höfð og falleg á sama tíma og þú varst yfirveguð, hlýleg og góð. Margar minningar skjótast í kollinn þegar við hugsum um þig, elsku amma, en það sem stendur upp úr er tilfinningin sem við finnum þegar við hugsum um þig. Tilfinningin er svo ljúf, góð, hlý og falleg, allt á sama tíma. Takk fyrir allt saman, elsku amma okkar. Við munum sakna þín þangað til við hittum þig næst. Þínar, Eva Dís, Íris Edda, Karitas, Diljá. Guðbjörg Edda Guðmundsdóttir Virðing, reynsla & þjónusta Allan sólarhringinn 571 8222 Svafar: 82o 3939 Hermann: 82o 3938 Ingibjörg: 82o 3937 www.kvedja.is svafar & hermann Sálm. 10.14 biblian.is Þú gefur gaum að mæðu og böli og tekur það í hönd þér. Hinn bágstaddi felur þér málefni sitt, þér sem hjálpar munaðarlausum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.