Morgunblaðið - 04.06.2019, Blaðsíða 22
22 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 4. JÚNÍ 2019
ENGINN
ÐBÆTTUR SYKUR
ENGIN
ROTVARNAREFNI
85%
TÓMATPÚRRA
VI
60 ára Sigurbjörg er
Akureyringur en býr í
Hveragerði. Hún er
stuðningsfulltrúi í
Grunnskólanum í
Hveragerði. Hún er í
kirkjukórnum í Hvera-
gerði.
Maki: Haraldur Guðmundsson, f. 1959,
skógfræðingur og sjálfstætt starfandi
verktaki.
Börn: Guðmundur Helgi, f. 1989, Róbert
Smári, f. 1995 og Sólveig Diljá, f. 1997.
Barnabörn: Elmar Þór Róbertsson, Har-
aldur Nökkvi Guðmundsson og Evían
Máni Róbertsson.
Foreldrar: Þorsteinn Leifsson, f. 1925,
d. 2018, bifreiðastjóri á Akureyri, og
Hrafnhildur Baldvinsdóttir, f. 1930,
íþróttakennari á Akureyri. Hún er búsett
þar.
Sigurbjörg
Þorsteinsdóttir
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Það gerir engum gott að loka sig of
lengi af frá umheiminum. Hertu upp
hugann, þú þarft ekkert að óttast.
20. apríl - 20. maí
Naut Þú þarft að beita hugkvæmni þinni til
þess að hlutirnir fari að ganga á nýjan leik.
Lærðu að þekkja takmörk þín og stattu
vörð um sjálfa/n þig.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Ástvinir þínir eru ávallt tilbúnir að
styðja þig. Komdu vinum þínum á óvart
með heimboði. Þér eru allir vegir færir.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Einhver sem býr yfir meiri reynslu
getur gefið þér góð ráð. Enginn verður
óbarinn biskup.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Að vera vel undirbúin/n er lykillinn að
sjálfstrausti þínu. Nú er rétti tíminn til þess
að undirbúa gott ferðalag. Passaðu samt að
hafa dagskrána ekki of skipulagða.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Þú kemst að óvæntum leyndar-
málum í dag. Til þess að fá sem mest út úr
deginum þarf að vakna snemma og hefjast
strax handa.
23. sept. - 22. okt.
Vog Það getur verið gaman að fara ótroðn-
ar slóðir en til þess þarf bæði kjark og
þrautseigju. Leyfðu vinum þínum að um-
vefja þig kærleika.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Það er óþarfi að burðast með
allar heimsins áhyggjur á bakinu. Ekki vera
of gagnrýnin/n og ekki reyna að breyta
náunganum.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Í lífinu er mikilvægt að gæta
jafnvægis. Hreinskilni borgar sig alltaf, ann-
ars kemstu í vítahring sem erfitt getur verið
að brjótast úr úr.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Yfirmenn þínir munu hugsanlega
gera auknar kröfur til þín í dag. Láttu einka-
málin hafa forgang utan vinnutíma. Þú færð
boð í brúðkaup.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Þú þarft að verja sjálfa/n þig
betur og hætta að hafa svona miklar
áhyggjur af fólki sem þér finnst einblína á
þig. Farðu samningaleiðina þegar þess þarf.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Þú átt gott samtal við einhvern sem
þér þykir mjög vænt um. Sýndu vinsemd og
segðu það sem eykur vellíðan, Þú færð
fréttir sem koma eins og köld vatnsgusa
framan í þig.
S
igurður Reynir Halldórs-
son fæddist 4. júní 1949 á
Krossi í Lundarreykja-
dal og ólst þar upp.
Sigurður var bóndi og
tamningamaður á Krossi í sex ár, á
Skarði II í átta ár og á Gullbera-
stöðum frá 1989. Hann hefur því
ávallt verið búsettur í Lundar-
reykjadal. „Við erum núna með 30
hross og 280 kindur vetrarfóðrað.“
Sigurður vann á tilraunabúinu á
Hesti. „Þar kynntist ég snillingum
og vísindamönnum eins og Einari
E. Gíslasyni á Syðra-Skörðugili,
Halldóri Pálssyni búnaðarmála-
stjóra og Stefáni Scheving til-
raunastjóra og lærði margt um bú-
fjárhald, um fólk, lífið og tilveruna.
„Ég var síðan hjá Reyni Aðalsteins-
syni á Sigmundarstöðum við tamn-
ingar. Það var frábær lærdóms- og
reynslutími. Hann er gríðarlegur
hestamaður, hann Reynir.“
Sigurður keppti á landsmótum
frá 1974 til 2000, og dæmdi líka í
gæðingakeppnum og íþróttakeppn-
um á félagsmótum og landsmótum.
Hann fór til Kanada tvo sumarparta
ásamt öðrum til að kynna íslenska
hestinn á Toronto-svæðinu og í
Albertafylki hjá Vancover. „Mér var
eiginlega kippt út úr þessu fyrir tíu
árum út af heilsunni, en eiginkona
mín er enn að bauka við tamn-
ingar.“
Í gegnum tíðina hefur Sigurður
komið að félagsmálum, m.a. í Hesta-
mannafélaginu Faxa sem hann kom
á legg, ásamt öðrum, og stofnun
íþróttadeildar innan hestamanna-
félagsins. Hann hefur lengi verið
meðlimur Ungmennafélagsins Dag-
renningar og tekið þátt í uppsetn-
ingu á leiksýningum félagsins, t.d.
Sjálfstæðu fólk, Íslandsklukkunni
og Góða dátanum Svejk, oft í burð-
arhlutverkum og lék m.a. Jón
Hreggviðsson. „Síðast lék hann í
Hafinu eftir Ólaf Hauk Símonarson
árið 2017. Ég vona nú að ég sé
hættur að leika, þetta er komið gott,
en hérna í sveitinni verður maður
að taka þátt í samfélaginu, annars
er ekkert samfélag. Það er ýmislegt
sem manni hefur dottið í hug að
gera og ég hef voða gaman af því að
umgangast skemmtilegar skepnur
Sigurður Halldórsson bóndi – 70 ára
Í Faxaborg Kari með dæturnar þrjár og hryssan til vinstri, Embla, nýbúin að vinna Faxaskeifuna.
Skemmtilegar skepnur og menn
Á Landsmóti Sigurður situr Gleði frá Hvanneyri á Vindheimamelum 1990. Afmælisbarnið Sigurður.
og menn,“ en hann var sem dæmi
með upplestur í vetur í Snorrastofu.
Fjölskylda
Eiginkona Sigurðar og móðir
þriggja dætra hans er Kari Berg, f.
5. janúar 1955, húsfreyja og bóndi.
Foreldrar hennar voru hjónin Ivar
Marinius Berg, f. 27. febrúar 1915,
d. 4. maí 2006, tollvörður og Tordis
Oskarda Vik, f. 20. júlí 1917, d. 21.
júní 1998, húsfreyja og matráður.
Þau voru búsett í Horten í Noregi.
Fyrri eiginkona Sigurðar og móðir
elstu dóttur hans er Björg Þorgils-
dóttir, f. 14. apríl 1953, fyrrverandi
húsfreyja á Sveinsstöðum, nú búsett
á Blönduósi.
50 ára Grímur er Sel-
fyssingur. Hann er
yfirlögfræðingur hjá
Lögreglustjóranum á
Suðurlandi og stað-
gengill Lögreglustjóra.
Hann er aðstoðarþjálf-
ari nýkrýndra Íslands-
meistara Selfoss í handbolta.
Maki: Björk Steindórsdóttir, f. 1969, ljós-
móðir á fæðingardeild LSH og HSu.
Börn: Hildur, f. 1987, Eva, f. 1995, Her-
geir, f. 1997, og Ragnheiður, f. 2005.
Barnabörn: Jakob Máni og Aron Logi
Hafþórssynir og Hildar, og Hergeir Þór
Elíasson og Hildar, sem fæddist andvana
24.5. 2019.
Foreldrar: Hergeir Kristgeirsson, f. 1934,
rafvirkjameistari og lögreglumaður, bús.
á Selfossi, og Fanney Jónsdóttir, f. 1933,
d. 2017, vann m.a. við umönnunarstörf.
Grímur
Hergeirsson
Til hamingju með daginn
Börn og brúðhjón
Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu
er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks,
svo sem stórafmælum, hjónavígslum,
barnsfæðingum og öðrum tímamótum.
Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum
borgara eða mynd af brúðhjónum fá fría
áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni
mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is